Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2010, Blaðsíða 32
Nánast ekkert öskufall hefur orð-
ið á Kirkjubæjarklaustri og við
fyrstu sýn mætti ætla að áhrif goss-
ins hefðu ekki teygt anga sína svo
langt austur fyrir. Því miður er það
þó ekki raunin eins og það þarf ekki
að eyða löngum tíma á klaustrinu
til þess að verða var við ótta þeirra
sem starfa við ferðaþjónustu. All-
ir hafa þeir orðið fyrir umtalsverð-
um tekjumissi frá því að gosið hófst,
enda hefur ferðamannastraumur
alveg stöðvast. Ein þeirra sem hafa
orðið illa fyrir barðinu á gosinu er
Eva Björk Harðardóttir sem rekur
Hótel Laka á Efri-Vík ásamt maka
sínum og foreldrum, en þau máttu
varla við þessum tekjumissi þar
sem þau voru þegar komin í vand-
ræði með myntkörfulán.
Spurning hvort við
lifum þetta af
„Fyrir okkur er það lífsspursmál að
róa erlenda ferðamenn niður. Út-
lendingar sjá Íslendinga fyrir sér
með gasgrímur og vaðandi ösku
upp í hné. Þeir spyrja hvort við
séum á lífi. Við þurfum að koma
réttum skilaboðum út í heim.“
Á rúmri viku frá því að gosið hófst
hefur hótelið orðið af útleigu sex
herbergja auk þess sem stór hópur
afboðaði komu sína. „Á þessum tíma
þegar hver króna sem kemur inn í
reksturinn skiptir máli er þetta blóð-
taka. Við treystum á þetta og vorum
búin að kaupa inn og gera allt klárt.
Þetta er mjög slæmt og kostar okk-
ur kannski fjögur hundruð þúsund
krónur, okkur munar um annað eins
tap. Við vorum búin að horfa til þess
að þessi hópur gæti kannski dugað
til þess að borga nokkra reikninga.
Ef gosið róast eða breytist í hraungos
sem er viðráðanlegra þá lifum við af.
En ef Ísland fær það orð á sig að það
sé bara hættuslóð munum við ekki
lifa lengi. Þá er það útilokað.“
Berjast við vextina
Foreldrar Evu Bjarkar hófu starfsem-
ina í kjallara hússins árið 1974. Árið
2006 hófu þau framkvæmdir sem
enn er ólokið en þau fóru að ráð-
leggingum bankans og tóku mynt-
körfulán. Draumurinn var að byggja
heilsársheilsulind. „Við ætluðum
ekki að fara í samkeppni við aðra á
svæðinu sem eru með ferðamanna-
þjónustu sem er svona innan þess
hefðbundna. Við ætluðum að sækja
í nýjan markhóp og heilsuþenkjandi
einstaklinga. Við vorum komin í
samband við lýtalækni á Ítalíu sem
var að leita að skjóli til lengri tíma og
ýmislegt í þeim dúr.
Í okkar villtustu markaðsáætl-
unum datt okkur ekki í hug að lán-
Eva Björk Harðardóttir, sem rekur Hótel Laka á Efri-Vík, var þegar komin í vandræði með
myntkörfulán þegar eldgosið kom og stöðvaði ferðamannastrauminn á Kirkjubæjarklaustur.
ANNAÐ HRUN Á HÓTEL LAKA
INGIBJÖRG DÖGG KJARTANSDÓTTIR
blaðamaður skrifar: ingibjorg@dv.is
Gæti alveg eins skilað lyklinum
Guðmundur Vignir Steinsson er
þrítugur og framkvæmdaglað-
ur maður sem rekur ásamt konu
sinni bæði Systrakaffi og Skaftár-
skála á Kirkjubæjarklaustri, þar
sem við hittum hann fyrir einan
í skálanum. Hér hefur allajafna
verið stöðug umferð þegar kom-
ið er fram í apríl en nú er enginn
á ferð. Fyrir utan nokkra heima-
menn komu tveir gestir í skálann
í gær. Það var framför frá því sem
áður var og ástæðan líklega sú að
Almannavarnir héldu fund í bæj-
arfélaginu í gær. „Ætli ég sé ekki að
tapa hátt í hálfri miljón á dag þeg-
ar ég tek allt saman. Bensínsalan
er engin, veitingaskálinn stend-
ur nánast alltaf tómur og Systra-
kaffi hef ég bara lokað þar til ann-
að kemur í ljós og ástandið lagast.“
Guðmundur er með tvær stelp-
ur í vinnu og á von á fleiri starfs-
mönnum 28. maí. Hér starfa allt
að átján manns á sumrin. „Ég veit
ekki hvenær ég á að segja þeim að
þau geti ekki komið. Ég veit ekki
hversu lengi ég get þraukað svona,
ef þetta ástand varir fram á sum-
ar get ég alveg eins skilað lyklinum
og farið.“
Guðmundur Vignir Steinarsson veitingamaður á Kirkjubæjarklaustri tapar allt að
hálfri miljón á dag vegna eldossins í Eyjafjallajökli:
in gætu hækkað svona mikið. Núna
þurfum við bara að anda rólega
og taka einn dag í einu og reyna að
vera svolítið bjartsýn. Starfsfólk-
ið er væntanlegt í maí. Ég veit ekki
hvernig það verður, hvort við get-
um tekið á móti því. En eins og stað-
an er núna get ég ekkert gert annað
en það að taka stöðuna á hverjum
degi og vinna út frá því að þetta
verði í lagi. Ég segi við starfsfólkið
eins og ferðamennina: „Við skulum
bara sjá til á morgun og tala saman
næsta dag,“ segir hún og brosir. „Ég
tek bara einn dag í einu, við verðum
bara að þrauka. Ef við gerum ráð fyr-
ir því versta missum við alla frá okk-
ur og þær bókanir koma aldrei aftur.
Við gætum hugsað endalaust: „Hvað
ef?“ og auðvitað verðum við að vera
meðvituð um það hvað gæti orðið ef
fram fer sem horfir en við verðum
líka að halda svolítið í Pollýönnuna
í okkur.”
Hún heldur í vonina og trúir að á
endanum muni allt ganga upp. „Við
hefðum ekki lagt í þetta ef við værum
ekki óbilandi bjartsýn. En það gerist
eitthvað í haust. Við erum að berj-
ast við að borga vexti en við erum
með okkar lán hjá Byggðastofnun
og ég sé ekki hvaða hag hún hefði af
því að setja okkur yfir. Þetta er bara
ósanngjarnt ástand og ég myndi vilja
sjá þau lán sem við skrifuðum und-
ir á sínum tíma og borga samkvæmt
þeim. En okkar mál þróast bara eftir
því hvað Byggðastofnun sýnir okkur
mikla biðlund og skilning.“
Lenti í öðru hruni Eva Björk
Harðardóttir á Hótel Laka
berst í bökkum við að borga af
myntkörfuláni og mátti varla
við öðru hruni, en reynir að taka
Pollýönnu-viðhorfið á þetta.
Hálf milljón á dag
Guðmundur Vignir
Steinsson rekur Skaft-
árskála og Systraskála.
Hann hefur tapað allt
að hálfri miljón á dag
síðan gosið hófst.
32 FÖSTUDAGUR 23. apríl 2010 ELDGOSIÐ