Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.2010, Síða 4
4 FÖSTUDAGUR 21. maí 2010 FRÉTTIR
BLÓÐ BJÖRGVINS
n Forysta Samfylkingar er í hinum
versta bobba vegna Björgvins G.
Sigurðssonar, fyrrverandi ráðherra.
Björgvin sagði af
sér þingmennsku,
tímabundið,
vegna þrýstings
frá Jóhönnu Sig-
urðardóttur for-
manni og Degi B.
Eggertssyni vara-
formanni. Jafn-
framt var honum
lofað lifibrauði ef hann axlaði þannig
ábyrgð. Nú virðist ljóst að ekki standi
til að útvega honum vinnu fyrr en
eftir kosningar. Forystan mun þannig
hafa svikið þingmanninn. Afleiðing-
arnar eru þær að hann mun hafa lýst
því að hann eigi ekki samleið með
flokknum undir þeim formerkjum að
hann liggi hjálparlaus í blóði sínu.
FERÐAGLAÐUR
SIGMAR
n Sigmar Guðmundsson, ritstjóri
Kastljóss, þykir ekki sérlega beittur í
starfi sínu. Það vekur nokkra furðu að
ritstjórinn ætlar
ekki að stýra sínu
liði í umfjöllun
um sveitarstjórn-
arkosningarnar.
Sigmar ætlar að
fara til Noregs í
krafti starfs síns
til að lýsa Euro-
visionkeppninni
í staðinn. Ekki er ólíklegt að hann
hitti í Ósló fyrrverandi sambýliskonu
sína, Þóru Tómasdóttur, sem þar er
á framabraut í gerð sjónvarpsþátta.
Spurt er hvort ekki hefði verið sparn-
aður í því fyrir Ríkisútvarpið að halda
ritstjóranum ferðaglaða heima en fá
Þóru til að lýsa keppninni af sinni al-
kunnu snilld.
NÁHIRÐIN TRYLLTIST
n Óhætt er að segja að Þorvaldi Gylfa-
syni prófessor hafi tekist að trylla
náhirð Davíðs Oddssonar með kröfu
sinni um að dóm-
arar sem skipaðir
voru á vafasöm-
um forsendum
verði reknir eða
færðir til. Þor-
valdur hefur sætt
stöðugum árás-
um á amx.is þar
sem félagi hans
úr Háskólanum, Hannes Hólmsteinn
Gissurarson, er sagður einn þeirra
sem stýrir penna. Aðferðin við að
koma höggi á prófessorinn er í anda
Göbbels. Þannig er endurtekið hvað
eftir annað að hann hafi þegið pen-
inga frá Baugi fyrir að skrifa í Frétta-
blaðið. Ýjað er að því að Þorvaldur
hafi með þessu brotið siðareglur Há-
skólans. Í því samhengi má benda á
að Hannes, sem einnig var launaður
Baugspenni, hefur verið dæmdur fyr-
ir ritþjófnað sem örugglega felur í sér
brot á siðareglum.
BARÁTTUGLAÐUR
HREIÐAR MÁR
n Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrver-
andi forstjóri Kaupþings, mun nú
óðum vera að ná áttum eftir rúmlega
vikudvöl í einangrun á Litla-Hrauni.
Ekkert skortir á baráttuvilja hans eins
og sjá má af því að hann hefur kært
úrskurð um farbann til Hæstaréttar.
Hreiðar Már er, eðli
málsins sam-
kvæmt, á land-
inu og dvelur
ýmist á heimili
sínu eða sumar-
óðali. Hermt er
að systir hans,
athafnakonan
Þórdís Sigurðar-
dóttir, hafi flust
til hans um tíma til
að vera honum
til halds og
trausts í
ólgusjó
rann-
sóknar
sérstaks
saksókn-
ara.
SANDKORN
Ólafur F. Magnússon segir Besta flokkinn úr tengslum við íbúa borgarinnar:
„Besti flokkurinn verstur“
„Besti flokkurinn er í mínum aug-
um versta framboðið sem litið hef-
ur dagsins ljós í borginni,“ segir Ól-
afur F. Magnússon, oddviti H-lista
fyrir borgarstjórnarkosningarnar
í Reykjavík í vor. Hann segir það
blasa við öllum íbúum borgarinnar
að Besti flokkurinn láti sig málefni
borgaranna engu varða.
„Öfugt við okkur tekur þetta
framboð á móti styrkjum og fjá-
framlögum í gríð og erg, sem segir
mér að á örskömmum tíma verða
þeir orðnir hluti af því spillingar-
bæli sem þeir segja aðra flokka vera
hluta af.“ Ólafur segir að honum
sé mikið í mun að beita sér gegn
flokknum enda séu skipulagsmálin
í stórhættu komist Besti flokkurinn
til valda. Hann segir fulltrúa Besta
flokksins einungis mæta á fundi
þar sem fjölmiðlar séu á vettvangi,
en þeir fari ekki út í hverfin, og séu
á engan hátt í tengslum við íbúa þar
sem og aldraða. „Fólkið í hverfum
borgarinnar æpir á slysavarnir og
öryggismál og Besti flokkurinn er á
engan hátt að bregðast við því,“ seg-
ir Ólafur.
Ólafur F. Magnússon fagnar
þeim breytingum sem orðið hafa
á H-lista hans sem býður fram til
borgarstjórnar nú í vor. „Ég veit að
ég fæ aldrei minna fylgi en 4.000 at-
kvæði. Það hefur aldrei gerst,“ segir
Ólafur.
jonbjarki@dv.is
Láta íbúa sig ekki varða Ólafur F.
Magnússon segir íbúa borgarinnar
æpa á slysavarnir og öryggismál en
Besti flokkurinn láti málefni íbúanna
sig engu varða.
BREYTA LÁNUM
STARFSMANNA
Slitatjórn VBS banka skoðar nú lánasamninga fyrrverandi starfsmanna bankans sem
var breytt af stjórn hans. Formaður slitastjórnarinnar segir breytingarnar á lánun-
um ekki sambærilegar niðurfellingu á lánum starfsmanna Kaupþings. Fyrrverandi
forstjóri vill ekkert tjá sig um breytingar á lánasamningum.
Hróbjartur Jónatansson, formað-
ur slitastjórnar VBS banka, seg-
ir slitastjórnina vera að rannsaka
lánasamninga fyrrverandi starfs-
manna sem höfðu keypt hluta-
bréf í bankanum sjálfum. „Það
eru í gildi lánasamningar sem
voru breyttir og þar sem ég hef
ekki kynnt mér þá til hlítar vil ég
ekki tjá mig um þetta, en þetta er í
ákveðnum skoðunarfarvegi,“ segir
Hróbjartur.
Forsvarsmenn þögulir
Aðspurður hvort málið sem ver-
ið sé að skoða innan VBS sé ekki
sambærilegt niðurfellingum á
lánum til starfsmanna Kaupþings
segir Hróbjartur svo ekki vera.
„Það virðast hafa verið breyting-
ar á lánasamningum og starfs-
kjarastefnu til að koma tilteknum
breytingum fram og það er bara
verið að skoða þær breytingar og
hvaða afleiðingar þær kunna að
hafa.“
Nýlega ákvað slitastjórn Kaup-
þings að afturkalla niðurfelling-
ar á lánum starfsmanna bankans.
Hróbjartur getur engu svarað um
það hvort slíkt sé á döf- inni
innan slitastjórn-
ar VBS. „Það væri
mjög óvarlegt af
mér að fara að
velta því upp núna hvaða afleið-
ingar eitthvað kann að hafa sem
ekki er búið að fullskoða.“
Jón Þórisson, fyrrverandi for-
stjóri VBS banka, vildi ekkert tjá
sig við DV þegar til hans var leitað.
Hann hafi lokið störfum hjá bank-
annum fyrir fjórum vikum. Hann
vildi ekkert segja um það hvort lán
til starfsmanna bankans hafi verið
felld niður af stjórn hans.
Milljarða niðurfellingar
Kaupþings
Það vakti mikla athygli í samfé-
laginu þegar stjórn Kaupþings
ákvað í september árið 2008 að
veita Hreiðari Má Sigurðssyni, þá-
varendi forstjóra bankans, heim-
ild til að fella niður persónuleg-
ar ábyrgðir starfsmanna bankans
á lánum vegna hlutabréfakaupa
í bankanum og takmarka ábyrgð
þeirra framvegis við veðsett
hlutabréf. Heildarfjár-
hæð lánanna sem
um ræðir er hátt
í 32 milljarðar
króna. Tæplega
fimmtán millj-
arðar voru
veittir að
láni með
per-
sónulegri ábyrgð. Langstærsti
hluti lánanna var veittur yfirstjórn-
endum bankans. Til marks um
það má nefna að um tuttugu fyrr-
verandi starfsmenn skulda bank-
anum tæp 90 prósent heildarfjár-
hæðarinnar en þeir voru flestir
lykilstjórnendur bankans og hafa
allir látið af störfum. Slitastjórn
Kaupþings taldi hinsvegar að nið-
urfelling persónulegrar ábyrgðar
sé gjafagerningur í skilningi gjald-
þrotalaganna og að auki til þess
fallin að rýra hlut kröfuhafa bank-
an því tók slitastjórn bankans þá
ákvörðun 17. maí síðastliðinn að
rifta þessum gerningum.
JÓHANNES KRISTJÁNSSON og
BIRGIR OLGEIRSSON
blaðamenn skrifa: johanneskr@dv.is og birgir@dv.is
Það væri mjög óvarlegt af mér
að fara að velta því upp
núna hvaða afleiðingar
eitthvað kann að hafa
sem ekki er búið að full-
skoða.
Formaðurinn Hróbjartur Jónatansson, formaður slitastjórnar VBS banka, segir
breytingarnar á lánasamningum starfsmanna VBS banka ekki sambærilegar
niðurfellingum á lánum starfsmanna Kaupþings.