Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2010, Qupperneq 22
22 FRÉTTIR 5. nóvember 2010 FÖSTUDAGUR
DV1010274065
REUTERS MYNDIR SEM SENDAR VORU Á UMBROT@DV.IS -
HVER MYND BER MYNDATEXTA Á ENSKU
-KORT AF EVRÓPU OG AFRÍKU. STRIKA LEIÐ YASSINS FRÁ
SÓMALÍU TIL ÍSLANDS. KARL MEÐ PENINGA Í LÍBÍU. KARL
MEÐ PENINGA Á MÖLTU. KARL MEÐ PENINGA Á ÍSLANDI-
Yassin, 32 ára Sómali, hefur ferðast yfir hálfan hnöttinn í leit
að hæli fyrir sig og fjölskyldu sína. Hann segist vera orðinn
langþreyttur á því meinta ofbeldi sem hælisleitendur í Evrópu
mega þola. Hann kom til Íslands fyrir sex vikum en verður að
öllum líkindum sendur aftur til Möltu á grundvelli Dyflinnar-
samkomulagsins. Hann borgaði sem svarar til 230 þúsunda
króna fyrir fölsuð skilríki til þess að komast til landsins.
„Við borguðum líbískum manni 900
dollara hvert fyrir að flytja okkur yfir
hafið. Hann á marga báta og gerir
út á það að flytja flóttamenn frá Afr-
íku og yfir til Evrópu. Eftir þriggja
daga siglingu með fjörutíu manns
á bátnum komum við loks til Möltu
og báðum um hæli. Það fyrsta sem
lögreglan gerði var að taka fingraför
af okkur, eftir það var okkur komið
fyrir í varðhaldsbúðum [e. detention
center].“
Svo mælir Yassin Hassan Yass-
in, sem er 32 ára gamall Sómali,
einn af þúsundum flóttamanna sem
sóttu um hæli á Möltu af mannúð-
arástæðum árið 2009. Árlega fer
fjöldi fólks yfir Miðjarðarhafið á illa
búnum bátum og freistar þess að
koma undir sig fótunum í Evrópu.
Fjöldi hælisleitenda er hvergi meiri
í heiminum en á Möltu, sé miðað við
höfðatölu, og hafa stjórnvöld biðl-
að til annarra ríkja um aðstoð vegna
þessa. Mannréttindastofnun Sam-
einuðu þjóðanna hefur sakað Möltu
um að standa ekki við alþjóðlegar
skuldbindingar þegar kemur að því
að vernda mannréttindi hælisleit-
enda.
Yassin var, eins og mörgum þeim
sem fara þessa leið, haldið í lokuð-
um varðhaldsbúðum á Möltu fyrsta
árið. Nú um stundir er hann hér
á landi og heldur til á Fit Hostel í
Njarðvík, þar sem hann bíður þess
að fá svar frá Útlendingastofnun
varðandi umsókn hans um hæli hér
á landi, en hann flúði hingað stuttu
eftir að hann losnaði úr búðunum.
Blaðamaður DV ræddi við hann
um ástandið í heimalandinu Sóm-
alíu, ferðalagið yfir hálfan hnöttinn,
aðstæður hælisleitenda í Evrópu,
og lífið í einum af hinum fjölmörgu
varðhaldsbúðum álfunnar, Hal Far-
varðhaldsbúðunum:
Of margar spurningar
„Umhverfis okkur var stór veggur og
umhverfis hann var gaddavírsgirð-
ing og umhverfis hana var önnur
gaddavírsgirðing. Blaðamenn mega
koma að ystu gaddavírsgirðingunni
en þeir mega ekki koma að þeirri
næstu vegna þess að þar eru stórir
hundar. Á daginn eru 16 hundar á
verði í kringum búðirnar en á næt-
urnar eru þeir 22. Þeir gefa þér rúm
og teppi og mánaðarlega gefa þeir
þér sápu svo þú getir þvegið þér og
fötin þín. Þú getur ekki hringt í fjöl-
skylduna. Þú getur ekki farið út.
Þú getur ekki spilað fótbolta. Það
eina sem þú getur gert er að sofa og
borða.
Þú spyrð lögreglumennina hvers
vegna þú sért í haldi og þeir segja þér
að það sé vegna þess að þú spyrjir of
margra spurninga, þú spyrð þá aftur
og þeir láta hundinn urra á þig, ef þú
heldur áfram að spyrja taka þeir þig
og setja í lítið herbergi þar sem þú
sérð ekkert. Þar verðurðu að standa
vegna þess að þar er of lítið pláss til
þess að setjast. Þú getur ekki farið á
klósettið. Þú færð vatn á þriggja tíma
fresti. Þarna ertu látinn dúsa í 28
tíma þar til þér er sleppt, en þá eru
fæturnir svo dofnir að þú getur ekki
staðið. Ég man að ég hugsaði stund-
um: Er þetta Evrópa í dag?“
Pabbi dæmdur til dauða
Yassin er fæddur og uppalinn í Sóm-
alíu, en hann starfaði á munaðar-
leysingjahæli föður síns þegar bók-
stafstrúaðir íslamistar komust til
áhrifa í landinu. „Þeir kölluðu sig
íslamska réttinn, í dag kallast þeir
Al-Shabaab, þeir vildu gera Sóm-
alíu að bókstafstrúuðu íslömsku
ríki. Árið 2006 tóku þeir yfir höfuð-
borgina Mógadisjú og í kjölfarið
bönnuðu þeir alþjóðlegar hjálpar-
stofnanir eins og UNICEF og Rauða
krossinn. Þeir sökuðu stofnanirnar
um að koma með peninga kristinna
Vesturlandabúa inn í landið. Sam-
tökin hans pabba voru háð styrkj-
um frá Evrópulöndum þannig að
þeir komu heim til hans og sögðu
honum að hann yrði að hætta. Pabbi
bað þá um að sanna tengsl samtak-
anna við kirkjuna en þeir sögðu að
ef hann hætti ekki myndu þeir drepa
hann.“
Yassin segir þá feðga hafa haldið
uppteknum hætti og ekki látið hót-
anirnar stöðva sig. Sjálfur eigi hann
konu og tvö börn, og hafi þess vegna
þurft að sjá fjölskyldunni farborða.
Eftir ítrekaðar hótanir var pabbi
hans dreginn fyrir Al-Shabaab-rétt-
inn og dæmdur til dauða. „Áður en
þeir drápu pabba komu þeir aftur
heim og leituðu að mér. Ég var ekki
heima en Awed Hassan, yngri bróðir
minn, var það og þeir skutu hann í
brjóstið. Þegar ég frétti af því vissi ég
að ég þyrfti að flýja. Það væri engin
leið fyrir mig að snúa aftur til Sóm-
alíu fyrr en lýðræðislega kjörin rík-
isstjórn væri búin að ná völdum.
Þessir menn voru að leita að mér og
dræpu mig ef ég kæmi aftur þangað.
Þannig að ég lagði af stað.“ Á heima-
síðunni globalsecurity.org segir að
á bilinu 350 þúsund til ein milljón
Sómala hafi látist í átökum sem geis-
að hafa í landinu frá árinu 1991. Þá
hefur hálf milljón flúið land, líkt og
Yassin.
Gist í tjöldum og gámum
Móðir Yassins seldi lítinn landskika
og peningana notaði hann til þess
að flýja land. Hann byrjaði á því að
fara til Eþíópíu en þar eru mann-
réttindi hælisleitenda lítil sem eng-
inn svo hann hélt áfram til Súdan.
Þar hefur ríkt borgarastyrjöld í 22 ár
þannig að hann hélt áfram til Líbíu.
Þar var honum sagt að væri hann
ekki með vegabréf yrði hann að fara
aftur til Sómalíu. En þá ákvað hann
að flýja yfir til Evrópu.
Yassin borgaði sem fyrr segir 900
dollara fyrir bátsferðina yfir haf-
ið, en hún tók þrjá sólarhringa. Við
komuna til Möltu var honum kom-
ið fyrir í varðhaldsbúðum á með-
an verið var að vinna úr máli hans.
Yassin segir að í varðhaldsbúðun-
um hafi verið komið fram við fólk
eins og það væri dýr, og ekki hafi
ástandið batnað neitt sérstaklega
þegar honum var sleppt þaðan. Eft-
ir að hafa verið í lokuðum búðum í
ár var honum komið fyrir í svoköll-
uðum opnum varðhaldsbúðum.
Þar eru hælisleitendur frjálsir ferða
sinna og fá gistiaðstöðu í tjöldum
og gámum. Yassin segir að það sé
nánast ómögulegt fyrir flóttamenn á
Möltu að fá vinnu, enda fái þeir ekki
atvinnuleyfi og þurfi því að reyna
að vinna fyrir sér á svarta markaðn-
um. Til að byrja með vann hann sér
inn nokkra dollara á dag með því að
þrífa kirkjurúður og annað tilfall-
andi, en eftir tvo mánuði fór hann
að hugsa sér til hreyfings.
Hræðilegt ástand
En hvernig upplifði Yassin vistina á
Möltu og ástandið hjá öðrum hælis-
leitendum. „Það sem þú upplifir er
að fólk verður geðveikt. Það er verið
að fara með fólk á spítalann á hverj-
um degi. Áður en ég fór fyrirfóru
tveir hælisleitendur sér vegna þess
að þeir vissu ekkert hvert þeir áttu
að fara eftir að umsókn þeirra hafði
verið hafnað. Það sem þú upplifir er
að þú sérð fólk drekka áfengi hverja
einustu nótt og þú spyrð hvað það sé
eiginlega að gera, hvers vegna það sé
að eyðileggja líf sitt? Og fólk svara-
ar: „Við eigum okkur ekkert líf, það
er engin leið héðan, Evrópa ákveð-
ur þetta allt fyrir okkur. Við getum
ekki farið aftur til Sómalíu, þannig
að hvað eigum við að gera? Þetta er
það eina sem við höfum.“ Þú upplifir
fullt af hlutum. Sem dæmi þá upp-
lifir þú að sjá móður sem á tveggja
ára barn hinum megin girðingarinn-
ar, móður sem hrópar yfir til dóttur
sinnar á hverju kvöldi af því að hún
var tekin frá móður sinni og færð yfir
í opnu búðirnar. Klikkaðar sögur. En
það fyrsta sem þú þarft að hugsa er:
Komdu þér í burtu! Farðu og finndu
þér annan stað. Það hlýtur að vera til
betra líf en þetta.“
Á vefsíðu Human Rights Watch er
sérstaklega fjallað um aðbúnað hæl-
isleitenda á Möltu. Þar segir að árið
2009 hafi ríkisstjórn Möltu haldið
áfram að halda hælisleitendum,
þar á meðal munaðarlausum börn-
um, óléttum konum og heilsulitlu
fólki, til langs tíma í varðhaldsbúð-
um. Tafir við vinnslu hælisumsókna
og skortur á aðgangi að lögfræðiað-
stoð er einnig viðvarandi. Útsendar-
ar Sameinuðu þjóðanna heimsóttu
landið í janúar 2009 og komust að
þeirri niðurstöðu að stefna lands-
ins í málefnum hælisleitenda sam-
ræmdist ekki alþjóðalögum og var
ástandið í tvennum varðhaldsbúð-
um sagt hræðilegt.
Atli Viðar Thorstensen, fulltrúi
Rauða krossins á Íslandi, segir að
það sem hafi verið sérstaklega gagn-
rýnt á Möltu sé slæmur aðbúnaður
í flóttamanna- og varðhaldsbúðum
og þá sérstaklega skert aðgengi að
heilbrigðisþjónustu. Þá hafa lækn-
ar án landamæra fullyrt að aðbún-
aður á Möltu sé óásættanlegur. Níu
óháð hjálparsamtök hafa biðlað til
yfirvalda á Möltu um að vekja máls
á kynþáttaofbeldi í landinu eftir að
ráðist var á tvo Sómala í júlí 2009
með þeim afleiðingum að þeir end-
uðu á spítala.
Íslandsförin
Yassin borgaði 1.500 evrur fyr-
ir fölsuð skilríki til þess að komast
til Íslands. „Það er fólk sem býður
þér aðstoð við að komast til ann-
arra Evrópuríkja. Ég borgaði manni
500 evrur fyrirfram og 1.000 evrur
við komuna til Íslands. Hann bjó
til skilríki fyrir mig, hann gerði allt.
Ég þurfti ekki að gera neitt. Þú læt-
ur bara eins og þú sért heyrnarlaus
„DREPA MIG EF ÉG KEM AFTUR“
Sómalía
Líbía
Ísland
Malta
LEIÐ YASSINS FRÁ SÓMALÍU TIL ÍSLANDS
Þú spyrð lög-reglumennina
hvers vegna þú sért í
haldi og þeir segja þér að
það sé vegna þess að þú
spyrjir of margra spurn-
inga, þú spyrð þá aftur
og þeir láta hundinn urra
á þig, ef þú heldur áfram
að spyrja taka þeir þig og
setja í lítið herbergi þar
sem þú sérð ekkert.
Við forðuðum okkur frá borg-
arastyrjöld í heima-
landinu og nú sitjum
við uppi landlaus og
réttindalaus.
JÓN BJARKI MAGNÚSSON
blaðamaður skrifar: jonbjarki@dv.is