Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2010, Blaðsíða 61
3
ÍTALÍA
1
3 2 1MIDOVERÐ FRÍTTFRÁ MIDDLESBROUGH TIL WEST HAMMido kostaði vissulega ekki neitt og fær ekki nema 1.000 pund í laun á viku. Það er
einfaldlega vegna þess að fjölskylda hans
er moldrík og hann þarf ekki á peningun-
um að halda. Ekkert af þessu breytir því þó
að Mido hefur staðið sig hryllilega illa með
West Ham á tímabilinu og ekkert gert til
þess að liðið haldi sér uppi í deildinni í ár.
ROQUE
SANTA CRUZ
VERÐ 17,5 milljónir punda
FRÁ BLACKBURN TIL MAN. CITY
Santa Cruz fór á kostum með Blackburn,
skoraði 29 mörk í 69 leikjum. Því borguðu
City-menn 17,5 milljónir punda fyrir hann
með bros á vör. Paragvæinn sterki hefur
þó aldrei staðið undir þeim kaupum. Hann
hefur verið meira og minna meiddur og
aðeins skorað fjögur mörk í nítján
leikjum. Hann er aðeins skugginn
af sjálfum sér.
ALBERTO
AQUILANI
VERÐ 20 milljónir punda
FRÁ ROMA TIL LIVERPOOL
Koma ítalska miðjumannsins átti
að mýkja höggið eftir brotthvarf
Xabis Alonso til Real Madrid. Meirihluta
peninganna sem fengust fyrir hann var
eytt í Aquilani þegar hann var fenginn
frá Roma. Sífelld meiðsli hafa haldið aftur
af pilti á hans fyrsta tímabili. Hann hefur
aðeins tekið þátt í 21 leik, þar af aðeins 8
sem byrjunarliðsmaður.
ENGLAND
ÞÝSKALAND
3 2
1
EDSON
BRAAFHEID
VERÐ 1,5 milljónir punda
FRÁ TWENTE TIL FC BAYERN
Eftir að FC Bayern mistókst að kaupa Jose
Bosingwa og Darijo Srna var Braafheid
keyptur frá Hollandi. Hann átti þó engan
veginn heima í svona sterkri deild. Hann
gat ekki haldið í við sóknarmennina og
fram á við var hann steingeldur. Braafheid
var snemma kominn á bekkinn áður en
hann var lánaður til Celtic í janúar. Þar er
hann einnig kominn á bekkinn.
RAUL
BOBADILLA
VERÐ Óuppgefið
FRÁ GRASSHOPPERS TIL M.GLADBACH
Bobadilla raðaði inn mörkunum í Sviss og
hann hefur svo sannarlega fengið tækifæri
til þess í Þýskalandi. Fullyrt er að enginn
hafi klúðrað jafnmörgum dauðafærum
og hann á einu tímabili hvar sem er í
heiminum. Maður gegn manni er líklegra
að markvörðurinn verji en hann skori.
Honum hefur meira að segja tekist að
skjóta fram hjá, einn gegn marki!
LUKAS
PODOLSKI
VERÐ 8 milljónir punda
FRÁ FC BAYERN TIL KÖLN
Köln tók sénsinn á að fá fyrrverandi
krónprins þýska boltans aftur heim.
Þeir vonuðust auðvitað eftir mörk-
um, og þeim í kassavís. Mörkin
hafa samt heldur betur látið á sér
standa. Podolski hefur nefnilega
ekki skorað nema tvö mörk. Annað
þeirra reyndar gegn FC Bayern en
það virðast einu leikirnir sem hann
reynir á sig í. Hann heldur samt
ávallt stöðu sinni í byrjunarliðinu
og tekur allar spyrnur í föstum
leikatriðum Kölnar. Þær fara flestar
langt yfir markið eða drífa ekki á
það. Nema gegn Bayern auðvitað.
NÆSTU MENN
4. KARIM ZIANI frá Marseille til Wolfsburg
5. A. WICHNIAREK frá A. Bielefeld til Hertha Berlin
6. ANATOLIY TYMOSHCHUK frá Zenit til FC Bayern
Á hverju tímabili eru keyptir menn til liða í sterk-
ustu deildum Evrópu sem standa ekki undir vænt-
ingum. Knattspyrnuvefmiðillinn goal.com tók sam-
an verstu kaupin í stærstu deildunum. Hér má sjá
þau alverstu í fjórum sterkustu deildum álfunnar. VERSTU
KAUPIN
Í EVRÓPU
3 2FABIO GROSSOVERÐ 2 milljónir pundaFRÁ LYON TIL JUVENTUSGrosso var frábær á HM 2006 en leiðin
síðan þá hefur legið beint niður á
við. Hann var ömurlegur hjá Inter og
verri hjá Lyon. Juventus tók sénsinn
á honum á lokadegi félagaskipta
en hefði betur sleppt því. Grosso er
gatasigti í vörninni og fram á við er
hann ekki hálfdrættingur á við það sem
hann eitt sinn var. Hann heldur þó enn
sætinu í landsliðinu af gömlum vana
hjá Marcello Lippi.
FELIPE
MELO
VERÐ 21 milljón punda
FRÁ FIORENTINA TIL JUVENTUS
Gerði harða atlögu að fyrsta sætinu.
Melo átti að binda saman vörn
Juventus og borgaði liðið því Fior-
entina háa fjárhæð fyrir leikmanninn
og borgar honum óheyrilega há
laun. Hann hefur aftur á móti
verið hreint ömurlegur og
fékk fyrir vikið gullruslafötuna
frægu á Ítalíu. Sendingarnar eru
ómögulegar og tæklingarnar
verri. Landsliðssætið er í hættu.
DIEGO
VERÐ 23 milljónir punda
FRÁ WERDER BREMEN TIL JUVENTUS
Juventus-menn í sætum 1, 2 og 3. Ekki furða að liðið
hríðfellur nú niður töfluna og Meistaradeildarsætið er í
hættu. Diego átti að vera maðurinn sem færði Juventus
klassann. Hann átti að leggja upp mörkin og skora
þau eins og hjá Bremen. Eitthvað virðist hvítröndótti
búningurinn þó ekki passa á hann því talið er að hann
fari strax í sumar til að binda enda á þessa martröð sína.
NÆSTU MENN
4. OGUCHI ONYEWU frá Standard Liege til AC Milan
5. MARCO AMELIA frá Palermo til Genoa
6. CRISTIANO LUCARELLI frá Parma til Livorno
NÆSTU MENN
4. PATRICK VIEIRA frá Inter til Man. City
5. JASON SCOTLAND frá Swansea til Wigan
6. SOTIRIOS KYRGIAKOS frá AEK til Liverpool
SPÁNN
16. apríl 2010 FÖSTUDAGUR 61
DMYTRO
CHYGRYINSKIY
VERÐ 22 milljónir punda
FRÁ SHAKHTAR DONETSK TIL BARCELONA
Hvar er þessi ágæti maður? Úkraínumaðurinn átti að
styrkja varnarlínu Barcelona svo um munaði en það
virkar eins og Guardiola hafi aldrei haft áhuga á að fá
leikmanninn. Hann hefur varla sést undanfarið og er
ekki einu sinni á bekknum hjá liðinu þegar tveir aðrir
miðverðir eru meiddir.
2KARIM BENZEMAVERÐ 30 milljónir pundaFRÁ LYON TIL REAL MADRIDÚtlitið var bjart hjá Benzema til að byrja með þegar hann skoraði fimm mörk á undirbúningstímabilinu.
En það telur ekkert þegar út í alvöruna er komið. Í
dag situr hann á 30 milljóna króna rassinum sínum
á bekknum á meðan Gonzalo Higuan raðar inn
mörkum. Hann virðist áhugalaus og sjá eftir því að
hafa gengið í raðir Real.
1SHUNSUKE NAKAMURAVERÐ FRÍTTFRÁ GLASGOW CELTIC TIL ESPANYOLNakamura kostaði ekki neitt þegar hann kom frá
Skotlandi og ekki fær hann mikið í laun. Það eru
frekar orð forseta Espanyol sem gera félagaskiptin
svo merkileg. Honum var líkt við sjálfan Ronaldo
og átti Japaninn að færa Espanyol nær einn síns
liðs upp í hæstu hæðir. Hann átti líka að auka
treyjusölu liðsins en allt þetta brást. Hann yfirgaf
Espanyol í janúar og fór aftur heim til Japans með
aðeins tólf leiki fyrir Espanyol á bakinu.
NÆSTU MENN
4. JERMAINE PENNANT frá Liverpool til Real Zaragoza
5. ALVARO NEGREDO frá Almería til Sevilla
6. SERGIO ASENJO frá Real Valladolid til Atletico Madrid