Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2009, Page 20
20 föstudagur 11. september 2009 helgarblað
árum verður ekki séð að þeir Ágúst
og Lýður standi utan við núverandi
klíkur í íslensku viðskiptalífi, líkt og
Ágúst Guðmundsson sagði í við-
talinu við DV árið 2001: „Við tilheyr-
um engu sjávardýri,“ sagði Ágúst
þegar hann var spurður að því hvort
bræðurnir tilheyrðu einum af þeim
hópum sem kenndir voru við kol-
krabbann, hákarlinn eða smokkfisk-
inn en hins vegar er spurning hvað
kalla á þá klíku sem þeir tilheyra
núna - Kaupþingsklíkan er vissulega
ein hugmynd.
Lúxuslíf Bakkavararbræðra
Samhliða velgengni liðinna ára
byrjuðu að birtast fréttir af lúxuslífi
Bakkabræðra og fólksins í kringum
þá. Til að mynda keyptu þeir bræður
sér einkaþotu af gerðinni Gulfstream
sem metin er á um fjóra milljarða
króna. Einkaþotan hefur vafalítið
verið hugsuð meðal annars til þess
að flytja þá Bakkabræður frá Bret-
landi til Reykjavíkur en þeir eru bú-
settir í Bretlandi ásamt fjölskyldum
sínum.
Einnig rataði það í fréttir að þeir
Bakkavararbræður hefðu keypt sér
lystisnekkju sem áður var í eigu ít-
alska tískukóngsins Giorgios Arm-
anis. Bræðurnir tóku meðal annars
300 milljóna lán frá Kaupþingi til
að kaupa snekkjuna en hún er met-
in á um tvo milljarða króna. Nýlega
gekk tölvupóstur manna á milli á
Internetinu þar sem snekkjueign
þeirra bræðra var gagnrýnd af mikilli
hæðni í ljósi þeirrar kreppu sem nú
ríkir í landinu eftir bankahrunið.
Framkvæmdir þeirra bræðra við
sumarhús sín í Fljótshlíðinni og við
Þingvallavatn vöktu einnig nokkra
athygli þegar greint var frá byggingu
þeirra síðasta haust. Sumarhús Lýðs
í Fljótshlíðinni er um 900 fermetrar
að stærð og er meðal annars fjög-
ur hundruð fermetra kjallari undir
því. Hús Ágústs er látlausara, um 90
fermetrar, en kostnaðurinn við það
er samt áætlaður um 250 milljónir
króna. Hluti kostnaðarins er meðal
annars vegna þess að Ágúst notað-
ist við þyrlu þegar verið var að steypa
húsið; þyrlan flaug með steypusíló
yfir byggingarstaðinn og sturtaði úr
því ofan í grunninn.
Íslenska efnahagsundrið hjálp-
aði því þeim bræðrum við að komast
óravegu frá hrognavinnslunni í Garði
og karfavélahreinsunum í Reykja-
vík á níunda áratugi síðustu aldar; í
stað þess byrjuðu þeir að kaupa lúx-
usleiktæki af heimsþekktum tísku-
hönnuðum.
Kampavínsklúbburinn í Óman
Eiginkonur þeirra bræðra, þær Guð-
rún Eyjólfsdóttir, eiginkona Lýðs, og
Þuríður Reynisdóttir, eiginkona Ág-
ústs, hafa heldur ekki farið varhluta
af velgengni þeirra bræðra, eins og
eðlilegt er. Þannig greindi DV frá
því í maí að þær tilheyrðu svoköll-
uðum kampavínsklúbbi, sem í eru
eiginkonur og fyrrverandi eiginkon-
ur nokkurra helstu útrásarvíkinga
þjóðarinnar, sem væri á leiðinni til
Óman í Asíu í mikla lúxusferð.
Guðrún, eiginkona Lýðs, skrif-
aði ítarlega lýsingu um ferðina til
Ómans og vitnaði DV í hana. Ljóst
var að mikil spenna ríkti í kampa-
vínsklúbbnum fyrir ferðina. „Elsku
bestu vinkonur. Trúi þessu bara
ekki, við erum að fara á morgunn
(sic). Er núna orðin skuggalega
spennt,“ sagði Guðrún í tölvupósti til
vinkvenna sinna þar sem hún ræddi
dagskrána og lýsti yfir gleði sinni
með að það væru einungis 24 fjórir
tímar til stefnu áður en þær legðu í
hann til Óman.
Þær stöllur dvöldu í góðu yfirlæti
á Chedi-lúxushótelinu í höfuðborg
Óman, Múskat, þar sem nóttin kost-
ar á bilinu 60 til 160 þúsund krónur
og stunduðu morgunleikfimi, lík-
amsrækt, sunset yoga og tennis auk
annarra athafna sem ekki voru eins
heilnæmar.
Fréttin vakti nokkra athygli þar
sem mörgum meðal almenningi
blöskraði að eiginkonur útrásarvík-
inganna færu í slíka lúxus- og dekur-
ferð á meðan nokkuð hart væri í ári
hjá mörgum hér á landi út af banka-
hruninu; bloggsíður loguðu og marg-
ir viðhöfðu stór orð um þessa ferð
eiginkvennanna til Miðausturlanda.
Af henni er alveg ljóst að þó að ís-
lenska góðærið sé á enda fyrir þorra
þjóðarinnar þá á það ekki við um alla.
Kreppan er því víða en ekki alls staðar
og virðast Bakkabræðurnir og þeirra
nánustu vera meðal þeirra sem halda
áfram að njóta lífsins til hins ítrasta
í skugga íslenska efnahagshrunsins.
Hvort það verður til frambúðar er
hins vegar annað mál.
Exista stefnt; framtíðin óljós
Nær öruggt má telja að framtíð
þeirra Bakkabræðra og fyrirtækja
þeirra verði ekki síður dramatísk
en fortíð þeirra. Skilanefndir Kaup-
þings og Glitnis munu stefna Exista
út af skuldum félagsins við bank-
ana og þá er óljóst hvort Exista get-
ur borgað bönkunum kröfurnar og
eins hvort þeir fái að koma áfram
að stjórnun félagsins. Sömu sögu er
að segja um Bakkavör en kröfuhafar
Exista eiga enn eftir að samþykkja
söluna á tæplega 40 prósenta hlut
félagsins yfir til eignarhaldsfélags í
eigu þeirra Bakkabræðra.
Af orðum Lýðs á aðalfundi Exista
að dæma virðast einhverjir kröfu-
hafar félagsins, skilanefndir Glitnis
og Kaupþings, vera staðráðnir í að
koma stjórnendum þess frá jafnvel
þó að einhverjir af hinum kröfuhöf-
unum, sérstaklega erlend fjármála-
fyrirtæki, kunni að sætta sig við að
stjórnendur leiði félagið áfram. Lýð-
ur talaði um þessa baráttu sem líf-
róður: „Varnarbaráttan hefur verið
bæði löng og ströng. Henni er ekki
lokið enda þótt við séum öll von-
góð um að ná settu marki og tryggja
félaginu trausta framtíð. Ég er afar
hreykinn af frammistöðu þess fólks
sem setið hefur undir árum í þess-
um lífróðri...“
Samkvæmt heimildum DV mun
framtíð Exista og Bakkabræðra skýr-
ast fljótlega, þá mun meðal annars
koma í ljós hvort þeir bræður og for-
stjórar félagsins, Erlendur Hjaltason
og Sigurður Valtýsson, stjórni því
áfram. Ef þeim verður komið burt úr
félaginu verður það enn einn nagl-
inn í líkkistu íslensku útrásarinnar
því Exista er eina stóra eignarhalds-
félagið sem enn lifir eftir bankahrun-
ið, þó lífsmarkið með því sé heldur
veikt vegna skuldsetningar félagsins
og þess hreðjataks sem kröfuhafarn-
ir hafa á því.
Tengslanet Sigurðar og Lýðs Tengslanet Sigurðar Einarssonar,
fyrrverandi stjórnarformanns Bakkavarar, og Lýðs Guðmundssonar,
fyrrverandi aðaleiganda Kaupþings og stjórnarformanns Exista og
Bakkavarar. Þeir tengjast meðal annars í gegnum Kaupþing og tengsl
eru í gegnum Hreiðar Má Sigurðsson, Finn Ingólfsson og Panikos
Katsouris.
„Við tilheyrum
engu sjávardýri.“
4 milljarða einkaþotu Ágúst
og Lýður festu kaup á glæsilegri
Gulfstream einkaþotu sem metin
er á um 4 milljarða króna.
Þyrla notuð í steypuvinnu Þyrla var
notuð í steypuvinnuna við sumarhús
Ágústs Guðmundssonar við Þingvallavatn
í fyrrasumar. Kostnaðurinn við er talinn
vera um 250 milljónir króna.