Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2010, Side 2
2 fréttir 5. nóvember 2010 föstudagur
„Hann var einstaklega falleg sál“
n Íslendingurinn sem lést þegar hann varð
fyrir lest í Drammen í Noregi aðfaranótt
laugardags hét Kjartan Björnsson.
Hann var fæddur árið 1987 og því
23 ára gamall þegar hann lést.
Kjartan bjó í Noregi ásamt unn-
ustu sinni en þau fluttu þangað
í janúar á þessu ári ásamt syst-
ur Kjartans og vinkonu þeirra. Þau vildu
skipta um umhverfi og ákváðu því að freista
gæfunnar í Noregi. „Hann var búinn að
vinna tímabundið á nokkrum stöðum í Nor-
egi áður en hann fékk hjá fastráðningu hjá
Arctic Trucks fyrir fimm vikum og hann var
mjög ánægður þar,“ segir Elín Björg Birgis-
dóttir móðir Kjartans. „Hann hafði verið að
skemmta sér með nýju vinnufélögunum sínum og var á leið heim.“
Þetta má ekki gerast
n Ef fram fer sem horfir verða hjónin Ein-
ar Jónsson og Guðrún Pétursdóttir aðskil-
in vegna fyrirhugaðrar lokunar á
legudeild Sundabúðar á Vopna-
firði. Einar er 96 ára gamall og
þarf að flytja í annað sveitarfélag
til þess að fá umönnun. Hann er
bjartsýnn og segist ekki hafa trú á
því að þau verði aðskilin. Þau hafa verið gift
í 60 ár.
„Ég veit ekki hvert afi verður sendur, líklega
eitthvert innan austurlands en það er mik-
ill samhugur í fólki að stand vörð um elli-
heimilið,“ segir Una Björk Kjerúlf, ung kona
sem vakti athygli á áhrifum niðurskurð-
ar í heilbrigðiskerfinu á Vopnafirði með
skrifum sínum. Þar lýsir hún því hvernig afi
hennar, Einar Jónsson, þurfi líklega að flytja í annað bæjarfélag og burt frá
eiginkonu sinni ef af fyrirhugaðri lokun á legudeild Sundabúðar á Vopna-
firði verður.
Heiðar már til rannsóknar
n Heiðar Már Guðjóns-
son, fjárfestir og einn af
hugsanlegum kaupend-
um trygg-
ingafélags-
ins Sjóvár,
ætlaði líklega
að festa kaup
á félaginu
með aflandskrónum,
íslenskum krónum sem
keyptar eru á aflands-
markaði. Slík viðskipti
með gjaldeyri ganga
út á að menn kaupa
gjaldeyri á lægra verði á aflandsmarkaði í útlöndum en í landinu þar sem
viðkomandi gjaldmiðill er notaður. Algengt er að menn geti sparað sér 10
til 40 prósent af verði gjaldeyris með því að kaupa hann á aflandsmarkaði.
Seðlabankinn er stærsti núverandi hluthafi Sjóvár og á eftir að skrifa upp á
söluna á tryggingafélaginu til Heiðars Más og viðskiptafélaga hans.
Viðskiptin áttu að ganga þannig fyrir sig að íslenskt eignarhaldsfélag Heið-
ars Más, Ursus capital ehf., gæfi út skuldabréf sem erlendur aðili keypti
síðan með aflandskrónum, sem Heiðar Már á væntanlega erlendis. Þannig
hefði aflandskrónunum verið komið til landsins á löglegan hátt þar sem
undanþága hefur verið fyrir slík viðskipti í reglum Seðlabankans um gjald-
eyrismál.
2
3
1 Kjartan varð fyrir lest í noregi:
mánudagur og þriðjudagur 1. – 2. nóvember 2010 dagblaðið vísir 126. tbl.100. árg. – verð kr. 395
kardashian lögð í einelti:
n fjórði hver norðurlandabúi vill samnorrænt ríki
n ólafur stefán er bókstafstrúarmaður
steinþór baldursson hættir hjá vestia:
fær 8 milljónir
frá almenningi
n skilaði tapi og er leystur út með eingreiðslu
„ÉG VAR
SÖGÐ FEIT
OG LJÓT“
sameinað ríki
norðurlanda
hraðbraut:
BAUÐST
TIL AÐ
HÆTTA
„FLATEYR-
INGAR
ERU Í
SJOKKI“
fréttir 11
neikvæð ávöxtun:
PENINGARNIR
BRENNA UPP
Í BANKANUM
neytendur 14–15
bylting í erfðatækni:
VÍSINDA-
MENN
RÆKTA
LIFUR
erlent 16–17
fréttir 10
„ALLAH OPNAÐI
HJARTA MITT“
fréttir 12
fréttir 3
sviðsljós 28–29
fréttir 6
n hóf nÝtt
líf í noregi
n virðist hafa misst
eitthvað á teinana
n móðir kjartans:
„einstaklega falleg sál“
„VAR BARA
HRÆÐILEGT
SLYS“
fréttir 4
Kjartan Björnsson
F. 4 . j ú n í 1 9 8 7 – D . 3 0 . o k t ó b e r 2 0 1 0
Hjón um nírætt fórnar-
lömb niðurskurðar:
miðvikudagur og fimmtudagur 3. – 4. nóvember 2010
dagblaðið vísir 127. tbl.
100. árg. – verð kr. 395
LÍfSStÍLL 22–23
„þetta
MÁ eKKI
GeRaSt“
fréttir 6
n „Óréttmætar SkuLdir“
Heimavarnarliðið ver Hús:
SKULDaÐI
50 MILLJÓNIR
Í YFIRDRÁtt
ÁRIÐ 2007
n krabbameinSvaLdandi mengun vegna Lagna
vatnið getur
Skaðað Þig
neytendur 14–15
FRÆGa
FÓLKIÐ
SKILUR
fÓLkið 27
LIFIR ÞÚ
LÍFINU?
fréttir 4
seðlabankinn:
VIÐSKIPtI
HeIÐaRS Í
RaNNSÓKN
fréttir 2–3
n ÓtrúLegar fráSagnir af fram-
komu knattSpyrnuStjÓra Stoke
niðurLægir
ÍSLendinga
Sport 24–25
STURLA
SNÝR
AFTUR
n bakið
gaf Sig Í
noregi
fÓLkið 26
n 60 ára Sambúð gæti Lokið
vegna niðurSkurðar
2 fréttir
3. nóvember 2010 miðvikudagur
Heiðar Már Guðjónsson, fjárfestir
og einn af hugsanlegum kaupend-
um tryggingafélagsins Sjóvár, ætlaði
líklega að festa kaup á félaginu með
aflandskrónum, íslenskum krónum
sem keyptar eru á aflandsmarkaði.
Slík viðskipti með gjaldeyri ganga
út á að menn kaupa sér gjaldeyri á
lægra verði á aflandsmarkaði í út-
löndum en í landinu þar sem við-
komandi gjaldmiðill er notaður.
Algengt er að menn geti sparað sér
10 til 40 prósent af verði gjaldeyris
með því að kaupa hann á aflands-
markaði. Seðlabankinn er stærsti
núverandi hluthafi Sjóvár og á eftir
að skrifa upp á söluna á tryggingafé-
laginu til Heiðars Más og viðskipta-
félaga hans.
Viðskiptin áttu að ganga þannig
fyrir sig að íslenskt eignarhaldsfé-
lag Heiðars Más, Ursus capital ehf.,
gæfi út skuldabréf sem erlendur að-
ili keypti síðan með aflandskrón-
um, væntanlega sem Heiðar Már
á erlendis. Þannig hefði aflands-
krónunum verið komið til landsins
á löglegan hátt þar sem undanþága
hefur verið fyrir slík viðskipti í regl-
um Seðlabankans um gjaldeyrismál.
Skaðlegt fyrir þjóðina
Samkvæmt frétt Viðskiptablaðsins í
sumar, en blaðið var fyrsti fjölmið-
illinn til að greina frá þessum ætl-
uðu krónuviðskiptum Heiðars Más
og Ursus og fleiri félaga, ákvað Seðla-
banki Íslands hins vegar að koma
í veg fyrir að hægt væri að koma af-
landskrónum til landsins með þess-
um hætti. Umrædd undanþága var
í reglunum um gjaldeyrismál til að
liðka til fyrir erlendri fjárfestingu
á Íslandi og til að auðvelda að af-
landskrónum væri komið í umferð,
samkvæmt Viðskiptablaðinu. Und-
anþágan var væntanlega ekki í regl-
unum svo innlendir aðilar gætu
notað aflandskrónur til að stunda
viðskipti á ódýrari hátt hér á landi en
með því að festa kaup á krónum á Ís-
landi. „Seðlabankinn fetti fingur út í
það að aðrir aðilar en erlendir væru
að taka krónur inn í landið með þess-
um hætti. Á meðan einungis erlendir
aðilar stunduðu það að taka aflands-
krónur inn með þessum hætti fannst
Seðlabankanum það bara fínt til að fá
þetta fjármagn hingað inn. Svo hertu
þeir reglurnar eftir að þeir komust að
því að innlendir aðilar væru líka byrj-
aðir að gera þetta,“ segir íslenskur
bankamaður sem ekki vill láta nafns
síns getið. Í frétt Viðskiptablaðsins
kom enn frekar fram að eignarhalds-
félögin hefðu ætlað að nota krónurn-
ar til fjárfestinga hér á landi.
Tekið skal fram að vegna áður-
nefndrar undanþágu var ekki ólög-
legt að taka krónur með þessum
hætti hingað til lands en ef krónurn-
ar hefðu verið keyptar hér á landi
hefðu viðskiptin getað styrkt opin-
bert gengi íslensku krónunnar. Þetta
gerist hins vegar ekki ef um aflands-
viðskipti með krónur er að ræða. Ef
krónur eru keyptar í stórum stíl á af-
landsmarkaði leiðir slíkt til styrking-
ar krónunnar á viðkomandi markaði.
Því má segja að aflandsviðskipti með
krónur, sem síðar eru notaðar til fjár-
festinga hér á landi, séu ekki í anda
gjaldeyrishaftareglna Seðlabank-
ans sem miða að því að styrkja gengi
krónunnar hér á landi en ekki á af-
landsmarkaði.
Í svari Seðlabanka Íslands til DV
um rannsóknina á fjármagnsflutn-
ingunum segir að flutningur á af-
landskrónum til landsins geti ver-
ið skaðlegur fyrir alla landsmenn:
„Flutningur á aflandskrónum til
landsins er ógnun við stöðugleika
í gengis- og peningamálum meðal
annars sakir þess að þeim gæti ver-
ið skipt á ný á álandsmarkaði með
verulegum hagnaði á kostnað allra
landsmanna.“
Viðræður á milli Heiðars Más og
viðskiptafélaga hans við fyrirtækja-
ráðgjöf Íslandsbanka, sem sér um
söluna á Sjóvá, hafa staðið yfir um
margra mánaða skeið. Viðræðurnar
stóðu meðal annars yfir í sumar þeg-
ar Ursus gaf út umrædd skuldabréf.
Ekki er vitað til þess að Heiðar Már sé
í öðrum fjárfestingarhugleiðingum
hér á landi.
Líkt og DV hefur greint frá á liðn-
um vikum skipulagði Heiðar Már
stórfellda skortsölu fyrirtækja Björg-
ólfs Thors Björgólfssonar á íslensku
krónunni og íslenskum hluta- og
skuldabréfum í hagnaðarskyni á ár-
inu 2006 auk þess sem hann tók
stöðu gegn íslensku krónunni árið
2007 og tapaði á styrkingu hennar á
árinu. Heiðar svaraði fréttaflutningi
DV á þann veg að um áhættuvarn-
ir hefði verið að ræða og að ætlunin
hefði verið að verja fyrirtæki Björg-
ólfs Thors fyrir gengislækkun ís-
lensku krónunnar.
Kanna brot á reglum
Í frétt Viðskiptablaðsins kom einnig
fram að Seðlabankinn væri að kanna
hvort „reglur um gjaldeyrishöft hafi
verið brotin þegar eignarhaldsfélög
gáfu út skuldabréf sem hægt væri að
kaupa fyrir aflandskrónur“, líkt og
Heiðar Már gerði. Haft var eftir Má
Guðmundssyni seðlabankastjóra að
komið hefði í ljóst að einhver „mis-
notkun“ væri í gangi á þessari und-
anþágu frá reglunum um gjaldeyris-
mál og að tekið yrði á þessum brotum
ef þau teldust sönnuð. „Síðan hefur
komið í ljós að það var einhver mis-
notkun þarna,“ hafði blaðið eftir Má.
Meðal annarra fyrirtækja sem
Seðlabankinn var að skoða sam-
kvæmt fréttinni var Magma Energy
sem gaf út skuldabréf í apríl síðastlið-
inn sem kaupa átti fyrir aflandskrónur
sem síðar átti að nota til að fjármagna
kaupin á HS Orku.
Viðskiptablaðið hafði eftir Má að
útlendingar mættu kaupa það sem
þeim sýndist hér á landi og að engin
höft væru á erlendri fjárfestingu. Hins
vegar yrðu þeir „að skipta gjaldeyri
yfir í krónur“ til að fjármagna kaup
sín.
Samkvæmt svari Seðlabankans við
fyrirspurn DV um málið er þessi at-
hugun á viðskiptunum ennþá í gangi:
„Seðlabanki Íslands hefur mál eins og
þau sem um er rætt í fréttinni til skoð-
unar en ekki liggur fyrir niðurstaða
þeirrar athugunar.“ Viðskipti tengd
Heiðari Má hafa því verið til athug-
unar í Seðlabankanum í meira en tvo
mánuði.
Skuldabréf fyrir hálfan milljarð
Samkvæmt lista Verðbréfaskráningar
Íslands um útgefin skuldabréf á árinu
2010 voru skuldabréf Úrsus ehf. gef-
in út þann 21. júní 2010. Nafnverð á
hverja einingu í skuldabréfaútgáfunni
var ein milljón króna. Samkvæmt
upplýsingum frá Verðbréfaskráningu
voru gefnar út 490 einingar. Væntan-
legt söluandvirði skuldabréfanna er
því 490 milljónir króna. Verðbréfa-
skráning getur hins vegar ekki gefið út
hversu mikið af bréfunum hefur ver-
ið keypt né hver keypti skuldabréfin.
„Við getum eingöngu gefið upp mjög
takmarkaðar upplýsingar um þessi
viðskipti til þriðja aðila,“ segir starfs-
maður Verðbréfaskráningar.
Líklegt má telja að Heiðar hafi
með þessum viðskiptum ætlað að
koma með tæplega hálfan milljarð
króna af aflandskrónum hingað til
lands og að tilgangur hans hafi ver-
ið að nota þessar krónur til að greiða
fyrir hluta af hlutabréfum Seðla-
banka Íslands og Íslandsbanka í
Sjóvá . Seðlabankinn virðist hins veg-
ar hafa stöðvað þessi viðskipti, líkt og
önnur sambærileg. Má því ætla að
Heiðar og Ursus þurfi að verða sér
út um íslenskar krónur með öðrum
hætti til að greiða fyrir hlutinn í Sjóvá
ingi f. vilhjálmSSon
fréttastjóri skrifar: ingi@dv.is
HEIÐAR MÁR TIL RANNSÓKNARSeðlabankinn hefur rannsakað hvort heiðar már guðjónsson,
og ýmsir aðrir fjárfestar, hafi brotið reglur um gjaldeyrisvið-
skipti þegar þeir ætluðu að láta kaupa skuldabréf af íslenskum
eignarhaldsfélögum sínum með aflandskrónum. Salan á Sjóvá
til Heiðars og viðskiptafélaga hans hefur verið til meðferðar hjá
Fjármálaeftirlitinu og Seðlabankanum en báðar stofnanirnar
virðast hafa efasemdir um viðskiptin. Heiðar Már ætlaði líklega
að koma með hálfan milljarð af aflandskrónum til landsins.
nÍársreikningiUrsuscapitalehf.fyrirárið2009kemurframaðfélagiðskuldarHeiðarinærri98milljónirkróna.Þettaerlangstærstihlutiskuldafélagsinssemallsnemaum108milljónumkróna.Ekkiertekiðframhvernigþessiskuldertilkomin.AfársreikningnumaðdæmaerekkiaðsjáaðUrsusogHeiðarhafigefiðúteðaseltskuldabréfáárinu2009ogþvímáætlaaðskuldabréfaútboðiðísumarséhiðfyrstasemUrsusferímeðþessumhætti.
StaðaUrsuseralmenntséðágæt.Félagiðskilaðihagnaðiuppárúmamilljónífyrra.Eigiðféfélagsinsnemur99,9milljónum.Áhættufjármunirfélagsinsnemanærri190milljónum,þaraferuverðbréfoghlutabréfstærstihlutinn,ogheildar-eignirfélagsinserutæplega208milljónirkróna.Skuldirnareru,líktogáðursegir,um108milljónirkrónaogeruaðmestuviðHeiðarsjálfan.
Skuldar Heiðari nærri 100 milljónir
nSérfræðingurígjaldeyrismálumsemDVræddi
viðsegiraðviðskiptimeðkrónuráaflandsmarkaði
(off-shore)hafiveriðmjögalgengáðurenSeðla-
bankiÍslandshertireglurumgjaldeyrisviðskiptií
kjölfarbankahrunsinsárið2008.Hannsegiraðtvö
gengiséuákrónunni:opinbertgengi(on-shore)og
svogengiðáaflandsmarkaði.Hannsegiraðviðskipti
meðkrónuráaflandsmarkaðistyrkigengiðáþeim
markaðienleiðihinsvegartilþessaðfyrirvikið
styrkistopinbertgengikrónunnarekki.
nSérfræðingurinnsegiraðmarkmiðSeðlabankaÍslandsmeðgjaldeyrishaftalög-unumhafiveriðaðreynaaðstyrkjagengikrónunnará„on-shore“-markaðnumogslíkviðskiptimeðkrónunaáaflandsmarkaðigrafivissulegaundanþessariviðleitni.Þvímásegjaaðkrónuviðskiptiáaflandsmarkaðifarigegnanda
gjaldeyrishaftalaganna.Seðlabankinnviljihelstaðöllviðskiptimeðkrónunafariframá„on-shore“-markaðnum.Hinsvegarséerfittaðeigaviðslíkaviðskiptahættiþarsemekkiséólöglegtaðkaupakrónuráþennanhátt.
Hannsegiraðfyrirtækigetisparaðsér10til40prósentákaupverðigjaldeyrismeðþvíaðkaupahannáaflandsmarkaði.Fyrirtækisemþurfaaðkaupasérkrónurgetaþvísparaðsérumtalsverðarupphæðirmeðþvíaðgeraþaðáaflandsmarkaði.
Krónuviðskipti á aflandsmarkaði
nEignirEignasafnsSeðlabankaÍslandserubókfærðarsemtæplega491
milljarðurkrónaíársreikningifélagsins2009semskilaðvartilársreikningaskráríoktóber.TilgangurfélagsinseraðfarameðeignarhaldáfullnustueignumogkröfumSeðlabankaÍslandssemstafaafbankahruninuáÍslandiogfallaekkiundirreglubundnastarfsemibankans.EinafnúverandieignumEignasafnsinser73prósentahluturinníSjóváenríkissjóðurþurftiaðleggjatryggingafélaginutil12milljarðakrónaífyrratilaðbjargaþvífrágjaldþroti.HelstueignirEignasafnSeðlabankaÍslandseruskuldabréfaeignogaðrarlangtímakröfur,samtalsrúmlega200milljarðarkrónaogveðkröfurágjaldþrotafjármálafyrirtæki,tæplega250milljarðarkróna.VeðkröfurnarerutilkomnarvegnaveðlánannasemSeðlabankiÍslandsveittiíslenskubönkunumígegnumaðrarlánastofnanir,sérstaklegaIcebank.FullyrðamáaðþegartryggingafélagiðverðurseltmunieignasafniðekkifáþáfjármunitilbakaaðfullusemlagðirvoruinníSjóvá.
Þurfa að afskrifa út af Sjóvá Tvíþætt staða Seðlabankans Staða
SeðlabankaÍslandsíSjóvár-viðskiptun-
umersérstökþvíbankinnerbæðiað
seljastærstahlutinníSjóváenhefur
einnigveriðaðrannsakaviðskiptieins
fjárfestisins,HeiðarsMásGuðjónssonar,
meðaflandskrónurfyrrísumar.Már
Guðmundssonerseðlabankastjóri.
vildi nýta sér undanþágu HeiðarMárvildinýtasérund-
anþáguígjaldeyrishaftalögunumtilaðkomaaflandskrónum
tilÍslandssíðastliðiðsumar.Seðlabankinnvarekkihrifinnaf
slíku,frekarenítilfellumnokkurraannarraþekktraaðila.
en hann hefur sagt að hann hyggist
kaupa um þriðjung þeirra hlutabréfa
í Sjóvá sem í boði eru.
Í svari Seðlabankans við spurn-
ingum DV um málið kemur fram
að Seðlabankinn sé meðal annars
að skoða hvort hægt sé að heimila
viðskipti eins og Heiðar ætlaði að
stunda án þess að þau grafi unda
gjaldeyrishaftalögunum. „Seðla-
bankinn hefur hins vegar til skoð-
unar hvort hægt sé að heimila að
löglega fengnar aflandskrónur séu
fjárfestar til lengri tíma í innlendu at-
vinnulífi eða öðrum verkefnum hér á
landi. Þá þarf að búa svo um hnútana
að aðgerðin grafi ekki undan höft-
unum að öðru leyti. Slík fjárfesting
verður hins vegar ekki lögleg fyrr en
viðeigandi breytingar hafa verið til-
kynntar opinberlega. Löglega fengn-
ar aflandskrónur í framangreindum
skilningi eru krónur sem aðili hefur
eignast fyrir 28. nóvember 2008, þeg-
ar takmörkunum eða stöðvun á til-
teknum flokkum fjármagnshreyfinga
var komið á með reglum um gjald-
eyrismál.“
Samkvæmt þessu svari þarf það
því að hafa verið þannig að Heiðar
Már og aðrir fjárfestar sem ætluðu
að koma krónum til landsins með
þessum hætti hafi keypt þær fyrir lok
nóvember árið 2008. Ef það var ekki
raunin eru krónurnar ekki fengn-
ar með löglegum hætti og þá getur
bankinn ekki heimilað viðskiptin.
Einkennileg staða Seðlabankans
Seðlabanki Íslands er því í afar ein-
kennilegri stöðu vegna sölunn-
ar á Sjóvá. Á sama tíma og bankinn
er stærsti einstaki hluthafi Sjóvár,
hann á um 73 prósenta hlut í gegn-
um Eignasafn Seðlabanka Íslands,
þá hefur hann einnig verið að at-
huga hvort einn úr fjárfestahópnum
sem á í viðræðum við Íslandsbanka
um að kaupa félagið hafi brotið regl-
ur um gjaldeyrismál þegar hann kom
með fjármagn hingað til lands til að
kaupa tryggingafélagið. Seðlabank-
inn kemur að því að sölunni á Sjóvá
á að minnsta kosti tvenns konar hátt:
annars vegar sem seljandi og hins
vegar sem eftirlitsaðili með þeim að-
ferðum sem notaðar hafa verið til að
fjármagna kaupin.
Ljóst er því að Már Guðmundsson
virðist vera í nokkuð erfiðri stöðu og
mun líkast til vilja ganga úr skugga
um að engar reglur Seðlabanka Ís-
lands hafi verið brotnar við fjármögn-
unina á Sjóvá áður en hann skrifar
upp á söluna fyrir hönd bankans.
Fjármálaeftirlitið er einnig að at-
huga hvort Heiðar Már og viðskipta-
félagar séu hæfir til að fara með virk-
an eignarhluta í tryggingafélagi eins
og Sjóvá áður en af kaupunum verð-
ur þarf stofnunin að kvitta upp á hæfi
þeirra. Heiðar Már hefur sagt að um-
fjöllun DV um stöðutökur hans gegn
krónunni kunni að hafa áhrif á þetta
mat Fjármálaeftirlitisins. Að sama
skapi er líklegt að fjármögnun Heið-
ars á Sjóvár-hlutnum kunni að hafa
áhrif á skoðun Más og Seðlabankans
á því hvort Heiðar og félagar hans fái
að kaupa tryggingafélagið af Seðla-
bankanum, íslenska ríkinu.
Seðlabankinn gat ekki svarað
þeirri spurningu DV hvort þessi við-
skipti Heiðars Más myndu hafa áhrif
á sölu Seðlabankans á Sjóvá til hans
og viðskiptafélaga hans.
miðvikudagur 3. nóvember 2010 fréttir 3
Hæfi eigenda – hluti 43. greinar laga
um vátryggingafélög:
„Fjármálaeftirlitið leggur mat á hvort
sá sem hyggst eignast eða auka við
virkan eignarhlut sé hæfur til að eiga
hlutinn með tilliti til heilbrigðs og
trausts reksturs vátryggingafélags.
Við mat á hæfi viðkomandi skal m.a.
höfð hliðsjón af eftirfarandi:
1. Orðspori þess sem hyggst eignast
eða auka við virkan eignarhlut.“
Hæfi eigenda
Fjárfestahópurinn sem vill kaupa
Sjóvá:
n Heiðar Már Guðjónsson
n Ársæll Valfells
n Guðmundur Jónsson
n Berglind Jónsdóttir
n Frjálsi lífeyrissjóðurinn
n Stefnir – eignastýringarfyrirtæki
Arion banka
Fjárfestarnir
n Eignasafn Seðlabanka Íslands:
73 prósent
n SAT – eignarhaldsfélag Glitnis:
17,7 prósent
n Íslandsbanki: 9,3 prósent
Hluthafar í Sjóvá
Síðan hefur kom-ið í ljós að það
var einhver misnotkun
þarna.
DV sendi Seðlabanka Íslands spurn-
ingar um viðskiptin sem greint var frá í
Viðskiptablaðinu í ágúst og stöðuna á
rannsókninni á þeim.
DV: „Hver er afstaða Seðlabanka Íslands
í dag til slíkra viðskipta og af hverju
hefur bankinn þá afstöðu sem hann
hefur?“
SÍ: „Afstaða Seðlabanka Íslands til slíkra
viðskipta er óbreytt enda fer afstaða
Seðlabanka Íslands saman við túlkun
á þeim reglum um gjaldeyrismál sem í
gildi eru á hverjum tíma.“
DV: „Leit Seðlabankinn á slík viðskipti
sem brot á gjaldeyrishaftalögum?“
SÍ: „Viðskipti sem eru ekki í samræmi við
það sem heimilað er í gjaldeyrisreglum
og leiðbeiningum við þau teljast brot á
gjaldeyrisreglum.“
DV: „Í fréttinni kemur fram að undan-
þága hafi verið í reglum Seðlabanka
Íslands um gjaldeyrisviðskipti sem
heimilaði aðilum að kaupa skuldabréf
íslenskra fyrirtækja með aflandskrónum.
Er sú undanþága enn til staðar?“
SÍ: „Engin undanþága er í gjaldeyr-
isreglunum sem heimilar kaup á
fjármálagerningum með aflandskrón-
um. Hins vegar er ákveðin ívilnun veitt
í leiðbeiningum með reglunum til
handa erlendum fjármálafyrirtækjum.
Erlendum fjármálafyrirtækjum er
heimilt að kaupa fjármálagerninga (sem
Seðlabanki Íslands hefur metið hæf til
tryggingar í viðskiptum við bankann,
sbr. 11. gr. reglna nr. 553/2009 um við-
skipti fjármálafyrirtækja við Seðlabanka
Íslands) útgefna í innlendum gjaldeyri
og greiða fyrir þau kaup með millifærslu
af svokölluðum Vostro reikningum
sínum. Í því felst að fyrirtækjunum er
heimilt að greiða fyrir slíka fjármála-
gerninga með aflandskrónum. Heimild
þessi er bundin við kaup hinna erlendu
fjármálafyrirtækja fyrir eigin reikning
og er þeim aðeins heimilt að kaupa
fjármálagerninga sem Seðlabankinn
hefur metið hæf til tryggingar, sbr. nánar
hér á eftir:
n Samkvæmt heimild í bráðabirgða-
ákvæði í lögum nr. 87/1992, um gjald-
eyrismál, setti Seðlabanki Íslands reglur
um gjaldeyrismál í þeim tilgangi að tak-
marka og stöðva tímabundið fjármagns-
hreyfingar og gjaldeyrishreyfingar teldi
bankinn slíkar hreyfingar fjármagns
til og frá landinu valda alvarlegum og
verulegum óstöðugleika í gengis- og
peningamálum. Samkvæmt 3. mgr. 2.
gr. núgildandi reglna um gjaldeyrismál,
nr. 370/2010, eru allar fjármagnshreyf-
ingar á milli landa í innlendum gjaldeyri
óheimilar. Þó eru samkvæmt 3. tölulið
ákvæðisins undanþegin viðskipti með
fjármálagerninga sem útgefnir eru í inn-
lendum gjaldeyri, fari greiðsla fram með
úttektum af reikningi í eigu kaupanda
hjá fjármálafyrirtæki hér á landi.
n Seðlabanki gaf út leiðbeiningar
með framangreindum reglum 4. maí
2010 með viðbótum 13. ágúst 2010.
Í þeim kemur fram að forsenda þess
að fjármagnshreyfingar á milli landa í
innlendum gjaldeyri, sem undanþegnar
eru bannákvæði 3. mgr. 2. gr. reglnanna,
geti átt sér stað sé að greiðsla þeirra fari
fram með úttektum af reikningi í eigu
greiðanda hjá fjármálafyrirtæki hér á
landi. Millifærsla af Vostro reikningi í
innlendum gjaldeyri í eigu fjármálafyrir-
tækis, sem er erlendur aðili, og reiknings
viðskiptavinar hjá fjármálafyrirtæki hér
á landi, hvort sem hann er innlendur
eða erlendur aðili, telst ekki greiðsla
sem fram fer með úttektum af reikningi í
eigu kaupanda hjá fjármálafyrirtæki hér
á landi. Þegar um er að ræða viðskipti
hér á landi með fjármálagerninga sem
Seðlabanki Íslands hefur metið hæf til
tryggingar í viðskiptum við bankann,
sbr. 11. gr. reglna nr. 553/2009 um við-
skipti fjármálafyrirtækja við Seðlabanka
Íslands, útgefna í innlendum gjaldeyri,
skulu reikningar erlendra fjármálafyr-
irtækja (Vostro reikningar) þó teljast
til reikninga hjá fjármálafyrirtæki hér á
landi. Þannig getur erlent fjármálafyr-
irtæki keypt slíkan fjármálagerning hér
á landi útgefinn í innlendum gjaldeyri
og greitt fyrir hann með millifærslu af
Vostro reikningi sínum.“
DV: „Ef sú staða kæmi upp að sannað
væri að aðili myndi reyna að kaupa eitt-
hvað, til dæmis fyrirtæki, af Seðlabanka
Íslands eða öðrum aðila eða aðilum,
með krónum sem komnar væru til
landsins með þessum hætti, hvað myndi
Seðlabanki Íslands þá gera? Myndi hann
heimila kaupin eða ekki?“
SÍ: „Þar sem spurningin er full af
óvissuþáttum er engin leið er að svara
henni með ákveðnum hætti. Almennt
gildir hins vegar að verði Seðlabanki
Íslands var við það sem gætu verið
óheimil viðskipti samkvæmt gjaldeyr-
isreglum aflar hann upplýsinga um
viðskiptin og grípur til þeirra úrræða
sem bankinn hefur samkvæmt lögum
um gjaldeyrismál, telji hann að um brot
á gjaldeyrisreglum hafi verið að ræða.“
DV: „Getur þú útskýrt, í einföldu máli,
hvaða áhrif það hefur á hagkerfið
almennt séð að stunda viðskipti með
slíkum aflandskrónum á Íslandi, til
dæmis að kaupa fyrirtæki, en ekki með
krónum sem keyptar hafa verið hér á
landi?“
SÍ: „Reglur um gjaldeyrismál eru settar
í þeim tilgangi að takmarka og stöðva
tímbundið fjármagnshreyfingar og
gjaldeyrisviðskipti sem þeim tengjast
til og frá landinu séu slíkar hreyfingar
fjármagns að mati Seðlabanka Íslands
taldar valda alvarlegum og verulegum
óstöðugleika í gengis- og peninga-
málum. Seðlabankinn hefur lagt bann
við fjármagnshreyfingum á milli landa
í innlendum gjaldeyri nema með
sérstökum undantekningum sem nánar
eru tilgreindar í gjaldeyrisreglunum.
Flutningur á aflandskrónum til landsins
er ógnun við stöðugleika í gengis- og
peningamálum meðal annars sakir
þess að þeim gæti verið skipt á ný á
álandsmarkaði með verulegum hagnaði
á kostnað allra landsmanna. Seðlabank-
inn hefur hins vegar til skoðunar hvort
hægt sé að heimila að löglega fengnar
aflandskrónur séu fjárfestar til lengri
tíma í innlendu atvinnulífi eða öðrum
verkefnum hér á landi. Þá þarf að búa
svo um hnútana að aðgerðin grafi ekki
undan höftunum að öðru leyti. Slík
fjárfesting verður hins vegar ekki lögleg
fyrr en viðeigandi breytingar hafa verið
tilkynntar opinberlega. Löglega fengnar
aflandskrónur í framangreindum
skilningi eru krónur sem aðili hefur
eignast fyrir 28. nóvember 2008, þegar
takmörkunum eða stöðvun á tilteknum
flokkum fjármagnshreyfinga var komið á
með reglum um gjaldeyrismál. Viðskipti
tveggja erlendra aðila með krónur eru
ekki takmarkaðar af gjaldeyrisreglunum.
Hins vegar er óheimilt að flytja slíkar
krónur til Íslands.“
DV: „Eru þessi mál sem um ræðir
í fréttinni enn til rannsóknar hjá
bankanum? Már gaf það út að þau
yrðu skoðuð. Hver var niðurstaðan í
athugun Seðlabankans á umræddum
málum?“
SÍ: „Seðlabanki Íslands hefur mál eins
og þau sem um er rætt í fréttinni til
skoðunar en ekki liggur fyrir niðurstaða
þeirrar athugunar.“
Getur verið slæmt
fyrir Íslendinga
Þessar fréttir bar hæst í vikunni
þetta helst Óvenjulegt er að sjá tjöld á tjaldsvæðum landsins á þessum árstíma en Nýsjálendingurinn Dave Dinnison lætur
snjó og kulda ekki stoppa sig í útilegu. Dave hefur dvalið und-
anfarna daga á tjaldsvæðinu við Þórunnarstræti á Akureyri og
kvartar ekki undan kulda.
hitt málið
Sími 569 3100 • Stórhöfða 25 • www.eirberg.is
Slakaðu á heima
• Stillanlegt Shiatsu herða- og baknudd
• Djúpslökun með infrarauðum hita
• Sjálfvirkt og stillanlegt nudd
Verið velkomin í verslun okkar
prófið og sannfærist!
Úrval nuddsæta
Verð frá 23.750 kr.
Opið virka daga kl. 9 -18
og á laugardögum kl. 11 - 16
„Mér verður stundum kalt á nóttunni
en það er ekki oft, svefnpokinn er
hlýr,“ segir Nýsjálendingurinn Dave
Dinnison sem hefur dvalið í litlu tjaldi
á tjaldsvæðinu við Þórunnarstræti á
Akureyri undanfarna daga. Óvana-
legt er að sjá tjöld á þessum árstíma á
tjaldsvæðum landsins og á Akureyri er
allt á kafi í snjó þegar blaðamann ber
að en þrátt fyrir kuldann ber tjaldbú-
inn sig vel.
Sinnir vinnu úr tjaldinu
„Ég vissi að það væri snjór hér á landi
og sérstaklega svona norðarlega. Ég
hef líka heyrt að snjórinn hafi komið
óvenju seint í ár. Ég dvaldi fyrst í Mý-
vatnssveit og fékk þá mjög gott veður,
allt upp í 20 stiga hita, svo ég hef ver-
ið heppinn,“ segir Dave og bætir við
að þrátt fyrir snjó og frost sé ótrúlega
hlýtt inni í tjaldinu enda sé hann vel
búinn. „Það er allavega fimm gráð-
um heitara inni í tjaldinu en úti og
síðustu nætur hef ég ekki einu sinni
þurft að renna upp svefnpokanum
mínum,“ segir Dave sem er tengdur
rafmagni á tjaldsvæðinu. Rafmagnið
notar hann til að tengjast netinu til að
geta sinnt vinnu og spjallað við vini og
fjölskyldu. Þrátt fyrir að hitastigið hafi
verið við og undir frostmarki síðustu
daga er ekki að finna ofn eða hitara í
tjaldinu.
Áhyggjufullar búðarkonur
„Ég kom hingað til að ferðast um land-
ið. Flestir sem koma til Íslands dvelja
hér í mesta lagi í tvær vikur og reyna
að sjá sem mest á sem stystum tíma.
Ég vil ferðast rólega um á milli þess
sem ég vinn í tölvunni minni enda er
ég ekki bundinn neinum tímaramma.
Ég hef ekki ákveðið hvað ég verð lengi.
Mig langar til að fara til Reykjavíkur
áður en ég held áfram og býst við að
gera það. Svo er ég að hugsa um að
taka Norrænu til Danmerkur.“
Tjaldsvæðið er staðsett við hlið-
ina á versluninni Samkaup Strax við
Byggðaveg. Þar sem svæðið er lokað
á þessum árstíma notar hann sund-
laugina til að komast á salernið og er
einnig duglegur að heimsækja Amts-
bókasafnið. Hann segist vera farinn að
þekkja til afgreiðslukvennanna í versl-
uninni og segir þær hafa sýnt honum
mikla umhyggju. „Þær hafa miklar
áhyggjur af mér og ég held að þær hafi
einu sinni hringt í lögregluna til að láta
athuga um mig. Þá hafði ég verið upp-
tekinn í vinnu í nokkra daga og ekkert
kíkt á þær. Nú hef ég lofað þeim að láta
þær vita af mér á hverjum degi,“ segir
hann brosandi og bætir við að marg-
ir Íslendingar hafi gefið sig á tal við
hann. „Fyrst þegar ég kom var eng-
inn snjór og þá komu gjarnan krakk-
ar hingað á túnið að leika sér. Það eru
allir búnir að vera mjög vingjarnlegir.
Ég lenti samt í því að brotist var inn í
tjaldið mitt og það rifið. Ég talaði við
lögregluna vegna trygginga og lögregl-
an var mjög almennileg. Bæði löggan
og tjaldverðir vita af mér en leyfa mér
að vera hér í friði enda er ég ekki fyrir
neinum.“
Berst við náttúruöflin
Dave sinnir eigin fyrirtæki úr tjald-
inu. Um vefsíðu- og tölvuþjónustu
er að ræða en Dave hefur komið því
svo fyrir að geta sinnt starfinu hvar
sem er í heiminum. Hann á fjölskyldu
heima á Nýja-Sjálandi sem hann segir
að komi uppátækið ekki á óvart. „Þau
þekkja mig og finnst þetta bara fynd-
ið. Þau vita að ég elska útilegur og er
vanur að gista úti í heimalandi mínu í
hvaða veðri sem er. Miðað við þá pen-
inga sem ég vinn mér inn þessa dag-
ana hentar mér best að vera í tjaldi
en ástæðan er líka tengd ævintýra-
mennsku. Ég elska að berjast við nátt-
úruöflin.“
Býr í tjaldi
í snjónum
inDíana ÁSa hreinSDóttir
blaðamaður skrifar: indiana@dv.is
Það er allavega fimm gráðum
heitara inni í tjaldinu en
úti og síðustu nætur hef
ég ekki einu sinni þurft
að renna upp svefnpok-
anum mínum.
í útilegu í nóvember Dave
segirfjölskyldusínabrosaað
uppátækinu.Hannsévanur
aðgistaítjaldiíheimalandi
sínuíhvaðaveðrisemer.
mynDir Bjarni eiríkSSon
Vinnur í tjaldinu
Daverekureigið
fyrirtækiúrtjaldinu.
Hannrekurvefsíðu-
ogtölvuviðgerðar-
fyrirtækisemhann
getursinntallsstað-
araðúrheiminum.
Líkaúrsnjónumá
Akureyri.