Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.2010, Síða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.2010, Síða 26
Það er alveg með ólíkindum hvað ég get verið óskynsamur. Ég hef víða drepið niður fæti í gegnum árin hvað atvinnu snertir. Ég hef verið á fiskibátum og farskipum, unnið sem smiður, prófarakalesari, hönnuður, ýmis smáviðvik sem snerta bifreiðaviðgerðir, öryggisvörður, verkstjóri og er þá fátt eitt nefnt. Því var það, á sunnudegi fyrir tæpum mánuði, þegar ég í kjölfar smá-vægilegrar hitavellu fór að fá fjandi slæma verki í vinstri síðuna að ég taldi mig án nokkurs vafa þess umkominn að gerast læknir eitt stutt andartak, enda yf- irleitt talinn þúsund þjala smiður. Eftir íhugun sem tók það skamma stund að hver læknir hefði verið stoltur af komst ég að þeirri niðurstöðu að um millirifjagigt væri að ræða. Ég komst auk- inheldur að þeirri niðurstöðu að réttast væri að taka verkjalyf og bíta á jaxlinn þar til þessi krankleiki gengi yfir. Vegna yfir- gripsmikillar þekkingar minnar í læknisfræði taldi ég að um yrði að ræða tvo daga max! Þessi sunnudagur leið, sem og mánudagurinn, en eina merkjan-lega breytingin á verkjunum var sú að þeir versnuðu til muna. „Asskoti er þetta svæsin millirifjagigt,“ hugsaði ég með mér þeg-ar ég ákvað að hafa samband við heimilislækninn minn, enda alþekkt að læknar leiti álits hjá starfsbræðrum sínum. Tilgangurinn var ekki að fá fagmannlegt mat heimilislæknisins á verkjunum sem hrjáðu mig enda hafið yfir allan vafa að greining mín væri rétt. Nei, ég vildi fá staðfestingu á minni fagmannlegu greiningu. Stað-festinguna fékk ég ekki og læknirinn ráðlagði mér að leita á bráða-móttökuna á Landspítalanum-Háskólasjúkrahúsi í Fossvogi. Einn vinnufélaga minna hafði reyndar ítrekað ráðlagt mér að leita læknis, en vegna rótgróinnar áráttu til að bíta á jaxlinn, hundsaði ég ráð bæði heimilislæknisins og vinnufélagans. Stundum er sagt að ókeypis ráð séu nákvæmlega þess virði sem þau kosta, en ég átti eftir að sannreyna að sú fullyrðing á ekki alls kostar við rök að styðjast. Þriðjudagurinn rann upp heiður og fagur og ég fór í vinnuna sem endranær þó ég ætti sífellt erfiðara með akst- ur, en morgninum heima hafði ég eytt í að gúgla millirifjagigt og möguleg- ar úrlausnir. Þar sem ég sat við vinnu mína hrutu með reglulegu millibili af vörum mínum orð sem ekki er vert að setja á prent og uppskar ég fyrir vikið frekari ábend- ingar um að leita læknis. „Á morgun“, sagði ég, „ef ég verð ekki orðinn góður“, en hugsaði með mér að það yrði kaldur dagur í helvíti áður en ég gerði mig að athlægi með því að leita læknisaðstoðar vegna ein- hverrar millirifjagigtar sem sennilega hyrfi líkt og dögg fyrir sólu um leið og ég tyllti mér inn á biðstofu. Á miðvikudeginum vaknaði ég með verkjum en það þarf vart að taka það fram að leið mín lá ekki til læknis heldur í vinnuna, enda er maður nagli og þá á ég ekki við dúkkaðan einnar tommu saum. Allan daginn bruddi ég verkjatöflur og bölvaði bæði upphátt og í hljóði og hét því að fara til læknis daginn eftir ef ég yrði ekki orðinn góður. Aðfaranótt fimmtudags var andvökunótt og mér tókst með herkjum og miklum kvölum að velta mér fram úr rúminu og klæðast. Allar hreyfingar voru þjáningin ein og með naumindum að mér tækist að setjast undir stýri. En í vinnuna skyldi ég. Ég hafði ekið skamm- an spöl þegar skynsemin tók völdin og ég sneri við; og tók stefnuna á bráðamóttökuna. Markmið mitt var að herja þar út almennilega verkja- sprautu svo ég gæti komist í vinnuna. Í móttökunni mátti ég vart mæla vegna verkja, en tókst þó að stynja upp einhverju um millirifjagigt, heiftarlega verki í vinstri síðu og verkja-sprautu og var mér sagt að fá mér sæti sem kom að sjálfsögðu ekki til greina því þá gætu aðrir sem þarna voru séð tár á hvarmi. Þegar þarna var komið sögu átti ég orðið erfitt með andardrátt sem ég hafði hvorki heyrt né lesið að tengdist millirifjagigt. Á mig runnu tvær grímur. Læknirinn sem skoðaði mig komst að þeirri niðurstöðu, þvert á mína sjúkdómsgreiningu vel að merkja, að ég væri sennilega með mikla og slæma lungnabólgu. Ég var lagður inn með það sama, fékk súr-efni og morfín, og var dæmdur til vistar sem varð hálfur mánuður þegar upp var staðið. Boðskapur þessarar frásagnar er sá að það er til „læknisleikur“ og læknisleikur og sá sem ég fór í er sú tegund sem ég get engan veginn mælt með. Læknanám er langt og strangt og ef fólk státar ekki af slíku ber því að forðast að fara í ímyndaðan hvítan slopp og hengja ímyndað hlustunartæki um hálsinn, þó slíkt sé bæði „töff og gæ“ og sjúkdómsgreina sig sjálft. Það er farsælast að leita læknis, nagli eða ekki. Í LÆKNISLEIK 26 FÖSTUDAGUR 21. maí 2010 UMRÆÐA EKKI SAMI RASS UNDIR ÖLLUM „Samfélagið þarfnast breytinga og ég tel að ég hafi bæði getu og kjark til að taka þátt í þeim breytingum,“ segir Andrea Hjálmsdóttir sem leiðir lista VG á Akureyri þegar hún er innt eftir því af hverju hún hafi farið út í pólitík. Andrea hefur verið viðloðandi starf VG frá árinu 2002 en hafði hingað til ekki verið á framboðslista. „Örugg- lega hafði það blundað í mér í ein- hvern tíma að fara sjálf fram en ég get ekki sagt að ég hafi gengið með bæj- arstjórann í maganum. Að mínu mati berum við öll samfélagslega ábyrgð og mér finnst um að gera að taka þátt og leggja mitt af mörkum.“ Talsvert púsluspil Andrea, sem er master í félagsfræði og einnig lærður gullsmiður, er gift tveggja barna móðir. Aðspurð seg- ir hún talsvert púsluspil að sameina móðurhlutverkið pólitíkinni. „Þetta starf er ekkert sérstaklega fjölskyldu- vænt en þetta reddast allt saman. Stelpurnar mínar eru duglegar að koma með mér á skrifstofuna. Hér er barnahorn svo við getum bæði haft ofan af fyrir börnunum okkar og börnum þeirra sem koma til okkar í kaffi. En þetta er púsluspil, því er ekki logið.“ Kvöldin undirlögð af fundum Hún segir týpískan dag hefjast á kosn- ingaskrifstofunni. „Þar fer ég yfir dag- skrá dagsins með kosningastjóran- um og reyni svo að vinna eitthvað. Ég kenni Afbrot og frávik í félagsvísinda- deild Háskólans á Akureyri en nú er önninni að ljúka og dagarnir fara í að lesa yfir próf og ritgerðir. Eftir vinnu fer ég aftur á kosningaskrifstofuna og hitti kjósendur og meðframbjóðend- ur, vinn að stefnumálum okkar og sit fundi. Kosningarnar eru 29. maí svo nú er dagskráin farin að þéttast og kvöldin eru oft undirlögð af fundar- höldum. Einhvern tímann þarna á milli sæki ég stelpurnar mínar í skól- ann og á leikskólann og eyði smá tíma með þeim. Lífið er sannarlega pólitík þessa dagana, með smá fjölskyldu- ívafi, en þetta gengur allt vel.“ Vill breyta kerfinu Aðspurð segir Andrea leið sína lík- lega hefðu legið í pólitík þótt krepp- an hefði ekki skollið á. „Því er erfitt að svara en ég held það samt. „Ástand- ið“ ýtti eflaust við mér og olli því að ég dreif mig af stað til að taka þátt í einhvers konar endurmati. Ég held nefnilega að ég hafi ýmislegt fram að færa sem er gott fyrir fólkið á Ak- ureyri,“ segir hún og bætir við að hún óttist ekki að pólitíkin breyti henni til hins verra. „Ég hef ekki trú á því að allir sem komi nálægt stjónrmál- um verði spilltir og það er sú trú sem rekur mig áfram. Það er alls ekki sami rassinn undir öllum pólitíkusum og ég held að það séu þeir sem hafi vondan málstað að verja sem segja að allir séu eins. Það þarf kjark og þor til að koma inn í stjórnmálin eins og staðan er í dag og ég er að koma inn með heiðarleg stjórnmál sem mark- mið og vilja til að breyta þessu kerfi í þágu fólksins,“ segir Andrea og er stokkin af stað á fund. Andrea Hjálmsdóttir leiðir lista VG á Akur- eyri. Hún viðurkennir að „ástandið“ hafi ýtt undir að hún tók sæti á framboðslista en hún hefur ekki áhyggjur af því að pólitíkin breyti henni til hins verra. STJÓRNMÁLAMANNS Andrea Hjálmsdóttir Andrea er lærður gullsmiður og með master í félagsfræði. Nóg að gera Andrea kennir einnig við Háskólann á Akureyri en þessa dagana er hún að fara yfir próf og ritgerðir. MYNDIR BJARNI EIRÍKSSON KOLBEINN ÞORSTEINSSON skrifar HELGARPISTILL

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.