Morgunblaðið - 21.02.2015, Qupperneq 51
MENNING 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 2015
d
KYNNTU ÞÉR ÁSKRIFTARLEIÐIR Í SKJÁHEIMI
SKJÁRINN | WWW.SKJARINN.IS
SAGAN
LIFNARVIÐ
Nýir og spennandi þættir á hverjum degi.
HISTORY CHANNEL / LAUGARDAGUR
19.00 StorageWars: Texas. Í austurhluta
Texas, í Tyler bæ, haldamenn uppboðmeð
bravúr og sveiflu. Uppboðshaldarinn Kenny
Stowe hefur átt svæðið til þessa en þeir Ricky
og Bubba kasta stríðshanskanumog efna til
uppboðsdeilna.
HISTORY CHANNEL / SUNNUDAGUR
21.00 SharkWranglers. Harðnaglar amerískra
sjómanna takast á hendur nokkuð semenginn
hefur áður gert; að veiða risahákarla, merkja 50
stykki, og sleppa þeim svo aftur í hafið.
HistoryChannelogH2eruvandaðarsjónvarpsstöðvarsemsameina
fróðleikogskemmtun–aðeins íSkjáHeimi.
H2 / LAUGARDAGUR
20.00WWII. Magnaðir þættir í HD um síðari
heimsstyrjöldina, séðmeð augumbandarískra
hermanna sembörðust fyrir lífi sínu við
ótrúlegar aðstæður í Asíu og Evrópu.
H2 / SUNNUDAGUR
20.00 Gettysburg.Emmy verðlaunuð
heimildarmynd umhermennina sembörðust í
Gettysburg, hrikalegustu orrustu semháð hefur
verið á amerískri jörð.
skjárheimur er fáanlegur bæði hjá vodafone og símanum
Mögnuð Emmy verðlaunuð
heimildarmynd frá Ridley Scott
og Tony Scott.
Breska rokksveitin Blur hefur nú
tilkynnt, í fyrsta skipti í tólf ár, að
plata sé væntanleg frá sveitinni.
Platan kemur til með að bera titil-
inn The Magic Whip og á að koma
út 27. apríl. Á fréttamannafund-
inum, sem sendur var út beint frá
kínverskum veitingastað í London,
tilkynnti sveitin að hún myndi einn-
ig koma fram í Hyde Park 20. júní
næstkomandi. Platan mun inni-
halda tólf lög og er lagið „Go Out“,
sem hefur fengið þó nokkra spilun,
þar á meðal.
Sveitin sló í gegn á tíunda áratug
síðustu aldar
með plötum á
borð við Park-
life, The Great
Escape, Blur og
13 og hefur
sveitin meðal
annars unnið til
verðlauna á
borð við Brit
Awards, NME
Awards og MTV
Europe Music Awards ásamt því að
vera tilnefnd til Grammy- og Merc-
ury-verðlauna.
Breska sveitin Blur með
plötu eftir tólf ára bið
Plata Söngvarinn
Damon Albarn.
Listakonan Helga Sigríður Valde-
marsdóttir opnar einkasýninguna
Shakti í Mjólkurbúðinni í Listagili í
dag klukkan 14. Í tilkynningu segir
Helga orðið shakti vísa til frum-
sköpunarorku alheimsins. Orðið
komi úr sanskrít og sé dregið af
orðinu shak sem þýði „að geta“.
Myndlistarsýningin stendur til 1.
mars og er opin laugardaga og
sunnudaga frá 14-17.
Listakonan Helga Sigríður á sýningunni.
Einkasýningin í
Mjólkurbúðinni
Sýning Lárusar H. List, Álfareiðin,
verður opnuð í vestursal Lista-
safnsins á Akureyri í dag, laugar-
dag, klukkan 15.
Í verkunum eru samskipti manna
við álfa og huldufólk listamann-
inum hugleikin. Lárus hefur haldið
yfir 20 einkasýningar og tekið þátt
í fjölmörgum samsýningum á Ís-
landi og erlendis. Lárus vinnur að-
allega með olíu og akríl á striga en
líka í aðra miðla.
Samskipti Menn og álfar eru í verkunum.
Álfareið Lárusar H.
List á Akureyri
Óskarsverðlaunin verða afhent í
Bandaríkjunum annað kvöld og
bíða kvikmyndaunnendur víða
spentir eftir niðurstöðunum. Ef
byggja má á því hvaða kvikmynd-
um er oftast halað niður ólöglega á
netinu, hlýtur American Sniper
verðlaunin sen hollenskt fyrirtæki
sem rannsakar netnotkun telur
henni hafa verið hlaðið niður í
a.m.k. 1,4 milljónir skipta.
Vinsæl Úr myndinni American Sniper.
Netþjófar kjósa
American Sniper
Klókur ertu, Einar Áskell nefnist sýning í leikstjórn
Kristjáns Ingimarssonar sem tekin verður aftur til
sýningar á Brúðuloftinu í Þjóðleikhúsinu um
helgina. Um er að ræða brúðusýningu úr smiðju
Bernd Ogrodnik sem unnin var upp úr bókunum
Svei-attan, Einar Áskell og Góða nótt, Einar Áskell
eftir Gunillu Bergström.
„Við fylgjumst með degi í lífi feðganna Einars Ás-
kels og pabba hans, þar sem daglegt líf verður æv-
intýri líkast. Einari Áskeli finnst fátt eins skemmti-
legt og þegar pabbi hans gefur sér tíma til að leika
við hann. Það næstskemmtilegasta er að fá að leika
sér með verkfærakassann, en það er stranglega
bannað og stórhættulegt að leika sér með sögina,“
segir m.a. í tilkynningu frá Þjóðleikhúsinu. Þar
kemur fram að sýningin sé ætluð fyrir börn á aldr-
inum þriggja til átta ára. Brúðuleikur, brúðugerð
og leikmynd er í höndum Bernd Ogrodnik.
Brúðusýning um Einar Áskel
Fjölhæfur Bernd Ogrodnik smíðar brúðurnar og stjórnar þeim.