Morgunblaðið - 21.02.2015, Blaðsíða 32
32 MESSUR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 2015
AÐVENTSÖFNUÐURINN á Akureyri | Eiðs-
vallagötu 14, Gamli Lundur. Biblíurannsókn
laugardag kl. 11. Guðsþjónusta kl. 12. Barna-
starf.
AÐVENTKIRKJAN í Reykjavík | Ingólfs-
stræti 19, Reykjavík. Biblíufræðsla laugardag
kl. 11. Guðsþjónusta kl. 12. Ræðumaður:
Lilja Ármannsdóttir. Skemmtilegt barna- og
unglingastarf. Umræðuhópur á ensku.
AÐVENTKIRKJAN í Vestmannaeyjum |
Brekastíg 17, Vestmannaeyjum. Guðsþjón-
usta laugardag kl. 12. Bein útsending frá
Reykjavíkursöfnuði
AÐVENTSÖFNUÐURINN á Suðurnesjum |
Blikabraut 2, Keflavík. Biblíufræðsla laug-
ardag kl. 11. Guðsþjónusta kl. 12. Ræðumað-
ur: Jóhann Þorvaldsson
AÐVENTSÖFNUÐURINN í Árnesi | Eyravegi
67, Selfossi. Biblíufræðsla laugardag kl. 10.
Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumaður: Eric Guð-
mundsson. Barna- og unglingastarf.
AÐVENTSÖFNUÐURINN í Hafnarfirði |
Hólshrauni 3, Hafnarfirði. Guðsþjónusta laug-
ardag kl. 11. Ræðumaður: Stefán Rafn Stef-
ánsson. Biblíufræðsla kl. 11.50. Skemmtilegt
barna- og unglingastarf. Umræðuhópur á
ensku. Súpa og brauð eftir samkomu.
AKURINN kristið samfélag | Samkoma kl.
14 í Núpalind 1, Kópavogi. Biblíufræðsla,
söngur og bæn.
ÁRBÆJARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11.
Sr. Þór Hauksson og sr. Kristín Pálsdóttir
þjóna fyrir altari. Kirkjukórinn leiðir safn-
aðarsöng. Organisti Krizstina K. Szklenár.
Fundur með foreldrum fermingarbarna eftir
messu. Gídeonfélagar gefa fermingarbörnum
Nýja testamentið að gjöf. Sunnudagaskólinn á
sama tíma í safnaðarheimili kirkjunnar.
ÁSKIRKJA | Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11 í
umsjá Magnúsar organista, Lindu djákna og
séra Sigurðar. Brúður og bænir, mál og mynd-
ir, tal og tónar.
ÁSTJARNARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11.
Félagar úr eldriborgarafélagi Ástjarnarkirkju
lesa ritningarlestra og leiða sálmasöng við
undirleik Matthíasar V. Baldurssonar. Með-
hjálpari er Sigurður Þórisson og prestur sr.
Ragnar Gunnarsson. Sunnudagaskóli er á
sama tíma undir stjórn Hólmfríðar og Bryndís-
ar. Allir mega mæta með kórónur, í prinsessu-
kjólum, prinsafötum eða öðru sem þeim
finnst konunglegt. Hressing og samfélag á
eftir.
BESSASTAÐAKIRKJA | Skátamessa kl. 14.
Ræðumaður Unnur Flygenring. Sr. Hans Guð-
berg Alfreðsson þjónar fyrir altari. Álftanes-
kórinn syngur, organisti Bjartur Logi Guðna-
son. Að athöfn lokinni verður boðið upp á
kakó og kleinur í Skátakoti.
BESSASTAÐASÓKN | Sunnudagaskóli kl.
11 í Brekkuskógum 1. Umsjón hafa Fjóla og
sr. Hans Guðberg.
BORGARPRESTAKALL | Messa í Borg-
arneskirkju kl. 11. Messa í Borgarkirkju kl.
14. Aðalsafnaðarfundur að lokinni messu.
Organisti Steinunn Árnadóttir. Prestur Þor-
björn Hlynur Árnason.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Fjölskylduguðsþjón-
usta kl. 11. Sr. Sigurður Grétar Helgason
þjónar ásamt Steinunni Leifsdóttur og Stein-
unni Þorbergsdóttur. Organisti er Örn Magn-
ússon. Ávextir og djús á eftir. Tómasarmessa
kl. 20. „Er fyrirgefning raunhæf?“ er yfirskrift
messunnar. Þorvaldur Halldórsson leiðir tón-
listina ásamt sönghópi. Fjölbreytt tónlist og
fyrirbæn. Í lok messunnar er boðið upp á te
og molasopa í safnaðarheimilinu.
BÚSTAÐAKIRKJA | Barnamessa kl. 11.
Daníel og Jónas Þórir leiða stundina. Bibl-
íusaga, söngur og límmiði til að setja á
sunnudagaskólaveggspjaldið. Messa kl. 14.
Sr. Árni Svanur Daníelsson þjónar fyrir altari
og prédikar um snjalltækin og föstuna. Jónas
Þórir leikur á orgelið og félagar úr Gospelkór
Árbæjarkirkju syngja undir stjórn Helgu Vil-
borgar Sigurjónsdóttur. Messuþjónar lesa
bænir og ritningarlestra. Molasopi eftir
messu.
DIGRANESKIRKJA | Messa og sunnudaga-
skóli kl. 11. Prestur sr. Magnús B. Björnsson.
Organisti Bjartur Logi Guðnason. Söngvinir sjá
um sönginn. Súpa í safnaðarsal að athöfn
lokinni.
Dómkirkja Krists konungs, Landakoti |
Messa kl. 10.30, kl. 13 á pólsku og kl. 18 á
ensku. Virka daga kl. 18, og má. mi. og fö. kl.
8, lau. kl. 16 á spænsku og kl. 18 er sunnu-
dagsmessa.
DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11. Karl Sig-
urbjörnsson biskup prédikar og þjónar fyrir alt-
ari. Dómkórinn syngur undir stjórn Kára Þor-
mar dómorganista. Fræðandi barnastarf á
kirkjuloftinu í umsjón Ólafs Jóns og Sigurðar
Jóns. Prests- og djáknavígsla kl. 14. Frú
Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, vígir.
Vígsluþegar: Anna Elísabet Gestsdóttir
djáknakandídat og Ása Laufey Sæmunds-
dóttir guðfræðingur.
FELLA- og Hólakirkja | Guðsþjónusta kl.
11. Sr. Guðmundur Karl Ágústsson þjónar fyr-
ir altari. Kór kirkjunnar syngur dægurlög undir
stjórn Eyþórs Wechner Franzsons. Í tilefni
konudagsins lesa konur ritningarlestra og
bænir og Sigurborg Sveinbjörnsdóttir, fyrrver-
andi leikskólastjóri, flytur hugvekju. Eftir guðs-
þjónustu bjóða karlar upp á vöfflukaffi. Á
sama tíma er sunnudagaskólinn í umsjá Pét-
urs og Hreins.
FRÍKIRKJAN Kefas | Sunnudagaskóli fellur
niður vegna vetrarfrís í grunnskólum.
FRÍKIRKJAN Reykjavík | Guðsþjónusta kl.
14. Séra Hjörtur Magni Jóhannsson predikar
og þjónar fyrir altari. Sönghópur Fríkirkjunnar í
Reykjavík leiðir tónlistina ásamt Gunnari
Gunnarssyni organista. Fermingarbörn og fjöl-
skyldur þeirra eru hvött til að mæta.
GLERÁRKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Gunn-
laugur Garðarsson þjónar og predikar. Kór
Glerárkirkju leiðir söng undir stjórn Valmars
Väljaots. Sunnudagskóli kl. 11. Sameiginlegt
upphaf í messu.
GRAFARVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl.
11. Séra Vigfús Þór Árnason prédikar og þjón-
ar fyrir altari. Kór kirkjunnar syngur. Organisti:
Hákon Leifsson. Sunnudagaskóli kl. 11. Um-
sjón hefur Þóra Björg Sigurðardóttir. Undirleik-
ari: Stefán Birkisson.
GRENSÁSKIRKJA | Morgunverður kl. 10 og
bænastund kl. 10.15. Barnastarf kl. 11 í
umsjá Lellu o.fl. Messa kl. 11. Altarisganga.
Samskot til Hjálparstarfs kirkjunnar. Messu-
hópur þjónar. Kirkjukór Grensáskirkju syngur.
Organisti Ásta Haraldsdóttir. Prestur sr. Ólafur
Jóhannsson. Molasopi eftir messu. Hvers-
dagsmessa með léttu sniði á fimmtudag kl.
18.10. Þorvaldur Halldórsson sér um tónlist.
GRUND dvalar- og hjúkrunarheimili |
Guðsþjónusta í umsjón Félags fyrrverandi
þjónandi presta klukkan 14 í hátíðasal Grund-
ar. Anna Hulda Júlíusdóttir djáknanemi predik-
ar og sr. Úlfar Guðmundsson þjónar fyrir alt-
ari. Grundarkórinn leiðir söng undir stjórn
Kristínar Waage organista.
GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti | Guðs-
þjónusta og barnastarf kl. 11. Prestur sr. Arna
Ýrr Sigurðardóttir, organisti Hrönn Helgadóttir
og kór Guðríðarkirkju syngur. Barnastarf í
umsjá Aldísar R. Gísladóttur og Valbjörns S.
Lilliendahl. Meðhjálpari Kristbjörn Árnason.
Kirkjuvörður Lovísa Guðmundsdóttir. Kaffisopi
eftir messu.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Messa kl. 11.
Félagar úr Barbörukórnum syngja. Organisti er
Guðmundur Sigurðsson. Prestur er sr. Þórhild-
ur Ólafs. Sunnudagaskóli kl. 11 í Hásölum
Strandbergs, safnaðarheimilis Hafnar-
fjarðarkirkju. Leiðtogi sunnudagaskólans er
Anna Elísa Gunnarsdóttir, henni til aðstoðar
er Margrét Heba. Kaffi og kex á eftir í Ljós-
broti Strandbergs. Miðvikudagur – morgun-
messan kl. 8.15. Organisti er Guðmundur Sig-
urðsson. Prestur er sr. Þórhildur Ólafs.
HALLGRÍMSKIRKJA | Messa og barnastarf
kl. 11. Dr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar
og þjónar fyrir altari ásamt hópi messuþjóna.
Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja.
Organisti er Hörður Áskelsson. Umsjón barna-
starfs Inga Harðardóttir. Ensk messa kl. 14 í
umsjá sr. Bjarna Þór Bjarnasonar.
HÁTEIGSKIRKJA | Fjölskylduguðsþjónusta
kl. 11. Ung börn leika á hljóðfæri sín undir
stjórn Ewu Tosik. Organisti Kári Allansson.
Prestur sr. Helga Soffía Konráðsdóttir.
Hátúnsheimilið | Guðsþjónusta kl. 13 í Betri
stofu Hátúns 12. Sóknarprestur Laugarnes-
kirkju sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir þjónar
ásamt meðhjálpara Kristni Guðmundssyni,
djákna Guðrúnu Þórsdóttur og organista Arn-
gerði Maríu Árnadóttur.
HJALLAKIRKJA Kópavogi | Guðsþjónusta
kl. 11. Svanhvít Hallgrímsdóttir leikur undir
sálma og leiðir söng ásamt félögum úr kór
Hjallakirkju. Sr. Sigfús Kristjánsson þjónar.
Fermingarbörn aðstoða við helgihald. Eftir
messu fer fram aðalsafnaðarfundur Hjalla-
kirkju í salnum uppi. Boðið verður upp á létt-
an hádegisverð. Sunnudagaskóli kl. 13. Sjá
nánar á hjallakirkja.is
HRAFNISTA | Hafnarfirði. Guðsþjónusta kl.
11 í Menningarsalnum. Hrafnistukórinn leiðir
safnaðarsöng. Kórstjóri Böðvar Magnússon.
Meðhjálpari Guðmundur Ólafsson. Ritning-
arlestra lesa Ingibjörg Hinriksdóttir og Kolbrún
Viggósdóttir. Sr. Svanhildur Blöndal prédikar
og þjónar fyrir altari.
ÍSLENSKA Kristskirkjan | Samkoma kl.
13.30. Lofgjörð og fyrirbænir. Leifur Sigurðs-
son kristniboði predikar og segir frá starfi
sínu í Japan. Barnastarf á sama tíma í aldurs-
skiptum hópum. Vöfflukaffi eftir stundina í
umsjá UNIK.
Kirkjuselið í Spöng | Guðsþjónusta kl. 13.
Séra Arna Ýrr Sigurðardóttir prédikar og þjón-
ar fyrir altari. Vox Populi syngur. Organisti:
Hilmar Örn Agnarsson. Sunnudagaskóli á
sama tíma. Umsjón hefur Ásthildur Guð-
mundsdóttir. Undirleikari: Stefán Birkisson.
KÓPAVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11.
Sr. Hjörtur Pálsson prédikar og þjónar fyrir alt-
ari. Kór Kópavogs syngur undir stjórn Lenku
Mátéová, kantors kirkjunnar. Sunnudagaskól-
inn hefst í kirkjunni og heldur síðan í safn-
aðarheimilið Borgir eftir guðsþjónustuupphaf.
Umsjón með sunnudagaskólanum hafa
Bjarmi Hreinsson og Ágústa Tryggvadóttir.
LANGHOLTSKIRKJA | Konudagsmessa kl.
11. Sunnudagaskóli á sama tíma. Sr. Guð-
björg Jóhannesdóttir þjónar fyrir altari, ásamt
djákna og messuþjónum. Helga Guðmunds-
dóttir predikar. Graduale Nobili syngur undir
stjórn og undirleik Jóns Stefánssonar. Jó-
hanna Gísladóttir æskulýðsfulltrúi, Snævar
Andrjesson guðfræðinemi og Yrja Krist-
insdóttir djáknanemi sjá um sunnudagaskól-
ann ásamt Esju. Kaffi og meðlæti í boði Kven-
félagsins í safnaðarheimilinu eftir messu.
LAUGARNESKIRKJA | Messa og sunnu-
dagaskóli kl. 11. Ræðumaður er Hugleikur
Dagsson, sem hefur oft gert Biblíuna og sög-
ur hennar að umfjöllunarefni. Verk hans eru
mjög áhugavert dæmi um notkun Biblíunnar í
samtímamenningu. Kristín Þórunn sókn-
arprestur þjónar ásamt messuþjónum. Kór
Laugarneskirkju undir stjórn Arngerðar Maríu
organista leiðir tónlist. Í tilefni konudagsins
verða allir sungnir sálmar eftir konur. Sunnu-
dagaskóli á sama tíma undir stjórn Hjalta
Jóns. Kaffi, djús og samfélag að messu lok-
inni.
LINDAKIRKJA í Kópavogi | Sunnudagaskóli
kl. 11 í Lindakirkju og Boðaþingi. Guðsþjón-
usta kl. 20 í Lindakirkju. Kór Lindakirkju leiðir
lofgjörðina undir stjórn Óskars Einarssonar.
Sr. Guðmundur Karl Brynjarsson þjónar.
Mosfellskirkja í Grímsnesi | Föstumessa
miðvikudagskvöld 25. febrúar kl. 20.30. Sr.
Egill Hallgrímsson sóknarprestur og sr. Krist-
ján Valur Ingólfsson Skálholtsbiskup annast
prestsþjónustuna.
NESKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11.
Sameiginlegt upphaf. Kór Neskirkju leiðir
safnaðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhalls-
son. Sr. Birgir Ásgeirsson setur dr. Skúla S.
Ólafsson í embætti prests í Neskirkju og þeir
predika og þjóna fyrir altari. Söngur, sögur,
brúður, leikir og gleði í barnastarfinu. Umsjón
með sunnudagaskólanum hafa Andrea, Katrín
og Ari. Sóknarnefnd býður til kaffisamsætis
eftir messu á Torginu.
SALT kristið samfélag | Samkoma kl. 14 í
Kristniboðssalnum Háaleitisbraut 58-60, 3.
hæð. „Týndur tilgangur?“ Ræðumaður Agnes
Tarassenko. Sunnudagaskóli fyrir börnin.
SELFOSSKIRKJA | Messa og sunnudaga-
skóli kl. 11. Kirkjukórinn syngur, organisti Edit
Molnár. Umsjón með barnastarfi hefur Mar-
grét Arnardóttir. Prestur Þorvaldur Karl Helga-
son. Kaffi og súpa eftir messu. Kyrrðarbæn á
mánudag kl. 17.
SELJAKIRKJA | Barnaguðsþjónusta kl. 11.
Söngur, biblíusaga og bænagjörð. Góð stund
fyrir alla fjölskylduna. Messa kl. 14. Sr. Ólafur
Jóhann Borgþórsson prédikar. Kór Seljakirkju
leiðir safnaðarsöng. Organisti: Tómas Guðni
Eggertsson. Altarisganga. Guðsþjónusta í
Skógarbæ kl. 16. Sr. Ólafur Jóhann Borgþórs-
son prédikar. Félagar úr Kór Seljakirkju leiða
söng. Á píanóið leikur Tómas Guðni Eggerts-
son.
SELTJARNARNESKIRKJA | Guðsþjónusta
og sunnudagskóli kl. 11. Siv Friðleifsdóttir,
fyrrverandi ráðherra, flytur hugleiðingu. Konur
í Kvenfélaginu Seltjörn taka þátt í athöfninni.
Sellókvartettinn Askja leikur þrjú lög. Sókn-
arprestur þjónar og organisti kirkjunnar leikur
á orgelið. Félagar úr Kammerkór Seltjarnar-
neskirkju leiða almennan safnaðarsöng. Kaffi-
veitingar. Farandsýningin Veggir í sögu kvenna
opnuð. Fræðslumorgunn kl. 10. Vilborg Dag-
bjartsdóttir rithöfundur spjallar um áhrif Bibl-
íunnar í ritverkum sínum.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa kl. 11.
Sr. Egill Hallgrímsson sóknarprestur annast
prestsþjónustuna. Organisti er Jón Bjarnason.
VÍDALÍNSKIRKJA | Útvarpsmessa kl. 11.
Jóna Hrönn Bolladóttir, Hildur Eir Bolladóttir
og Sigríður Hulda Jónsdóttir predika. Kvenna-
kór Garðabæjar syngur undir stjórn Ingibjargar
Guðjónsdóttur. Organisti er Jóhann Baldvins-
son. Jóhanna Guðrún Jónsdóttir syngur og
Davíð Sigurgeirsson spilar undir á gítar.
Sunnudagaskóli á sama tíma í safnaðarheim-
ilinu sem Heiðar Örn Kristjánsson stjórnar. Að
lokinni messu bjóða Lionsfélagar upp á súpu
og brauð. Þá verður tískusýning frá Ilse Jacob-
sen.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði | Systra-
messa kl. 11. Systrafélag Víðistaðakirkju að-
stoðar við guðsþjónustuna. Kvennakór Hafn-
arfjarðar syngur undir stjórn Ernu
Guðmundsdóttur. Siggi og félagar sjá um
sunnudagaskólann. Kaffi og pönnukökur á
eftir.
YTRI-Njarðvíkurkirkja | Fjölskylduguðsþjón-
usta og sunnudagaskóli kl. 11. Kór Njarðvík-
urkirkna syngur undir stjórn Stefáns Helga
Kristinssonar organista. Sr. Hulda Hrönn
Helgadóttir prédikar.
Orð dagsins: Freisting
Jesú.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Hafnarfjarðarkirkja.
(Matt. 4)
Allt fyrir eldhúsið
Allir velkomnir
Progastro | Ögurhvarfi 2, Kópavogi
Sími 540 3550 | progastro.is
Opið alla virka daga kl. 9–17, laugard. kl. 11-14.
Retro
ískápar
Glæsilegur sýningarsalur
Opnun
artilbo
ð
249.00
0 kr.
Verð á
ður 27
9.000
kr.
Verð fr
á
209.90
0 kr.
Tvöfaldur
gorenje ísskápur
608 lt. No frost skápur
með led lýsingu, klakavél,
vatni og flýtilúgu