Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2010, Qupperneq 26

Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2010, Qupperneq 26
Enn og aftur hefur Ísland far-ið í slíka kollsteypu, að allt er orðið öfugt.Jóhanna Sigurðardótt- ir, besti vinur lítilmagnans, lætur handtaka vesælan mótmælanda við Stjórnarráðið og síðan er atvinnu- lausi vörubílsstjórinn Sturla Jónsson fjarlægður af lögreglu úr glamúr- veislu hennar. Samt var hann með boðskort. Vefmiðillinn Smugan.is var stofnaður til „að leggja sitt af mörkum til lýðræðis-legrar umræðu“. Ritstjór- inn ákvað í vikunni að stöðva birt- ingu á skopmynd, af því að hún var af Ármanni Jakobssyni, flokksbróður og pistlahöfundi á Smugunni. Þessi davíðska ritskoðun var útskýrð af Þóru Kristínu Ásgeirsdóttur: „Mér fannst myndin af Ármanni Jak- obssyni ekki smekkleg“. R itstjóri Smugunnar, sem kostuð er af Vinstri hreyf-ingunni - grænu fram-boði, er á móti tunnu- mótmælunum. „Sjötíu og þrjú prósent allra Íslendinga styðja mótmælin en það er grátlegt eftir það sem á undan er gengið að nú skuli lýðræðinu mótmælt,“ skrifar Þóra Kristín. Þannig tókst miklum meiri- hluta þjóðarinnar að mynda afstöðu, sem er ólýðræðisleg. Björn Bjarna-son, sem áður var mesti óvin-ur mótmæl- enda, styður núna mót- mælin. Bjarni Benedikts- son, formaður Sjálfstæð- isflokksins, kallaði eftir þjóðstjórn allra flokka á mánudag- inn. „Það væri skyn- samlegt fyrir menn að snúa bökum saman og starfa þvert á flokka,“ sagði hann. Á þriðja degi, miðvikudegi, vildi hann ekki samráð við ríkisstjórnina um lausn á vanda húsnæðiseigenda. „Ég hlýt að spyrja á móti bíddu til hvers ætti ég í stjórnarandstöðu í þessu landi, með skýrar hugmyndir á borðinu sem ég tel að séu það sem þarf að gera, af hverju ætti ég að fara að ganga til samstarfs við verklausa ríkisstjórn og fara að gera einhverja málamiðlanir frá því sem ég tel að sé rétt að gera. Ég sé bara enga skyn- semi í því.“ Þetta er rétt hjá Bjarna. Það er engin skynsemi í þessu. Alls engin. Allt er á hAus! „Hér er framtíðin bröttust. Ekki björtust heldur bröttust.“ n Sturla Jónsson vörubílstjóri og mótmælandi býður sig fram til stjórnlagaþings. - DV. „Það er verið að taka fólk með fullt sjálfræði og færa það á allt annan stað gegn vilja þess.“ n Una Björk Kjerúlf hefur áhyggjur af afa sínum sem verður líklega aðskilinn frá eiginkonu sinni vegna fyrirhugaðrar lokunar elliheimilis. - DV. „Það þýðir ekki að segja að allir séu bara leiðinlegir.“ n Auður Jónsdóttir rithöfundur segir hátterni borgarstjóra og félaga hans minna á þá sem leggja í einelti í grunnskóla. - Vísir.is „Ég held að við séum hvorugir kóngar. Það er bara einn kóngur og hann er uppi á himnum.“ n Björgvin Halldórsson um það hvor sé kóngurinn, hann eða Bubbi. - Monitor. „Gott að hann var ekki að fæða, blessaður.“ n Guðrún Lárusdóttir bóndi í Keldudal í Hegranesi á Facebook-síðu sinni í tilefni af því að heilbrigðisráð- herra afboðaði komu sína vegna veðurs. - Pressan.is „Þetta er ekki þjóðin“ Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráð-herra lét lögreglu vísa atvinnulaus-um vörubílstjóra út úr lúxusveislu þar sem fulltrúar á þingi Norðurlanda- ráðs voru á fóðrum. Fyrir nokkrum misser- um lét aðstoðarmaður forsætisráðherrans handtaka mótmælanda sem fóðraði máva á lóð stjórnarráðsins. Vörubílstjórinn og mótmælandinn röskuðu ró þessa háaðals Íslands. Þessi tvo dæmi um mannleg samskipti útskýra ágætlega hvers vegna Jóhanna er um það bil að stýra ríkisstjórn sinni upp á sker aðgerðarleysis og heimsku. Þetta und- irstrikar líka vel hvers vegna fylgi Samfylk- ingar mælist í sögulegri lægð. Jóhanna, sem lengi vel var málsvari smælingjanna í sam- félaginu, hefur snúið baki við þeim og lætur lögregluna fjarlægja litla fólkið. Vörubílstjórinn atvinnulausi sem lædd- ist inn í lúxuveröld Jóhönnu á boðsmiða vildi fá tilbreytingu frá því að standa í bið- röð eftir mat. Hann lýsti því í samtali við DV að áður en til lögregluafskiptanna kom hafi hann fengið illt auga frá forsætisráðherran- um. Og þetta er einmitt meinið. Allir þeir sem vilja mótmæla og knýja á um réttlæti fá illt auga. Þegar þjóðin mótmælti á Austur- velli hélt Jóhanna ræðu í þingsalnum. Hún þorði ekki að ávarpa mannfjöldann. Það hefði ekki kostað Jóhönnu neitt að leyfa prúðbúnum atvinnuleysingjanum að kroppa með sér í pinnamatinn. Og hún þurfti heldur ekki að láta handtaka kon- una sem gaf mávunum. En hún kastaði grímunni. Við almenningi blasir getulaus hrokagikkur sem sigar löggunni á fátækt, vansælt fólk. Trausti rúin skálar forsætisráðherrann við stórmenni annarra landa í hásölum rík- isins. Fyrir utan norpar litla stúlkan með eldspýturnar í gervi vörubílstjóra. Jóhanna horfir stálgráum augum út í nepjuna. ,,Þetta er ekki þjóðin,“ segir hún kuldalega. Þegar síðasta eldspýtan er að brenna upp hring- ir hún í lögregluna. Miskunnarlaust kerfið berst gegn þjóðinni. reynir trAustAson ritstjóri skrifAr. Við almenningi blasir getulaus hrikagikkur. leiðari svarthöfði 26 umræða 5. nóvember 2010 föstudaguR Hræddir borgarfulltrúar n Undirliggjandi ólga er innan borg- arstjórnar Reykjavíkur vegna heim- ildamyndarinnar um Jón Gnarr. Myndin lýsir kosningabaráttu Jóns með öllum þeim leiðindum sem fylgdu. Sjálf- ur lítillækkaði frambjóðandinn reyndari pólitík- usa með því að standa upp und- ir ræðum þeirra og fara út. Hermt er að Hanna Birna Kristjánsdóttir og Sóley Tómasdóttir hafi sameig- inlegar áhyggjur af því að myndin muni stórskaða þær pólitískt. Því er jafnvel haldið fram að þær hafi beðist vægðar en ekki fengið hljómgrunn hjá Gnarr. Sannur vinur n Tónlistarmaðurinn Bubbi Morth- ens hefur verið í nokkrum ólgusjó eftir að Eiríkur Jónsson, fyrrverandi ritstjóri, birti af honum mynd á DV.is með Baugs- feðgum. Hefur Bubbi verið gagn- rýndur fyrir að tala máli þeirra feðga og þá jafn- vel gegn gjaldi. Aðrir hafa lýst að- dáun sinni á þeirri staðfestu Bubba að fara gegn straumnum og standa með Jóhannesi í Bónus í hverju sem á dyn- ur. Þar þykir Bubbi vera sannur vinur. neyðarHjálp til binga n Í fjölmiðlabransanum velta menn fyrir sér hvort Birni Inga Hrafnssyni, fyrrverandi stjórnmálamanni og eig- anda Caramba, hafi tekist að útvega þær 100 milljónir króna sem þurfti. Hermt er að Björn hafi víða leitað neyðaraðstoðar en fyrirtæki hans var komið í um- talsverð vand- ræði. Einhverjir telja ekki ólíklegt að skoðanabróð- ir Binga, Finnur Ingólfsson, rétti honum einhverja aura líkt og Existabræður þegar þeir létu tryggingafélagið VÍS ger- ast eiganda í Pressunni. Það skýrist væntanlega á næstu mánuðum hvort Pressunni verði bjargað og taprekst- ur geti haldið áfram. teiknari rekinn n Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, fyrrver- andi formaður Blaðamannafélagsins og ritstjóri Smugunnar, fékk að finna til tevatnsins hjá Pressunni eftir að hún neitaði að birta það sem hún áleit vera niðurlægj- andi teikningu af Ármanni Jak- obssyni sagn- fræðingi. Ein- hverjir hafa þó orðið til að benda á að Björn Ingi Hrafnsson neitaði að birta teikn- ingu Henrýs Þórs á sínum tíma og rak hann í nafni ritskoðunar. Umfjöllunin var því úr glerhúsi. Henrý Þór er í dag teiknari DV og hefur frjálsar hendur. sandkorn tryggvagötu 11, 101 reykjavík Útgáfufélag: Dv ehf. Stjórnarformaður: Lilja Skaftadóttir ritStjórar: jón trausti reynisson, jontrausti@dv.is og reynir traustason, rt@dv.is fréttaStjóri: Ingi Freyr vilhjálmsson, ingi@dv.is umSjón helgarblaðS: Ingibjörg Dögg kjartansdóttir, ingibjorg@dv.is umSjón innblaðS: Ásgeir jónsson, asgeir@dv.is dv á netinu: Dv.IS aðalnÚmer: 512 7000, ritStjórn: 512 7010, áSkriftarSími: 512 7080, auglýSingar: 512 7050. SmáauglýSingar: 515 5550. umbrot: Dv. Prentvinnsla: Landsprent. dreifing: Árvakur. Dv áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Á Íslandi er samspil ljósvakamiðla og stjórnmálastéttar á þá leið, að stjórnmálamaður ropar, búkhljóð hans eru flutt í fréttatíma og svo er þess beðið í ofvæni að næsti bubbi bjóði hærri búkhljóð og síðan eru þau leikin fyrir landsmenn allt þar til betri hljóð bjóðast. Hér er sagt í þágu þjóðar, að stilla afdönguð- um poppurum og úrvali beturvita við hljóðnema, leyfa liðinu að tala nógu lengi – í von um að upp komi viturleg setning. Að greina vanda er á færi fólks sem ljósvakamiðlar vilja síst vita af. Og að kalla eftir vitrænni umræðu er þá líklega ein heimsku- legasta beiðni sem fram getur kom- ið. Mannvitsbrekkurnar á þingi eru svo brattar að venjulegt fólk verður lofthrætt þótt þingheimur geri ekki annað en bera á góma. Ef skoðuð eru gáfnaljós stjórnarandstöð- unnar, með liðs- menn Hreyfingar í brjósti fylking- ar, þá er skyndi- lega eins og sjálf- ur Árni Johnsen hljóti prik fyrir göfuglyndi. Það er nefnilega eins og allt þetta gáf- aða fólk telji sig hafa fengið það verkefni að vinna gegn öllu sem í þágu þjóðar getur talist. Þingheim- ur virðist hafa það eitt að markmiði að rægja ímyndaða andstæðinga, draga úr trúverðugleika alls sem til bóta getur talist og svo eiga þing- menn það sameiginlegt að vernda vini sína – jafnvel til óhæfuverka. Fréttamenn fylgja því síst eftir að rekja garnir úr fulltrúum stjórn- málastéttar og samræður allar byggjast á búkhljóðum og innant- ómu gjálfri. Þegar við heyrum í fréttum, að ál- verið fyrir austan hafi í raun og veru ekki leyst neinn vanda. Og þegar við heyrum í sama fréttatíma af til- lögum þingmanna um fleiri álver, þá hljótum við að álykta sem svo, að mennt sé sá máttur sem þjóðina skortir. Eða erum við kannski að tala um hreina og klára siðmennt – það, að þjóðin öðlist færni í mannlegum samskiptum og læri að láta skyn- semi verða að leiðarljósi, í stað þess að láta orðaskak, tittlingaskít og hrá- skinnaleik setja mark sitt á hverja þá orðræðu sem upp kann að koma? Þegar mannvitsbrekkurnar á Alþingi ákveða að skera niður, er hugsunin sú, að fækka störfum í velferðarkerfi og á sviði mennta- mála - jafnvel þótt þarna sé um að ræða verkefni sem skili okkur öll- um arði. En engum dettur í hug að skera megi niður í sjálfri stjórnsýsl- unni; fækka afætum með flotta titla. Það er eins og bannað sé að ræða um: blaðafulltrúa, aðstoðarmenn, ráðgjafa o.s.frv. Það er eins og sam- tryggingin leyfi ekki viturlegar sam- ræður. Mín bókaþjóð svo bágstödd er og byggð á veikum grunni ef daglega hún drekkir sér í djúpum viskubrunni. Meira mannvit! skáldið skrifar kristján hreinsson skáld skrifar En engum dettur í hug að skera megi niður í sjálfri stjórnsýslunni. bókstaflega
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.