Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2010, Qupperneq 30
Jónsi vekur athygli Tónlistarmaðurinn Jón Þór Birgisson, betur
þekktur sem Jónsi úr Sigur Rós, er núna staddur í Bandaríkjunum á heimstónleikaferða-
lagi sínu í kjölfar útgáfu fyrstu sólóplötu sinnar Go í apríl. Um miðjan október hélt Jónsi
tónleika í hinu sögufræga Wiltern Theater í Los Angeles.Tónleikar þessir voru nokkuð
merkilegir fyrir þær sakir að National Public Radio, NPR, í Bandaríkjunum sóttist eftir að
sýna beint frá þeim á netinu og var það í fyrsta skipti sem NPR sýndi beint frá tónleikum
og því mikill heiður fyrir báða aðila. Núna er búð að setja saman 5 mínútna „timelapse“-
bút frá tónleikunum sem spannar öll lög tónleikanna á ógnarhraða með lag Jónsa
Sinking Friendship yfir. Hægt er að horfa á bútinn á heimasíðu Jónsa: jonsi.com.
Davíð Örn með nýJa sýningu Laugardaginn 6. nóvember opnar
Davíð Örn Halldórsson einkasýningu sína, Faunalitir, í Gallerí Ágúst. Þetta er önnur einka-
sýning Davíðs Arnars í galleríinu en sýning hans absalút gamall kastale, vakti gríðarlega
mikla athygli árið 2008. Davíð Örn Halldórsson útskrifaðist frá myndlistadeild Listahá-
skóla Íslands árið 2002. Hann vakti strax athygli fyrir sérstaka efnisnotkun og heillandi
myndheim í verkum sínum. Hann hefur verið sérlega ötull myndlistarmaður og á að baki
fjölda sýninga, bæði hérlendis sem erlendis. Davíð Örn hefur einnig kennt myndlist og
verið ráðgjafi útskriftarnema í Listaháskólanum, unnið að hönnun fyrir hljómsveitirnar
Múm, Hjálma og Hjaltalín ásamt því að koma að sviðsmynda- og kvikmyndagerð.
Kvöldverðarleikhús í Veisluturninum:
Matargestir taka þátt
Nú er í gangi áhugavert kvöldverð-
arleikhús í Veisluturninum sem
skartar meðal annars stórtenórnum
Gissuri Páli Gissurarsyni en verk-
ið ber nafnið Gríman fellur. Fyrsta
sýning var á mánudaginn og önnur
sýningin verður í kvöld, föstudag.
Mikið er sungið í sýningunni þar
sem matargestir taka virkan þátt í
upplifuninni. Sýningin er dregin
tilbaka til Viktoríutímans þannig
að allar konurnar eru í glæsilegum
kjólum í stíl þess tíma og með hár-
kollur.
Það er gestgjafinn, Victoria von
Weinhaus, leikinn af Signýju Sæ-
mundsdóttur sópransöngkonu, sem
tekur á móti gestunum í kvöld en
sögusviðið er kvöldverðarboð sem
hún hefur boðið til og eru matargest-
ir og aðrir leikendur veislugestirnir.
Ýmislegt skondið kemur upp
á hjá heiðursgestum kvöldsins
sem eru leikendur og sitja við há-
borðið hjá fröken Victoriu og frú-
in þarf nokkrum sinnum að afsaka
óvæntar uppákomur en hún hefur
lifað lífinu á yfirborðskenndan hátt
og þarf því sífellt að klóra yfir það
sem miður fer.
Er þetta form algjörlega ný upp-
lifun fyrir listunnendur því mat-
argestir eru þátttakendur á með-
an þeir njóta fordrykkjar og síðan
þriggja rétta veislukvöldverðar sem
framreiddur er af matreiðslumönn-
um Veisluturnsins. Aðrir leikend-
ur eru Gissur Páll Gissurarson ten-
ór sem Rómeó, Hrönn Þráinsdóttir
píanóleikari sem Anna Schumann,
Hörn Hrafnsdóttir mezzósópran
sem prinsessa Catarina, Margrét
Grétars dóttir sópran sem Júlía og Jó-
hann Smári Sævarsson, bassi.
Frekari upplýsingar um pantan-
ir og sýningartíma er hægt að fá í
síma 575 7500 eða með því að hafa
samband við pantanir@veislu-
turninn.is.
tomas@dv.is
30 fókus 5. nóvember 2010 föstudagur
Breytir
íBúðinni
í gallerí
„Ég flyt út til þess að koma sýning-
unni inn,“ segir Birgir Sigurðsson, raf-
virki og listamaður, en hann heldur
úti vægast sagt óhefðbundnu galleríi í
íbúð sinni að Þúfubarði 17 í Hafnar-
firði. Um helgina heldur Birgir sína
aðra sýningu í galleríinu, en á þeirri
fyrstu komu meðal annarra fram Þor-
valdur Þorsteinsson, Helena Jóns-
dóttir og Bjarni Þór Sigurbjörnsson.
„Ég fór í rosalegt hreinsunarátak eftir
að ég fékk hugmyndina að gallerí-
inu og gaf eða henti nánast öllu sem
ég átti. Núna tekur mig um það bil
korter að flytja út,“ segir Birgir létt-
ur og bætir við: „Rúmið mitt er það
stærsta sem ég á.“ Birgir segir ótrú-
lega gefandi að halda úti galleríinu.
„Fólk hefur tekið svo vel í þetta og er
að leggja mikið í verkin.“ Um helgina
verða, meðal annarra, þau Ragn-
heiður Jóhannsdóttir, Hekla Dögg
Jónsdóttir og Ingvar H. Ragnarsson.
„Ragnheiður verður með klósettið og
Hekla svefnherbergið svo eitthvað sé
nefnt.“ Þá mun Ragnar Kjartansson
sýna hjá Birgi í febrúar næstkomandi.
Sýningin verður opnuð klukkan 14
á laugardag og sunnudag og verður
opin til klukkan 17.00.
tölvuleikir
medal of honor
Með þessum nýja
Medal of Honor leik
gekk það ekki upp
hjá framleiðendun-
um að toppa Modern
Warfare og leikurinn
vart meira en
skammgóður vermir
í því úrvali tölvuleikja sem fyrir er.
mælir með...
mælir ekki með...
söngleikur
dísa ljósálfur
Góð saga líður
fyrir slappt handrit
og leikstjórn.
Tónlist Gunnars
Þórðarsonar er ljúf
en tilþrifalítil.
kvikmynd
machete
Eins og að hlæja að
sama brandaran-
um aftur og aftur í
105 mínútur. Ágæt
á sinn hátt en allt
of löng. Grínið
staldrar stutt við
og eftir standa örfá ýkt hasaratriði.
kvikmynd
the switch
The Switch er
áhugaverð í upp-
hafi, en þegar á
líður verður hún
frekar þvinguð
og óeðlileg þó
svo að sögusvið-
ið og heillandi leikarahópur leggi
sitt af mörkum til að gera þessa
mynd áhorfanlega.
Fríður hópur söngvara Fólkið fær að taka þátt í kvöldinu með söngvurunum.
Gaukur Úlfarsson er mað-urinn á bak við myndina um Jón Gnarr. Mynd-skeið sem sýnt hefur
verið úr myndinni sem verður frum-
sýnd 12. nóvember hefur strax vald-
ið miklum titringi innan Ráðhússins
og hefur Gaukur verið sakaður um
að leggja ákveðna borgarfulltrúa í
einelti. Gaukur segir tilgang mynd-
arinnar alls ekki vera þann að kasta
rýrð á ákveðna flokka eða mann-
eskjur heldur fjalli myndin fyrst og
fremst um Jón Gnarr og hugsjónirn-
ar á bak við Besta flokkinn.
sett aF stað leikrit
„Mér finnst mjög ódýrt að segja að
það sé einelti í myndinni. Það er
fullt af fólki lagt í einelti sem á það
ekki skilið. Eins og börn í skóla og
fólk á vinnustöðum sem er ekkert
að ota sínum tota. En sum gagnrýni
á alveg rétt á sér,“ segir Gaukur og
bætir við: „En fyrir það fyrsta þá er
þetta mynd um Jón Gnarr. Þetta er
ekki mynd um Sóleyju Tómasdóttur,
Hönnu Birnu eða Dag B. Eggertsson.
En þau koma öll fyrir í myndinni og
eiga öll jafnstóran hlut í henni. Það
Gaukur Úlfars-
son frumsýnir
mynd sína um Jón
Gnarr þann 12.
nóvember. Hann
talar við Hönnu
Ólafsdóttur um
tilgangslaus mót-
mæli Hallgríms
Helgasonar og
Bubba Morthens
og gagnrýnir tvö-
feldni innan borg-
arstjórnarinnar.
Vítamínsprauta fyrir
vannærða þjóð
Ódýrt að tala um
einelti „Það er
ekki hallað meira
á einn en annan.“
myndir sigtryggur ari