Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.2010, Side 42

Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.2010, Side 42
42 FÖSTUDAGUR 21. maí 2010 MINNING Kristófer Darri fæddist í Reykjavík og ólst upp í foreldrahúsum í Grafarvog- inum í Reykjavík. Hann var á leikskól- anum Lyngheimar. Fjölskylda Systir Kristófers er Emilía Þóra Ólafs- dóttir, f. 14.4. 2009. Foreldrar Kristófers eru Ólafur Haukur Hákonarson, f. 26.6. 1980, og María Magdalena Steinarsdóttir, f. 8.3. 1979. Foreldrar Maríu Magdalenu eru Steinar Þór Guðjónsson, f. 20.5. 1955, og Maria Jolanta Polanska, f. 4.4. 1959. Systir Maríu Magdalenu er Sandra María Steinarsdóttir Polanska, f. 24.2. 1985. Foreldrar Ólafs Hauks: Hákon Hákonarson, f. 24.11. 1952, kvæntur Kristínu Kristjánsdóttur, f. 6.7. 1967, og Þóra Sveinsdóttir, f. 20.4. 1952, d. 2.7. 1991. Systkini Ólafs Hauks eru Guðrún Erla Hákonardóttir, f. 21.3. 1970, gift Einari Sólbergi Helgasyni, f. 2.3. 1969; Helga Hákonardóttir, f. 22.9. 1972; Gunnar Hákonarson, f. 20.11. 1973, kvæntur Herdísi Hersteinsdóttur, f. 10.4. 1971; Hákon Hákonarson, f. 3.7. 1978, kvæntur Önnu Ósk Sigurðar- dóttur, f. 13.12. 1981; Hulda Hákonar- dóttir, f. 5.1. 1980, gift Friðgeiri Kemp, f. 28.3. 1978; Arnar Snær Hákonarson, f. 26. 12. 1989; Hekla Hákonardóttir, f. 20.12. 1994, d. 25.9. 1996; Hera Huld Hákonardóttir, f. 19.9. 1997. Foreldrar Mariu Jolöntu: Zbigniew Polanski, f. 19.4. 1931, d. 23.11. 2003, byggingarverkfræðingur í Biatystok í Póllandi, og k.h., Wanda Polanska, f. 12.10. 1937, d. 1.3. 2002, efnaverk- fræðingur. Foreldrar Steinars Þórs eru Guð- jón Andrésson, f. 29.3. 1933, fyrrv. forstöðumaður og ökukennari í Reykjavík, og k.h., Árna Steinunn Rögnvaldsdóttir, f. 5.5. 1932, húsmóðir. Foreldrar Hákonar voru Hákon Þorsteinsson, f. 25.5. 1924, d. 26.3. 2009, og Benedikta Lilja Karlsdóttir, f. 19.4. 1924, d. 23.2. 2003. Móðir Þóru var Guðrún Árnadótt- ir, f. 14.12. 1924, d. 30.10. 2004. Útför Kristófers Darra fer fram frá Grafarvogskirkju í dag, föstudag- inn 21.5. og hefst athöfnin klukkan 13.00. MINNING Kristófer Darri Ólafsson Fæddur 11.9. 2006, lést af slysförum 17.5. 2010 Útfararþjónusta Davíðs Ósvaldssonar ehf. Davíð Ósvaldsson Útfararstjóri S. 896 8284 / 551 3485 Óli Pétur Friðþjófsson Útfararstjóri S. 892 8947 MERKIR ÍSLENDINGAR Ólafur fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Hann var rétt eins árs er hann missti föður sinn, en er Ólafur var sex ára giftist móðir hans Jóni Halldórs- syni, f. 1889, d. 1973, er gekk Ólafi í föðurstað. Ólafur stundaði nám við Miðbæj- arskólann. Hann hóf störf í Gasstöð- inni við Hlemm er hann var sautján ára en þá starfaði Jón Halldórsson þar. Ólafur gerðist þar lærlingur í pípu- lögnum, öðlaðist meistararéttindi í gaslögnum árið 1941 og meistararétt- indi í pípulögnum árið 1961. Ólafur starfaði síðan hjá Gasstöð Reykjavíkur og hjá Hitaveitu Reykja- víkur frá stofnun hennar 1943-84, er hann lét af stöfum fyrir aldurs sakir. Þar var hann lengi yfirverkstjóri. Ólafur hóf ungur að leika á hljóð- færi. Hann var m.a. í Harmonikku- félagi Reykjavíkur og Lúðrasveitinni Svaninum og var einn af stofnendum hvoru tveggja. Lengst af lék hann þó á trommur og þá með ýmsum hljóm- sveitum á árunum 1934-55, þ.á m. með Hljómsveit Bjarna Böðvarsson- ar og með harmonikkuleikurum, s.s. Braga Hlíðberg og Halldóri frá Kára- stöðum. Hann hóf svo trommuleikinn að nýju er hann flutti á Hrafnistu í Hafn- arfirði, þá orðinn níræður, og lék þar með DAS bandinu á dansleikjum á hverjum föstudegi í þrjú ár. Ólafur gekk í Oddfellowregluna er hann var tuttugu og fjögurra ára, var alla tíð mjög virkur í starfi Oddfellowa og var einn af stofnendum stúkunnar Þorkels mána árið 1952. Fjölskylda Ólafur kvæntist 23.1. 1943 Þorgerði Elísabetu Grímsdóttur, f. 10.12. 1915, d. 9.1. 2006, húsmóður. Hún var dótt- ir Gríms Kr. Jósefssonar, járnsmiðs hjá Reykjavíkurhöfn, og Halldóru Jóns- dóttur húsmóður. Ólafur og Þorgerður Elísabet bjuggu allan sinn búskap í Reykjavík, lengst af að Háteigsvegi 19 og í Skip- holti 12. Börn Ólafs og Þorgerðar Elísabet- ar eru Stella Hólm, f. 22.6. 1943, bú- sett í London, gift Gavin McFarlane og eiga þau tvo syni, Neil Gunnar Hólm; Angus Þór Hólm en eiginkona hans er Jane Foulser McFarlane. Einar Hólm, f. 10.12. 1945, skóla- stjóri, búsettur í Mosfellsbæ, kvæntur Vilborgu Árnýju Einarsdóttur og eru börn þeirra Ingibjörg Hólm, gift Jóni Guðmundi Jónssyni en börn þeirra eru Íris Hólm, Þórir Hólm og Sóley Hólm; Ólafur Hólm, kvæntur Elvu Brá Aðalsteinsdóttur og eru dætur þeirra Freyja Hólm og Una Hólm. Birgir Hólm, f. 28.2. 1956, pípu- lagningameistari, búsettur í Mos- fellsbæ, kvæntur Ósk Jóhönnu Sigur- jónsdóttur og eru börn þeirra Garðar Hólm en sambýliskona hans er Hild- ur Sigursteinsdóttir og er dóttir henn- ar Ísabella Rún; Berglind Hólm, gift Þorsteini Gíslasyni og er sonur þeirra Birgir Hólm en fyrir á Þorsteinn dæt- urnar Anítu Rós og Ísabellu Rós frá fyrri sambúð. Hálfsystkini Ólafs, sammæðra: Gyða Jónsdóttir, f. 27.9. 1920, búsett í Reykjavík, var gift Friðjóni Bjarnasyni prentara, sem er látinn; Erna Jóns- dóttir, f. 12.12. 1922, d. 6.5. 2010, var búsett í Reykjavík, gift Sigurði Inga- syni; Knútur Jónsson, f. 5.8. 1929, d. 24.7. 1992, bæjarritari á Siglufirði, var kvæntur Önnu Snorradóttur. Foreldrar Ólafs voru Einar Hólm Ólafsson frá Hvallátrum í Rauða- sandshreppi, f. 25.1. 1892, d. 12.8. 1915, skósmiður, og k.h., Gíslína Magnúsdóttir frá Hnjóti í Örlygshöfn, f. 18.1. 1889, d. 8.6. 1986, húsmóðir. Ætt Gíslína var ein af þrettán systkin- um frá Hnjóti í Örlygshöfn en meðal bræðra hennar var Ólafur, b. á Hnjóti í Örlygshöfn, faðir Egils, safnvarðar á Hnjóti. Gíslína var dóttir Magnúsar, b. á Hnjóti í Örlygshöfn Árnasonar, b. í Hænuvík Pálssonar. Móðir Gíslínu var Sigríður Sig- urðardóttir, b. og bókbindara í Vest- ur-Botni í Patreksfirði Gíslasonar, pr. í Sauðlauksdal Ólafssonar. Móðir Sig- ríðar var Ingibjörg Sigurðardóttir frá Bíldudal. Ólafur var jarðsunginn frá Háteigs- kirkju sl. miðvikudag. MINNING Ólafur Hólm Einarsson FYRRV. YFIRVERKSTJÓRI HJÁ HITAVEITU REYKJAVÍKUR Fæddur 17. 6. 1914 - Dáinn. 6. maí 2010 Jón Hermannsson Fyrsti lögreglustjórinn í Reykjavík f. 23.5. 1873, d. 14.11. 1960 Jón fæddist að Velli í Hvolhreppi á Rangárvöllum, sonur Hermannius- ar Elíasar Johnsson sýslumanns, og Ingunnar Halldórsdóttur húsfreyju. Jón lauk stúdentsprófi í Reykja- vík 1893 og embættisprófi í lögfræði við Kaupmannahafnarháskóla 1899. Jón varð aðstoðarmaður í íslenska ráðuneytinu í Kaupmannahöfn 1899, varð skrifstofustjóri á skrifstofu Stjórnarráðs Íslands í Reykjavík við heimastjórnina 1904 og var skipaður lögreglustjóri í Reykjavík 1918. Jón var fyrsti lögreglustjórinn í Reykjavík og gegndi því embætti til ársloka 1928 er Hermann Jónasson, síðar forsætisráðherra, tók við starf- inu, en Jón tók þá við nýstofnuðu tollstjóraembætti. Jón stóð oft í stórræðum með sitt fámenna lið en þekktasta stórmál- ið sem hann stóð frammi fyrir var Drengsmálið svo nefnda, er Ólafur Friðriksson, neitaði að láta af hendi rússneskan dreng sem var talinn vera með smitandi augnsjúkdóm og koma átti úr landi. Þótti Jón sýna stillingu og myndugleika í því erfiða máli. Jón bjó á þessum árum við Lækj- argötu þar sem Iðnaðarbankinn kom síðar. Var íbúð hans uppi en lögreglustöðin á jarðhæðinni. Lög- reglustöðin flutti svo í Arnarhvol ný- byggðan 1930, á horni Ingólfsstrætis og Lindargötu. Jón var tengdafaðir Auðar Auð- uns, borgarstjóra og ráðherra. Lárus Sigurbjörnsson Borgarminjavörður Reykjavíkur f. 22.5. 1903, d. 5.8. 1974 Lárus var sonur séra Sigurbjörns Á. Gíslasonar, ritstjóra og prests í Ási í Reykjavík, og k.h., Guðrúnar Lár- usdóttur, rithöfundar og alþm., sem drukknaði ásamt tveimur dætrum sínum í Tungufljóti 1938. Meðal systkina Lárusar voru Gísli, forstjóri Grundar og Áss, og Friðrik stórkaup- maður. Lárus lauk stúdentsprófi frá MR 1922, lauk kand.phil.-prófi við Kaup- mannahafnarháskóla og stundaði þar nám í eðlisfræði en hætti námi og stundaði síðan ritstörf og blaða- mennsku í Kaupmannahöfn til 1927, lengst af hjá Berlingske Tidende. Lárus hóf störf hjá Reykjavíkurbæ 1929, vann fyrst hjá bæjargjaldkera en var skipaður minja- og skjala- vörður 1956. Lárus samdi skáldsögu og a.m.k. tvö leikrit, auk þess sem hann þýddi fjölda leikrita. Hann var formaður Leikfélags stúdenta og Leikfélags Reykjavíkur og framkvæmdastjóri þess um skeið. Lárusar verður þó fyrst og fremst minnst sem stofnanda minjasafns Reykjavíkur að Árbæ og fyrir að bjarga fjölda merkra muna og minja úr fortíð Reykjavíkur sem öllum öðrum þótti þá sjálfsagt að færu for- görðum. Í þeim efnum vann hann ómetanlegt brautryðjandastarf. Það er eftirtektarverð tilviljun að Lárus lést er borgarbúar héldu þjóðhátíð vegna ellefu hundruð ára afmælis landnáms í Reykjavík.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.