Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2010, Síða 12
12 FRÉTTIR 5. nóvember 2010 FÖSTUDAGUR
islandsbanki@islandsbanki.is
www.islandsbanki.is
Sími 440 4000
Vaxtasproti er einfalda
leiðin til að spara í áskrift
Með sparnaði í áskrift getur
þú sett þér mark mið, lagt
fyrir í hverjum mán uði,
safn að vöxt um og átt fyrir
því sem þig langar að gera.
Hvort sem það er sumar frí
fjöl skyld unnar, heimilis tæki
sem þarf að endur nýja eða eitt hvað allt
annað – þá er ódýrara að safna og eiga
fyrir hlut unum en að fá lánað fyrir þeim.
Vaxtasproti er sparnaðar
reikn ingur sem er alltaf laus.
Þú getur því bæði safnað þér
fyrir einhverju ákveðnu en
um leið notað reikn inginn
sem vara sjóð til að bregðast
við óvæntum útgjöldum.
Fyrir hverju langar þig að safna með
sparnaði í áskrift?
Byrjaðu að spara á islandsbanki.is
„Við erum að velta við öllum stein-
um og leita leiða til að draga þess-
ar uppsagnir til baka,“ segir Teitur
Einarsson, stjórnarformaður Eyr-
arodda á Flateyri en fyritækið sagði
upp öllu starfsfólki sínu í síðustu
viku. Hann segir rekstarumhverfið
hafa verið erfitt að undanförnu og
meira þurfi að koma til ef styrkja á
grunn til framtíðar. „Nú gefst okk-
ur tími til loka nóvember að skoða
nákvæmlega hversu mikið vinnst
úr því,“ segir Teitur.
Óvissa sem þessi sé ekki bjóð-
andi til lengri tíma og leitað sé allra
leiða til að fyrrverandi starfsmenn
fái vinnu sína aftur og unnið sé
eins hratt og mögulegt er að lausn
málsins. „Það var alltaf markmið-
ið að reyna að finna rekstargrund-
völl sem gæti tryggt atvinnnu og
fiskvinnslu á Flateyri. Það markmið
hefur ekkert breyst,“segir hann.
Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra, sagði í síð-
ustu viku að lög heimili ekki bein-
ar úthlutanir til aðstoðar Flateyr-
ingum. „Ég efa ekki að það sé rétt
metið hjá honum en ef vilji er fyr-
ir hendi hjá stjórnvöldum, ætti að
vera hægt að grípa til aðgerða,“ seg-
ir Teitur. Til séu fordæmi um slíkt
og hann telji hægt að hafa reglurn-
ar almennar og að jafnræðis verði
gætt, þó svo að reynt verði að koma
úthlutun byggðakvóta þannig í
framkvæmd að hann nýtist þar
sem hans sé mest þörf. „Þetta er
fyrst og fremst spurning um pólit-
ískan vilja,“ bætir hann við.
Hann segir úthlutun byggða-
kvóta ekki vera grundvöll fyrir
rekstrinum. „Þess konar meðgjöf
gæti þó aðstoðað við að ýta rekstr-
inum úr vör en er ekki grundvöll-
ur fyrir honum. Slík aðstoð yrði að
vera til ákveðins tíma.“
Teitur segir Flateyringa uggandi
en þeir trúi því að hægt sé að finna
lausn. „Fólkið hefur alltaf verið
bjartsýnt hér í þessu byggðarlagi.
Sama hvaða erfiðleikar hafa dun-
ið á þá hefur það sýnt sig að hægt
sé að vinna sig út úr þeim,“ segir
hann.
gunnhildur@dv.is
Reyna að draga
uppsagnir til baka
Stjórnendur Eyrarodda reyna að finna rekstrargrundvöll:
GUNNHILDUR STEINARSDÓTTIR
blaðamaður skrifar: gunnhildur@dv.is
Ég efa ekki að það sé rétt metið hjá
honum en ef vilji er fyrir
hendi hjá stjórnvöldum,
ætti að vera hægt að
grípa til aðgerða.
Teitur Einarsson, stjórnarformaður
Eyrarodda á Flateyri „Fólkhefuralltaf
veriðbjartsýnthéríþessubyggðarlagi.“
MYND PÁLL ÖNUNDARSON