Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2010, Blaðsíða 12
Hluthafinn Guðjón Arnar segir að menn
verði að spila með kvótakerfinu til að lifa af.
Hann á fjórðungshlut í útgerðarfyrirtækinu
Öngli ásamt syni sínum.
12 FÖSTUDAGUR 23. apríl 2010 FRÉTTIR
Í DV síðastliðinn miðvikudag var fjall-
að um eignarhlut Guðjóns Arnars í
útgerðarfyrirtækinu Öngli ehf. á Ísa-
firði en fyrirtækið, sem er rekið af syni
Guðjóns, leigði frá sér kvóta fyrir tæp-
ar 16 milljónir króna á árunum 2007
til 2009. Guðjón Arnar var formaður
Frjálslynda flokksins frá árinu 2003
til ársins 2010. Hann var fyrst kosinn
á þing fyrir flokkinn árið 1999 og sat
þar til ársins 2007. Guðjón Arnar hef-
ur verið einn harðasti andstæðing-
ur kvótakerfisins um árabil og hefur
skrifað margar greinar um sjávarút-
vegsmál í dagblöð og tímarit þar sem
hann hefur gagnrýnt kvótakerfið og
brask með kvóta.
DV ræddi við Guðjón Arnar um
málið.
Blaðamaður (B): Er ekkert rangt
við þetta?
Guðjón Arnar (GA): Ætli menn verði
ekki að spila í þessu kerfi eins og það
er. Ég geri ráð fyrir því að hann hafi
leigt eitthvað til sín í hina áttina líka.
B: Þú skrifar upp á ársreikningana
ásamt syni þínum og þú hlýtur að
hafa farið í gegnum þessar tölur.
Finnst þér þetta siðlaust af þér að
taka þátt í þessu?
GA: Ég tek ekkert þátt í þessu því ég
hef enga afkomu af þessu fyrirtæki.
B: Þú hefur flutt margar ræður og
verið í umræðuþáttum þar sem þú
gagnrýnir kvótabrask …
GA: Ég hef margoft lagt það til að
þessu fyrirkomulagi verði breytt, en
það er nú einu sinni þannig að þó
manni líki ekki umferðarlögin þá
verður maður að fara eftir þeim.
Maður hefur þá skoðun hvað eigi að
þurfa að breytast í þessu og marglagt
til breytingar á því þó það hafi ekki
gengið eftir.
B: Þannig að þú hefur þá spilað
með kerfinu og leigir kvótann?
GA: Ég spila nú reyndar ekkert með í
þessu því ég hef aldrei tekið neinn ein-
asta arð út úr þessu fyrirtæki.
B: En þú ert hluthafi í fyrirtækinu?
GA: Já, ég á í þessu fyrirtæki með syni
mínum og frændum. Menn eru nátt-
úrulega bara með þessi lög fyrir fram-
an sig og ef einhver einn getur ekki
unnið í kerfinu þá náttúrulega bara
gefst hann upp.
B: En finnst þér þetta siðlaust?
GA: Það hefur alltaf farið í taugarnar
á mér þetta leigufyrirkomulag.
B: Þú skrifar upp á ársreikninga
fyrirtækisins og þú hlýtur að hafa
farið í gegnum þessar tölur. Finnst
þér þetta siðlaust?
GA: Ég tek ekkert þátt í þessu. Ég hef
enga afkomu af þessu fyrirtæki.
B: En þú ert samt hluthafi.
GA: Já, ég á í þessu fyrirtæki og því
miður er eignastaðan í því ekki góð.
B: Er þetta siðlaust af þinni hálfu
að taka þátt í þessu sem hluthafi?
Hefðirðu átt að fara út úr fyrirtæk-
inu? Þú hlýtur að hafa vitað þegar
þú skrifaðir upp á reikningana að
það væri verið að leigja kvóta frá
fyrirtækinu?
GA: Ég hef svo sem ekkert verið að
stúdera þessa reikninga. Drengurinn
gerir þetta út og lifir af þessu. Ég hef
enga tekjulega hagsmuni af fiskveið-
um í þessu fyrirtæki. Það er frekar að
maður hafi lagt peninga inn í fyrir-
tækið þegar illa gengur.
B: Þú vilt sem sagt ekki svara þeirri
spurningu hvort þér finnist þetta
vera siðlaust eða ekki?
GA: Ég get ekkert verið að svara því
vegna þess að lögin eru eins og þau
eru og ef að menn eru að reka svona
fyrirtæki eins og hann gerir í þessu til-
viki, þá neyðist hann til þess að vinna
með reglunum hvort sem hann hefur
skoðun á þeim í aðra áttina eða hina.
Ég hef aldrei mælt með þessu fyrir-
komulagi varðandi leigukerfið og hef
margoft lagt til að því verði breytt en
það hefur nú aldrei fengist í gegn.
B: Guðjón, þú varst í pólitík lengi og
talaðir gegn kvótabraski og þegar
það kemur í ljós að þú ert fjórðungs-
hluthafi í fyrirtæki sem er að leigja
frá sér kvóta, þá eru ansi margir
sem setja spurningamerki við það!
GA: Ég hef þá skoðun að þessu kerfi
eigi að breyta og hef alltaf talað fyrir
því. Það er bara einfaldlega þannig
að hvort sem það ert þú eða aðr-
ir, þá neyðast menn til að fara
eftir þeim lögum sem um-
hvefið býður upp á. Það
er ekkert annað svar við
þessu. Menn neyðast til
að vinna eftir þeim lögum
sem eru í gildi í landinu.
B: En hefði þá ekki verið rétt af
þér að koma fram og segja að þú
eigir hlut í fyrirtæki sem leigir frá
sér kvóta?
GA: Hef ég nokkurn tíma falið það að
ég ætti hlut í þessu fyrirtæki?
B: Ég hef ekki heyrt áður að þetta
fyrirtæki hafi verið að leigja frá sér
kvóta.
GA: Ég bara bið þig um að tala við
Kristján Andra vegna þess að það er
hann sem rekur þetta fyrirtæki og hef-
ur af því alla afkomu. Ég hef aldrei
haft nokkra afkomu af þessu fyrir-
tæki og ég bið þig bara að
spyrja hann út í þess-
ar tilfærslur. Hann
getur örugglega
svarað því betur en
ég því ég er ekkert
að stúdera þessar
tilfærslur fram og til
baka.
Guðjón Arnar Kristjánsson er fjórðungshluthafi í útgerðarfyr-
irtækinu Öngli sem á síðustu þremur árum hefur leigt frá sér
kvóta fyrir tæpar 16 milljónir króna. Guðjón hefur um árabil
verið einn helsti andstæðingur kvótakerfisins og meðal annars
gagnrýnt mjög að kvóti væri leigður frá fyrirtækjum.
VERÐA AÐ
SPILA MEÐ
KERFINU
JÓHANNES KRISTJÁNSSON
blaðamaður skrifar: johanneskr@dv.is
Ég tek ekkert þátt í þessu því ég hef enga
afkomu af þessu fyrirtæki.