Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2010, Blaðsíða 69
SVIÐSLJÓS 23. apríl 2010 FÖSTUDAGUR 69
Jessica
Simpson:
BARMURINN
BLÓMSTRAR
Jessica Simpson hefur lengi ver-ið þekkt fyrir breiðan barm en allt útlit er fyrir að hann sé enn
að stækka. Hvort það er fyrir til-
stilli lýtaaðgerða eða góðrar matar-
lystar hefur hins vegar ekki fengist
staðfest. Ferill söngkonunnar hefur
verið upp og ofan undanfarin ár en
segja má að tekið hafi að halla und-
an fæti eftir að hún skildi við Nick
Lachey og fór að gera kántrítónlist.
Hún vinnur nú hörðum hönd-
um að því að kynna nýja raunveru-
leikaþáttinn sinn The Price Of Bea-
uty en í honum ferðast Jessica um
allan heim og kynnir sér ólík gildi
fegurðar. Það sem þykir fallegt á
einum stað þykir alveg hræðilegt á
öðrum en í öllum menningum virð-
ist fegurðardýrkunin finnast í ein-
hverri mynd.
Jessica Simpson Barmurinn
verður sífellt breiðari
Borgartúni 21 | 105 Reykjavík | Sími : 569 6900, 800 6969
www.ils.is
Lán og styrkir til tækninýjunga
og umbóta í byggingariðnaði
Umsóknarfrestur er til 10. maí 2010
Íbúðalánasjóður auglýsir til umsóknar lán og styrki til tækninýjunga og umbóta í
byggingariðnaði. Lán eða styrki má veita einstaklingum, fyrirtækjum og stofnunum
sem vinna að þróun tæknilegra aðferða og nýjunga sem leitt geta til lækkunar á
byggingarkostnaði og viðhaldskostnaði íbúðarhúsnæðis, styttri byggingartíma eða
stuðlað með öðrum hætti að aukinni hagkvæmni í byggingariðnaði.
Rafræn umsóknarblöð er að finna á vefsíðu Íbúðalánasjóðs, www.ils.is
Nánari upplýsingar veitir Helga Arngrímsdóttir hjá Íbúðalánasjóði
í síma 569 6900 og með tölvupósti helga@ils.is
Fleiri konur saka Steven Seagal um áreiti:
SEKUR EÐA
SAKLAUS?
Steven Seagal Er hann
óþokki eða ekki?
Í síðustu viku lagði fyrrverandi fyrirsætan Kayden Nguyen fram kæru á hendur hasarmyndahetj-
unnar Steven Seagal vegna kyn-
ferðislegs áreitis. Kayden starfaði
sem aðstoðarkona Seagals en hún
sakar hann um að hafa leitað á sig
en henni hafi tekist að komast und-
an áður en eitthvað alvarlegt gerð-
ist.
Í kjölfarið hafa tvær konur stig-
ið fram og sagst ætla að styðja mál-
sókn Kayden en þær hafi svip-
aða sögu að segja. Í yfirlýsingu frá
annarri þeirra segir að Seagal hafi
reynt að káfa á brjóstum konunnar
og sagst vera leita eftir hnúðum líkt
og læknar gera. „Hann vildi bara
snerta það í stutta stund til að finna
hvernig það væri,“ segir einnig í yf-
irlýsingunni en báðar konurnar
eru sagðar hafa unnið fyrir leikar-
ann.
Lögfræðingur Seagals segir
þetta haugalygi og að Seagal hafi
aldrei hitt þessar konur. Hann seg-
ir þær aldrei hafa starfað hjá Seag-
al og engar skrár séu til sem sanni
að svo hafi verið. „Ásakanirnar eru
klárlega samansettar af lögfræð-
ingum Kayden Nguyen og svo lekið
í fjölmiðla til að styrkja innihalds-
lausar ásakanir gegn skjólstæðingi
mínum.“
Eilífðarbomban Heather Locklear var handtekin um síðastliðna helgi fyrir að klessa á skilti þar sem stóð bannað að leggja og stinga síðan af án
þess að segja nokkrum manni. Atvikið gerðist klukkan
fjögur um morguninn nærri heimili hennar í Ventura í
Kaliforníu. Nágranni sem heyrði lætin hringdi á lögg-
una og lét vita. Eftir smá fyrirgrennslan lögreglunn-
ar kom í ljós að 2005 árgerð af BMW sem Lokcklear á
var skemmdur og fór ekki á milli mála hver keyrði nið-
ur skiltið. Hún fékk sekt og var sleppt skömmu eftir
handtökuna. Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem Lockle-
ar kemst í hann krappan á bílnum. Árið 2008 var hún
gripin sauðdrukkin undir stýri og þurfti að greiða háa
fjársekt.
Aftur í bobba Lögreglumyndin af Locklear þegar
hún var tekin full við stýrið 2008.
Engri lík! Heather bara eldist ekki!
KEYRÐI NIÐUR
SKILTI