Morgunblaðið - 26.03.2015, Blaðsíða 54
Nef Rotta þefar af jarðsprengju.
Maputo. AFP | Mörgum stendur mik-
ill stuggur af rottum en vísinda-
menn í Afríkuríkinu Mósambík hafa
fundið leið til að beita meindýrunum
í baráttunni gegn berklum.
Vísindamenn við Eduardo Mond-
lane-háskóla í höfuðborginni Ma-
puto nota níu stórar rottur sem hafa
verið þjálfaðar í Tansaníu í hálft ár.
Risarotturnar eru með sérlega gott
þefskyn, betra en hundar, og þeim
hefur verið kennt að finna berkla-
bakteríuna með því að þefa af
hrákasýnum.
Rotturnar eru settar í glerbúr,
þefa af hverju sýninu á fætur öðru
og ef þær finna bakteríuna nema
þær staðar við sýnið og núa saman
fótunum. Þegar verkinu er lokið fá
þær góðgæti í verðlaun fyrir góða
frammistöðu.
Nagdýrin leita einnig
uppi jarðsprengjur
„Rottan getur afkastað nær
hundrað sýnum á tæpum hálftíma
en yfirleitt tekur það tæknimann á
rannsóknarstofu fjóra daga,“ segir
Emilio Valverde, verkefnisstjóri
APOPO, belgískra samtaka sem
standa fyrir þessari tilraun. Hafist
var handa við verkefnið í febrúar
2013 vegna mikillar útbreiðslu
berkla í Mósambík. Á síðasta ári
smituðust um 60.000 landsmanna af
berklum, um 10% fleiri en 2013.
Samtökin segja að það sé hag-
kvæmara að nota rotturnar en beita
hefðbundnum aðferðum. Þjálfun
hverrar rottu kostar jafnvirði
900.000 til 1,1 milljónar króna og
hægt er að nota hana í sex til átta
ár.
Samtökin hafa einnig notað rott-
ur í beisli til að leita að jarð-
sprengjum. Þær eru of litlar til að
valda sprengingu þegar þær stíga á
sprengjurnar og hægt er að þjálfa
þær til að gera viðvart þegar þær
finna lykt af sprengiefni. Með hjálp
þjálfaðrar rottu er hægt að hreinsa
100 fermetra jarðsprengjubelti á
hálfri klukkustund. Það tekur hins
vegar mann með handvirk leitar-
tæki um tvo daga að hreinsa svo
stórt svæði.
Risarott-
um beitt í
berklaleit
Hafa betra þef-
skyn en hundar
54 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MARS 2015
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Um 500 franskir lögreglumenn,
þjálfaðir fjallgöngumenn og björgun-
armenn hófu í gærmorgun á ný leit
og fundu hylkið af öðrum flugrita
Airbus 320 farþegaþotu félagsins
Germanwings sem fórst í frönsku
Ölpunum í fyrradag. Upptökurnar úr
ritanum hafa hins vegar ekki fundist,
að sögn Aftenposten. Um borð voru
150 manns og fórust allir. Lokað
verður fyrir aðgang að slysstað og
náð í jarðneskar leifar fólksins.
Flugritinn, sem tekur upp samtöl
flugmanna, fannst þegar á þriðjudag,
hann mun vera skemmdur og óvíst
að hann komi að miklu gagni. Byrjað
var að fara yfir gögn úr ritanum í
París í gær.
Þotan hrapaði í þröngt, afskekkt
fjallaskarð með snarbröttum hlíðum.
Franska innanríkisráðuneytið sagði
að í fyrsta leitarhópnum á þriðjudag
hefðu verið 50 sérsveitarmenn sem
hefðu gert hlé á ferð sinni um nóttina
vegna myrkurs.
Þotan lagði upp frá Barcelona og
var leiðinni heitið til Düsseldorf.
Um borð voru aðallega Þjóðverjar
og Spánverjar. Meðal farþega voru
16 þýskir menntaskólanemar og
tveir kennarar en hópurinn hafði
dvalist í Barcelona. Mikil sorg ríkir í
heimaborg þeirra, Haltern am See.
Engin neyðarmerki
Engin neyðarmerki bárust frá
áhöfninni en ljóst er að þotan lækk-
aði hratt flugið af ókunnum ástæðum
og hrapaði eftir stutt flug. Engin
skýring hafði síðdegis í gær fundist á
slysinu en veður var gott. Samband
við flugturn rofnaði átta mínútum
fyrir slysið. Ef flugmennirnir reyn-
ast heldur ekki hafa talað neitt sam-
an síðustu mínúturnar er að sögn
BBC talið hugsanlegt að þrýstingur
hafi skyndilega minnkað í klefanum
og liðið yfir mennina.
Ráðamenn Germanwings segja að
þotan, sem var 24 ára gömul, hafi
verið í ágætu lagi. Ekkert mun
benda til þess að um hryðjuverk hafi
verið að ræða. Nokkrir flugmenn fé-
lagsins vildu ekki fljúga strax eftir
slysið en félagið segir að þeir hafi
verið miður sín yfir að hafa misst fé-
laga sína.
Óljóst hvað olli hrapi Airbus-
farþegaþotunnar í Ölpunum
Aðstæður til leitar erfiðar og annar
flugritinn enn ófundinn síðdegis í gær
Sorg Nemendur við Joseph-König-menntaskólann í Haltern am See syrgja
félaga sína í gær. 16 nemendur og tveir kennarar fórust í flugslysinu.
AFP
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Forseti Úkraínu, Petro Porosénkó,
hefur rekið milljarðamæringinn Íhor
Kolomojskí úr embætti ríkisstjóra í
héraðinu Dnépropetrovsk í austan-
verðu landinu. Þingmenn þrýstu
mjög á forsetann um að reka auðkýf-
inginn þegar fullyrt var að hann hefði
notað vopnaða menn til að ráðast inn í
höfuðstöðvar ríkisrekins olíu-
fyrirtækis, Úkr-Trans-Nafta, sl.
fimmtudag. Sagt er að Kolomojskí
hafi sjálfur verið á staðnum og bölvað
fréttamönnum á svæðinu í sand og
ösku. Skjólstæðingi Kolomojskís
hafði daginn áður verið vikið skyndi-
lega úr starfi forstjóra fyrirtækisins.
Málið var snúið fyrir Porosénkó
vegna þess að Kolomojskí, sem hefur
auðgast á bankarekstri og fjárfest í
orkugeiranum og fjölmiðlum, hefur
verið mikilvægur bandamaður stjórn-
valda í Kænugarði í baráttunni gegn
aðskilnaðarsinnum sem styðja Rússa.
Hefur hann meðal annars fjármagnað
sjálfboðaliðssveitir til að verjast
aðskilnaðarsinnum.
Margir þingmenn vilja að Poro-
sénkó geri gangskör að því að upp-
ræta áhrif auðkýfinga, svonefndra
olígarka, sem hafa sölsað undir sig
geysimiklar eignir, oft í krafti spill-
ingar í stjórnkerfi og stjórnmálum.
Forsetinn er sjálfur vellauðugur mað-
ur en hann rekur súkkulaðifyrirtæki.
Úkraína Kolomojskí mun eiga sem
svarar 1,8 milljörðum dollara.
Porosénkó rekur ríkan héraðsstjóra
Ólígarkinn Kolomojskí sendi
vopnaða menn inn í ríkisolíufyrirtæki
Reuters
Svörtu kassarnir svonefndu eru
reyndar appelsínugulir á litinn,
annar tekur upp öll gögn um fram-
vindu flugsins, hinn varðveitir
samtöl í flugstjórnarklefa. Gögn
sem varðveitt eru í flugritum eiga
að þola mikið, jafnvel sprengju.
Þotan náði 38 þúsund feta hæð
en skyndilega fór hún að lækka
flugið. Flugmennirnir gerðu ekkert
til að beina henni að nálægum
flugvelli. Ef þrýstingur lækkar
skyndilega, t.d. vegna þess að gat
kemur á stjórnklefann, er ekki víst
að mönnum takist að setja á sig
súrefnisgrímur í tæka tíð.
Gætu hafa misst meðvitund
FLUGMENNIRNIR REYNDU EKKI AÐ LENDA Á NÁLÆGUM VELLI