Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2010, Qupperneq 25
FÖSTUDAGUR 5. nóvember 2010 ERLENT 25
Ísbirninum Knúti líður illa í dýra-
garðinum í Berlín, segir borgarfull-
trúinn Claudia Hämmerling. Hún
er dýralífssérfræðingur og situr fyr-
ir Græningja í borgarstjórn þýsku
höfuðborgarinnar. „Alþjóðlegir sér-
fræðingar um birni hafa staðfest að
honum líður ekki vel.“ Knútur hafði
allt þangað til í september síðast-
liðnum haft sitt eigið athafnasvæði
þar sem honum leið vel. Fyrir tveim-
ur mánuðum síðan var hann færður
á sama svæði og hinir þrír ísbirnirn-
ir sem eru í garðinum. Þar á meðal
er móðir Knúts, sem hafnaði honum
þegar hann var nýkominn í heim-
inn, og tvær aðrar birnur.
Lagður í einelti
Hafa gestir dýragarðsins kvartað
undanfarið yfir nýju sambýlingum
Knúts og segja birnurnar leggja hann
stöðugt í einelti. Hópast þær í kring-
um hann og beita hótandi líkamstil-
burðum sem Knútur kann afar illa
við. Eyðir hann því tíma sínum mest-
megnis aleinn úti í horni með þung-
lyndissvip. Kanadíski ísbjarnarsér-
fræðingurinn Else Poulsen sagði í
viðtali við þýska blaðið Tagesspiegel
að líf Knúts með hinum björnunum
væri „einsleitt, úrelt og grimmilegt.“
Hún sagði að greinilegt væri að Knút-
ur væri farinn að missa hár úr feldi
sínum og að hann væri mun horaðri
en venjulegir fjögurra ára ísbirnir.
Hämmerling segir ástandið óviðun-
andi: „Þegar fólk heimsækir dýra-
garð á það að vera skemmtilegt en
ekki valda sorg eða mótmælum. Það
er dapurlegt fyrir Berlín ef dýravinir
um heim allan þurfa að hafa áhyggj-
ur af Knúti. Þessi gullni ísbjörn hefur
oft og mörgum sinnum fært athygli
heimsins að Berlín og skapað borg-
inni ómældar tekjur.“
Of mörg dýr, of lítið pláss
Hämmerling segir að vandamálið
felist í því að Knútur fái ekki nægi-
legt athafnarými og á það ekki að-
eins við um Knút. Bendir hún á að
dýrum í garðinum hafi fjölgað gífur-
lega á síðustu árum, en þau eru nú
rúmlega 23 þúsund en voru aðeins
um tvö þúsund árið 2007. Í síðasta
mánuði drapst til að mynda fíllinn
Sabah eftir átök við annan fíl en að
mati Hämmerling var það vegna
þess að fílarnir voru geymdir á of
litlu svæði. Að sama skapi drapst
strútsdýr eftir að antilópa hafði étið
af því fjaðrirnar á dögunum, en teg-
undirnar tvær voru geymdar í sama
rýminu.
Bernhard Blaszkiewitz stýrir
dýragarðinum í Berlín. Hann segir
af og frá að dýrin þar fái of lítið at-
hafnasvæði og segir að greinilegt sé
að Hämmerling hafi ekki kynnt sér
aðstæður nógu vel. Hann hafnaði
því einnig að Knúti liði illa og sagði
að samskipti hans við hina birnina
væru eðlileg.
Ísbjörninn Knútur, einn vinsælasti íbúi
Berlínar frá upphafi er þunglyndur og
líður illa. Borgarfulltrúi í Berlín segir að
hann þurfi meira pláss og það sama eigi
við um önnur dýr.
KNÚTUR ÞJÁIST
AF ÞUNGLYNDI
BJÖRN TEITSSON
blaðamaður skrifar: bjorn@dv.is
Greinilegt væri að Knútur væri
farinn að missa hár úr
feldi sínum og að hann
væri mun horaðri en
venjulegir fjögurra ára
ísbirnir.
Ísbjörninn Knútur
Varalinnuppafdýra-
garðsstarfsmönnum
eftiraðmóðirhans
hafnaðihonum.
Ban Ki-Moon vék að mannrétt-
indamálum í Kína í ræðu sem hann
hélt í flokksskóla kínverska komm-
únistaflokksins í Peking á miðviku-
dag. Moon lauk þar með nokk-
urra daga opinberri heimsókn til
Kína en þangað til á miðvikudag
hafði hann þagað þunnu hljóði um
mannréttindamál. Hlaut hann tals-
verða gagnrýni fyrir það, ekki síst í
ljósi nýlegrar útnefningar kínverska
andófsmannsins og baráttumanns-
ins Liu Xiaobo til friðarverðlauna
Nóbels á dögunum. Moon skautaði
hins vegar frá því að minnast á Liu
með beinum hætti. „Kína er land á
uppleið og breytingarnar í landinu
hafa verið djúpstæðar. Áhrif þeirra
eru orðin alþjóðleg og vald þeirra er
ósvikið. Með svo miklum framför-
um fylgja miklar væntingar og mik-
il ábyrgð. Þegar horft er fram á veg-
inn er nauðsynlegt að sameiginleg
markmið okkar allra um mannrétt-
indi um víða veröld verði meiri en
einungis von, þau eru grundvöllur
sáttar og samlyndis í heiminum.“
Moon sagði einnig hluta af
grunninum að mannréttindum
vera virðingu fyrir tjáningarfrelsi
og að þeir hljóti vernd sem haldi
því á lofti. Moon hitti forseta Kína,
Hu Jintao, á mánudag en láðist að
spyrja hann um ástand mála hjá Liu
Xiaobo, eða á mannréttindamál-
um í Kína yfirleitt. Mannréttinda-
frömuðir um víða veröld fordæmdu
vanrækslu Moons, og sögðu að
með henni væri hann að gera lít-
ið úr mannréttindasáttmála Sam-
einuðu þjóðanna – sáttmála sem
Kínverjar eru aðilar að. Talsmaður
Moons sagði aðalritarann hafa oft
vakið máls á mannréttindamálum
við leiðtoga Kínverja, þegar stund-
in væri viðeigandi. Á þriðjudag var
hins vegar kínverskur maður í suð-
urhluta Kína, Guo Xianling, hand-
tekinn fyrir að dreifa fréttum um
Nóbelsverðlaunaútnefningu Lius
Xiaobos. Mun hann verða ákærður
fyrir niðurrifsstarfsemi gegn ríkinu.
Moon og Hu
Jintao, forseti
Kína Þaðfór
velámeðþeim
ámánudag.
Gáfu risavinning
Kanadísk hjón á áttræðisaldri, sem
unnu 1,2 milljarða króna í lottói í
sumar, hafa gefið alla upphæðina til
vina, góðgerðarsamtaka og sjúkra-
húsa. Þvert á það sem margir kynnu
að halda segja hjónin, þau Allen og
Violet Large, að vinningurinn hafi
valdið þeim miklu hugarangri.
„Þú munt aldrei sakna þess sem
þú hefur aldrei átt,“ segir hin 78 ára
gamla Violet í samtali við Toronto
Star. Í stað þess að fara á eyðslufyll-
erí ákváðu hjónin að gefa þeim vinn-
inginn sem virkilega þurfa á honum
að halda.
Allen og Violet hafa verið gift í
36 ár en þau hættu bæði að vinna
árið 1983. Þá ákváðu þau að flytja
frá Ontario til smábæjarins Lower
Truro í Nova Scotia. Allen starfaði
sem rafsuðumaður en Violet starfaði
í sælgætisverksmiðju lengst af.
„Við erum ágætlega stödd fjár-
hagslega, engir milljónamæring-
ar en eigum samt nóg,“ segir Allen
sem er 75 ára. Þegar þau unnu þann
stóra var Violet í meðferð vegna
krabbameins á sjúkrahúsinu í Lower
Truro. Sjúkrahúsið var meðal þeirra
stofnana sem nutu góðs af vinningn-
um.
Engar kókoshnetur
Indversk stjórnvöld ætla ekki að
taka neina áhættu þegar kemur að
öryggi Baracks Obama Bandaríkja-
forseta í heimsókn hans til landsins
í næstu viku. Þau hafa til að mynda
tínt kókoshnetur úr trjám í nágrenni
við fyrrverandi heimili Gandhi, en
Obama mun heimsækja heimilið.
Þó að það kunni að hljóma und-
arlega í eyrum Íslendinga að gera
slíkar ráðstafanir þá teljast þær
nauðsynlegar á Indlandi. Kókos-
hnetur sem falla úr trjám valda
fjölda alvarlegra slysa, og jafnvel
fjölda dauðsfalla, á hverju ári í land-
inu.
Fréttastofa breska ríkisútvarpsins
BBC greinir frá þessu.
Lokuðu útvarps-
stöð nýnasista
Þýsk stjórnvöld hafa handtekið tutt-
ugu og þrjá einstaklinga víðs vegar
um Þýskaland vegna gruns um aðild
að áróðursútvarpsstöð nýnasista.
Lögreglan réðst inn á tuttugu og tvö
heimili í tíu mismunandi fylkjum til
að framkvæma handtökurnar.
Nokkrir hinna handteknu munu
koma fyrir rétt í dag, föstudag, en
talskona þýsku alríkislögreglunn-
ar vildi ekki tjá sig um ákærurnar
á hendur þeim. Ljóst er þó að að-
ilarnir tóku þátt í rekstri útvarps-
stöðvarinnar Widerstand-Radio, eða
Andspyrnu-útvarpið, sem útvarpaði
áróðri nýnasista.
Ban Ki-Moon gagnrýndur fyrir að þegja um mannréttindabrot Kínverja:
Mannréttindi verði virt í Kína