Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2010, Blaðsíða 64

Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2010, Blaðsíða 64
n Sigurður Elvar Þórólfsson, sem hefur starfað sem yfirmað- ur íþróttadeildar Morgunblaðsins undanfarin ár, hefur verið ráðinn fréttastjóri íþrótta hjá 365 miðlum. Frá þessu er greint á vefmiðlinum sport.is. Sigurður verður því yfir- maður íþróttadeilda Fréttablaðsins, Stöðvar 2, Stöðvar 2 Sport og Vísis. Heimildir herma að nokkur titring- ur sé í Skafta- hlíðinni meðal gamalgróinna íþróttafrétta- manna vegna ráðningar Sig- urðar, en nýjum fréttastjórum fylgja ævinlega nýj- ar áherslur og ákveðin tiltekt. Fékk hann nýjan trukk í afmælisgjöf? NÝR YFIRMAÐUR n Erlendir fjölmiðlar hafa keppst við að lofa tónleika Jónsa en hann hefur verið á tónleikaferðalagi um heim- inn síðan í apríl. Á ferðalagi sínu hefur hann verið að fylgja eftir fyrstu sólóplötu sinni, Go, sem var gefin út á heimsvísu á vegum EMI í Evrópu og Asíu, XL Recording í Bandaríkj- unum og Smekkleysu á Íslandi. Jónsi hefur spilað ásamt hljómsveit sinni á tónleikum í Norður-Ameríku, Evr- ópu, Ástralíu og Asíu en hann mun ljúka tónleikaför sinni með tón- leikum í Laugardalshöllinni þann 29. desember næstkomandi. Munu þetta verða hundruðustu tónleikarn- ir sem hann heldur ásamt hljómsveit sinni. Nú þegar er uppselt í stúku en hægt er að tryggja sér miða í stæði. Tónleika- haldarar segja að tón- listaráhugafólk eigi sannarlega von á mjög forvitnilegum tónleikum Jónsa á milli jóla og nýárs. ERLENDIR MIÐLAR LOFA JÓNSA n Sturla Jónsson, mótmælandi og vörubílstjóri, fagnaði afmælis- degi sínum með því að slá tunnur í mótmælaskyni á Austurvell. Sturla varð 44 ára í gær en hann sneri ný- lega heim frá Noregi þar sem hann hafði starfað við flísalögn. Sturla var ekki lengi að vekja athygli á sér eftir heimkomuna en hann er í fram- boði til stjórnlagaþings og í vikunni vísaði lögreglan honum úr boði á Grand Hótel, en það boð var í tengslum við þing Norðurlanda- ráðs, og vildi Sturla bara fá að borða án þess að þurfa að standa í röð. MÓTMÆLTI Á AFMÆLISDAGINN DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til fréttar. Fyrir fréttaskot sem verður aðalfrétt á forsíðu greiðast 25.000 krónur. Fyrir besta fréttaskot vikunnar greiðast allt að 50.000 krónur. Alls eru greiddar 100.000 krónur fyrir besta fréttaskot hvers mánaðar. Áskriftarsíminn er 512 70 80 FRÉTTASKOT 512 70 70 SÓLARUPPRÁS 09:23 SÓLSETUR 16:58 „Ég var með eitt skilti sem á stóð: Elskum friðinn, sem er hvatning til góðra verka. Eiginlega ábending- arspjald,“ segir sjúkraliðinn Lár- us Páll Birgisson, sem á fimmtudag var handtekinn fyrir að standa fyrir utan bandaríska sendiráðið og neita að verða við tilmælum lögreglunn- ar um að yfirgefa svæðið. Hann seg- ir svæðið sem hann stóð á utan lóða- marka sendiráðsins og að lögin séu honum hliðholl í málinu. Lárus hefur marg oft mætt fyrir framan banda- ríska sendiráðið við Laufásveg með sambærilegar, friðsamlegar ábend- ingar til bandarískra erindreka. Í tví- gang hefur hann verið handtekinn fyrir að hlýða ekki tilmælum lögreglu og hefur meira að segja verið sakfelld- ur í héraðsdómi fyrir það. Í hin skipt- in hefur hann hlýtt laganna vörðum og horfið á braut. Lárus telur sig hins vegar vera í rétti. „Það eru öll lög sem segja mér að ég megi vera þarna. Þetta er utan lóðamarka sendiráðsins, þetta er á al- mannafæri og skilgreint þannig í lög- um. Þetta er opið svæði þannig að hver sem er má labba þarna framhjá. En svo ef þú stoppar þarna þá kem- ur löggan og segir þér að fara. Lögg- an sagði við mig að ég væri á yfirráða- svæði Bandaríkjanna. Það er ekki rétt. Ef þetta væri þeirra yfirráðasvæði og innan þeirra lóðamarka myndu þeir girða þetta af. En þeir segja þetta vera öryggissvæði og þá er þetta eina ör- yggissvæðið í veröldinni sem opið er almenningi, þangað til hann viðhefur tjáningu.“ mikael@dv.is Handtekinn fyrir að biðja Bandaríkjamenn um að elska friðinn: FRIÐARSKILTI ÓGN VIÐ ERINDREKA eymundsson.is Gerðu frábær bókakaup Glænýjar þýðingar 3.990 kr. 5.490 kr. Gildir til og með 15. nóvember 3.990 kr. 5.490 kr. 3.990 kr. 5.490 kr. 3.990 kr. 5.490 kr. Einstaklega áhrifamikil Afar heilla ndi Óbærilega spennandi Hrika lega kraftm ikil
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.