Morgunblaðið - 26.03.2015, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 26.03.2015, Blaðsíða 38
38 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MARS 2015 Fyrsta úthlutun Fjölskylduhjálpar Íslands úr sjóði sem kallast Íslands- foreldri fór fram í gær. Ásgerður Jóna Flosadóttir, for- maður Fjölskylduhjálpar, sagði út- hlutunina hafa farið mjög vel af stað. Um er að ræða ákveðna stefnu- breytingu þar sem nú er áherslan á hollan mat mun meiri en áður, út- hlutað er fiski, hreinu kjöti, brauði, lýsi, fersku grænmeti og ávöxtum. „Með lýðheilsustefnunni sem við erum að byrja að vinna eftir núna þá erum við að reyna að vera með eins mikið af hollri fæðu og við mögulega getum boðið upp á,“ segir hún. Ís- landsforeldrar greiða mánaðarlega styrki sem nýttir eru til auka holl- ustu við matarúthlutun. Óska eftir fleiri Íslandsforeldrum Ásgerður Jóna hvetur fleiri til að gerast Íslandsforeldra en það er gert í gegnum Facebook-síðu hjálp- arsamtakanna. „Það eru tugir þús- unda Íslendinga sem eru heimsfor- eldrar, það væri gaman þó við fengjum ekki nema bara 10% af þeim,“ segir Ásgerður. Morgunblaðið/Styrmir Kári Fjölskylduhjálp Íslands Ásgerður Jóna Flosadóttir formaður og Guðrún Magnúsdóttir taka á móti fiski í fyrsta skipti. Fyrsta úthlutun frá Íslandsforeldrum  Í samræmi við lýðheilsustefnu Vegna hækkandi sólar og lofthita eru veggir og loft íshella í skrið- jöklum Vatnajökuls að veikjast, segir m.a. í viðvörun á heimasíðu Vatnajökulsþjóðgarðs. Ávallt beri að sýna fyllstu aðgát við íshella og ekki fara inn í þá nema að vel at- huguðu máli. Þar segir að veturinn sé besti tíminn til að skoða íshella með tilliti til öryggis og aðgengis og að í vetur hafi verið mikil ásókn ferðamanna í íshella. „Íshellar myndast yfirleitt vegna vatnsstreymis eða jarðhita. Þeir færast til og breytast með skriði jöklanna og eru því ekki varanleg fyrirbrigði heldur eyðast þeir vegna bráðnunar. Hækkandi loft- hiti veldur einnig því að veggir ís- hellanna veikjast og geta þeir hrun- ið bæði að hluta til og í heilu lagi. Þarf þá varla að spyrja að leiks- lokum, en a.m.k. tvö banaslys hafa orðið á Íslandi sl. áratug vegna ís- hruns,“ segir í viðvöruninni. Fyllstu aðgát ber að sýna við íshella Morgunblaðið/RAX Gjafir sem gleðja LAUGAVEGI 5 - SÍMI 551 3383 Fermingagjafir á frábæru verði Líttu við og skoðaðu úrva lið Verð 6.950,-Verð 4.700,- Verð 5.800,- Verð 6.700,-Verð 11.500,- Verð 17.900,- Verð 8.200,- Verð 5.900,-Verð 5.900,- Verð 7.500,- Forsætisnefnd Reykjavíkurborgar var falið að fagna 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna á Íslandi og verður það gert með 100 við- burðum, en Reykjavíkurborg tengir sig við hinar ýmsu hátíðir og viðburði á vegum borgarinnar þetta árið. Ein þessara hátíða er Barnamenningarhátíðin, sem hald- in verður dagana 21.-26. apríl næstkomandi. Munu kennarar í grunnskólum borgarinnar meðal annars fræða börnin um jafnrétt- ismál og kosningakerfið. Mætti í samsöng og tók þátt í fræðslu og umræðum Sóley Tómasdóttir, forseti borg- arstjórnar, setti þetta verkefni af stað með fjórða bekk Laugarnes- skóla í gærmorgun. Mætti hún í samsöng og tók þátt í fræðslu og umræðum um kosningaaldur og kynjabaráttu. „Það var tilvalið náttúrlega að nota tækifærið núna og vekja börnin í borginni til um- hugsunar um réttindi og skyldur, þá áfanga sem hafa náðst og það sem enn er óunnið,“ sagði Sóley við blaðamann. Efnt verður til kosninga innan veggja grunnskól- anna um orð eða setningu sem mikilvægust er um réttindi. Út- búnar verða svokallaðar rétt- indaóskir, en hljómsveitin Amaba- dama mun svo semja lag og texta út frá réttindaóskum barnanna. Grunnskólar fá upptöku með lag- inu svo kennarar og nemendur geti æft lagið fyrir flutning. Á setningarathöfn Barnamenning- arhátíðar munu svo öll börnin, ásamt hljómsveitnni, flytja rétt- indasöng fjórðubekkinga Reykja- víkur. Barnamenningarhátíð árlegur viðburður Barnamenningarhátíð í Reykja- vík fer fram á ári hverju og er haldin að vori. Markmiðið er að efla menningarstarf fyrir börn og ungmenni. Þátttaka í hátíðarhöld- unum er ókeypis en reynt er að halda hátíðina með fjölbreyttum hætti. Einblínt er á menningu barna og hátíðin haldin víðsvegar um borgina. brynjadogg@mbl.is Fræðsla um jafn- rétti í grunnskólum  100 ára afmæli kosningaréttar kvenna fagnað með ýmsu móti  Tengt við Barnamenningarhátíð Morgunblaðið/Styrmir Kári Jafnréttisfræðsla Sóley Tómasdóttir stóð fyrir fræðslu og umræðu um jafnrétti fyrir fjórða bekk Laugarnesskóla.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.