Morgunblaðið - 26.03.2015, Blaðsíða 46
VIÐTAL
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Þær kipptu sér ekkert upp við
þetta, voru tvo til þrjá daga að jafna
sig. Það sýnir frekar hvað það var
þröngt um þær í gamla fjósinu,“ seg-
ir Birkir Arnar Tómasson, bóndi á
Móeiðarhvoli II í Rangárþingi
eystra. Hann og kona hans, Bóel
Anna Þórisdóttir, hafa tekið í notkun
nýtt fjós sem væntanlega er glæsi-
legasta fjósbyggingin á landinu í
dag.
Þau grófu fyrir grunni fjóssins í
maí á síðasta ári og byrjuðu að flytja
kýrnar inn í nýja fjósið í febrúar,
sléttum níu mánuðum síðar. Allar
kýrnar voru komnar yfir í byrjun
mars. Keyptur var nýr mjaltaþjónn
og sá eldri færður með kúnum. Í
fjósinu er aðstaða fyrir 130 kýr. Nú
eru þar 84 kýr mjólkandi þannig að
hægt er að bæta við rúmlega 40.
Þau hjónin hafa verið að fjölga
kúnum til að nýta nýja fjósið sem
best en það tekur að minnsta kosti
tvö ár að fylla það ef aðeins eru tekn-
ar kvígur úr eigin ræktun. Birkir
segist vera opinn fyrir öðrum tæki-
færum til fjölgunar.
Fer vel af stað
Kyrrlátt er í nýja fjósinu og rólegt
yfir kúnum. Það segir Birkir að sé
merki um að þeim líði vel. „Það kom
okkur skemmtilega á óvart hvað lítið
var um vandræði.“
Um leið og flutt var yfir var tekið í
notkun nýtt fóðurkerfi, svokallað
heilfóðurkerfi þar sem mismunandi
gerðir af heyi eru saxaðar saman og
kjarnfóðri bætt í. „Þær virðast
kunna ansi vel að meta fóðrið. Éta
meira en þær gerðu,“ segir Birkir.
Breytingin er einnig mikil fyrir
bændurna. „Það léttir mikið vinnuna
að vera í nýju fjósi og auðveldar yf-
irsýn yfir gripina þar sem svo rúmt
er um alla. Munurinn er mikill því
gamla fjósið var barn síns tíma og
búið að þjóna hlutverki sínu vel í sex-
tíu ár.“
Bætt aðstaða skilar sér í því að
kýrnar bjarga sér meira sjálfar. Ekki
þarf að sækja þær eins mikið í mjaltir
og hjálpa þeim í gegn. „Þetta fer vel
af stað og við erum bjartsýn á fram-
haldið.“
Það kemur sér vel að hlutirnir
skuli ganga meira af sjálfu sér því
„velferðardeildin“ er ekki alveg tilbú-
in. Við báða mjaltaþjónana er að-
staða til að sinna sérstaklega kúm
sem á því þurfa að halda, til dæmis
þegar kemur að burði. Það kallar
Birkir „velferðardeild“.
Þótt fjósið hafi verið tekið í notkun
er framkvæmdum ekki að fullu lokið.
Eftir er að byggja tengibyggingu á
milli nýja og gamla fjóssins. Það er
tiltölulega lítil framkvæmd, miðað við
fjósið sjálft. Gamla fjósið nýtist
áfram. Þar verða kálfar og kvígur.
„Við erum að fylgja kröfum nýrra
tíma. Sífellt er verið að krefjast
Fylgjum kröfum nýrra tíma
Nýtt og glæsilegt 130 kúa fjós tekið í notkun á Móeiðarhvoli II Birkir Arnar Tómasson bóndi
segir að bæta þurfi rekstrarskilyrði búanna í kjölfar aukinna krafna um byggingar og velferð dýra
Athygli Gestkvæmt er í fjósinu. Margir vilja skoða nýjustu og bestu aðstöðuna enda framkvæmdahugur í bændum.
Morgunblaðið/Kristinn
Bóndinn Vinna Birkis breytist í nýju fjósi. Tveir mjaltaþjónar annast mjaltirnar en bændurnir nota tímann í staðinn til eftirlits og þrifa, auk fóðrunar.
Áætlað er að kostnaður við bygg-
ingu nýja fjóssins á Móeiðarhvoli
og tilheyrandi aðstöðu verði um
160 milljónir kr., þegar upp verð-
ur staðið. Birkir segir ekki skrít-
ið að það standi í fólki að hefja
búskap þegar framkvæmdir séu
jafn dýrar og raun ber vitni. Ef
bændur fengju það verð fyrir
mjólkina sem dugi til að lifa al-
mennilega af framleiðslunni
þyrfti ekki frekari hvatningu og
margir myndu byrja.
Hann tekur fram að helmingur
af tekjum búsins komi af öðru en
mjólkursölu. Hann noti tekjur af
verktakastarfsemi, kjötsölu,
kornrækt og fleiru í uppbygg-
inguna. „Við erum líka að horfa
til framtíðar. Þetta er kostajörð
til mjólkurframleiðslu. Ef ekki er
byggt upp hér verður það hvergi
gert. Það kemur síðan í ljós hvort
ég verð hér til að nýta hana eða
aðrir taka við.“
Landssamband kúabænda sam-
þykkti á nýafstöðnum aðalfundi
sínum þá stefnumörkun að horfið
verði frá kvóta á mjólkurfram-
leiðslu á gildistíma næsta búvöru-
samnings. „Ég tel að þetta sé
rökrétt framhald af stöðunni eins
og hún er í dag. Það er ekki
hægt að ætlast til þess að sá hóp-
ur bænda sem haldið hefur uppi
framleiðslunni þegar kallað er
eftir aukningu sitji eftir með sárt
ennið næst þegar draga þarf
saman seglin,“ segir Birkir. Vísar
hann þar til þess að lítill hluti
kúabænda hefur svarað kalli
mjólkuriðinaðarins um aukna
framleiðslu. Ef kvótakerfið verði
látið gilda óbreytt muni þeir
þurfa að minnka framleiðsluna á
samdráttartímum en ekki aðrir.
Annars vonast Birkir til að hægt
verði að framleiða áfram á fullu
þótt sveiflur kunni að verða á
markaðnum hér innanlands. Út-
Hugsað
til fram-
tíðar
Fjósið kostar
160 milljónir
46 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MARS 2015
Eikjuvogur 29 - 104 Rvk. S:694-7911
www.facebook.com/spennandi
Opið: Mán. - fim: 12 - 18 og fös. 12-16
Mikið úrval af kjólum fyrir fermingarnar
3322 & Mc Planet by Innate