Morgunblaðið - 20.05.2015, Blaðsíða 11
Morgunblaðið/Ómar
í tafli varðandi fölsun persónu-
upplýsinga og þvíumlíkt.
Eitt fyrirtækjanna sem The
Sunday Times ræddi við sagði inn-
leiðingu Mx vera þeim vandkvæðum
bundna að starfsmenn vissu ekki
hvernig þeir ættu að bera Mx fram
án þess að móðga viðkomandi. Dent
sagði það ekki flókið og stakk ein-
faldlega upp á að stafa titilinn.
Allir eru menn
Því má velta fyrir sér hvaða tit-
ill sambærilegur við þann breska og
ef til vill senn alþjóðlega Mx hent-
aði fyrir íslenskt transfólk – hafi
landinn á annað borð hug á að halda
í nafnbætur af þessum toga.
Í ljósi þess að kona er maður
rétt eins og karl og konur og karlar
eru menn væri skammstöfunin Mr.
ekki út í hött. Vandinn er sá að í út-
löndum eru herrarnir Mr. Maður er
manns gaman, mann fram af manni.
Herrar mínir og frúr, þið eruð ekki
einu mennirnir í heiminum.
Fjölbreytileikanum fagnað Íslendingar hafa í mörg undanfarin ár fagnað
fjölbreytileika mannlífsins í gleðigöngu á Hinsegin dögum.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 2015
Á bloggsíðunni nonbinaryiceland.tumbl.-
com sem er fyrir Íslendinga sem samsama
sig ekki eingöngu kven- eða karlkyni, held-
ur báðum, engu kyni eða einhverju öðru
eins og þar segir, eru nokkur ráð fyrir þau
sem vilja vera stuðningsmanneskjur
transfólks og sýna stuðning án þess að
særa það óvart:
1. Ef þú veist ekki eitthvað, spurðu (kurt-
eisislega).
2. Notaðu alltaf rétt fornöfn.
3. Það er ekki nauðsynlegt að segjast vera
stuðningsmanneskja oftar en einu sinni.
4. Við kunnum að meta stuðning þinn en
ekki breyta því í keppni um hver er „besta
stuðningsmanneskjan.
5. Talaðu af virðingu um ALLA.
6. Ekki segja „Ég hefði aldrei giskað á
að þú værir trans!“ við neinn.
7. Ekki spyrja ágengra spurninga, sér-
staklega um sjúkrasögu trans mann-
eskju.
8. Ekki spyrja hvaða nafn einhver fékk á
fæðingarskírteinið sitt.
9. Ekki gera ráð fyrir að þú vitir hvaða
kyn einhver er út frá útliti viðkomandi!
10. Þetta er ekki þitt pláss. Ekki tala yfir
okkur og mundu að taka skref til baka
ef þarf.
11. Ekki nota trans vini þína sem gjald-
miðil („Ég á trans vin svo ég er stuðn-
ingsmanneskja).
Til fyrirmyndar og eftirbreytni
NONBINARY-ÍSLENDINGAR
Tákn Þetta tákn er
stundum notað fyrir
transfólk og þá sem
hvorki skilgreina sig
karl né konu.
Getty Images
Hávaði Barir og veitingahús eru á hverju strái í mörgum hverfum Berlínar.
Túristar eru ekkert endilega að pæla í því að á efri hæðunum búi kannski
fólk sem þarf sennilega að mæta til vinnu eldsnemma næsta dag.
Getty Images/iStockphoto
Samtal á
afmælisári50
Föstudagur 22. maí kl. 8.30-10.45
Silfurberg í Hörpu
Tími til aðgerða
Landsvirkjun býður til opins fundar um hnattrænar loftslags-
breytingar og hvernig fyrirtæki geta unnið gegn áhrifum þeirra.
Í tilefni af 50 ára afmæli stendur Landsvirkjun
fyrir samtali við þjóðina með opnum fundum.
Allir velkomnir!
Framtíðaráhrif
loftslagsbreytinga
Áherslur stjórnvalda í loftslagsmálum
Sigrún Magnúsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra
Hvernig vinnur Landsvirkjun gegn loftslagsbreytingum?
Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar
Hnattrænar loftslagsbreytingar og áhrif þeirra á Ísland
Halldór Björnsson, veður- og haffræðingur hjá Veðurstofu Íslands
Ábyrgð, samstaða og samstarf um lausn vandans
Halldór Þorgeirsson, forstöðum. stefnumörkunar hjá skrifstofu
Rammasamnings Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar
Pallborðsumræður
Þátttakendur eru Halldór Björnsson, Halldór Þorgeirsson, Árni
Finnsson, formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands, Rannveig Rist,
forstjóri Rio Tinto Alcan, Hólmfríður Sigurðardóttir, umhverfisstjóri
Orkuveitu Reykjavíkur og Hugi Ólafsson, skrifstofustjóri í umhverfis-
og auðlindaráðuneyti.
Fundarstjóri er Magnús Halldórsson, blaðamaður á Kjarnanum.
Skráning á fundinn og bein útsending á landsvirkjun.is