Morgunblaðið - 20.05.2015, Blaðsíða 56
2
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Fyrstu minningar Óskars Ásgeirs
Ástþórssonar um Eurovision eru
frá árinu 1978 þegar hann var átta
ára gutti og fylgdist með sjón-
arspilinu á skjánum. „Keppnin fór
fram í París þetta ár og ég held að
hún hafi verið sýnd í sjónvarpinu á
Íslandi einum eða tveimur dögum
síðar.“
Ísraelska bandið Izhar Cohen &
The Alphabeta sigraði það árið
með smellinum „A-Ba-Ni-Bi“, og
ekki varð aftur snúið fyrir Óskar.
Óskar, sem starfar sem flug-
þjónn, er mikill áhugamaður um
Eurovision og getur ekki hugsað
sér að missa af keppninni. Í ár
ákvað hann, í fyrsta sinn, að gæta
þess sérstaklega að vera í fríi yfir
Eurovision-helgina. Þegar sjálf
keppnin byrjar verður svo allt að
vera eftir ákveðinni forskrift.
„Yfirleitt fer ég til foreldra
minna og horfi á keppnina með
þeim. Maðurinn minn fær að verða
eftir heima því hann er ekki mikið
fyrir þessa tegund tónlistar, og er
hrifnari af klassíkinni,“ útskýrir
Óskar. „Þegar tónlistin byrjar vil
ég helst hafa algjöra þögn svo ég
geti einbeitt mér að því að hlusta á
lagið og rýna í búningana og allt
hitt sem kemur við sögu. Fyrir
nokkrum árum tók ég syrpu þar
sem ég var mjög upptekinn af því
að taka niður öll stigin, enda gam-
an að sjá hver fær atkvæði frá
hverjum, en eftir að stigatilkynn-
ingunum var breytt lét ég af
þessu.“
Huggulegur pakki
frá Svíþjóð
Eins og hæfir ólmum Eurovisi-
on-aðdáanda hefur Óskar kynnt
sér vandlega keppendurna í ár og
hefur ákveðnar skoðanir á áhuga-
verðustu þátttakendunum. Hann
segir fjögur lög skera sig úr fjöld-
anum:
„Fyrst má nefna lagið „Grande
Amore“ sem bandið Il Volo flytur.
Þetta er damatískt og ástríðufullt
lag flutt af þremur myndarlegum
Ítölum, og ég er á því að þetta at-
riði fái fjölda atkvæða frá þrosk-
uðum konum sem kunna að meta
rauðvín, osta og vínber. Lagið er
stórt og þeim tekst ágætlega að
framkalla gæsahúð hjá áheyrand-
anum.“
Í öðru lagi tiltekur Óskar full-
trúa Svíþjóðar í keppninni, Måns
Zelmerlöw. „Svíarnir vita greini-
lega hvað þeir eru að gera enda al-
gjör Eurovision-maskína. Måns er
afskaplega huggulegur ungur mað-
ur, 28 ára gamall, og næsta víst að
samkynhneigðir karlmenn sem
fylgjast með keppninni munu vilja
gefa honum 12 stig.“
Sænska lagið, „Heroes“, byrjar
á tónum sem minna ögn á suð-
urríki Bandaríkjanna en springur
svo út í miklu drama og grípandi
danstakti. Þá gætir Måns að því að
syngja á ensku svo að textinn
kemst til skila til flestra. „Af öllum
lögunum í keppninni grunar mig
að þetta eigi eftir að lifa lengst í
almennri spilun,“ bætir Óskar við.
Kunnuglegt norskt framlag
Bestu lögin koma svo frá Noregi
og Spáni, að mati Óskars. Hann á
erfitt með að gera upp á milli þjóð-
anna en með góðum flutningi gæti
Noregur stolið senunni. „Norska
lagið er lag sem mér finnst ég hafa
heyrt oft áður, og blandar saman
einkennum Coldplay, A-ha og Of
Monsters and Men.“
Lagið heitir „A monster like
me“ og er flutt af þeim Kjetil Mør-
land og Debrah Scarlett. Byrjar
lagið á mjög rólegum nótum en
magnast svo upp í kröftugum loka-
hnykk. „Það skemmir ekki heldur
fyrir laginu að söngrödd Debrah
minnir sumpart á rámu röddina
hennar Adele.“
Spænska lagið heitir „Am-
anecer“, Sólarupprás, flutt af söng-
konunni Edurne. „Spánverjarnir
senda þessa gullfallegu konu til
leiks. Söngstíllinn minnir sumpart
á Shakiru og ef hún syngur vel í
beinni útsendingu gæti Edurne
fangað hlustendur.“
Ekki gott útvarpslag
Ekki má heldur gleyma að spá
hvar íslenska lagið lendir í keppn-
inni. Óskar býst við að María Ólafs
verði í 13.-16. sæti. „Lagið er
ágætt en hefur þann ókost að vera
ekki gott útvarpslag. Ég myndi
seint nenna að hlusta á „Unbrok-
en“ aftur og aftur í útvarpinu,“
segir Óskar.
„María skilar sínu rosalega vel,
enda góð söngkona, og ef hún nær
sterku sambandi við myndavélina
gæti hún halað inn fullt af stigum.
Það gæti líka gefið tilefni til bjart-
sýni að lagið minnir á danska lagið
„Only Teardrops“ sem sigraði fyrir
tveimur árum og sænska lagið
„Euphoria“ með söngkonunni Lo-
reen sem sigraði árið 2012.
Athygli vakti að íslenska atrið-
inu var breytt á þann hátt að tveir
dansarar sem fylgja áttu Maríu út
á sviðið voru látnir víkja fyrir bak-
raddarsöngvurum. Óskar grunar
að þetta geti veikt atriðið. „Það er
ekki hægt að dæma um útkomuna
fyrr en á keppnisdaginn en ef eng-
ir eru dansararnir mun þurfa eitt-
hvað annað til að rífa sviðs-
framkomuna upp.“
Hvort það er til einhver töfra-
uppskrift að sigurlagi í Eurovision
er erfitt að segja til um. Lögin
sem verða hlutskörpust eru mjög
fjölbreytileg en Óskar segir þó að
sumar formúlur virki betur en aðr-
ar. „Til að eiga sigurmöguleika
verður lag helst að vera rosalega
grípandi og jafnvel gott að dansa
við, eða þá að vera mjög flott
dramatísk ballaða. Flest lögin falla
ekki í þessa tvo hópa heldur eru
bara „millilög“ sem renna í gegn
svo maður varla tekur eftir þeim.“
Spáir Íslandi
13.-16. sæti
Eurovision-áhugamaðurinn Óskar
á von á að Svíþjóð, Noregur, Spánn og
Ítalía verði í efstu sætunum.
Morgunblaðið/Kristinn
Hiti „Ég er á því að þetta atriði fái fjölda atkvæða frá þroskuðum konum sem kunna að meta rauðvín, osta og vín-
ber,“ segir Óskar Ásgeir Ástþórsson um framlag Ítalíu. Sá sænski fær örugglega líka atkvæði út á þokkann.
Eurovision er byrjunin á sumrinu
Það er ekkert leyndarmál að samkynhneigðir karlmenn virðast upp
til hópa mjög áhugasamir um Eurovision. Óskar sver sig í ætt við
staðalmyndina, þó eiginmaður hans geri það ekki, og gaman er að
reyna að greina hvernig stendur á að keppnin höfðar svona sterklega
til hommanna.
„Kannski er það litadýrðin og sjónarspilið? Kannski er það gamanið
sem felst í því að sitja heima í stofu og gagnrýna verstu atriðin í góðra
vina hópi. Svo er líka spurning hvort kemur á undan, hænan eða egg-
ið, í þessu sambandi, því í vaxandi mæli virðast keppendur vera að
reyna að höfða sérstaklega til hinsegin-áhorfenda,“ segir Óskar.
Íslendingar þykja líka, sem þjóð, taka keppnina mjög alvarlega.
Allur þorri fólks reynir að vera með á nótunum um lögin sem taka
þátt og halda helst lítið Evróvisjón-partí. Óskar grunar að þessi
sterka tenging landsmanna við söngvakeppni Evrópu komi helst til af
því að keppnin er haldin um það leyti sem sumarið er að ganga í garð
fyrir alvöru. „Eurovision-boð er góð leið til að hefja sumarið formlega
með vinum og ættingjum, halda góða veislu, kveikja á grillinu og eiga
þessa fyrstu skemmtilegu sumar-upplifun ársins.“
jonogoskar.is Sími 5524910 Laugavegur 61 Kringlan Smáralind
Þú færð Maríuskartið
í Jóni & Óskari
Hannað af Sunnu Dögg Ásgeirsdóttur –
smíðað af okkur.
PIPA
R\TBW
A
•
SÍA
•
152313
SKARTIÐ ER SELT TIL
STYRKTAR HUGARAFLI.