Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2010, Blaðsíða 37
VIÐTAL 23. apríl 2010 FÖSTUDAGUR 37
FRAMHALD
Á NÆSTU
SÍÐU
orð voru slitin úr samhengi því um-
ræðan sem fram fór í BBC Newsnight
var ekki um viðbrögð á Íslandi og hvað
gerst hafði hér, heldur um viðbrögð
flugmálayfirvalda og stjórnvalda í
Evrópu. Auk mín voru þátttakendur
í umræðunum fulltrúar samgöngu-
yfirvalda og flugmálayfirvalda í Bret-
landi og víðar í Evrópu. Orðalagið æf-
ing, sem var nú reyndar „rehearsal“ á
ensku, sneri fyrst og fremst að því sem
hefur verið að gerast á flugvöllum í
Evrópu en ekki eldgosunum eða ham-
förunum hér á Íslandi.
Það var líka þannig að það var ekki
ég sem setti Kötlu á dagskrá í þeim
umræðum heldur var það stjórnandi
þáttarins sem gerði það, vegna þess
að að minnsta kosti allar meginsjón-
varpsstöðvar í Bretlandi voru bún-
ar að ræða Kötlugos fram og aftur í
nokkra daga. Þannig að það var ekkert
nýtt að Kötlugos væri til umræðu.
Það er bara staðreynd, ekki að-
eins að við þurfum, við Íslendingar
höfum í meira en hálfan áratug með
kerfisbundnum hætti búið okkur
undir Kötlugos. Almannavarnayfir-
völd bæði í landinu og á Suðurlandi,
björgunarsveitirnar, heimamenn á
Suðurlandi, hafa tekið þátt í gerð ítar-
legra almannavarnaáætlana sem eru
til, jafnvel útgefnar í bókarformi, og
í tölvukerfum vegna Kötlugoss. Þeg-
ar ég var í heimsókn á Suðurlandi var
til dæmis lýst fyrir mér mjög ítarlega
hvernig Kötlugos myndi þróast og
hvernig við myndum bregðast við því.
Við höfum verið að búa okkur undir
það sem þjóð að Katla muni gjósa.
Það eina sem ég sagði í þessum
þætti var að reynslan af flugsamgöng-
um í Evrópu undanfarna daga gerði
það að verkum að það væri skyn-
samlegt hjá stjórnvöldum í Evrópu
og flugrekstraraðilum að hefja hlið-
stæða undirbúningsvinnu um hvern-
ig þeir muni bregðast við þegar að því
kemur að Katla fer að gjósa. Við lifum
einfaldlega í svo samtengdri veröld að
þegar við sem þjóð höfum undirbúið
okkur með skipulögðum hætti árum
saman er það bara eðlileg samstaða
með öðrum þjóðum að hvetja þær til
að gera slíkt hið sama, eins og ég gerði
með þessum hætti.“
SKYLT AÐ VARA VIÐ HÆTTUM
Hann segir að þetta hafi verið rétti
tímapunkturinn til þess að gera það
vegna þess að umræðan um Kötlu-
gos hafi verið í gangi í nokkra daga
og það um víða veröld. „Auk þess var
óhjákvæmilegt að ræða það í þessum
þætti þar sem það var sett á dagskrá.
Vegna þess að ég er ekki þeirrar skoð-
unar eins og sumir virðast vera að það
megi bara ræða Kötlugos hér á Íslandi
og í þröngum hópi Íslendinga en það
megi alls ekki ræða Kötlugos við út-
lendinga.
Ég taldi nauðsynlegt og er reyndar
þeirrar skoðunar að það sé siðferðis-
leg skylda okkar Íslendinga sem þjóð-
ar að á sama tíma og við höfum und-
irbúið okkur allrækilega ættum við
einnig að hvetja aðrar þjóðir til þess
að undirbúa sitt samgöngukerfi, íbúa
og atvinnulíf undir það að það gæti
komið til tímabundinna stöðvana á
flugsamgöngum og öðrum þáttum í
þeirra efnahags- og atvinnulífi þegar
slík eldgos verða.“
SEGIR SANNLEIKANN
Hann segir að sumt í orðalagi þeirra
sem gagnrýna hann núna, en þeirra
á meðal er Steingrímur J. Sigfússon,
minni hann óþægilega á það sem
sumir ráðherrar sögðu um bankana
fyrir nokkrum árum. „Að það mætti
bara ekki segja neitt af ótta við að
það kæmi illa við bankana. Að það
mætti ekki vara við hættu eða taka á
neikvæðri umræðu frá öðrum lönd-
um vegna þess að það kæmi illa við
bankana og fjármálalífið. Sumir ráð-
herrar fóru í ferðalög til útlanda til
þess að lægja slíkar umræðuöldur og
ég hélt nú kannski að þessi reynsla
undanfarinna ára hefði kennt okk-
ur Íslendingum það að við eigum að
ræða þær hættur sem að okkur steðja,
hvort sem þær eru í fjármálaumhverf-
inu eða náttúrunni. Við eigum ekki að
vera feimin við að ræða það við aðrar
þjóðir. Við eigum líka að vara alla við,
ekki bara okkur sjálf heldur líka aðra,
vegna þess að ég tel það vera siðferð-
islega skyldu okkar þegar við höfum
sjálf undirbúið okkur rækilega með
skipulögðum hætti.“
NEITAR AÐ BÚA VIÐ ÞÖGGUN
Hann tengir þetta beint við banka-
hrunið. „Eins og ég hef sagt nokkr-
um sinnum, og mig minnir nú að ég
hafi sagt í viðtali við þig á sínum tíma,
þá tel ég að einn af þeim mikilvægu
lærdómum sem við þurfum að draga
bæði sem einstaklingar og þjóð, ég og
aðrir, sé að við hefðum átt að hlusta
betur á viðvaranir og við hefðum átt
að hlusta betur á þá sem töluðu um
hætturnar. Við hefðum ekki átt að
láta ríkja hér eins konar þöggunar-
múgsefjun þar sem ekki mátti tala
um þessi vandamál. Þeir sem vissu
um hætturnar pössuðu sig á því að
segja engum frá því, af því að það gæti
skemmt fyrir og rekist á við fjárhags-
lega hagsmuni einstakra fyrirtækja.
Ég er ekkert að bæta upp fyrir
það núna með þessum ummælum
um Kötlu, það var ekki ég sem hafði
frumkvæðið að þessari umræðu, ég
var einfaldlega að taka þátt í þætti á
BBC þar sem fjallað var um viðbrögð
evrópskra stjórnvalda og evrópskra
flugmála yfirvalda við þessum nátt-
úruhamförum á Íslandi. Ég er bara að
segja að þegar menn fara að gagnrýna
málflutning minn núna þykir mér
sumt minna óþyrmilega á skoðanir
sem voru ríkjandi hér fyrir nokkrum
árum varðandi umræðu um fjármála-
kerfið.“
FAGNAR RANNSÓKNARSKÝRSLUNNI
Þá segir hann að margt sé hægt að
læra af bankahruninu og ekki síst af
rannsóknarskýrslu Alþingis. „Ég er
mjög ánægður með skýrsluna í heild
sinni og hef hvatt þjóðina til að draga
lærdóm af henni. Í henni eru dregn-
ar upp veigamiklar heimildir sem lýsa
grundavallarveikleikum í íslensku
stjórnkerfi og íslensku fjármálalífi.
Og ég tel að það sé afar mikilvægt fyr-
ir þjóðina að draga lærdóm af því og
knýja fram breytingar út frá þeim lýs-
ingum sem þar koma fram.“
Fyrir viku benti hann þó á það í ít-
arlegum viðtölum við fjölmiðla að í
skýrslunni væru villur í kaflanum sem
fjallaði um þátt Ólafs Ragnars í hrun-
inu. „Mér fannst leitt að í þessari um-
ræðu um forsetaembættið skyldu vera
allnokkrar mjög meinlegar villur. Það
bæði setti mig í erfiða stöðu við að
fjalla um þann kafla og var nú ekki
gott þegar forsetaembættið átti í hlut.
En ég tel að það breyti engu um það
að skýrslan í heild sinni er veigamikið
framtak fyrir endurreisn íslensks sam-
félags.“
FYLGIR EIGIN SAMVISKU
Fyrir hann sem forseta er nú mikil-
vægast að reyna að sinna þeim verk-
efnum sem kallað er eftir og þörf er á:
„Eftir bestu samvisku og í samræmi
við hagsmuni þjóðarinnar eins og ég
sé þá á hverjum tíma. Ég tel mikilvægt
að taka þátt í því að þjóðin geti styrkt
sína stöðu á nýjan leik og ráðið fram
úr þeim erfiðleikum sem að henni
steðja hvort sem þeir eru vegna mis-
taka í efnahagslífi og stjórnkerfi eða
hamfara náttúrunnar.
Ég skil alveg á vissan hátt viðbrögð
ferðaþjónustunnar og ótta hennar en
HEFUR LÆRT
að segja sannleikann
Mér fannst leitt að
hlusta á yfirlýs-
ingu þessarar
góðu fjölskyldu en
ég held að það sé
eðlilegt og mann-
legt að bændur
og heimamenn
sem glíma við
þessa miklu erf-
iðleika, eyðilegg-
ingu lands og
þrengri búskap-
arhætti, bregðist
við með þessum
hætti.