Morgunblaðið - 21.02.2015, Síða 42
42 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 2015
Bókhaldsþjónusta Arnar Ingólfssonar hefur verið starfræktfrá árinu 1989, en Örn Ingólfsson, eigandi hennar, á 70 áraafmæli í dag. Hann stofnaði bókhaldsþjónustuna þegar
Karnabær hætti starfsemi en hann var bókari þar.
Sjö starfsmenn vinna hjá bókhaldsþjónustunni og á viðskipta-
mannalistanum eru 800 númer. „Þetta eru fyrirtæki, einyrkjar í
rekstri og einnig einstaklingar með framtöl.“
Fjölskyldan á sumarbústað í landi Syðri-Reykja í Biskupstungum,
keypti bústaðinn árið 1999.
„Við förum þangað allt árið og eins oft og við komumst, en reynd-
ar hefur þessi vetur verið erfiður út af veðri en alla jafna er hann
mikið notaður.“ Örn segist þó lítið vera fyrir jarðrækt. „Nei, ég er
voða lítið grænn og ég vil hafa sem mest útsýni.“
Örn og frú fara töluvert til útlanda og alltaf tvisvar á ári til Kan-
aríeyja, en þar á fjölskyldan litla íbúð.
Á að gera eitthvað í tilefni dagsins?
„Þetta er ekkert til að halda upp á, þetta er orðin alltof há tala,“
segir Örn „Síðast hélt ég upp á fertugsafmælið og gerði það eftir-
minnilega, nánasta fjölskylda kemur bara í mat núna.“
Eiginkona Arnar er Hrafnhildur Bjarnadóttir og börn þeirra eru
Ólafur Ingvar, Gunnar Þór og Svava.
Örn Ingólfsson er sjötugur í dag
Í flughöfn Örn Ingólfsson á leið í eitt ferðalagið.
Alltof há tala til að
halda upp á daginn
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Auður Egilsdóttir og Einar Elías Guðlaugsson eiga 50 ára brúðkaups-
afmæli á morgun, 22. febrúar. Þau verða að heiman.
Árnað heilla
Gullbrúðkaup
A
uður fæddist í Reykjavík
21.2. 1965. Hún ólst upp
í Laugarnesinu í
Reykjavík og gekk í
Laugarnesskóla fram til
12 ára aldurs, lauk síðan grunnskóla-
námi í Kvennaskólanum í Reykjavík,
stúdentsprófi frá Verslunarskóla Ís-
lands vorið 1985, lauk B.Sc. prófi í
landafræði frá HÍ vorið 1991, B.Ed.
prófi frá Kennaraháskóla Íslands
vorið 1993 og M.Ed. frá University of
Aberdeen í Skotlandi vorið 1996 með
áherslu á mat á skólastarfi, stjórnun
og þróun námskrár. Haustið 2014
lauk Auður svo doktorsprófi frá HÍ í
menntunarfræðum en doktorsritgerð
hennar fjallar einkum um mat á
skólastarfi og grunnþáttinn sjálf-
bærni.
Fjölskyldutaugar og Teigarnir
„Afi byggði húsið Kirkjuteig 29 og
þar ólst ég upp í næsta nágrenni við
þessa fallegu og vinalegu kirkju.
Auður Pálsdóttir, lektor við Menntavísindasvið HÍ – 50 ára
Á leið í doktorsvörn sína Auður ásamt manni sínum, Ingólfi Ásgeiri, og börnunum, Bjargeyju Þóru og Páli Ágústi.
Sinnir fjölskyldunni og
kristilegu æskulýðsstarfi
Auður og unga fólkið Auður í ferð á Evrópumót KFUM í Prag í ágúst 2013.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.isÁRMÚLA 38 – SÍMI 588 5010