Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.2010, Blaðsíða 24
24 FÖSTUDAGUR 21. maí 2010 UMRÆÐA
„Alþingi samþykkti skömmu eftir
miðnætti í gær frumvarp um breyt-
ingar á lögum um dómstóla. Dóms-
málaráðherra er hér eftir óheim-
ilt að skipa umsækjanda í embætti
dómara sem ekki er metinn hæf-
astur af dómnefnd og er hann því
bundinn af áliti nefndarinnar. Frá
því má þó víkja, aðeins ef Alþingi
samþykkir tillögu dómsmálaráð-
herra.“
Þessi frétt birtist á Vísi í gær og
kom mér svolítið á óvart; ég hafði
ekki vitað til þess að frumvarp um
þetta efni væri komið svona langt.
Ég veit ekki hverju er um að kenna
– fylgdist ég bara ekki nógu vel
með, eða fór eitthvað einkennilega
lítið fyrir þessu frumvarpi? Hvort
heldur er, þá er það í grundvallar-
atriðum mjög til bóta. Og eiginlega
nánast byltingarkennt. Þótt á því sé
ákveðinn galli, þykir mér.
SKYLDMENNI Í HÆSTARÉTT
Hingað til hafa ráðherrar get-
að skipað nánast hvern sem þeim
sýndist, alveg að eigin geðþótta,
í flestar þær stöður sem þeir hafa
skipunarvald yfir. Nefndir, eins og
þær sem hafa lagt dóm á hæfi um-
sækjenda um dómarastöður, hafa
verið sniðgengnar ef ráðherrum
býður svo við að horfa. Eins og ég
rakti í grein á þessum vettvangi
fyrir örfáum vikum, höfðu dóms-
málaráðherrar Sjálfstæðisflokks-
ins umsagnir dómnefnda að engu
til að koma vildarvinum og skyld-
mennum Davíðs Oddssonar í eftir-
sóttar dómarastöður, og þeir þurftu
lengst af ekki að standa neinum
reikningsskap gjörða sinna.
Þegar Björn Bjarnason dóms-
málaráðherra tók t.d. hinn óreynda
Ólaf Börk Þorvaldsson fram yfir
nokkra þrautreynda lögmenn, sem
dómnefnd hafði metið miklu hæf-
ari en hann til að setjast í Hæsta-
rétt, þá þurfti Björn í rauninni ekk-
ert að rökstyðja val sitt. Það rifjaðist
að vísu upp fyrir honum að Ólafur
Börkur hafði einhvern tíma skrif-
að ritgerð sem snerti Evrópurétt.
Því var fundin upp sú eftiráskýring
að mjög æskilegt væri að í Hæsta-
rétt settist sérfræðingur í Evrópu-
rétti og Ólafur Börkur væri – út af
þessari einu ritgerð – einmitt slík-
ur sérfræðingur. Og Björn básún-
aði að Ólafur Börkur, sérfræðing-
ur í Evrópurétti, hefði verið settur
í Hæstarétt vegna víðáttumikillar
þekkingar sinnar á þessari grein
lögfræðinnar, þótt aldrei hafi ver-
ið minnst á það í umsóknarferlinu
að æskilegt væri að umsækjendur
kynnu eitthvað fyrir sér í Evrópu-
rétti. Sem líka hefði verið stórlega
óeðlilegt.
BARA GRÍN
En þessi skýring Björns á því af
hverju hann valdi Ólaf Börk var
auðvitað bara grín, svona tilbún-
ingur eins og við vorum orðin svo
vön að heyra frá íslenskum ráða-
mönnum. Þeir komust upp með að
gefa alls konar bullskýringar á orð-
um sínum og verkum, og þótt all-
ir vissu að þetta væri bara bull, þá
voru þeir aldrei skoraðir almenni-
lega á hólm með bullið sitt, held-
ur fengu að vera svona að mestu í
friði með það. Það var eins og fólk
hugsaði: Já, svo þetta er bullskýr-
ingin hans á þessu tiltekna glap-
ræði, auðvitað tómt bull, en er þá
ekki bara allt í gúddí fíling?
Enda báru ráðamenn stundum
varla við að finna einhverjar skýr-
ingar, ekki einu sinni bull, þegar
þeir gengu til dæmis gegn ráðlegg-
ingum dómnefnda um manna-
ráðningar. Þeir þurftu engar skýr-
ingar að gefa – gátu bara sagt, og
gerðu hiklaust: „Ja, ég er nú ekki
sammála þessu mati dómnefndar-
innar.“
Fagleg dómnefnd, sem hafði
farið yfir feril allra umsækjenda og
lagt á ævi þeirra og verk svo vand-
að mat sem verða mátti, sú nefnd
var bara slegin út af borðinu í einni
svipan með orðunum: „Ja, ég er nú
nú ekki sammála.“
VIRÐINGARLEYSI
Þannig afgreiddi t.d. Árni Mathie-
sen, sem ég skrifaði um fyrir nokkr-
um vikum, dómnefndina sem hafði
komist að þeirri niðurstöðu að þrír
umsækjendur um héraðsdómara-
stöðu væru miklu hæfari en Þor-
steinn Davíðsson – með því að
segja bara: „Ja, ég er nú ekki sam-
mála.“ Eftir að Árni hafði „hugleitt“
málið í hálfan dag eða svo.
Virðingarleysið sem dómnefnd-
um var sýnt var meira að segja slíkt
að það var leynt og ljóst gefið í skyn
að það væri beinlínis æskilegt að
ganga gegn niðurstöðum þeirra.
Þær væru bara þröngsýnar klíkur
hagsmunagæslumanna úr viðkom-
andi stéttum sem vildu tryggja að
engir kæmust í embætti nema þeir
væru máttarstólpum stéttarinn-
ar þóknanlegir. Þannig var t.d. af-
greitt að dómnefnd um hæstarétt-
ardómarastöðu skyldi hafa komist
að þeirri niðurstöðu að margir um-
sækjendur væru mun hæfari en Jón
Steinar Gunnlaugsson til að gegna
dómarastöðunni; þetta væri bara
trénuð klíka sem menn vildu ekki
að óhefðbundinn eldhugi eins og
Jón Steinar kæmist í.
Frumvarpið, sem nú hefur ver-
ið samþykkt, er strax til mikilla
bóta. Samkvæmt því verður dóms-
málaráðherra beinlínis óheimilt að
skipa í tiltekna dómarastöðu ein-
hvern sem ekki er metinn hæfastur
af umsækjendum. Það þýðir vel að
merkja ekki að dómsmálaráðherra
sé skikkaður til að velja einhvern
tiltekinn einstakling sem dóm-
nefnd mælir með – heldur einfald-
lega að ef þrír umsækjendur eru
t.d. metnir „mjög hæfir“ verður að
velja í stöðuna úr hópi þeirra.
Þetta er gott. Þetta myndi til
dæmis hafa tryggt að enginn þeirra
þremenninga – Jóns Steinars, Ól-
afs Barkar og Þorsteins Davíðsson-
ar – hefði komist í dómarastöðu hjá
hinu opinbera.
ÞINGMEIRIHLUTA ÞARF TIL
Eða hvað? Af einhverjum ástæð-
um er sett inn ákvæði um að dóms-
málaráðherra geti þrátt fyrir allt
skipað einhvern annan en þann
hæfasta (eða einhvern úr hópi
hinna hæfustu), ef Alþingi sam-
þykkir síðan embættisveitinguna.
Þetta þykir mér óþægilegt ákvæði,
vægast sagt – að minnsta kosti ef
það er raunin að einfaldur meiri-
hluti þingmanna dugi til að stað-
festa ákvörðun dómsmálaráðherra.
Dómsmálaráðherra situr jú yfirleitt
í skjóli einhvers þingmeirihluta og
sá þingmeirihluti getur því stað-
fest hvaða embættisveitingu hans
sem er, hve vitlaus sem hún kann
að vera. Við þurfum til dæmis ekki
að fara í grafgötur um að ef Björn
Bjarnason hefði farið með veitingu
dómarastöðu við Hæstarétt til Ól-
afs Barkar fyrir þingið, þá hefði
stjórnarmeirihluti Sjálfstæðisflokks
og Framsóknarflokks hiklaust sam-
þykkt þann gjörning.
Það má hugsa sér að góð og gild
ástæða sé fyrir því að dómsmála-
ráðherra sé heimilt að ganga fram-
hjá áliti dómnefndar. Ef til dæmis
yrði til mjög „viljasterk“ dómnefnd
sem vildi absólútt fá að ráða því
hverjir settust í Hæstarétt, þá gæti
hún tekið upp á því að skipa um-
sækjendum alltaf þannig niður að
aðeins einn þeirra (sá sem nefnd-
inni væri þóknanlegur) félli í flokk-
inn „mjög hæfur“ og þar með væri
dómsmálaráðherra nauðbeygð-
ur að skipa hann. Þar með væri
stöðuveitingarvaldið úr höndum
ráðherra og komið í hendur nefnd-
ar úti í bæ. Það er ekki endilega
æskilegt og því er kannski ágætt að
þessi heimild sé fyrir hendi.
AUKINN MEIRIHLUTA
En þá þykir mér ótækt annað en
kveðið sé á um að það verði að
vera aukinn meirihluti þingmanna
sem samþykki ráðningu ráðherra
á öðrum en þeim sem nefndin
mælir með. Það ætti að þurfa tvo
þriðju, eða jafnvel þrjá fjórðu til að
ganga framhjá áliti nefndarinnar.
Þannig væri hægt að koma mjög
hæfum mönnum í Hæstarétt þótt
nefndin væri á móti þeim – ef stór
meirihluti þingmanna væri sam-
mála um að hann eða hún ætti þar
heima.
En nýja frumvarpið er þó óneit-
anlega til bóta. Smátt og smátt
tekst okkur vonandi að búa svo um
hnúta að skelfileg hneyksli Dav-
íðstímans í embættisveitingum í
dómskerfinu verði liðin tíð.
TRÉSMIÐJA ILLUGA
Frumvarpið,
sem nú hefur
verið samþykkt,
er strax til
mikilla bóta
Opið virka daga 12-18
laugardag 12-16
Grensásvegi 8 - 108 Reykjavík - 517-2040
LAGERSALA
Góðir skór - gott verð
Mikið úrval af nýrri vöru á
alla fjölskylduna
www.xena.is
HEYRNARÞJÓNUSTA
Heyrn, Hlíðasmára 11, 201 Kópavogur 534 9600 heyrn@heyrn.is
Tímapantanir - 534 9600
Ellisif Katrín Björnsdóttir
Heyrnarfræðingur
Nánari upplýsingar
www.heyrn.is
Ný tækni . Betra verð . Fagleg þjónusta
* Heyrnarþjónusta
* Heyrnarvernd
* Heyrnarmælingar
* Heyrnartæki
* Ráðgjöf
Komdu og fáðu ReSound tæki lánuð í nokkra daga til reynslu
og vittu hvort það opni þér nýjan heim.
Nýju ReSound heyrnartækin eru einstök vegna þess
að í þeim er kringóma (surround) hljóðvinnsluker
Upplifðu betri heyrn á betra verði
Verð frá kr. stk.250
Silungaflugur
Laugarveg 178 - Sími: 551 6770 - www.vesturrost.is
Vesturröst
Icebike - Iðavöllum 10 - Reykjanesbæ - S: 421 5452 - icebike@icebike.is
OPNUNARTÍMI
Þriðjudaga - föstudaga 13.00 - 18.00
Laugardaga 11.00 - 15.00
Lokað á mánudögum.
Icebike - Iðavöllum 10 - Reykjanesbæ - S: 421 5452 - icebike@icebike.is
OPNUNARTÍMI
Þriðjudaga - föstudaga 13.00 - 18.00
Laugardaga 11.00 - 15.00
Lokað á mánudögum.
Icebike - Iðavöllum 10 - Reykjanesbæ - S: 421 5452 - icebike@icebike.is
OPNUNARTÍ I
Þriðjudaga - föstudaga 13.00 - 18.00
Laugardaga 11.00 - 15.00
Lokað á mánudögum.
SPORNAÐ VIÐ
GEÐÞÓTTAVALDI
Illugi Jökulsson veltir fyrir sér nýju frumvarpi um skipan dómara