Morgunblaðið - 21.02.2015, Page 21
FRÉTTIR 21Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 2015
„Þetta er gamall draumur og
menn sýna þessu mikinn áhuga,“
segir Haukur Már Haraldsson,
sem er í undirbúningshópi fyrir
stofnun Prentsöguseturs, sem nú
er að verða að
veruleika. Hald-
inn verður stofn-
fundur Prent-
sögusetursins kl.
13 í dag í fund-
arsal Lands-
bókasafns í Þjóð-
arbókhlöðunni.
Hópur áhuga-
fólks hefur und-
anfarin misseri
kannað mögu-
leika á að setja á stofn safn eða
setur til að halda á lofti þróun
prentlistar á Íslandi, frá stofnun
prentsmiðjunnar á Hólum í Hjalta-
dal fyrir miðja sextándu öld til
dagsins í dag. Á kynningarsíðu
hafa nú liðlega 150 einstaklingar
lýst áhuga sínum á þessu verkefni.
Starf þessa hóps hefur nú leitt
til þess að talið er tímabært að
stofna formlega Prentsögusetur,
sem ætlað er að gera skil þróun í
setningu, skeytingu, prentun og
bókbandi, þ.e.a.s. prentverki og
bókagerð. Haukur Már segir að nú
sé búið að útvega húsnæði fyrir
Prentsögusetrið á Eyrarbakka, í
gamla frystihúsinu og verður setr-
ið hluti af annarri starfsemi. Þar
er nú í gangi uppbygging húsnæð-
isins fyrir fjölbreytta starfsemi,
sem er ekki síst miðuð við ferða-
menn.
Á Haukur Már von á að þar geti
allt verið tilbúið eftir eitt og hálft
til tvö ár. Væntanlegt Prent-
sögusetur verði þannig hluti af lif-
andi og ferðamannamiðaðri starf-
semi, í samvinnu við verkefnið
Bókabæirnir austan fjalls og aðra
starfsemi.
Markmið og framtíðarsýn þeirra
sem unnið hafa að málinu gera ráð
fyrir aðstöðu til fræðslu- og rann-
sóknarstarfa og að í setrinu verði
notuð fullkomin tækni til að sýna
verklag og þróun. Mun Björn
Björnsson sýna ýmsa möguleika til
þess á stofnfundinum í dag. Hauk-
ur Már segir að í safninu megi
m.a. sýna mörg gömul tæki og
verkfæri sem hafa verið varðveitt
en menn séu ekki síður með í huga
að geta sýnt prentgripina. „Segja
má að þetta sé saga bókarinnar
sem byrjar með prentsmiðjunni á
Hólum um 1540,“ segir hann.
omfr@mbl.is
Gamall draumur
verður að veruleika
Prentsögusetur stofnað í dag
Haukur Már
Haraldsson
Benedikt Bóas
benedikt@mbl.is
„Vegurinn hefur verið stofnbraut í rúm 50
ár. Það hefur ekkert breyst og er ekkert að
fara að breytast,“ segir Jóhann Bjarni
Skúlason, yfirverkstjóri hjá Vegagerðinni,
en nýverið skiluðu íbúar við Mosfellsdal
mótmælum á bæjarskrifstofu Mosfellsbæjar
þar sem áformum Vegagerðarinnar, um að
Þingvallavegurinn verði stofnbraut til fram-
tíðar, var mótmælt. Jóhann Bjarni segir að
umgjörðin sé að breytast en ekki vegurinn.
Deilur vegna Þingvallavegar hafa verið ára-
tugalangar og sáttatónn lítill hjá íbúum sem
vilja helst losna við veginn.
Jarðvegur fyrir samvinnu
Nú er hinsvegar byrjað að setja deili-
skipulag á blað og er verið að undirbúa
jarðveginn fyrir samvinnu Vegagerðarinnar
og íbúa. „Þannig að framtíðarsýnin sé sam-
eiginleg,“ segir Jóhann Bjarni. Þingvalla-
vegur hefur lengi verið í umræðunni og
hafa íbúar í Mosfellsdal aldrei tekið veginn í
sátt.
Hafa þeir kvartað yfir að þarna sé mikill
hraðakstur stundaður og að gestir landsins
sem ætla að skoða Gullna hringinn fari í
gegnum dalinn. Ein tillagan snýr að því að
fá hraðahindrun í dalinn.
„Það er algjör neyðaraðgerð eins og er til
dæmis í gegnum Borgarnes. Þar var enginn
önnur lausn en fyrst og fremst er þessi veg-
ur án hraðahindrana vegna neyðarbíla – að
þeir geti ekið án hindrana.“ Hann bendir á
að hringtorg komi til greina nálægt gatna-
mótunum við Gljúfrastein.
„Það er ofarlega í forgangslistanum að
setja hringtorg þar sem er stór þvervegur
sem liggur að nokkrum heimilum. Hring-
torg væri heppilegt til að ökumenn áttuðu
sig á því að þarna er verið að koma inn í
öðruvísi byggð,“ segir Jóhann Bjarni.
Hringtorg en ekki hraðahindrun
Morgunblaðið/Ómar
Mótmælt Íbúar í Mosfellsdal mótmæla hraðakstri um dalinn árið 2013.
Morgunblaðið/Ernir
Hámark Í dalnum er 70 kílómetra hámarkshraði sem sjaldan er virtur að sögn íbúa.
Nú skiptir hvert kíló máli
Sími: 528 8800
drangey.is
Smáralind
Stofnsett 1934
Töskur
Hanskar
Seðlaveski
Ferðatöskur
Tölvutöskur
Belti
Skart og skartgripaskrín
Góðar vörur
Sanngjarnt verð
Persónuleg þjónusta
Kíktu inn á drangey.is
15% afsláttur
af tauferðatöskum
Ítarlegar upplýsingar á
drangey.is/ferdatoskur
SEPP
St. 42cm
ED
St. 38cm SAGGO
St. 37cm
OM
St. 35cm
Við borðum
áhyggjurnar þínar!
ÁHYGGJUÆTUR
NÝTT
POLLI
St. 42cm
FLINT
St. 33cm
Fæst í Hagkaup www.nordicgames.is