Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2010, Blaðsíða 56

Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2010, Blaðsíða 56
56 FÖSTUDAGUR 23. apríl 2010 KVIKMYNDIR Um helgina verður frumsýnd á Ís-landi myndin Youth in Revolt. Með aðalhlutverk fer hinn 21 árs gamli Michael Cera sem fólk þekkir hvað best úr Arr ested Development-þáttunum og Superbad. Ferð Cera upp á stjörnuhimininn hefur verið stutt og farsæl. Youth in Revolt er sjötta stórmynd Cera á aðeins þremur árum en auk þess hefur hann leikið í einni „indep- endent“-mynd sem heitir Paper Heart. Einkenni Ceras er það að hann leikur í raun alltaf sama karakterinn. Honum hefur stund- um verið líkt við ungan Hugh Grant í þeim efnum. Cera leikur alltaf gaurinn sem veit ekki alveg hvað er að gerast eða hvar hann er. Gæj- ann sem er alltaf í smá spurningu en hefur samt þennan barnslega ljóma sem allir elska. Það eru sumir sem hata þennan karakter og sumir sem elska hann. Flestir elska hann enda raka myndir Ceras ávallt inn nóg af dollurum. Barnastjarnan sem fór á netið Michael Cera er frá Kanada og lék í sinni fyrstu kvikmynd þar í landi aðeins ellefu ára gam- all. Alls lék hann í níu kvikmyndum frá ellefu til fjórtán ára aldurs, var sannkölluð barna- stjarna. Auk þess var hann duglegur að lesa inn á teiknimyndir á borð við The Berensta- in Bears sem hann hlaut mikla athygli fyrir. Snemma var rætt um að hann yrði stjarna. „Það er eitthvað við Michael sem ég skil ekki alveg. Samt elska ég það og allir aðrir. Það er bara eins og hann hafi það. Ég veit samt ekki alveg hvað það er. Kannski er það einmitt ástæðan fyrir því að hann verður frægur. Já, ég lofa ykkur að hann verður stórstjarna,“ sagði einn framleiðanda The Berenstain Bears um Cera. Þegar Cera fannst nóg komið af aðgerðar- leysi eftir barnastjörnuferilinn ákvað hann að nýta netið til að koma sér á framfæri. Hann og besti vinur hans byrjuðu að setja á netið stutt gamanmyndbönd sem endaði með því CBS- sjónvarpsstöðin réð þá til starfa. Þeir fram- leiddu því, leikstýrðu og léku í sínum eigin netþáttum sem hétu Clark and Michael. Það var einmitt út frá netþættin- um sem Cera landaði gigg- inu í Superbad, myndinni sem skaut honum og Jonah Hill á toppinn. Þátturinn sem enginn skildi Á árunum 2003- 2006 lék Cera í þáttunum Arr- ested Develop- ment sem sýnd- ir hafa verið hér á landi. Þættirnir hlutu einróma lof gagnrýn- enda og var Cera þar hvergi undanskilinn. Þeir hlutu sex Emmy-verðlaun og ein Gold- en Globe-verðlaun og byggðu sér upp stóran aðdáendahóp sem fylgir þáttunum eftir enn þann dag í dag. Sá hópur var samt aldrei nægi- lega stór og þrátt fyrir lof allra fagaðila fékk þátturinn ekki nægilegt áhorf. Honum var því slaufað í miðri þriðju seríu. „Þetta er eitt það fyndnasta sem ég sé enn þann dag í dag. Ég verð að viðurkenna að ég fatta ekki hvernig þessi þáttur varð ekki vin- sælastur í heimi. Þarna voru þvílíkir leikarar, Jason Bateman, Jeffrey Tambor, Will Arnett og Portia de Rossi svo einhverjir séu nefndir. Svo var þetta frábærlega skrifað og bara ógeðslega fyndið. Ég hélt alltaf að ég yrði í Arrested Dev- elopment þar til ég yrði 25 ára en svo varð ekki, því miður,“ sagði Michael Cera, í viðtali við E!- sjónvarpsstöðina tæpu ári eftir að þáttunum var slaufað. Hlýtur endalaust lof Michael Cera þykir afskaplega viðmótsþýður og er draumur allra leikstjóra. Þrátt fyrir ung- an aldur er hann hörkuduglegur og með full- komnunaráttu, nokkuð sem hann segist hafa fengið frá pabba sínum. Hann var árið 2009 til- nefndur til verðlauna sem ein af rísandi stjörn- um kvikmyndaheimsins á BAFTA-verðlaun- unum bresku. Það þykir mikill heiður. „Við æfðum okkur aldrei þegar við lékum í Arrested Development. Það var bara eins og hann væri sonur minn. Hann er fyndnasti ungi maður sem ég þekki,“ segir Jason Bate- man, leikari sem lék aðalhlutverkið í Arrested Development en þar lék hann föður Michaels. „Þessi karakter sem hann frumsýndi í þess- um þáttum er bara snilld. Hann kannski virkar eins á marga en trúið mér, þetta er ekki sami hluturinn því þá myndi hann ekki virka,“ segir Bateman. Michael Cera lék fyrir tveimur árum í myndinni Year One með hinum dáða gaman- leikara Jack Black. „Ég er nú duglegur að vinna en Michael er engum líkur. Ég vissi að svona góður strákur væri samviskusamur en hann er miklu meira en það. Hann er vinnuþjarkur og vill hafa allt fullkomið. Hann er líka ótrúlega fyndinn. Michael Cera verður einn sá stærsti í Hollywood eftir nokkur ár, það er ég viss um,“ segir Jack Black um Michael Cera. Michael Cera er eitt af ungstirnum kvikmyndabransans. Þrátt fyrir ungan aldur hefur hann leikið í mýmörg- um stórmyndum. Ferill hans hófst sem barnastjarna og síðar varð hann stjarna á netinu. Í dag er hann einn af vinsælustu leikurunum í Hollywood. Sami karakterinn Byrjunin á frægðinni Cera varð fyrst stjarna eftir Superbad. se virkar alltaf Helstu hlutverk *Arrested Development - 2006 *Superbad - 2007 *Juno - 2007 *Nick and Norah‘s Infinite Playlist - 2008*Paper Heart - 2009 *Year One - 2009 *Youth in Revolt - 2010 Væntanlegt *Scott Pilgrim vs. the World *Arrested Development (kvikmyndin) Rísandi stjarna Vakti fyrst ath ygli í Arrested Development, Juno fékk frábæra dóma og Year One v akti mikla athygli þrátt fyrir slaka dóma. Stórstjarna Michael Cera er einn af vinsælustu leikurum Hollywood, aðeins 21 árs gamall.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.