Morgunblaðið - 26.03.2015, Síða 87

Morgunblaðið - 26.03.2015, Síða 87
ÍSLENDINGAR 87 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MARS 2015 heiðum uppi eru alveg ómissandi til að létta lundina. Prjónarnir og tölvan stytta mér stundir og ég hef séð um skýrsluhald í Fjárvís fyrir búið. Eftir stórframkvæmdir við Kára- hnjúka hefur lax gengið upp í Jökuls- ána. Því hefur gefist tækifæri til að veiða lax í ánni sem var áður jökul- fljót.“ Ingifinna hefur verið formaður sóknarnefndar í yfir þrjátíu ár. Hún hefur einnig starfað í kvenfélaginu Öskju og verið formaður þar síðustu árin. Árið 2012 fengu þau land- græðsluverðlaun fyrir uppgræðslu. Nú hefur Agnar, barnabarn þeirra, sonur Benedikts og Guðrúnar í Hofteigi, tekið við búinu en Ingi- finna og Arnór búa þar enn: „Við un- um okkur hér enn meðan einhver hjálp er af okkur. Loks langar mig að geta þess að síðustu ár höfum við frænkur og systir unnið að því að koma á prent bók, Skriðdælu, sem faðir minn og afi söfnuðu efni í síðustu æviár sín. Þar er að finna ábúendatal og ýmsan fróðleik úr sveitinni. Mér verður oft hugsað til allra þeirra framfara sem orðið hafa á þessum 70 árum sem ég hef lifað og því má segja við höfum farið úr torfbæjum inn í tölvuöld.“ Fjölskylda Eiginmaður Ingifinnu er Arnór Benediktsson, f. 26.7. 1944, bóndi á Hvanná í Jökuldal. Foreldrar hans: Benedikt Jónsson, f. 26.1. 1903, d. 18.6. 1951, bóndi Hvanná, og Lilja Magnúsdóttir, f. 16.3. 1916, d. 7.6. 1995, húsfreyja á Hvanná. Börn Ingifinnu og Arnórs eru Benedikt, f. 19.7. 1965, búfræðingur og bóndi í Hofteigi, Jökuldal, en kona hans er Guðrún Agnarsdóttir, bú- fræðingur og bóndi, og eru barna- börnin Agnar, f. 1986, bóndi, Kol- björg Lilja, f. 1988, sálfræðingur, Magnús Fannar, f. 1999, og Styrmir Freyr, f. 2001; Bergþóra Hlín, f. 13.7. 1967, kennari og verkefnastjóri á Eg- ilsstöðum en maður hennar er Finn- ur Magnússon rafmagnstæknifræð- ingur og eru barnabörnin María Brá, f. 1993, hótelstýra, Arnór Daði, f. 1996, nemi, og Kristján, f.2005; Elín Sigríður, f. 9.3. 1974, starfs- mannastjóri í Reykjavík en maður hennar er Páll V. Magnússon bifvéla- virki og er dóttir þeirra Ingifinna Glódís, f. 2013; Jón, f. 31.8. 1975, húsasmíðameistari og bílasmíða- meistari á Egilsstöðum en kona hans er Kristjana S. Jónsdóttir sjúkraliði og eru barnabörnin Inga Lára, f. 1999, Elva Dögg, f. 2002, og Jón Karl, f. 2008. Systkini Ingifinnu eru Þorgerður, f. 9.3. 1944, starfsmaður við sjúkra- húsið á Seyðisfirði; Haukur, f. 24.4. 1947, d. 27.10. 2013, bóndi á Haugum og síðar á Egilsstöðum; Sigrún, f. 5.7. 1949, starfsmaður á hjúkrunarheimili í Noregi; Jóna Björg, f. 16.11. 1953, leikskólakennari í Kópavogi; Stefán, f. 11.4. 1956, bóndi á Haugum; Hrólf- ur Árni, f. 23.4. 1960, vélamaður og verkstjóri í Fellabæ. Foreldrar Ingifinnu voru Jón Ein- ar Hrólfsson, f. 14.2. 1918, d. 5.11. 1990, búfræðingur, bóndi og oddviti á Haugum, og Bergþóra Stefánsdóttir, f. 12.9. 1921, d. 10.1. 2008, húsfreyja. Úr frændgarði Ingifinnu Jónsdóttur Ingifinna Jónsdóttir Soffía Friðriksdóttir húsfr. á Randversstöðum í Breiðdal Þórarinn Sveinsson b. á Randvers- stöðum í Breiðdal Ingifinna Jónsdóttir kennari og organisti á Mýrum í Skriðdal Bergþóra Stefánsdóttir húsfr. á Haugum í Skriðdal Guðrún Björg Eyjólfsdóttir húsfr. á Efra- Firði í Lóni Jón Björgvin Jónsson b. á Vaði í Skriðdal Sigríður Hrólfsdóttir Jón Stefánsson skósmiður Svavar Stefánsson mjólkurbússtjóri Garðar Stefánsson flugumferðarstjóri Jónína Salný Stefánsdóttir Guðný María Jóhannesd. húsfr. frá Bústöðum við Rvík Árni Ísaksson b. í Hólalandshjáleigu í Borgarfirði Guðríður Þorgerður Sigríður Árnadóttir húsfr. Hallbjarnarstöðum Sveinbjörn Hrólfur Kristbjörnsson b. á Hallbjarnastöðum í Skriðdal Jón Einar Hrólfsson b. og oddviti á Haugum í Skriðdal Málfríður Sveinsdóttir húsfr. frá Skaftárdal á Síðu Kristbjörn Guðvarðarson b. á Geirlandi á Síðu Einar J. Stefánss. b. á Hafranesi við Reyðarfjörð Vilhjálmur Einarsson fyrrv. skólameistari ME og Ólympíumethafi í þrístökki 1956 Einar Vilhjálmsson fyrrv. Norðurlanda- methafi í spjótkasti Þórarinn Stefánsson kennari Laugarvatni Stefán Þórarinsson búfræðingur hreppstjóri og b. á Mýrum í Skriðdal Veiðikona Guðrún, tengdadóttirin í Hofteigi með maríulaxinn sinn. Steindór S. Gunnarsson, prent-smiðjustjóri í Steindórs-prenti, fæddist í Reykjavík 26.3. 1889, sonur Gunnars Björns- sonar, skósmiðs í Reykjavík, og Þorbjargar Pétursdóttur hús- freyju. Meðal bræðra Steindórs var Þor- leifur, stofnandi Félagsbókbands- ins sem var fullkomnasta bók- bandsstofa hér á landi og stórfyrirtæki á sinni tíð. Þorleifur kom einmitt mjög við sögu í Ís- lenskum aðli Þórbergs Þórðar- sonar. Aðrir bræður Steindórs voru Jón, skrifstofustjóri í Hamri, Gunn- ar, yfirkokkur á Borginni, og Pétur heildsali, afi Péturs Blöndal alþm. Eiginkona Steindórs var Jó- hanna Petra Bjarnason og eign- uðust þau fjögur börn. Steindór hóf prentnám í Félags- prentsmiðjunni 1903, stundaði framhaldsnám í Teknisk Selskabs- skole í Kaupmannahöfn og var prentsmiðjustjóri Félagsprent- smiðjunnar 1916-33 en hafði verið meðeigandi hennar frá 1910. Hann stofnaði Steindórsprent 1934 og var forstjóri þess síðan. Steindórsprent var fyrst til húsa í Aðalstræti 4, síðan í Kirkjustræti 4, lengi í Tjarnargötu 4 og loks í Ármúla 5 frá því á sjöunda ára- tugnum. Er Steindór lét af störfum tók tengdasonur hans við, Hálfdán Steingrímsson, en hann var fram- kvæmastjóri Steindórsprents um áratuga skeið. Undir hans stjórn festi Steindórsprent kaup á Guten- berg og síðan Prentsmiðju Árna Valdimarssonar. Steindórsprent var lengi ein öfl- ugasta prentsmiðja landsins og vel búin tækjum. Hún var að lokum seld Odda um síðustu aldamót. Auk þess að vera mikilhæfur prentsmiðjueigandi gaf Steindór út fjölskyldublaðið Vikuna og Við- skiptaskrána um árabil. Hann var fulltrúi Félags íslenskra prent- smiðjueigenda í Iðnráði, gjaldkeri Hins íslenska prentarafélags um skeið og einn helsti hvatamaður að stofnun Prentskólans. Steindór lést 29.3. 1948. Merkir Íslendingar Steindór S. Gunnarsson 106 ára Georg Ólafsson 90 ára Hrönn Kristinsdóttir 85 ára Brynja Magnúsdóttir Guðríður Þórhallsdóttir Rúnar Guðbergsson 80 ára Garðar Jökulsson Guðbjörg Jóhannsdóttir Hlín Einarsdóttir Júlía Gunnarsdóttir Sverrir Ragnarsson 75 ára Baldvin Jónsson Guðrún Jónsdóttir Sigurbjörg Rögnvaldsdóttir 70 ára Fríða Sigurðardóttir Kjartan Gústafsson Kristján Árnason Nína Sólveig Markússon Ragnhildur Bjarnadóttir Sigríður Jónsdóttir 60 ára Ásrún Karlsdóttir Björn Stefánsson Einar Sigurðsson Elín Kjartansdóttir Ingimundur Hákonarson Jóhanna Jónasdóttir Linda Wright Matthías Henriksen Ragnhildur Ingólfsdóttir Sigríður Stefánsdóttir Sigurður Óli Þórisson Stefán Ingi Óskarsson Þröstur Unnar Guðlaugsson 50 ára Arnar Birgisson Arnar Reynisson Björn Gunnarsson Friðleifur Hallgrímsson Helga Sæmundsdóttir Ingi Hjörtur Bjarnason Jóney Kristjánsdóttir Jón Ingi Björnsson Oddur Árnason Svala Reynisdóttir Svanur Hafsteinsson 40 ára Ásgeir Stefán Ásgeirsson Bjarney Inga Jónsdóttir Bryndís Ruth Gísladóttir Eydís Þórunn Sigurðardóttir Hafsteinn Elfar Sveinsson Hekla Jósepsdóttir Hlynur Halldórsson Vala Tryggvadóttir Vanessa Alexandría Loque Vordís Svala Jónsdóttir Yngvi Magnús Borgþórsson 30 ára Árni Björn Jónsson Ása Gunnarsdóttir Daníel Már Kárason Eleni Podara Eyrún Haraldsdóttir Gísli Jónsson Hafþór Ingi Sigurgeirsson Harpa Dröfn Skúladóttir Íris Von Björnsdóttir Kristinn D. Guðmundsson Nils Erik Daniel Johansson Óðinn Davíðsson Löve Ragnar Smári Ragnarsson Til hamingju með daginn 30 ára Þórhalla ólst upp í Garðabæ, er þar búsett, lauk BA-prófi í félagsfræði frá HÍ 2010 og stundar nú MA-nám í alþjóða- samskiptum við HÍ. Systkini: Sveinbjörn Að- algeirsson, f. 1963; Vé- steinn Aðalgeirsson, f. 1965, og Ingunn Þóra Hallsdóttir, f. 1973. Foreldrar: Aðalgeir Aðdal Jónsson, f. 1935, og Bryn- dís Þórarinsdóttir, f. 1946. Þórhalla Rein Aðalgeirsdóttir 30 ára Sigríður ólst upp i Reykjavík, býr á Djúpa- vogi, lauk B.Ed.-prófi frá HÍ 2013, er nú í M.Ed.- námi og er kennari við Djúpavogsskóla. Systkini: Þorvarður Atli, f. 1982; Anna Lilja, f. 1990; Gylfi Geir, f. 1991, og Gréta Sjöfn, f. 1993. Foreldrar: Ingunn Ólafs- dóttir, f. 1959, móttökurit- ari hjá Hjartavernd, og Atli Sævar Grétarsson, f. 1959, bifreiðastjóri. Sigríður Ósk Atladóttir 30 ára Sindri ólst upp í Kópavogi, býr þar og starfar hjá Securitas og er Herbalife dreifingaraðili. Börn: Alexander Leó, f. 2008, og Nadía Rós, f. 2012. Foreldrar: Alexander Kristjánsson, f. 1957, starfsmaður hjá Húsa- smiðjunni á Egilsstöðum, og Guðbjörg Guðmunds- dóttir, f. 1955, móttökurit- stjóri hjá Heilsugæslu- stöðinni í Smáralind. Sindri Freyr Alexandersson mbl.is/islendingar islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.