Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2010, Page 8
8 FRÉTTIR 5. nóvember 2010 FÖSTUDAGUR
Fjöldauppsagnir áttu sér stað hjá
Símanum og Skiptum, móðurfé-
lagi Símans, í síðustu viku. Fjörutíu
starfsmönnum var sagt upp; 29 hjá
Símanum og 11 hjá Skiptum. Starfs-
maður Símans, sem var svo lánsam-
ur að halda vinnunni, segir starfsfólk
mjög reitt og á margan hátt óánægt
með hvernig staðið var að uppsögn-
unum. Umræddur starfsmaður sem
ekki vill láta nafn síns getið, finnst
stinga í stúf að Brynjólfur Bjarnason,
forstjóri Skipta, og aðrir stjórnendur
haldi himinháum launum sínum á
meðal fjöldi almennra starfsmanna
sem staðið hafa sig vel í starfi sé sagt
upp. Starfsmaðurinn, sem segist
þekkja innviði fyrirtækisins vel, seg-
ir að starfsfólki Skipta og Símans hafi
verið tilkynnt um nýtt skipurit félag-
anna. Þar hafi titlum nokkurra stjórn-
enda fyrirtækisins verið breytt úr
framkvæmdastjórum yfir í yfirmenn
sömu deilda. Ekki hafi verið tilkynnt
um neinar launalækkanir þessara
stjórnenda né skerðingu á hlunnind-
um.
Starfsfólk brjálað
Starfsmaðurinn segist hafa upplifað
margt ósmekklegt daginn sem upp-
sagnirnar áttu sér stað. „Einn starfs-
maður sem fékk það verkefni að segja
upp samstarfsfélögum sínum og gekk
á milli sviða og deilda til að hug-
hreysta fólk og hvetja fólk til að standa
saman á þessum erfiða tíma, fékk síð-
an sjálfur uppsagnarbréf eftir þenn-
an langa og erfiða dag hjá Símanum
og Skiptum. Nafn þess starfsmanns
var á lista sem gekk á milli yfirmanna
á uppsagnardeginum en hann var þó
ekki afhausaður fyrr en daginn eftir.“
Starfsmaðurinn er ansi myrkur í
máli í garð yfirmanna mannauðssviðs
og segir starfsfólk Símans
og Skipta vera reitt yfir
þessari framkomu.
„Laun eru ekki
lækkuð nú“
Samkvæmt tekju-
blaði DV á þessu
ári var Brynj-
ólfur Bjarna-
son, forstjóri
Skipta, með
rétt rúmlega fjórar milljónir króna
í mánaðartekjur árið 2009. Sævar
Freyr Þráinsson, forstjóri Símans, var
hins vegar með rúmlega 5,5 millj-
ónir í mánaðartekjur og Katrín Olga
Jóhannesdóttir, áður titluð fram-
kvæmdastjóri stjórnunarsviðs Skipta,
nú yfirmaður stefnumótunar, var
með 4,3 milljónir í mánaðartekjur.
Pétur Þorsteinn Óskarsson, upp-
lýsingafulltrúi Skipta, segir laun
stjórnenda hafa verið lækkuð líkt og
annarra starfsmanna fyrirtækisins
sem höfðu yfir 350.000 krónur í mán-
aðarlaun haustið 2008. „Laun eru
ekki lækkuð nú,“ segir Pétur. Hann
tekur einnig fram að þeir stjórnend-
ur sem hafi haft bílahlunnindi komi
til með að halda þeim. Samkvæmt
heimildum DV nam lækkunin haust-
ið 2008 10 prósentum af mánaðar-
launum hvers starfsmanns með yfir
350 þúsund krónur. Pétur segir að
7 millistjórnendum hafi verið sagt
upp og einum þeirra hafi verið boð-
ið annað starf innan fyrirtækjasam-
stæðunnar. „Með fækkun stjórnenda
mun launakostnaður fyrirtækisins
vegna stjórnenda hins vegar lækka
verulega.“
Mistök voru gerð
Pétur segir töluverðar breyting-
ar hafa verið gerðar á skipuriti Sím-
ans og Skipta og að þær muni hafa
hagræðingu í för með sér sem nem-
ur hundruðum milljóna króna. „Eft-
ir breytinguna verða til dæmis eng-
ir framkvæmdastjórar hjá Skiptum
heldur taka yfirmenn eininga starfs-
heiti eftir hlutverki og hjá Símanum
fækkar stjórnendum í skipuriti um
sex. Með fækkuninni taka núverandi
starfsmenn að sér aukin verkefni og
í sumum tilfellum er þetta ekki mikil
breyting á starfssviði og hefur því eðli
málsins samkvæmt ekki í för með sér
launalækkun viðkomandi,“ segir Pétur.
Hann segir að reynt hafi verið að
finna störf fyrir einstaklingana sem var
sagt upp innan samstæðunnar og það
hafi tekist í einhverjum tilfellum. Hann
viðurkennir að mistök hafi verð gerð í
tilfelli þess starfsmanns sem tók þátt
í uppsögnunum og fékk síðan sjálfur
uppsagnabréf. „Já, því miður voru gerð
mistök og mannauðsstjóri hefur beðið
viðkomandi starfsmann afsökunar og
skýrt málið gagnvart starfsfólki. Í þessu
tilfelli var ekki búið að gefa upp alla
von með að tækist að finna starf innan
samstæðunnar fyrir viðkomandi. Það
breytir því ekki að viðkomandi hefði
ekki átt að taka þátt í uppsögnum við
þessar aðstæður og það voru mistök.
Það var markmiðið að standa þannig
að uppsögnunum að starfsfólki væri
sýnd virðing og reyna að gera ferl-
ið eins sársaukalítið og mögulegt var
fyrir þá starfsmenn sem í uppsögnum
lentu.“
TÓK ÞÁTT Í UPPSÖGN-
UM OG VAR SAGT UPP
40 starfsmenn misstu vinnuna hjá Sím-
anum og Skiptum í síðustu viku. Starfs-
maður Símans segist hafa upplifað margt
ósmekklegt í uppsagnarferlinu og að reiði
ríki meðal starfsfólks. Einn starfsmaður
sem tók þátt í uppsögnunum fékk síðan
sjálfur uppsagnarbréf eftir daginn. Pétur
Þorsteinn Óskarsson, upplýsingafulltrúi
Skipta, segir að mistök hafi verið gerð.
SÓLRÚN LILJA RAGNARSDÓTTIR
blaðamaður skrifar: solrun@dv.is
Já. Því miður voru gerð mis-
tök og mannauðsstjóri
hefur beðið viðkomandi
starfsmann afsökunar.
Fjöldauppsagnir 40manns
hjáSímanumogSkiptumfengu
uppsagnarbréfísíðustuviku.
Á góðum launum
SævarFreyr
Þráinsson,forstjóri
Símans,varmeð
fimmoghálfa
milljónímánaðar-
tekjurárið2009.
Forstjóri Skipta Brynjólfur
Bjarnasonlepurekkidauð-
annúrskelmeðrúmar4
milljónirímánaðartekjur.
Keypti Neyðarkall
Dagfinnur Stefánsson, sem var
flugmaður á Geysi er fórst á Bárð-
arbungu árið 1950, keypti fyrsta
Neyðarkall björgunarsveita á
fimmtudaginn og með því hófst
formlega þessi árlega fjáröflun
björgunarsveita Slysavarnafélagsins
Landsbjargar. Dagfinnur sagði við
þetta tækifæri að björgunarmenn
þeir er fyrstir komu að flugvélinni á
Bárðarbungu hafi skilað sínu hlut-
verki vel en ljóst sé að björgunar-
sveitir í dag séu mun betur í stakk
búnar til að takast á við stór verkefni,
eins og fluglys eða náttúruhamfarir.
Magnús Hallgrímsson og Gutt-
ormur Þórarinsson sáu um sölu
Neyðarkallsins til Dagfinns en
Magnús er einn af stofnendum Flug-
björgunarsveitarinnar á Akureyri,
sem var ein af fjölmörgum sveitum
er stofnaðar voru í kjölfar Geys-
isslyssins, og faðir Guttorms var í
fyrsta björgunarhópnum sem kom
að flakinu.
Sjálfboðaliðar Slysavarnafélags-
ins Landsbjargar munu selja Neyð-
arkallinn um land allt um helgina.
Verða þeir við verslanir, verslana-
miðstöðvar, útsölustaði ÁTVR og
víðar. Einnig verður á sumum stöð-
um gengið í hús.
„Kolaportið
í jakkafötum“
Sölutorgið Markaðurinn verður
opnað á Korputorgi á laugardaginn.
Á Markaðnum geta einstaklingar og
fyrirtæki selt ýmsar vörur, hvort sem
þær eru nýjar, notaðar, eigin hönn-
un, matvæli eða í raun hvað sem er.
Opnunarhátíð hefst klukkan eitt
á laugardaginn en þar verður boðið
upp á ýmis skemmtiatriði fyrir fjöl-
skylduna. Nadia Tamimi, markaðs-
stjóri Markaðarins á Korputorgi,
segir í tilkynningu að Markaður-
inn sé eins og Kolaportið í jakkaföt-
um þar sem allt umhverfið sé mjög
snyrtilegt. Hún segir viðtökurnar
hafa verið góðar og að byrjað sé að
taka pantanir fram á næsta ár.
Opið verður í Markaðnum á milli
11 og 18 á laugardögum og 11 og 17
á sunnudögum.