Morgunblaðið - 21.02.2015, Síða 27
27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 2015
Kempur Þeir Raggi Bjarna, Ómar Ragnarsson og Þorgeir Ástvaldsson fóru á kostum í gær á sögutónleikum í Salnum. Þeir sungu sín vinsælustu lög og sögðu sögurnar á bak við þau.
Árni Sæberg
Landsvirkjun verð-
ur að hysja upp um
sig og uppfylla fyrr en
seinna meira en tutt-
ugu ára gamalt loforð
um fiskveg gegnum
stífluna sem skilur að
Efra-Sog og Þing-
vallavatn. Einungis
þannig er hægt að
endurheimta hrygn-
ingarstöðvar stór-
urriðans sem töpuðust með virkjun
árinnar 1959. Stórurriðinn í
Þingvallavatni er ekkert venjulegur
urriði. Hann er eini stofninn í
heiminum sem lifað hefur í algerri
einangrun frá öðrum stofnum síðan
ísöld slotaði. Hann er líka stór-
vaxnasti stofn sem sögur fara af,
núlifandi og dauðra, og verður að
meðaltali þriðjungi stærri en Hun-
der-stofninn í Mjösa, Noregi, sem
þó er oft tekinn sem dæmi um ein-
staklega stórvaxinn stofn. Þingval-
laurriðinn er því fágæt gersemi
sem mikilvægt er að tryggja
öruggt framhaldslíf. Besta leiðin til
þess er fiskvegur í Efra-Sog og í
framhaldinu endurreisn gömlu
hrygningarstöðvanna.
Skýr fyrirmæli Alþingis
Loforð Landsvirkjunar kom upp-
haflega fram þegar ég var um-
hverfisráðherra 1993-1995. Áður,
þegar allt benti til að urriðinn væri
að deyja út, hafði ég reifað þá hug-
mynd á Alþingi að stíflan yrði fjar-
lægð og Efra-Sog sett í sitt upp-
haflega horf. Á þessum árum hlaut
þetta viðhorf stuðning ráðherra í
tveimur ríkisstjórnum og þing-
manna samtals fjög-
urra stjórnmálaflokka.
Loforð Landsvirkj-
unar var því efalítið
sett fram til að deyfa
kröfur um að virkj-
unin yrði fjarlægð.
Fyrirtækinu til hróss
má segja að upp frá
því hefur það svarað
margháttaðri gagnrýni
á aðgerðaleysi and-
spænis yfirvofandi út-
rýmingu urriðans með
ýmsum mikilvægum
aðgerðum og þátttöku í rann-
sóknum. Landsvirkjun tók meðal
annars fyrsta skrefið að fiskvegi
með því að hleypa á nýjan leik svo-
litlu rennsli á Efra-Sogið sem þá
hafði mátt ganga skraufþurrt um
áratugaskeið. Að sönnu er rennslið
ekki mikið, aðeins 1/20 af vatns-
magni Efra-Sogs fyrir virkjun, en
miklu meira en nóg til að koma þar
upp stórum hrygningarstofni ef
aðrar aðgerðir fylgja í kjölfarið.
Fiskvegurinn virðist hins vegar
hafa lent í varanlegri útideyfu. Tíu
árum eftir að Landsvirkjun lofaði
honum var framkvæmdin ekki
komin lengra en í skoðun. Það kom
fram í umræðum okkar Davíðs
Oddssonar, þáv. forsætisráðherra,
á Alþingi árið 2004. Skortir þó ekki
að síðan hafa bæði Þingvallanefnd
og Alþingi lagt sinn atbeina að því
að þrýsta á að Landsvirkjun standi
við orð sín. Þingvallanefnd, undir
vaskri forystu Björns Bjarnasonar,
samþykkti þannig árið 2004 mjög
merkilega 20 ára stefnumótun til
ársins 2024 sem fylgt er í dag, og
þar er fiskvegur í Efra-Sog skil-
greindur sem eitt af meginmark-
miðum til framtíðar. Í fyrra, á
lokadegi vorþings, ítrekaði svo Al-
þingi ótvíræðan vilja sinn með því
að samþykkja einróma þingsálykt-
un að minni tillögu um að fiskveg-
inum yrði hrint í framkvæmd. And-
spænis vilja Alþingis getur því
Landsvirkjun ekki lengur skilað
auðu.
Hervirkin á Þingvallavatni
Stærsti hrygningarstofn stór-
urriða sem þekktist um víða veröld
var í efri hluta Efra-Sogs og úti
fyrir árkjaftinum í sk. Útfalli, eina
afrennsli Þingvallavatns. Upphaf
skipulagðrar ferðaþjónustu fyrir
útlendinga má rekja til þess að
hvaðanæva að úr Evrópu komu
menn þangað til að veiða stærstu
urriða í heimi. Virkjunin drap
þennan mikla stofn bókstaflega á
einu augabragði. Hún olli jafnframt
öðrum stórspjöllum á vatninu. Árið
1959 var sannkallað annus horribil-
is í sögu Þingvallavatns því auk
þess sem skrúfað var, bókstaflega
talað, fyrir Efra-Sogið rauf norð-
anstormur bráðabirgðastíflu fram-
an við nýgerð jarðgöng á sjálfan
þjóðhátíðardaginn með þeim afleið-
ingum að Þingvallavatn fossaði í
tvær vikur niður í Úlfljótsvatn. Það
tók áratugi fyrir lífríkið að ná sér.
Straumkastið reif líka með sér
þykk lög af hrygningarmöl framan
við árkjaftinn og skildi eftir berar
klappir. Öldungis útilokað var að
leifar stofnsins gætu hrygnt þar
áfram. Í kjölfarið var Þingvallavatn
svo notað um áratugi sem miðl-
unarlón fyrir Steingrímsstöð, með
þeim afleiðingum að vatnsborðið
hækkaði og miklar sveiflur fylgdu
á vatnsborðinu. Þær löskuðu, í
sumum tilvikum gjöreyddu, ör-
smáum stofnum stórurriða sem
hrygndu við uppsprettur þar sem
sprungur á hraunbotninum skáru
malbornar strendur. – Ég læt svo
vera að rekja hvaða áhrif þessi
ósköp höfðu á kuðungableikjuna,
helsta veiðifisk stangveiðimanna,
sem upp úr þessu lenti í mesta
basli áratugum saman.
Bleikjurökin
Einu rökin sem ég hefi heyrt
gegn fiskvegi, óformlega eins og
annað sem honum tengist, er að
menn óttist að um hann gæti
bleikja synt úr Úlfljótsvatni upp í
Þingvallavatn, og riðlað þeim fjór-
um bleikjuafbrigðum sem vatnið er
frægt fyrir. Sjálfsagt er að sér-
fræðingar rannsaki það í tætlur,
eins og og allt annað sem þarf að
kanna til þrautar í tengslum við
framkvæmd af þessu tagi. Við
bleikjurökin geri ég hins vegar
þrjár athugasemdir:
Í fyrsta lagi, þá er augljóst að
frá aldaöðli hefur alltaf verið
bleikjurek hina leiðina, þ.e.a.s. úr
Þingvallavatni gegnum Efra-Sog
og niður í Úlfljótsvatn. Vestan við
Útfallið var alltaf, og er enn,
mergð bleikjuseiða, og óhjá-
kvæmilegt annað en straumurinn
niður óbeislaða ána hrifsaði stöðugt
með sér bleikjuseiði og flytti þann-
ig gen Þingvallableikjunnar niður í
Úlfljótsvatn. Vafasamt er því að
ætla að fiskvegur geti spillt
bleikjuarfgerðunum í Þingvalla-
vatni.
Í öðru lagi liggja fyrir rann-
sóknir, sem staðfesta að í Úlfljóts-
vatni er að finna sömu fjögur
bleikjuafbrigðin og eru til staðar í
Þingvallavatni. Þetta kemur fram í
skýrslum sem Veiðimálastofnun
hefur gert. Jafnvel þó að bleikja
kæmist upp í gegnum Efra-Sog
yrði skv. því ekki um neina „erfða-
mengun“ að ræða.
Í þriðja lagi er sá reginmunur á
tegundunum tveimur að urriðinn er
stökkfiskur, en ekki bleikjan. Eng-
inn er ég sérfræðingur um fiski-
stiga og -vegi. Þennan eðlismun
hlýtur þó að vera hægt að nýta til
að hanna fiskveg sem hleypir urr-
iða auðveldlega upp en tálmar för
bleikjunnar. Einhverjir sem betur
þekkja hafa nefnt að væri t.d. neðri
endi fiskvegarins svo sem feti ofar
vatnsborðinu dygði það til að skilja
bleikjuna frá urriðanum.
Ákvörðun, takk!
Eftir 20 ára bið verður Lands-
virkjun að hefjast handa. Úr því
sem komið er væri æskilegast að
hún birti hugmyndir sínar um fisk-
veg, skapi þannig almenningi og
sérfræðingum svigrúm til athuga-
semda, bæði gegn fiskvegi sé and-
staða fyrir hendi, en hugsanlega til
að breyta honum til batnaðar frá
hugmyndum Landsvirkjunar. Í
kjölfar úrvinnslu þeirra þarf svo
ákvörðun, og síðan að láta hendur
standa fram úr ermum. Það er
kominn tími á að Landsvirkjun
gjaldi urriðanum það sem urriðans
er.
Eftir Össur
Skarphéðinsson » Loforð Landsvirkj-
unar var því efalítið
sett fram til að deyfa
kröfur um að virkjunin
yrði fjarlægð.
Össur Skarphéðinsson
Höfundur er alþingismaður og
fyrrverandi utanríkisráðherra.
Fiskvegur í Efra-Sog og Landsvirkjun