Morgunblaðið - 21.02.2015, Qupperneq 47
MENNING 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 2015
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Þau eru oft undurfurðuleg,tengslanetin og þær tilviljanirsem færa mann að ákveðinni
tónlist. Ég heyrði fyrst um Söshu
Siem í gegnum stórvin minn Borgar
Magnason bassaleikara, þar sem ég
var á ósköp hefðbundnu fésbókar-
rölti. Borgar lék inn á væntanlega
plötu hennar, Most of the Boys, en
plötuna vann hún í Gróðurhúsi/
Greenhouse Valgeirs Sigurðssonar,
sem sá um upptökustjórn. Borgar
deildi laginu „So polite“ á veggnum
sínum og eyrun sperrtust upp. Lag-
línan þar hendist til og frá, fram-
vindan bundin dásamlegum skringi-
legheitum og yfir og undir ágengt
bassaplokk, strengir og rafhljóð. Um
leið er tónlistin næm og áferðar-
falleg, dansar á milli klassíkur og
popps og bedroom community-áran,
sem er útgáfa Valgeirs og fleiri, svíf-
ur um. St. Vincent og Fiery Furnaces
komu m.a. upp í hugann. Gott stöff!
Skapandi
Svo fór ég að pæla í einhverju öðru
eins og gengur. Þar til annar stór-
vinur minn, Færeyingurinn og tón-
listarséníið Jens Ladekarl Thomsen,
poppaði upp á Fésbókinni (hvar ann-
ars staðar) og sagðist vera að spila
með Söshu á nokkrum tónleikum á
næstunni. Hann bauð vinum og
kunningjum að senda sér skilaboð,
hefðu þeir áhuga á að mæta. Ég
renndi yfir tónleikadagskrána og viti
menn, þau voru að spila í Edinborg,
ekki bara Glasgow eins og svo oft
þegar tónlistarmenn heiðra okkur
Skotana með nærveru sinni. Og ekki
nóg með það, tónleikarnir voru settir
á afmælisdaginn minn, 18. febrúar!
Ég greip þetta tákn frá guðunum að
sjálfsögðu á lofti og smellti mér
ásamt heitkonunni niður á Electric
Circus, hvar atið fór fram.
En aðeins um fortíð listamannsins
áður en áfram verður haldið. Sasha
Siem er sprenglærður tónlistar-
maður, með gráður frá Guildford,
Harvard, Cambridge og verk fyrir
… og flestallir
strákarnir
Öryggi Sasha Siem veit hvað hún vill og veit líka hvað hún er að gera.
Sinfóníusveit Lundúna. Meðal ann-
ars. Söknuður eftir söngnum rak
hana svo í að fara að semja á téða
plötu, sem lítur dagsins ljós í upphafi
mars. Sasha (veit ekki af hverju ég
nota fornafnið, en hvað um það) hefði
hæglega getað haldið sig við heim
klassíkurinnar, ferilskrá hennar þar
er afar tilkomumikil, en er sýnilega
ein af þeim sem geta ekki annað en
fylgt hjartanu. Mica Levi/Micachu er
annað gott dæmi um þessa afstöðu,
þar sem allt er galopið, tónlistin sjálf
ræður. Þetta eru skapandi andar sem
illt er að halda niðri.
Hjartað
Sasha Siem stóð því hnarreist á
skítugu sirkussviðinu, upphitunar-
atriði í þokkabót, en augun glóðu og
öryggið var algert. Strákarnir, þar á
meðal vinur minn Jens, sáu svo um
að galdra fram tónaseiðinn. En augu
allra beindust að Söshu, sem vafði
mannskapnum um fingur sér. Þetta
verður eitthvað eins og sagt er. Eftir
tónleikana héngum við dágóða stund
saman, í baksviðsherbergi á stærð
við kústaskáp, og ræddum um heima
og geima, m.a. norræna tónlist sem
Sasha þekkti inn og út. Jens kvaddi
ég með miklum virktum, en hann er
eiginlega genginn úr bandinu, þarf að
sinna eigin sveit, ORKU. Það er
þetta með að fylgja hjartanu skilj-
iði …
Hin norsk-breska Sasha Siem vekur athygli
Vann væntanlega plötu sína á Íslandi
» Laglínan þar hendist til og frá,
framvindan bundin
dásamlegum skringileg-
heitum og yfir og undir
ágengt bassaplokk,
strengir og rafhljóð.
„Þetta er heilmikil uppsetning og
ætti ekki að ganga upp – en þetta
er allt að koma,“ sagði Tumi Magn-
ússon myndlistarmaður þegar hann
var ásamt starfsfólki Hafnarborgar
að leggja lokahönd á sýningu sína,
Largo – presto sem verður opnuð í
dag klukkan 15.
Titillinn er sóttur í stóra innsetn-
ingu sem byggist á reglubundnum
hljóðum og hreyfingu; ólíkir taktar,
hægir og hraðir, sameinast og verða
að mótsagnarkenndri upplifun í sí-
bylju og kyrrð.
Tumi segir verkið í samtali við
önnur af svipuðum meiði sem hann
hefur sýnt á síðustu árum, meðal
annars í Listasafni ASÍ og Hverfis-
galleríi en þar voru símtöl sem voru
í raun mislöng sýnd öll í sömu tíma-
lengd.
„Ég fylli salinn af hljóð og
mynd,“ segir hann. „Hér gefur að
líta átta vídeó- og hljóðupptökur af
viðburðum sem gefa frá sér takt.
Til dæmis fótatak, ásláttur á borð,
hamarshögg og bátavél en í upptök-
unni er takturinn eðlilega mis-
hraður. Það er hinsvegar allt sett í
sama rytma, sem gengur gegnum
allt rýmið; fótatakið, bátavélin og
allt hitt slær í takt. Verkið hefst á
hægasta taktinum, hliði sem slæst
til í vindinum, þá herðist aðeins á
honum, stig af stigi, þar til komið er
í hraðasta taktinn en það er báta-
vélin. Á einum stað í ferlinu er hver
mynd á raunhraða.“
Tumi er einn athyglisverðasti
myndlistarmaður sinar kynslóðar,
með bakgrunn í „nýja málverkinu“,
og hefur frá upphafi ferilsins unnið
með hversdagslega hluti og athafnir
sem hann sýnir þó ekki á hvers-
dagslegan hátt. Auk innsetningar-
innar sýnir hann prentverk í hliðar-
salnum.
Sýningin verður sett upp í sam-
tímalistasafninu í Montevideo í
Úrugvæ í haust. Hún er styrkt af
Danska myndlistarsjóðnum, Stat-
ens Kunstfond. efi@mbl.is
„Fylli salinn af hljóð og mynd“
Tumi Magnússon
sýnir Largo – presto
í Hafnarborg
Morgunblaðið/Kristinn
Listamaðurinn Tumi Magnússon fyllir salinn með taktvissu hljóðverkinu.
leikhusid.is Konan við 1000° – ★★★★ „Í stuttu máli fá töfrar leikhússins að njóta sín“
– Morgunblaðið
HVERFISGATA 19551 1200 LEIKHUSID.IS MIDASALA@LEIKHUSID.IS
Sjálfstætt fólk - hetjusaga (Stóra sviðið)
Lau 21/2 kl. 19:30 22.sýn Lau 28/2 kl. 19:30 24.sýn Lau 7/3 kl. 19:30 26.sýn
Fös 27/2 kl. 19:30 23.sýn Fös 6/3 kl. 19:30 25.sýn Sun 15/3 kl. 19:30 27.sýn
Ný sviðsetning frá sömu listamönnum og færðu okkur Engla alheimsins.
Konan við 1000° (Stóra sviðið)
Fim 26/2 kl. 19:30 Aukas. Fim 5/3 kl. 19:30 Aukas. Lau 14/3 kl. 19:30 Aukas.
Aukasýningar á Stóra sviðinu.
Karitas (Stóra sviðið)
Sun 22/2 kl. 19:30 34.sýn Sun 1/3 kl. 19:30 35.sýn Sun 8/3 kl. 19:30 36.sýn
Allra síðustu sýningar.
Kuggur og leikhúsvélin (Kúlan)
Lau 21/2 kl. 13:00 5.sýn Sun 22/2 kl. 15:00 8.sýn Sun 1/3 kl. 13:00 11.sýn
Lau 21/2 kl. 15:00 6.sýn Lau 28/2 kl. 13:00 9.sýn Sun 1/3 kl. 15:00 12.sýn
Sun 22/2 kl. 13:00 7.sýn Lau 28/2 kl. 15:00 10.sýn
Kuggur og félagar geysast nú upp á svið í Þjóðleikhúsinu í fyrsta sinn!
Klókur ertu, Einar Áskell (Brúðuloftið)
Lau 21/2 kl. 16:00 2.sýn Lau 7/3 kl. 14:00 5.sýn Lau 14/3 kl. 16:00 8.sýn
Lau 28/2 kl. 14:00 3.sýn Lau 7/3 kl. 16:00 6.sýn
Lau 28/2 kl. 16:00 4.sýn Lau 14/3 kl. 14:00 7.sýn
Hinn uppátækjasami Einar Áskell í fallegri og skemmtilegri brúðusýningu
Tjarnargötu 12 | 101 Reykjavík | sími 527 2100 | tjarnarbio.is
Hrikalegir (Aðalsalur)
Fös 27/2 kl. 21:00 Lau 28/2 kl. 21:00
Eldbarnið (Aðalsalur)
Sun 22/2 kl. 14:00 Sun 1/3 kl. 14:00
Martröð (Aðalsalur)
Lau 21/2 kl. 21:00
Skepna (Aðalsalur)
Sun 1/3 kl. 20:00
AUKASÝNING
Billy Elliot (Stóra sviðið)
Fös 6/3 kl. 19:00 frums. Fim 19/3 kl. 19:00 8.k. Sun 12/4 kl. 19:00 13.k
Lau 7/3 kl. 19:00 2 k. Fös 20/3 kl. 19:00 aukas. Fim 16/4 kl. 19:00 14.k
Sun 8/3 kl. 19:00 3.k. Sun 22/3 kl. 19:00 9.k Fös 17/4 kl. 19:00 15.k
Þri 10/3 kl. 19:00 aukas. Fim 26/3 kl. 19:00 aukas. Sun 19/4 kl. 19:00 aukas.
Mið 11/3 kl. 19:00 4.k. Fös 27/3 kl. 19:00 aukas. Mið 22/4 kl. 19:00
Fim 12/3 kl. 19:00 5.k. Sun 29/3 kl. 19:00 10.k Fim 23/4 kl. 19:00
Sun 15/3 kl. 19:00 6.k. Mið 8/4 kl. 19:00 11.k Fös 24/4 kl. 19:00
Þri 17/3 kl. 19:00 aukas. Fim 9/4 kl. 19:00 12.k
Mið 18/3 kl. 19:00 7.k. Lau 11/4 kl. 19:00 aukas.
Fjölskyldusýning í hæsta gæðaflokki
Dúkkuheimili (Stóra sviðið)
Sun 22/2 kl. 20:00
Umræður í forsal eftir sýningu sunnudaginn 22.feb
Lína langsokkur (Stóra sviðið)
Lau 21/2 kl. 13:00 Sun 8/3 kl. 13:00 Sun 22/3 kl. 13:00
Sun 22/2 kl. 13:00 Lau 14/3 kl. 13:00 Lau 28/3 kl. 13:00
Lau 28/2 kl. 13:00 Sun 15/3 kl. 13:00 Sun 29/3 kl. 13:00
Sun 1/3 kl. 13:00 Lau 21/3 kl. 13:00 Sun 12/4 kl. 13:00
Sterkasta stelpa í heimi er mætt á Stóra sviðið
Kenneth Máni (Litla sviðið)
Lau 21/2 kl. 20:00 Fös 6/3 kl. 20:00 Fös 13/3 kl. 20:00
Fös 27/2 kl. 20:00 Lau 7/3 kl. 20:00 Lau 14/3 kl. 20:00
Lau 28/2 kl. 20:00 Fim 12/3 kl. 20:00 Lau 21/3 kl. 20:00
Stærsti smáglæpamaður Íslands stelur senunni
Öldin okkar (Nýja sviðið)
Lau 21/2 kl. 17:00 Fös 27/2 kl. 20:00 Sun 1/3 kl. 20:00
Lau 21/2 kl. 20:00 Lau 28/2 kl. 20:00
Síðustu sýningar
Beint í æð (Stóra sviðið)
Lau 21/2 kl. 20:00 Fös 13/3 kl. 20:00 Lau 28/3 kl. 20:00
Fös 27/2 kl. 20:00 Lau 14/3 kl. 20:00
Lau 28/2 kl. 20:00 Lau 21/3 kl. 20:00
Sprenghlægilegur farsi
Ekki hætta að anda (Litla sviðið)
Sun 22/2 kl. 20:00 Fim 26/2 kl. 20:00 Sun 1/3 kl. 20:00
Nýtt verk eftir Auði Övu Ólafsdóttur
Taugar - Íslenski dansflokkurinn (Nýja sviðið)
Sun 22/2 kl. 20:00 4.k. Fim 26/2 kl. 20:00 5.k.
Tvö nýstárleg og óhefðbundin dansverk
Dúkkuheimili –★★★★ , S.B.H. Mbl.
Aukablað
alla þriðjudaga