Morgunblaðið - 20.05.2015, Page 92
MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 140. DAGUR ÁRSINS 2015
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 460 ÁSKRIFT 4995 HELGARÁSKRIFT 3120 PDF Á MBL.IS 4420 I-PAD ÁSKRIFT 4420
1. Ætlar ekki að láta fjarlægja örið
2. Andlát: Eygló H. Haraldsdóttir
3. Skipstjóravilla við Bárugötu
4. Kim Jong-Un óánægður með býli
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
The Entire Population of Iceland,
spunaleikhópi í leikfélaginu Improv
Ísland, hefur verið boðið að sýna á
Del Close-spunahátíðinni hjá Upright
Citizen’s Brigade (UCB) leikhúsinu í
New York 26.-28. júní nk. Íslenski
hópurinn hefur æft Haraldinn og
fleiri langspunaform frá því í fyrravor
og í honum er fólk úr öllum áttum
sem hefur æft „long-form improv“,
þ.e. langspuna eða „Haraldinn“, und-
ir stjórn Dóru Jóhannsdóttur leik-
konu síðustu misseri, skv. tilkynn-
ingu. Dóra hefur verið að læra þessa
aðferð í UCB sl. tvö ár og hafa Har-
alds-námskeið hennar á Íslandi notið
mikilla vinsælda. Í hópnum sem sýnir
í New York eru m.a. leikarar, sund-
laugarvörður og frístundakennari, 18
í heildina. Del Close hátíðin er haldin
til heiðurs Del Close sem var einn
helsti frumkvöðull spuna í Bandaríkj-
unum og kenndi m.a. leikurunum
Tinu Fey og Bill Murray. Á hátíðinni
eru spunasýningar sýndar í sjö leik-
húsum á Manhattan í þrjá sólar-
hringa og The Entire Population of
Iceland er fyrsti íslenski leikhópurinn
sem sýnir á henni. Hópurinn verður
með fjáröflunarsýningar í Þjóðleik-
húskjallaranum 22. og 27. maí.
Spinna á Del Close
Rúnar Óskarsson klarínettuleikari
og Helga Bryndís Magnúsdóttir pí-
anóleikari halda tónleika í Hafnarborg
í kvöld kl. 20. Á efnisskránni eru Þrjár
fantasíur eftir Robert Schumann,
Sónata fyrir klarínettu og píanó eftir
Francis Poulenc, Fjögur verk eftir Alb-
an Berg og Duo fyrir klarínettu og pí-
anó eftir Norbert Burgmüller.
Rúnar og Helga á tón-
leikum í Hafnarborg
Á fimmtudag Vestlæg átt, 8-15 m/s, hvassast syðst. Víða rigning
eða skúrir, en úrkomulítið austanlands. Hiti 3 til 8 stig að deginum.
Á föstudag Norðan 8-13 m/s austantil í fyrstu en annars hægari.
Rigning og jafnvel slydda til fjalla norðantil, en léttskýjað syðra.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Víða rigning, úrkomumeira um tíma suð-
vestantil en skýjað með köflum og þurrt að kalla norðaustantil.
VEÐUR
Yfirvofandi verkföll starfs-
fólks flug-, rútu- og hótel-
fyrirtækja gætu haft mikil
áhrif á framkvæmd Smá-
þjóðaleikanna sem ætlað er
að fari fram í Reykjavík dag-
ana 1.-6. júní. Skipuleggj-
endur leikanna eru með
varaáætlun í mótun, en von
er á um 1.200 erlendum
gestum. Formlegur undir-
búningur leikanna hófst í
janúar fyrir rúmum tveimur
árum. »1
Varaplan vegna
verkfallanna
Indriði Sigurðsson snýr heim næsta
vetur sem leikjahæsti Íslendingurinn
frá upphafi í norsku úrvalsdeildinni í
knattspyrnu. Indriði, sem hefur
mestan hug á að koma í uppeldis-
félag sitt, KR, á að baki
hátt í þrjú hundruð
leiki á þrettán tímabil-
um með þremur liðum
í deildinni en hann
hefur verið
fyrirliði
Viking frá
Stav-
anger
undan-
farin
ár. »2
Snýr heim sem methafi
í norsku deildinni
„Ég var búinn að æfa eins og skepna á
undirbúningstímabilinu og ekki búinn
að missa úr æfingu þegar ég meiddist
þremur dögum fyrir fyrsta leikinn. Það
er búið að taka sinn tíma að ná sér af
þessum meiðslum en sem betur fer
var þetta ekki alvarlegt. Það hefur
hins vegar tekið sinn tíma að fá sig
góðan en nú er þetta allt að koma,“
segir Aron Elís Þrándarson. »4
Ég var ekki búinn að
missa úr æfingu
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Hallgrímur Jökull Ámundason, ís-
lenskufræðingur og örnefnafræð-
ingur á nafnfræðisviði Árnastofn-
unar, fór fyrir liðna helgi af stað með
söfnun örnefna og annarra heita í
Vesturbæ Reykjavíkur. „Þetta hefur
skilað býsna góðum árangri,“ segir
hann og bætir við að söfnunin sé í
fullum gangi.
Nafnfræðisviðið heldur utan um
örnefnasafn Íslands. Hallgrímur
segir að dæmigerð örnefnasöfnun
hafi snúist um örnefni í sveitum
landsins, eins og til dæmis fjallanöfn
og bæjarnöfn. Hann hafi haft áhuga
á örnefnum í þéttbýli og ekki síst
óformlegum örnefnum sem verði til
upp úr þurru. Meðal annars hjá
börnum í leik, sem búi sér til nöfn yf-
ir marga hluti, hvort um sé að ræða
leikvelli eða leynistaði, sem krakkar
uppgötvi þegar þeir skottist um
hverfið og haldi að enginn þekki.
„Þessi nöfn eru þess eðlis að þau
komast sjaldan á prent, eru bara til í
barnahópnum og gleymast ef þau
færast ekki á milli kynslóða,“ segir
hann.
Viðbrögð hafa verið góð
Hallgrímur segir erfitt að finna
þessi nöfn í rituðum heimildum. Þau
séu helst í æskuminningum fullorð-
ins fólks og því hafi hann ákveðið að
gera tilraun og leita til Vestur-
bæinga á Fésbókinni til þess að
safna saman þessum nöfnum. „Ég
hef til dæmis fengið dágóðan lista af
rólónöfnum,“ segir hann og bendir á
að á milli Neshaga og Melhaga sé
Kókakólaróló. Nafnið sé til komið
vegna þess að verksmiðjan Vífilfell,
sem framleiði Coca-Cola, hafi hafið
starfsemi í Haga við Hofsvallagötu,
sem liggi að leikvellinum. Verk-
smiðjan hafi verið flutt fyrir mörg-
um áratugum, en krakkarnir í hverf-
inu þekki enn leikvöllinn sem
Kókakólaróló. „Þetta er dæmi um
nafn sem hefur gengið á meðal
barna áratug eftir áratug þó að upp-
runi þess sé löngu farinn annað.“
Örnefnasöfnunin er hliðarverkefni
við doktorsritgerð, sem Hallgrímur
vinnur að um nöfn í Reykjavík með
áherslu á nöfn á götum og húsum frá
fyrri tíð. Hann bendir á að nöfnin
séu mikilvægur hluti af sögu borg-
arinnar. Á sínum tíma hafi til dæmis
stéttarfélög byggt blokkir við Hjarð-
arhaga og þær beri enn upphaflegu
nöfnin eins og kennarablokkin og
símamannablokkin. Gamla KR-
blokkin sé við Birkimel og sú nýja
við Kaplaskjólsveg. „Lögguhúsið við
Tómasarhaga 38-40 er nefnt svo
vegna þess að lögreglumenn byggðu
það og bjuggu,“ segir hann.
Kókakólaróló og lögguhús
Safnar örnefn-
um og öðrum heit-
um í Vesturbænum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fræðimaður Hallgrímur Jökull Ámundason er byrjaður að safna örnefnum í Vesturbænum.
Hallgrímur Jökull Ámundason segir
að örnefni og staðarheiti haldist vel
í Vesturbænum og ný bætist reglu-
lega í hópinn. Hann bendir á að á
leikskólanum Sæborg við Starhaga
heiti deildirnar eftir gömlu býl-
unum á svæðinu – Lambhóll, Garð-
ar, Suðurhlíð og Brúarendi – og
nöfnunum sé þannig viðhaldið.
Kemstvallagata sé nýtt nafn á
Hofsvallagötu rétt eins og Lúpínu-
hóll þar sem áður var bærinn Klöpp
á mótum Suðurgötu og Hjarðar-
haga. „Þessi nöfn benda til þess að
þetta sé hefð sem lifir,“ segir hann.
Saga er á bak við nöfnin. Hall-
grímur vísar m.a. til þess að Bráð-
ræðisholt heiti svo vegna þess að
býli þar hafi verið uppnefnt Bráð-
ræði þar sem mönnum hafi þótt
það vera byggt á undarlegum stað.
„Ráðleysi er annað slíkt nafn rétt
eins og Hallærisplanið,“ segir
hann.
Bráðræði og Kemstvallagata
GÖMUL OG NÝ ÖRNEFNI OG STAÐARHEITI ÚTI UM ALLT