Morgunblaðið - 20.05.2015, Side 89
MENNING 89
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 2015
ÍSLENSKT TAL
POWERSÝNING
KL. 10:30
Sími: 553-2075
www.laugarasbio.is
SÝNINGARTÍMA MÁ NÁLGAST Á
LAUGARASBIO.IS, MIDI.IS
EINNIG Á SÍÐUNNI HÉR TIL VINSTRI
- bara lúxus
sjarmatröllinu Önnu Kendrick gáfu
af sér fína rómantíska gamanmynd
með söngívafi.
Seinni myndin stenst þeirri fyrri
ekki alveg snúning. Brandararnir eru
færri en í fyrri myndinni og lögin eru
minna þekkt fyrir þá sem ekki hrær-
ast í dægurlagatónlistinni. Ofan á
hinn dramatíska söguþráð um HM í
acapella er skeytt vandræðum Becu
(Kendrick) við að fóta sig í nýju starfi,
en sá þáttur sögunnar nær aldrei
nógu miklu flugi til þess að skipta
máli í hinu víðara samhengi mynd-
arinnar.
Að því sögðu er hér margt ágæt-
lega gert. Að því gefnu að maður fall-
ist á söguheim þar sem fólk getur
sungið lög sem það hefur aldrei heyrt
áður fullkomlega án þess að æfa þau
fyrirfram eru lögin og útsetning
þeirra fyrsta flokks.
Segja má að „vondu Þjóðverjarnir“
í Das Sound Machine steli þar sen-
unni og forsprakkarnir, Krämer og
Kommissar, (Flula Borg og Birgitte
Hjort Sørensen, sem íslenskir áhorf-
endur þekkja úr Borgen), virka full-
komlega sem andstæðingar Barden-
kvennanna. Aðrir sinna sínum hlut-
verkum ágætlega, en nefna má
sérstaklega frábæra innkomu Davids
Cross (Tobias Fünke í Arrested
Development) sem furðulegs millj-
ónamærings og acapella-aðdáanda.
Pitch Perfect 2 fellur því beinustu
leið í flokkinn „ágætis afþreying“ sem
skilur kannski ekki mikið eftir sig.
Aðdáendur fyrri myndarinnar fá hins
vegar nokkuð fyrir sinn snúð.
Samstilltar Tónafljóðin í Barden-háskóla komast í hann krappan í Pitch
Perfect 2, og þurfa að vinna heimsmeistaramótið í acapella-söng.
» Kvikmyndahátíðin í Cannes stendur nú yfir meðtilheyrandi stjörnustóði á rauðum dreglum og
blaðamannafundum. Ljósmyndirnar streyma inn í
veitu AFP og má hér sjá nokkrar vel valdar.
Stjörnurnar skemmta sér misvel í sólinni í Cannes
AFP
Óáreittur Leikarinn John C. Reilly spókaði sig í sólinni í gær. Vegfarendur létu sér
fátt um finnast enda bærinn fullur af kvikmyndastjörnum þessa dagana.
Súr? Isabelle Huppert og Gabriel Byrne mættu á frumsýningu Louder
than Bombs í fyrradag. Byrne var heldur súr að sjá.
Sprell Kan-
adíska leik-
konan
Charlotte
Le Bon og
franska
leikkonan
Melanie
Laurent
geifla sig
fyrir frum-
sýningu.
Óttaslegin? Íranska
leikkonan Golshifteh
Farahani bregður á
leik í myndatöku.
Hress! Leikkonan Amy Poehler með John
Lasseter, listrænum yfirmanni Disney/Pixar,
fyrir sýningu teiknimyndarinnar Inside Out.
Tónleikadagskrá Jazzklúbbsins
Múlans á Björtuloftum í Hörpu lýk-
ur brátt og í kvöld fara fram næst-
síðustu tónleikar hennar kl. 21. Á
þeim kemur fram splunkuný hljóm-
sveit, Young Miles. Meðlimir henn-
ar eru trompetleikarinn Ari Bragi
Kárason, Eyþór Gunnarsson sem
leikur á píanó, bassaleikarinn Þor-
grímur Jónsson og Þorvaldur Þór
Þorvaldsson sem leikur á trommur.
Hljómsveitin leikur tónlist
trompetleikarans Miles Davis sem
ungur að árum þótti framsækið og
frumlegt tónskáld og taka þeir fé-
lagar fyrir úrval tónsmíða frá fyrri
hluta ferils hans, eins og segir í til-
kynningu. Björtuloft eru á 5. hæð
Hörpu.
Ungur Miles Davis ungur að árum.
Young Miles leikur
á Björtuloftum Raflost, raflistahátíð í Reykjavík,
hófst í gær og stendur til 22. maí.
Hátíðin er sú nítjánda í röðinni og
er hún árviss vettvangur lista-
manna sem vinna með nýja miðla,
rafræna list og gagnvirkni. Í kvöld
kl. 20 verður haldið opið kynning-
arkvöld í Sölvhóli, þar sem öllum
gestum, listamönnum og þátttak-
endum er frjálst að koma með og
sýna tengla á áhugaverðar slóðir
internetsins sem snúa að nýsköpun
í listum, eins og segir í tilkynningu.
Á morgun verður haldin sýning í
samstarfi við Listaháskóla Íslands
þar sem nemendur sýna rafræna og
gagnvirka gjörninga og innsetn-
ingar, í húsnæði skólans í Laugar-
nesi og á föstudaginn kl. 17 verður
sýningin Pikslaverk opnuð í Kling
& Bang galleríi. Þar er umfjöll-
unarefnið samspil listar og lofts-
lagsbreytinga.
Á föstudaginn kl. 20 verða haldn-
ir tónleikar á Ingólfsgarði fyrir aft-
an Hörpu. Á þeim koma fram ís-
lenskir raflistamenn úr ýmsum
áttum, þeir Tómas Manoury og
Kippi Kanínus sem skipa hljóm-
sveitina MANKAN, Steindór Krist-
insson og Hlöðver Sigurðsson sem
nota gjarnan skyndikóðun til fram-
köllunar á tónlist sinni. Leikið verð-
ur á þeremín, gjörningar fluttir og
rafdúettinn Raf & Stuð mun gera
tilraun í vöðvastjórnun með raf-
magni, eins og segir í tilkynningu.
Dagskrá hátíðarinnar má finna á
raflost.is
MANKAN Tómas Manoury og Kippi
Kanínus skipa dúettinn MANKAN.
Raflistahátíðin Raflost haldin í nítjánda sinn