Morgunblaðið - 20.05.2015, Síða 55
UMRÆÐAN 55
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 2015
Er það nokkurn
tímann ásættanlegt
að líf og heilsa fólks
sé óbeint notuð sem
skiptimynt í samn-
ingaviðræðum um
kaup og kjör? Nýlega
frétti ég af sjúklingi
sem féll frá eftir að
aðgerð sem hann átti
að fara í var frestað
vegna verkfallsins. Ætli nokkur
viti í raun hversu mörg mannslíf
þessi deila hefur þegar kostað?
Ástandið er í raun alveg siðlaust.
Einkavætt heilbrigðiskerfi er eina
skynsamlega lausnin sem getur
komið í veg fyrir að svona ástand
endurtaki sig.
Flest skynsamt fólk hlýtur að
átta sig á því að sé einhvern tíma
ástæða til að fá gæði í þjónustu,
þá er það helst þegar okkar eigin
heilsa og líf er að veði. Til að hæft
fólk veljist í þessi störf þá er
nauðsynlegt að þau séu vel borg-
uð. Vandamálið er hins vegar að í
ríkisreknu heilbrigðiskerfi eru
eðlileg tengsl sjúklings og þess
sem annast hann rofin og sjúk-
lingurinn getur oft lítil áhrif haft á
þjónustuna sem hann fær. Laun
og vinnuumhverfi eru einhliða
ákveðin af því hve mikið fé hið op-
inbera skammtar og lykilákvarð-
anir í meðferð sjúklinga teknar
frá þeim.
Ein algeng ranghugmynd, sem
er í gangi um heilbrigðiskerfið og
er oft slegið fram er, að þjónustan
sé ódýr eða jafnvel „ókeypis“. Fá-
ar staðhæfingar geta verið eins
fjarri sanni, því kerfið er mjög
dýrt og er rekið að mestu fyrir
skattfé almennings. Um 9% af
landsframleiðslu Ís-
lands fara í heilbrigð-
isgeirann, eða sem
svarar um einni millj-
ón á hvern vinnandi
einstakling. Á dæmi-
gerðri starfsævi sam-
svarar þetta um 40-50
milljónum, og mun sú
tala fara hækkandi
með hækkandi með-
alaldri þjóðarinnar.
Vegna þeirra miklu
fjármuna sem eru í
heilbrigðisgeiranum
hefur í raun þróast þar ákveðið of-
gnóttarvandamál. Nýjustu og
bestu meðferðirnar eru oft mjög
dýrar, og ódýrari meðferðir hafa
ekki sömu virkni. Vegna hás
kostnaðar neyðist ríkiskerfið oft
til að velja millileið. En með því
að beina viðskiptum einstaklinga
sem gætu borgað fyrir nýjustu
lyfjameðferðirnar frá dýrustu úr-
ræðunum, er ekki bara verið að
taka af þeim réttmætt val sem
þeir ættu að hafa til að bæta eigin
heilsu, heldur fylgir þessari stefnu
ákveðið ábyrgðarleysi þar sem Ís-
lendingar eru fyrir vikið ekki að
taka eðlilegan þátt í að borga þró-
unarkostnað nýrra lyfja, sem eru
ein af forsendum framfara í
læknavísindunum.
Fólk verður að átta sig á því að
ekkert sem kostar peninga er
nokkurn tíma ókeypis. Spurningin
er bara hver borgar? Því sá sem
borgar hann ræður. Með því að
láta ríkið skattleggja okkur og
borga fyrir þjónustuna, þá erum
við í raun að framselja til kerfisins
ákvörðunarvald í málum sem snúa
að lífi okkar og heilsu. Þetta skil-
ur einstaklinginn eftir berskjald-
aðan og varnarlausan þegar mest
á reynir. Fjármögnun og gerð
þjónustunnar verður háð duttl-
ungum stjórnmálamanna og mið-
stýrt kerfið er flókið og dýrt og sí-
fellt þarf að beita
niðurskurðarhnífnum. Eftir sitjum
við með heilbrigðiskerfi sem er
með endalausa biðlista og tæki og
húsnæði sem eru komin til ára
sinna. Starfsfólk er hundfúlt með
kjör sín og stór hluti lækna eru
nemar, sem eru að afla sér
reynslu við að meðhöndla veikindi
okkar, því útlærðir, reyndir
læknar tíma ekki að flytja aftur
heim eftir sérnám.
Eina langtímalausn á vanda
heilbrigðiskerfisins sem er rétt-
mæt og tryggir samkeppnishæfni,
er að einkavæða það alveg svo
einstaklingar fái vald yfir því sem
skiptir þá mestu máli. Slíkt fyrir-
komulag mun jafnframt tryggja að
reyndir læknar og heilbrigðis-
starfsfólk sem hefur lagt mikið á
sig til að sérhæfa sig í starfi fái
laun og starfsumhverfi sem þau
eiga skilið. Því þegar þeir sem
nota heilbrigðiskerfið fá að ráða
eigin málum, þá verður miðstýrð
yfirstjórn óþörf og þjónustan
verður sjálfkrafa mun betri og
markvissari, enda mun hún taka
mið af þörfum sjúklinga en ekki af
þörfum kerfisins.
Heilbrigðiskerfi á villigötum
Eftir Jóhannes
Loftsson »Ein algeng rang-
hugmynd, sem er í
gangi um heilbrigðis-
kerfið og er oft slegið
fram er, að þjónustan sé
ódýr eða jafnvel „ókeyp-
is“.
Jóhannes Loftsson
Höfundur er verkfræðingur og frum-
kvöðull.
Læknar riðu á vaðið, sumir fá aldr-
ei nóg. Síðan kemur öll hersingin
og heimtar hærri laun. Minnir á
litlu börnin sem segja: Ég vil líka
eins og hann. Það er sjálfsagt að
koma til móts við láglaunafólkið en
þeir sem gera óraunhæfar kröfur
eru að pissa í skóinn sinn. Það
kemur í bakið á þeim með hækk-
andi verðbólgu sem bitnar á öllum.
Líklega eru margir þarna úti sem
vilja að sjóræningjarnir taki völdin
í landinu.
Guðrún Magnúsdóttir
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is
Hefur peningagræðgin
heltekið landann?
Spítalar Starfsemi sjúkrahús er í lamasessi vegna verkfalla.
534 1020
Ármúla 7, Reykjavík - www.jofur.is
Helgi BjarnasonÓlafur JóhannssonMagnús KristinssonSigurður J. SigurðssonBergsveinn Ólafsson Helgi Már Karlsson
Bíldshöfði 9, 110 Árbær
Til leigu 10.000 fm verslunar- og eða iðnaðarhúsnæði á 2 hæðum
við Bíldshöfða. Góð staðsetning og næg bílastæði við húsið.
Hægt er að leigja húsið í heild sinni eða hluta.
Nánari upplýsingar veitir: Ólafur Jóhannsson S: 824-6703
Selhella 3, 221 Hafnarfjörður
Til leigu 1.600 fm iðnaðar- og skrifstofuhúsnæði í Hafnarfirði. Í
húsinu m.a. laus 480 fm. vinnslusalur sem getur hentað undir
alls kyns iðnað og 880 fm. skrifstofurými á 2 hæðum. Hægt er
að taka hluta af húsinu eða allt.
Nánari upplýsingar veitir: Ólafur Jóhannsson S: 824-6703
Grensásvegur 14, 108 Austurbær
Til leigu 642 fm lager- og iðnaðarhúsnæði í miðju borgarinnar.
Stórar innkeyrsludyr. Mögulegt að vera með skrifstofur í hluta
húsnæðisins.
Nánari upplýsingar veitir: Ólafur Jóhannsson S: 824-6703
Miðhella 4, 221 Hafnarfjörður
Til leigu 336,2 fm iðnaðarbil í Miðhellu í Hafnarfirði. Mjög mikil
lofthæð og mjög háar innkeyrsludyr. Hentar fyrir ýmiskonar
iðnað. Á jarðhæðinni eru 249,2 fm og á annarri hæð eru 87,0 fm
sem henta fyrir skrifstofu, kaffistofu og ofl.
Nánari upplýsingar veitir: Ólafur Jóhannsson S: 824-6703
Skemmuvegur, 200 Kópavogur
Til leigu 918 fm. iðnaðar- og lagerhúsnæði. Húsnæðið er á tveimur
hæðum, 750 fm. efri hæð og svo 168 fm. neðri hæð. Möguleiki á
að skipta húsnæðinu í minni einingar. Malbikað bílaplan.
Nánari upplýsingar veitir: Ólafur Jóhannsson S: 824-6703
Skútuvogur 13A, 104 Vogar
Til leigu 775 fm skrifstofuhúsnæði í Skútuvogi. Hentar einkar vel
fyrirtæki sem þarf að vera með skýra deildarskiptingu. Fundar-
herbergi, eldhús og öll aðstaða til staðar fyrir 50+ manns vinnustað.
Nánari upplýsingar veitir: Ólafur Jóhannsson S: 824-6703
JÖFUR KYNNIR TIL LEIGU EIGNIR
Skráðu þig
í iPad-áskrift á
www.mbl.is/mogginn/ipad/
Nú geta
allir fengið
iPad-áskrift Aukablað
um bíla fylgir
Morgunblaðinu
alla þriðjudaga