Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2010, Blaðsíða 49

Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2010, Blaðsíða 49
ARÍANÝLENDAN NUEVA GERMANIA 23. apríl 2010 FÖSTUDAGUR 55 Í litlu sveitaþorpi í Paragvæ bera sumar göturnar þýsk nöfn. Sveitin ber nafnið Nueva Germania, (ísl. Nýja-Germ- anía) en íbúarnir eru afkomendur þýskra bænda sem fluttu til staðar- ins seint á nítjándu öld með hjónun- um Bernhard Förster og Elisabeth Nietzsche en hún var systir heim- spekingsins Friedrichs Nietzsche. Draumur skötuhjúanna var að skapa hreinræktaða aríanýlendu. Þær áætl- anir enduðu með ósköpum. Náin systkini Elisabeth Nietzsche var afar náin Fried rich bróður sínum á meðan þau ólust upp í bænum Röcken í Sax- landi, sem þá var hluti af Prússlandi, en nú Þýskalandi. Á námsárunum fór hið nána samband nokkuð dvín- andi, enda bjuggu systkinin á ólíkum stöðum og ræddu ekki mikið sam- an, nema með bréfaskriftum. Þeg- ar Elisabeth kynntist manni að nafni Bernhard Förster breyttist hins vegar allt. Friedrich Nietzsche hafði óbeit á þeim manni og fordæmdi ástarsam- band þeirra. Systkinin hættu að skrif- ast á eftir að þau náðu fimmtugsaldri en þá hafði Elisabeth giftst Bernhard árið 1885. Gyðingahatur Bernhard þessi Förster var mennta- skólakennari sem ungur hafði hrif- ist af kynþáttahyggju öfgahægrisinn- aðra afla í þýskum stjórnmálum. Hann varð svo einn helsti fánaberi hreyfingarinnar, Deutscher Volks- verein (Þýska þjóðarsambandsins), sem barðist gegn gyðingum. Hug- myndir Försters og bandamanna hans um „sníkjudýrið gyðinginn“ var ein þeirra er lögðu grunninn að þeim samsæriskenningum og kyn- þáttahyggju er nasistarnir æstu upp í þýsku þjóðarsálinni röskum fimmtíu árum síðar. Bernhard og Elisabeth fluttu bú- ferlum árið 1886 alla leið til suð- urameríska ríkisins Paragvæ, sem þá var í sárum eftir skelfilega styrjöld við Brasilíu, Úrúgvæ og Argentínu þar sem paragvæska karlþjóðin var nán- ast þurrkuð út. Á þessum árum sýndu Þjóðverj- ar Suður-Ameríku mikinn áhuga og vildu margir auðugir menn styðja hugrakka landnema er gætu stofn- að þýskar nýlendur þar syðra. Þús- undir Þjóðverja höfðu flutt til Brasil- íu, Argen tínu, Chile og fleiri landa, en fátt var þó vitað um Paragvæ. Útópía í frumskóginum Til Paragvæ höfðu skötuhjúin flust til að stofna nýlendu þar sem lögð yrði stund á kenningar um yfirburði aríska kynstofnsins. Draumur Försters var að skapa þýskt þjóðfélag sem fengi að vaxa og dafna fjarri samfélögum gyðinga sem hann hataði af lífi og sál. Hann vildi að landnemarnir þýsku myndu aðeins blandast innbyrðis og með tímanum yrði til stór nýlenda manna með „hreint arískt blóð“. Fjórtán fjölskyldur fluttust með Förster og Nietzsche til Paragvæ. Flestir voru úr stétt fátækra bænda frá Saxlandi, sem lofað var gulli og græn- um skógum, velsæld í nýrri útópíu. Landnemarnir höfðu miklar væntingar fyrir fram til hinna nýju lenda í Paragvæ. Ljóst var að mik- ið landrými var laust þar í landi eft- ir mannfallið í styrjöldinni. Fólkið virtist sjá þetta fjarlæga, sólríka land í miklum hillingum, áður en lagt var af stað. Árið 1888 voru allir landnemarnir nýju komnir til Paragvæ og samning- ar höfðu tekist við paragvæsk stjórn- völd um kaup á stóru landsvæði á strjálbyggðu frumskógasvæði í hér- aðinu San Pedro og var það nefnt upp á spænsku Nueva Germania (Nýja- Germanía). Þýskir bankar veittu Först er ríkulegt lán til að standa að stofnkostnaðinum við Nueva Germ- ania. Miskunnarlaus frumskógur Í framhaldinu unnu Bernhard Först- er og Elisabeth Nietzsche dag og nótt að því að lokka fleiri Þjóðverja til nýlendunnar og suðuðu í para- gvæskum stjórnvöldum um aukna fjárstyrki. Fjárhagsáætlunin gerði ráð fyrir að 110 þýskar fjölskyldur flyttust til Nueva Germania á ári, sem virtist ganga sérlega illa því fáir vildu setj- ast þarna að, fyrir utan þá fyrstu sem komið höfðu með hjónunum. Einn landnemanna var maður að nafni Julius Klingbeil. Hann sneri heim til Þýskalands árið 1889, að- eins ári eftir að hann flutti búferlum til Paragvæ. Í farteskinu var Klingbeil með bók sem hann hafði skrifað á leiðinni heim. Bókin hét Uppljóstran- ir varðandi nýlendu Bernhards Först- er. Í bókinni lýsti Klingbeil því sem enginn Þjóðverji vissi, fyrir utan fá- tæku bændurna sem lokkaðir höfðu verið í miðju frumskógarins með Först er og Nietzsche: Nueva Germ- ania var eitt allsherjarsvindl og hjón- in hrokafullir og gráðugir svindlarar. Klingbeil skrifaði að landspildan sem Förster hefði keypt væri á geysilega illvígu svæði í misk- unnarlausum frumskógi þar sem hin ýmsu sníkjudýr og moskító flugur herjuðu á íbúana daginn út og inn. Í bókinni var enn fremur skrifað að nánast ómögu- legt væri að rækta jörðina á þessum stað og stöðugar rigningar héldu íbúunum í gíslingu innan dyra þar sem fátt væri gert nema að drekka brennivín. Sprautaði sig með eitri Bókin vakti mikla athygli í Þýskalandi og var Förster í raun sviptur ærunni. Lánardrottnar skrúfu fyrir frekari lán til nýlendunnar sem sárvantaði fjármagn. Sívaxandi óróa gætti nú á meðal þýsku landnemanna, sem höfðu aldrei fundið þá paradís sem þeim hafði verið lofað heldur aðeins strit, sjúkdóma og fátækt við fram- andi og óþekktar aðstæður. Förster flýði Nueva Germania og bjó á hóteli í borginni San Bernar- dino þar sem hann lá hugsjúkur í rúminu og drakk viskí allan sólar- hringinn. Hann framdi sjálfsmorð skömmu síðar með því að sprauta sig með eiturblöndu er innihélt morfín og striknín. Hitler viðstaddur útförina Elisabeth Nietzsche sigldi heim til Þýskalands fjórum árum síðar, árið 1893. Hún flutti heim til Friedrichs bróður síns sem hafði greinst með alvarlega geðveilu og leið miklar kval- ir. Elisabeth hjúkraði bróður sínum og kynnti verk hans fyrir samtímamönnum, en ritverk Nietzsches voru orðin vel þekkt innan há- skólasamfélagsins í Evrópu. Heimspekingurinn Friedrich lést árið 1900 úr heilablóð- falli. Elisabeth Nietzsche lést árið 1935. Síðustu árin hafði hún lýst miklum stuðn- ingi við nasistaflokkinn, sem þá var að komast til valda í Þýskalandi. Nasist- arnir veittu Elisabeth pen- ingastyrk gegn því að hún myndi tengja nafn bróður síns við hugsjónir nasism- ans. Sjálfur Adolf Hitler var viðstaddur jarðarför hennar. Þýsku landnemarnir sem eft- ir urðu í Nueva Germania gleymdu fljótt hugmyndunum um aríska hreinræktun og blönduðust við aðra íbúa á svæðinu. Enn má finna afkom- endur þeirra í viðjum San Pedro-hér- aðs sem sumir bera svipmót fátæku bændanna frá Saxlandi sem Förster og Nietzsche lokkuðu með sér til Paragvæ. Sveitin ber enn heitið Nu- eva Germania. helgihrafn@dv.is NIETZSCHE Systir heimspekingsins hjúkraði honum á dánarbeðnum. Seinna seldi hún nasistum nafnið hans. NUEVA ALEMANIA Regnvotar göturnar í San Pedro-héraði í Paragvæ bera þýsk nöfn. Hér sést horn Elisabeth Nietzsche-götu og Nueva Alemania-götu. AFKOMENDURNIR Paragvæski maðurinn á myndinni heitir Wilhelm Fischer og býr í Nueva Germania. Hann er afkomandi fátæku landnemanna frá Saxlandi er Förster og Nietzsche lokkuðu með sér. BRASILÍA ARGENTÍNA PARAGVÆ Nueva Germania BÓLIVÍA SYSTIR HEIMSPEKINGSINS Elisabeth Nietzsche reitti bróður sinn til reiði þegar hún kvæntist gyðingahataranum Förster. Þýski gyðingahatarinn Bernhard Förster framdi sjálfsmorð á hóteli í Paragvæ árið 1889. Ekkja hans sneri heim til Þýska- lands til að hjúkra geðveikum bróður sínum, heimspekingn- um Friedrich Nietzsche. Draumur hjónanna um aríanýlendu í frumskógum Paragvæ breyttist í martröð.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.