Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2010, Síða 6
6 FRÉTTIR 5. nóvember 2010 FÖSTUDAGUR
Opið virka daga 12-18
laugardag 12-16
Grensásvegi 8 -108 RVK
Sími: 517-2040
Góðir skór
á börnin
www.xena.is
St. 20-27
kr. 6.495.-
St. 28-35
kr. 6.995.-
St. 20-27
kr. 6.495.-
St. 28-35
kr. 6.995.-
Ársreikningur eignarhaldsfélags
Heiðar Más Guðjónssonar, Ursus
capital ehf., sýnir fram á umtals-
verðan hagnað á þeim árum fyrir
hrun þar sem krónan féll, árið 2006
og 2008. Að sama skapi sýna reikn-
ingarnir fram á umtalsvert tap þeg-
ar gengi krónunnar styrktist árið
2007. Í ársreikningunum kemur
fram að megintilgangur félagsins
sé fjárfestingar í afleiðusamning-
um. Þegar menn veðja á hækkandi
eða lækkandi gengi tiltekinna gjald-
miðla, taka stöðu með eða gegn
gjaldmiðli, gera þeir það gjarnan
með slíkum afleiðusamningum.
Líkt og komið hefur fram í DV
á síðustu vikum mælti Heiðar Már
með stórfelldri skortsölu á íslensku
krónunni, hlutabréfum og skulda-
bréfum við Björgólf Thor Björgólfs-
son, sem hann starfaði hjá í fjárfest-
ingarfélaginu Novator, árið 2006
þegar krónan féll um nærri fjórð-
ung á fyrstu mánuðum ársins. Einn-
ig mælti hann með því árið 2007
að Björgólfur Thor sæi til þess að
Landsbankinn byrjaði að gera bók-
hald sitt upp í evrum því að um 30
prósent lækkun á gengi krónunnar
væri yfirvofandi. Heiðar Már sagði
einnig að árás erlendra vogunar-
sjóða á íslensku krónuna væri yfir-
vofandi í febrúar en hann fundaði
með tveimur bandarískum áhættu-
fjárfestum í lok janúar 2007 og var
ein niðurstaða hans af þeim fundi
að það freistaði þeirra að ráðast á
íslensku krónuna.
Heiðar Már hefur varið sig með
þeim rökum að um áhættuvarnir
hafi verið að ræða, að tilgangurinn
hafi verið að verja félög Björgólfs
fyrir óhjákvæmilegu falli krónunn-
ar, en ekki græða á falli hennar.
62 milljóna tap – „mer blaedir“
Heiðar Már sendi annan tölvupóst
í mars 2007 þar sem hann sagðist
ekki skilja hvernig gengi krónunn-
ar héldist eins hátt og raun bar vitni
því hann hefði verið viss um að geng-
ið myndi lækka um 20 prósent og
að hann tapaði fjármunum á þessu
sterka gengi krónunnar. „Eg trui ekki
odru en thetta breytist en mer bla-
edir a hverjum degi. Thetta er eins
og kinversk pyntingaradferd. 2% tap
a hverjum manudi, jafnt og thett.“
Útskýring Heiðars Más á þessari
staðhæfingu var eftirfarandi í DV:
„Þegar mér blæðir, þá er það "option
speak" þá er það þannig að trygging-
ar sem ég hef keypt, til að verja stöðu
mína með krónunni, eru að renna
út... Það segir ekkert um það að ég sé
að veðja á móti einhverju. Einungis
að varnir mínir séu að þverra. Þegar
þú býst við slysi, en ert með trygg-
ingu, viltu ekki að tryggingin renni
út. Það kostar hins vegar að tryggja
sig, og það er það sem við er átt með
„option bleed". Krónan var að fara
að lækka, og við vildum takmarka
eins og hægt var tjónið af því. Á ár-
inu 2007 kostaði það mikið að skulda
í krónum, frekar en erlendum gjald-
eyri. Það er það sem átt er við með
"blæðir". Á hverjum degi kostaði það
mig mun meira að vera með inn-
lenda fjármögnun, en erlenda.“
Skoðun á ársreikningi Ursus fyrir
árið 2007 sýnir hugsanlega enn frek-
ar fram á hvað Heiðar Már átti með-
al annars við með þessum orðum en
þá var tap félags hans 62 milljónir
króna. Helsti tilgangur félags Heið-
ars var, líkt og áður segir að fjárfesta
í afleiðusamningum. Í ársreikningn-
um kemur jafnframt fram að hann
hafi keypt verðbréf, en afleiðusamn-
ingar er ein tegund verðbréfa, fyrir 85
milljónir króna á árinu en selt slíka
pappíra fyrir 30 milljónir króna.
Heiðar Már hafði sömuleiðis bent
yfirmanni sínum, Björgólfi Thor, á
það árið 2007 að krónan væri að fara
falla í verði og að hann ætti að gera
ráðstafanir vegna þess. Einhver af
félögum Björgólfs Thors, til dæm-
is Samson, móðurfélag Landsbank-
ans, ætluðu svo að tryggja sig gegn
yfirvofandi falli krónunnar með því
að veðja á lækkun hennar. Samson
tapaði hins vegar meira en 15 millj-
örðum króna vegna þess að gengi
krónunnar lækkaði ekki á árinu líkt
og þeir höfðu gert ráð fyrir. Þvert á
móti styrktist gengið.
Tap Ursus kann því að vera blæð-
ingin sem Heiðar Már vísaði til í árs-
byrjun 2007 þegar hann sagðist ekki
skilja af hverju gengi krónunnar
héldist svo hátt.
160 milljóna hagnaður 2006 og
2008
Öfugt við tapreksturinn árið 2007
skilaði félagið samtals tæplega 160
milljóna hagnaði árin 2006 og 2008:
Tæplega 55 milljóna hagnaði árið
2006 og 105 milljóna hagnaði árið
2008 – árið sem íslenskan krónan
hrundi ótrúlega í verði í aðdraganda
bankahrunsins. Árið 2008 keypti
félagið verðbréf fyrir 316 milljónir
króna en seldi slík bréf fyrir tæplega
272 milljónir króna. Ursus skilaði
því hagnaði ef íslenska krónan féll í
verði á þessum árum.
Sem fyrr segir var helsta eign fé-
lagsins öll árin þrjú verðbréf og virð-
ist helsti tilgangur Ursus hafa verið
að fjárfesta í afleiðum með það fyr-
ir augum að græða á því. Staða fé-
lagsins stóð og féll með því hvernig
afleiðuviðskiptin gengu. Ekkert í árs-
reikningunum bendir til að mark-
mið Úrsus og Heiðars Más með af-
leiðusamningunum hafi verið að
verja aðrar eignir gegn falli íslensku
krónunnar en líkt og komið hef-
ur fram þá taldi Heiðar Már óhjá-
kvæmilegt að hún myndi falla í verði
og spáði því reyndar öll árin þrjú.
Afleiðurnar sjálfar voru helsta eign
félagsins og fáar aðrar stærri eignir
inni í félaginu sem Heiðar gat verið
að verja með þeim.
DV sendi Heiðari Má spurningar
um Ursus og hagnað félagsins og tap
sem hann svaraði ekki.
Ársreikningar eignarhaldsfélags Heiðars Más Guðjónssonar sýna fram á að hann
græddi peninga á þeim árum þegar krónan lækkaði en tapaði peningum þegar hún
hækkaði. Helsti tilgangur félagsins var að fjárfesta í afleiðum. Heiðar hefur ekki svar-
að spurningum DV um fjárfestingar eignarhaldsfélagsins.
GRÆDDI 105
MILLJÓNIR 2008
INGI F. VILHJÁLMSSON
fréttastjóri skrifar: ingi@dv.is
Eg trui ekki odru en thetta
breytist en mer bla-
edir a hverjum degi.
1.ÍhverjuvarUrsusaðfjárfestaá
þessumárum?Tekjuroghagnaður,
ogtapárið2007,orsakastafafleiðu-
samningumíöllumreikningunum.
Megintilgangurfélagsinsvirðistvera
aðstundaviðskiptimeðafleiður.
2.Snéristfjárfestingþíníafleiðu-
samningunumumaðveðjaálækkun
íslenskukrónunnar?Árið2006græðir
þú,þáféllkrónan;árið2007taparþú,
þástyrktistkrónanogþérblæddi;
árið2008græðirþú,þáféllkrónan.
3.VissiBjörgólfurThorafþessum
viðskiptumþínumsamhliðastarfi
þínufyrirhann?
4.Snérustþessarfjárfestingarþínar
inniíUrsusaðeinhverjuleytium
áhættuvarnir?Égspyrþvíþúhefur
sagtaðtapoghagnaðurfélaga
semþúráðlagðiráþessumárum
hafisnúistumáhættuvarniren
ekkihagnaðartækifæri.Varþaðlíka
rauninhér?
SPURNINGAR TIL
HEIÐARS MÁS:
Græddi og tapaði HeiðarMárGuðjónsson
græddipeningaþegargengikrónunnar
lækkaði,árin2006og2008,entapaði
peningumþegargengikrónunnarhækkaði.
Þettasýnaársreikningareignarhaldsfélags
hans,Ursuscapital.
MÓTMÆLT VIÐ AUSTURVÖLL:
Ögmundur
rólegur
Ögmundur Jónasson ráðherra gekk
rólega framhjá og fylgdist með mót-
mælendum við Alþingishúsið. Á
þriðja hundrað mótmælendur voru
samankomnir fyrir utan þinghúsið
og börðu á tunnur. Krafa mótmæl-
endanna var að forsetinn skipaði
utanþingsstjórn. Ögmundur virtist
ekki hafa áhyggjur af því að kröfum
mótmælendanna yrði mætt. Ef svo
yrði hins vegar gert myndi Ögmund-
ur tapa nýfengnum ráðherrastól.
Ögmundur átti sæti í ríkisstjórn
Samfylkingar og Vinstri-grænna sem
tók við eftir búsáhaldabyltinguna.
Nú situr Ögmundur hinum megin
við borðið og mótmælin beinast
gegn honum og öðrum ráðherrum.
Ögmundi er ætlað að taka við sam-
einuðu innanríkisráðuneyti um ára-
mótin. Það ráðuneyti mun fara með
málefni sem nú tilheyra samgöngu-
og sveitastjórnarráðuneytinu, og
dómsmála- og mannréttindaráðu-
neytinu.