Morgunblaðið - 20.05.2015, Blaðsíða 86
86 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 2015
Settu saman þinn eigin skartgrip
OO
www.lockitsjewelry.com
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Önnur sólóplata Sóleyjar Stefáns-
dóttur, sem notar listamannsnafnið
Sóley, kom út 8. maí sl. og nefnist
hún Ask the Deep, eða Spyrðu
djúpið. Síðasta breiðskífa Sóleyjar,
We Sink, kom
út árið 2011 og
hlaut lofsam-
legar viðtökur
gagnrýnenda og
eitt laga henn-
ar, „Pretty
Face“, hefur
notið mikilla
vinsælda á YouTube og er þá vægt
til orða tekið því lagið hefur verið
spilað þar um 18,7 milljón sinnum.
Blaðamaður ræddi við Sóleyju í
liðinni viku um plötuna nýju og
spurði fyrst hvort fjögur ár milli
platna væru ekki dágóður tími.
„Jú, það er alveg dágóður tími
síðan síðasta plata kom út. En ég
var svo heppin að fá að túra í tvö
ár eftir fyrstu breiðskífuna mína
þannig það gafst ekki mikill tími til
að semja tónlist. Svo varð ég ólétt
rétt eftir síðasta túrinn 2013 og á
meðgöngunni dalaði sköp-
unargleðin enda fór ágætis orka í
að búa til barnið! Þegar dóttir mín
var svo orðin svona fjögurra mán-
aða þá fékk ég aftur löngun í að
skapa og fór að fara út í skúr í
nokkra tíma á dag. Þar sem það
hafði liðið svo langt frá síðustu
plötu ákvað ég bara að taka þetta
á hörkunni og drífa mig í að klára
plötuna fyrir árslok 2014. Það gekk
svo eftir!“ svarar Sóley.
– Hvenær og hvar var þessi tek-
in upp og hverjir komu að þeirri
vinnu með þér?
„Fyrstu hugmyndirnar eru frá
árinu 2012. En ég samdi hana og
tók aðallega upp á síðasta ári. Ég
er með bílskúr fyrir utan húsið
mitt þannig hún er tekin upp þar
að mestu leyti fyrir utan trommur
sem við tókum upp í æfinga-
húsnæði Jóns Óskars trommara.
Ég samdi allt og tók flest upp sjálf
nema svo eru hljómsveitarmeðlimir
mínir alveg yndislegir og hjálpuðu
mér með hugmyndir. Albert gít-
arleikari tók upp trommurnar sem
Jón Óskar spilaði. Birgir Jón Birg-
isson í Sundlauginni hljóðblandaði
svo plötuna með mér.“
Eins og að búa á hafsbotni
– Til hvers vísar titillinn og
myndin á umslaginu? Einhvers
konar upplausn og drungi er fyrsta
tilfinningin sem maður fær þegar
maður sér umslagið?
„Platan átti fyrst að vera um
hafið og hversu djúpt og óhugn-
anlegt það er. Við vitum ekkert
hvað gerist á hafsbotninum. Þar er
örugglega dimmt og drungalegt að
vera. Eftir því sem á leið í upp-
tökum og textasmíði þá fór ég að
skrifa meira um hvernig mér leið
persónulega. Mér fannst það vera
svipuð tilfinning og það væri að
búa á hafsbotninum. Árið 2012 var
svoldið erfitt tilfinningalega, það
voru margar hindranir sem ég
þurfti að yfirstíga sem ég lokaði á
án þess að gera neitt í því. Þegar
ég varð svo ólétt komu allar þessar
tifinningar til baka og meðgangan
var mjög erfið andlega fyrir mig.
Eftir að dóttir mín fæddist, hraust
og heilbrigð, og þegar ég byrjaði
að semja aftur fannst mér svo gott
að skrifa þessar tilfinningar niður
á blað. Út frá því samdi ég marga
textana á plötunni. Ask the Deep
hætti þá að fjalla um sjávardýpið
og fór að fjalla meira um hversu
djúpt við getum sokkið í huga okk-
ar og hversu hugurinn er fljótur að
taka yfir alla rökhugsun,“ svarar
Sóley.
Spurð að því að hvaða leyti plat-
an sé frábrugðin þeirri fyrstu og
um hvað textarnir fjalli segir Sóley
að á We Sink sé píanóið í aðahlut-
verki en hana hafi langað að vinna
meira með orgel og hljóðgervla á
nýju plötunni. „Ég var líka með
ákveðið þema í gangi á þessari
plötu bæði textalega og hljóðlega
þannig ég vann hana sem meiri
heild heldur en gömlu plötuna.
Textarnir, eins og áður sagði, fjalla
um huga minn sem ég persónugeri
sem djöfulinn! Þetta hljómar að-
eins skrýtnara þegar ég reyni að
útskýra þetta,“ segir Sóley.
Hvað hljóðfæraval og útsetn-
ingar varðar og þá m.a. áherslu á
orgel segir Sóley að orgel sé
magnað hljóðfæri. Næsta skref hjá
henni sé að semja og taka upp org-
elplötu.
Þýska útgáfufyrirtækið Morr
Music gefur plötuna út og dreifir
henni og segir Sóley fyrirtækið
með ágæta dreifingu í Evrópu.
„Enda gengur mjög vel hjá mér í
Þýskalandi og Póllandi til dæmis
og þessum löndum í kring. Svo er
plötusala auðvitað ekki að aukast
þannig það er bara rosa tilfallandi
hvort platan mín sé til í plötubúð-
um í einhverjum borgum í Banda-
ríkjunum, til dæmis. Ég treysti því
mikið á netið og alla mína fylgj-
endur þar. Fólk er samt duglegt að
kaupa á netinu og svo treysti ég
líka á plötusölu á tónleikaferðum
en það gengur oft vel að selja plöt-
ur eftir tónleika.“
Grætur kvöldið áður
– Er stíft tónleikahald fram-
undan? Nú áttu ársgamla dóttur
sem hlýtur að flækja málin þegar
kemur að tónleikahaldi.
„Við erum að byrja Evróputúr
núna 14. maí [viðtalið var tekið 12.
maí, innsk. blm.] og hann er í tæp-
ar þrjár vikur. Ég ætla svo að
halda útgáfutónleika 11. júní í Frí-
kirkjunni og spila smá heima í
sumar. Í haust förum við svo aftur
á flakk og eitthvað inn í næsta ár.
Það gerir það svo sannarlega
erfiðara að eiga dóttur. Ég græt
alltaf kvöldið áður en ég fer og er
að kveðja hana, hún skilur ekkert
af hverju! En hún er hjá pabba
sínum og ömmu þegar pabbinn er
að vinna þannig þetta gengur alveg
ótrúlega vel. Hún ætlar svo að
koma með ömmu sinni undir lok
túrsins núna og vera með okkur
síðustu dagana. Það er bara gott
að hafa mikið að gera þannig ég
reyni að hugsa ekkert of mikið um
hversu erfitt það er að vera í
burtu,“ segir Sóley að lokum.
„Vitum ekkert hvað
gerist á hafsbotninum“
Sóley vann sig upp úr andlegum erfiðleikum og sú
glíma birtist m.a. í textum hennar á Ask the Deep
Ljósmynd/Ingibjörg Birgisdóttir
Persónuleg „Eftir því sem á leið í upptökum og textasmíði þá fór ég að skrifa
meira um hvernig mér leið persónulega,“ segir Sóley m.a. um nýju plötuna.
Skáldsaga Ragnars Jónassonar,
Snjóblinda, var mest selda bókin á
kindle hjá Amazon í Bretlandi um
nýliðna helgi. Hún trónaði á toppi
metsölulistans í tvo sólarhringa og
velti þar úr sessi glæpasögunni
Konan í lestinni sem selst hefur í
milljónum eintaka. Samkvæmt til-
kynningu frá útgefanda Ragnars er
ekki vitað til þess að bók eftir ís-
lenskan höfund hafi áður náð topp-
sætinu á lista Amazon yfir allar
bækur.
Hinn heimskunni metsöluhöf-
undur spennusagna, Lee Child,
kaus hins vegar að festa kaup á
prentuðu eintaki sögunnar á
CrimeFest-glæpasagnahátíðinni í
Bristol um helgina og áritaði Ragn-
ar bókina fyrir hann.
Snjóblinda var gefin út í tak-
mörkuðu upplagi í innbundnu
formi í lok apríl í Bretlandi og seld-
ist það upp á útgáfudegi. Hún er
væntanleg í kilju nú í júní.
Snjóblinda gerist í myrkri og
ófærð á Siglufirði og kom upp-
haflega út á Íslandi árið 2010 en
hefur einnig verið gefin út á þýsku.
Krimmakóngurinn Metsöluhöfundurinn
Lee Child með eintak af bók Ragnars.
Snjóblinda Ragnars
selst vel í Bretlandi
Breskur fræðimaður, Mark Griffiths, telur sig hafa fund-
ið einu samtímamyndina af breska skáldinu William
Shakespeare sem til er. Samkvæmt BBC telur hann sig
hafa fundið myndina á ætingu í fjögurra alda gamalli
bók um gróður og grasafræði. Talið hefur verið að fjórar
andlitsmyndir á ætingunni væru skáldskapur en Griff-
iths færir í grein í tímaritinu Country Life rök fyrir því
að hann hafi leyst táknin í kringum andlitin og þau segi
að þetta séu höfundur bókarinnar, grasafræðingurinn
John Gerard, annar grasafræðingur, Rembert Dodoens,
þáverandi fjármálaráðherra Bretadrottningar, og loks
Shakespeare. Forstöðumaður Shakespeare-stofnunar-
innar segist hins vegar alls ekki vera sannfærður.
Samtímamynd af Shakespeare fundin?
William
Shakespeare?