Morgunblaðið - 20.05.2015, Page 68
68 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 2015
Steinn Péturs-
son, oftast nefndur
Brói, er fallinn frá.
Hann var drengur
góður og eiga flestir
sem gengu með honum hans lífs-
ins leið góðar minningar um hans
nærveru.
Það munaði ætíð um handtök-
in hans, hvort sem var til sjós eða
lands, hann var líkamlega hraust-
ur og vel gerður af skaparans
hendi og fékk margur vandræða-
seggurinn að finna fyrir handtök-
um hans. Það fór enginn í gegn-
um Stein Pétursson, þá sem
ungur maður stundum nefndur
„harður“. Hann fór snemma á
vertíðir suður með sjó, mest var
hann á bátum frá Vestmannaeyj-
um. Hann kom af og til á Hofsós
og var þá til sjós á bátum sem þar
voru gerðir út. Við vorum um
tíma samferða á handfærum með
Braga frænda okkar á Hafdís-
Steinn Pétursson
Tavsen
✝ Steinn Péturs-son Tavsen
fæddist 8. júlí 1949.
Hann lést 6. maí
2015. Útför Steins
var gerð 16. maí
2015.
inni. Hann öðlaðist
skipstjórnarréttindi
þegar hann dvaldi í
Vestmannaeyjum
og var sem stýri-
maður og skipstjóri
flest árin sem hann
stundaði sjóinn.
Brói vann við
jarðvegsvinnu og
hellulagnir, oftast
sem verkstjóri eftir
að hann minnkaði
sjósókn, mest á Reykjavíkur-
svæðinu.
Hann skilaði jafnan góðu verki
og var vel þokkaður af verkkaup-
um þeirra verka sem hann hafði
umsjón með. Honum var jafnan
umhugað um að öðrum gengi vel í
sínum störfum og kom gjarnan
við hjá undirrituðum til að vita
hvernig gengi og hvort ekki væru
næg verkefni.
Brói starfaði á tímabili við
netagerð hjá Hampiðjunni en
þurfti að hætta því sökum veik-
inda sem hrjáðu hann síðustu ár-
in.
Hann þurfti í fótaaðgerðir eftir
gömul meiðsli sem hann varð fyr-
ir þegar hann stundaði sjó í Vest-
mannaeyjum, og sótti í það seinni
árin, auk þess sem hann greindist
með lungnakrabba fyrir nokkr-
um árum. Hann eignaðist nokkra
fallega bíla um ævina sem sýndu
að þar var fagmaður á ferð.
Það er mikill missir að góðum
drengjum, aðeins vika er síðan
jarðsettur var á Hofsósi frændi
hans, sem einnig var sjómaður,
báðir miklir netamenn og af-
burðasjómenn. Það má telja víst
að skaparinn hafi fengi viðbótar-
kvóta þar sem hann kallar þá
báða til sín á sama tíma. Það
munaði ætíð um handtökin þeirra
hraustu Hofsósinga sem voru af
kynslóð þeirra sem töldu nútíma-
vinnuaðstöðu inni í lokuðum stál-
skipum ekki sjómennsku, vildu
heldur standa í stafni og taka
andann í fangið.
Svíður í sárum,
sorg drúpir höfði,
góður er genginn á braut.
Minningar mildar
mýkja og lýsa
og leggja líkn við þraut.
(HZ)
Færi aðstandendum Steins
samúðarkveðjur.
Rafn Sveinsson.
Minnig þín er mér ei gleymd;
mína sál þú gladdir;
innst í hjarta hún er geymd,
þú heilsaðir mér og kvaddir.
(Káinn)
Á lífsferðalagi hvers manns
koma margir við sögu. Oft verða
kynni hvers og eins við annað fólk
eins og svipmyndir sem líða
framhjá. Stundum gerist það þó,
að snertur er strengur í brjósti
og viðkomandi öðlast sess í hjart-
anu.
Slíkan streng bjó Brói til í
hjarta okkar. Ekki eru mörg ár
síðan við kynntumst Bróa. En
samverustundirnar sem við átt-
um með honum í litla gula húsinu
hans Ómars, eru dýrmætar nú í
minningu um góðan mann. Brói
hafði einlægan áhuga á hag okk-
ar, spurði margra spurninga og
hvatti okkur óspart. Hann hafði
sterkar skoðanir, sýndi lögfræði-
bókunum á eldhúsborðinu áhuga
og oft spunnust heitar umræður
um réttarheimspeki og almennt
réttlæti í samfélaginu.
Hann sýndi okkur einlæga
hlýju og alltaf þegar við komum
eða hittumst var faðmurinn op-
inn.
Mér er minnisstætt þegar ég
flutti í bæinn og þurfti að stand-
setja íbúð mína í Reykjavík. Ör-
þreytt og útbíuð í málningarslett-
um kom ég í litla gula húsið,
nálægt miðnætti og þar beið Brói
með heita kjötsúpu.
Sú kjötsúpa var sú besta sem
smakkast hafði. Við söknum þín,
elsku Brói, og takk fyrir að stað-
setja þig í hjörtum okkar.
Hvíl í friði.
Pálína, Róbert og Brynja.
✝ Þórður Eiríks-son fæddist í
Reykjavík 2. maí
1943. Hann lést 2.
apríl 2015 á Sól-
túni í Reykjavík.
Þórður var sonur
hjónanna Eiríks
Júlíusar Þórðar-
sonar verkamanns
frá Reykjavík, f. 3.
janúar 1919, d. 24.
apríl 1974, og
Katrínar Auðbjargar Aðal-
steinsdóttur húsmóður, f. 3.
október 1919, d. 2. mars 1977,
úr Berufirði. Eiríkur og Katr-
ín eignuðust einnig þau Stefán
Karl, f. 4. febrúar 1938, Sig-
urð, f. 23. janúar 1948, og Erlu
Björgu, f. 21. janúar 1957.
Þórður kvæntist Jónu Þor-
varðardóttur, f. 6. febrúar
1942, frá Súðavík árið 1966 og
eignuðust þau þrjú börn; Fríðu
Rún, f. 13. febrúar 1970, Eirík,
f. 9. júní 1976, og Auði, f. 11.
mars 1978.
Fríða Rún er í sambúð með
Tómasi Hilmari Ragnars og
eiga þau dótturina Katrínu
Huldu. Eiríkur er
kvæntur Jónu
Dögg Jóhannes-
dóttur og eiga þau
Maríu Guðrúnu,
Mikael Darra og
Júlíu Dögg. Auður
er gift Sturlu Geir
Friðrikssyni og
eiga þau Viktor
Elí, Guðrúnu Jónu
og Ásbjörn Elí.
Þórður var
mjög góður smiður, nákvæm-
ur, hugmyndaríkur og vand-
virkur. Hann lærði húsgagna-
smíði hjá Trésmiðjunni í
Reykjavík og starfaði þar
fyrst í stað. Síðar lærði hann
húsasmíði og starfaði sjálf-
stætt um tíma með Sigurði
bróður sínum, Þórhalli Aðal-
steinssyni og fleiri góðum
mönnum.
Seinna réð hann sig til
Gunnars Ásgeirssonar og
Veltis við nýsmíði og viðhalds-
vinnu og síðast til Pósts og
síma.
Útför hans fór fram í kyrr-
þey 10. apríl 2015.
Þórður var skáti sem ungur
drengur og kynntist þar úti-
veru, ferðalögum og virðingu
fyrir landinu sínu og náttúru
þess.
Þingvellir urðu honum sér-
lega hugleiknir en þar áttu for-
eldrar hans sumarbústað og
eyddi fjölskyldan sumrum þar
við veiðiskap og útiveru. Fjalla-
ferðir og önnur útivist urðu
helsta áhugamál Þórðar á yngri
árum og ferðaðist hann mikið
um Ísland með ferðahópnum
Farfuglar og gjarnan sem far-
arstjóri. Síðar naut Flugbjörg-
unarsveitin í Reykjavík krafta
og atgervis Þórðar til margra
ára við leitir og björgunarað-
gerðir.
Þar kynntist Þórður fallhlíf-
arstökki sem varð honum mjög
hugleikið og var hann í hópi
þeirra fyrstu sem spreyttu sig
á þeirri íþrótt hér á landi.
Hann varð í kjölfarið þátttak-
andi í fallhlífarsveit Flugbjörg-
unarsveitarinnar og var hann
mjög stoltur af því.
Þórður hafði gaman af
myndatökum, föndri og út-
skurði, hann málaði nokkrar
myndir og gerði listaverk úr
gleri og steinum. Jeppar, trillur
og smábátar voru Þórði mikið
hjartans mál og átti hann um
tíma trilluna Alla bát, sem
hann hafði sjálfur byggt yfir.
Hann smíðaði einnig jeppa
sem hann kallaði Hillarí eftir
fyrsta Everest-faranum. Sá
jeppi þjónaði sínu hlutverki vel
meðal annars sem svefn- og
íverustaður á meðan sumarbú-
staðurinn í Grímsnesinu var
byggður, það var fyrir meira en
40 árum, en bústaðurinn er enn
í eigu fjölskyldunnar. Á sínum
bestu árum sinnti Þórður sjálf-
boðaliðastörfum til að mynda
sem helsti framkvæmdamaður-
inn við stúkubyggingu á Varm-
árvelli í Mosfellsbæ. Hann var
stoltur af því að hafa tekið þátt
í þeirri framkvæmd og lagt
bæjarfélaginu og íþróttafélag-
inu lið.
Heilsubrestur markaði líf
Þórðar síðustu æviárin og því
miður entist honum ekki heilsa
til að koma öllum hugmyndum
sínum um fallega og gagnlega
hluti í framkvæmd. Handverk-
ið, híbýlin og húsgögnin lifa þó
áfram og bera vott um þá miklu
hæfileika og vandvirkni sem í
Þórði bjuggu.
Fríða Rún Þórðardóttir.
Þórður Eiríksson
Margar minning-
ar hafa streymt um
hugann síðustu daga
eftir að góður vinur hefur kvatt
þennan heim, langt um aldur
fram, eftir erfiða baráttu við
krabbamein. Hann ætlaði að vinna
þennan leik, með dyggri aðstoð
Ásu sinnar. Hann gekk í gegnum
þennan tíma með æðruleysi og
sömu rólegheitum og hann bjó yfir
alla tíð. Hann var orðheppinn og
nákvæmur maður hann Axel, sá
alltaf spaugilegu hliðarnar á mál-
unum og þurfti ekki tommustokk
til að mæla hluti – bara sá þetta.
Það var gott að fá hann í fjölskyld-
una okkar og minningar um flotta
bílinn sem hann ók á hér um árið
og stríddi stundum Ásu sinni á að
hún hefði heillast af, en það hefur
nú verið eitthvað annað líka, því
saman eru þau búin að aka síðan.
Margar góðar stundir höfum við
átt með þeim, hvort sem það er að
vaka saman úti í bjartri júní-
Axel Wolfram
✝ Axel Wolframfæddist 1. júní
1947. Hann lést 18.
apríl 2015.
Útförin fór fram
frá Hveragerðis-
kirkju 29. apríl
2015.
nóttinni, steikja vín-
arsnitselið, ferðast
saman eða bara að
sitja og spjalla yfir
tebolla. Axel hafði
lengi áhuga á sigl-
ingum, eignaðist hlut
í skútu, „Sigurborg-
inni“ og unnu þeir fé-
lagar Íslandsmeist-
aratitilinn í nokkur
ár. Seinna eignaðist
hann hlut í skútu í Danmörku og
tók fjölskyldan þátt í því ævintýri
með því að sigla með honum á
sumrin við strendur erlendra
landa og höfðu allir gaman af. Eft-
ir að við fluttum í Hveragerði hef-
ur verið gott að leita í Kamba-
hraunið, fá að stinga bílnum inn í
smiðju og það að eiga fjölskyldu á
nýjum stað er ómetanlegt. Takk
fyrir allt, kæri vinur.
Elsku Ása systir, Jói, Palli,
Sigga, fjölskyldur ykkar, Ólöf og
Johan og aðrir ástvinir. Megi góð-
ur guð gefa ykkur styrk í sorginni.
Minningin er ljósið sem lifir.
Nú þögn er yfir þinni önd
og þrotinn lífsins kraftur
í samvistum á sæluströnd
við sjáumst bráðum aftur.
(Ingvar N. Pálsson.)
Sveinbjörg og Gunnar.
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein.
Minningargreinar
Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi
og langafi,
STEINAR STEINSSON
fv. skólameistari Iðnskólans í
Hafnarfirði,
lést á Landspítala háskólasjúkrahúsi 16.
maí.
Útför hans verður gerð frá Kópavogskirkju fimmtudaginn
21. maí kl. 11.
.
Guðbjörg Jónsdóttir,
Þór Steinarsson, Aníta Knútsdóttir,
Margrét Steinarsdóttir, Kristján S. Kristjánsson,
Erla Björk Steinarsdóttir, Björn Jakob Tryggvason,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuð eiginkona, móðir, tengdamóðir og
amma,
EYGLÓ HELGA HARALDSDÓTTIR
píanókennari,
Bjarkarási 18,
Garðabæ,
verður jarðsungin frá Hallgrímskirkju
fimmtudaginn 21. maí kl. 13.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Leiðarljós,
stuðningsmiðstöð fyrir fjölskyldur langveikra barna.
Reikn. 101-26-040960, kt. 520712-1190.
.
Eiður Svanberg Guðnason,
Helga Þóra Eiðsdóttir, Ingvar Örn Guðjónsson,
Þórunn Svanhildur Eiðsdóttir, Gunnar Bjarnason,
Haraldur Guðni Eiðsson, Ragnheiður Jónsdóttir
og barnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
LOVÍSA SVEINSDÓTTIR,
lést á hjúkrunarheimilinu Víðihlíð í Grindavík
föstudaginn 15. maí.
Útförin fer fram frá Grindavíkurkirkju
föstudaginn 22. maí kl. 13.
Starfsfólkinu í Víðihlíð þökkum við frábæra umönnun.
.
Þórhallur A. Ívarsson, Vilborg Norðdahl,
Jónína B. Ívarsdóttir, Hilmar K. Larsen,
Stefán Í. Ívarsson, Halldóra S. Sveinsdóttir,
Aðalbjörg Ívarsdóttir, Ívar Þór Guðlaugsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
BÓAS GUNNARSSON,
Stuðlum í Mývatnssveit,
sem lést laugardaginn 9. maí,
verður jarðsunginn frá Reykjahlíðarkirkju
föstudaginn 22. maí kl. 14.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á að láta Hvamm,
heimili aldraðra á Húsavík, njóta þess.
.
Margrét Bóasdóttir, Kristján Valur Ingólfsson,
Hinrik Árni Bóasson, Guðbjörg Ásdís Ingólfsdóttir,
Gunnar Bóasson, Friðrika Guðjónsdóttir,
Sólveig Anna Bóasdóttir, Baldur Tumi Baldursson,
Ólöf Valgerður Bóasdóttir, Helgi Bjarnason,
Sigfús Haraldur Bóasson, Þóra Fríður Björnsdóttir,
Bóas Börkur Bóasson, Eyja Elísabet Einarsdóttir,
Ragnheiður Bóasdóttir, Guðmundur Ingi Gústavsson,
Birgitta Bóasdóttir, Hentzia í Lágabö,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir
og afi,
EINAR BJARG HELGASON
bifvélavirki,
Ársölum 3,
Kópavogi,
lést á Landspítalanum Fossvogi mánudaginn 11. maí.
Útför hefur farið fram í kyrrþey.
Sendum öllu starfsfólki deildar 6A Landspítalans Fossvogi
okkar bestu þakkir fyrir frábæra umönnun.
.
Ásdís Ragnheiður Arthúrsdóttir,
Einar Helgi Einarsson, Sigurlína Gísladóttir,
Sigrún Einarsdóttir, Magnús Axelsson,
Arnþór Einarsson, Elín Þóra Dagbjartsdóttir,
Lára Einarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
BJARNI SIGURÐSSON,
lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð
fimmtudaginn 14. maí.
Jarðsungið verður frá Fossvogskapellu
föstudaginn 22. maí kl. 13.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hans er bent á hjúkrunarheimilið Sunnuhlíð.
.
Gerður Kristín Bjarnadóttir, Árni Þorgeirsson,
Ólafía Bjarnadóttir, Ivan Jankovic,
Sigurður Bjarnason,
barnabörn og langafabörn.