Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2010, Page 31
Helgi Björns syngur lög Hauks
MortHens Nú á sunnudaginn heldur Helgi Björnsson sína
fjórðu tónleika þar sem hann syngur lög sem Haukur Morthens gerði
vinsæl á sínum langa ferli. Uppselt var á hina tónleikana og því hefur
verið ákveðið að setja upp aukatónleika, 7. nóvember klukkan 20. Helgi
hefur fengið til liðs við sig úrval íslenskra hljóðfæraleikara og söngvara
til að gera þessum þjóðararfi íslenskra dægurlaga góð skil. Ásamt Helga
koma fram þeir Einar Valur Scheving á trommur, Róbert Þórhallsson á
bassa, Stefán Már Magnússon á gítar og Kjartan Valdemarsson á píanó.
Pétur Már í reykjavík art gallery Laugardaginn 6. nóvember
klukan 14.00 verður opnuð sýning á nýjum óhlutbundnum ljóðrænum málverkum Péturs
Más Péturssonar í Reykjavík Art Gallery á Skúlagötu. Sýningin stendur til 19. nóvember og er
Reykjavík Art Gallery opið alla daga vikunnar nema mánudaga klukkan 14–17.30. Pétur Már
fæddist á Ísafirði árið 1955. Um fyrstu einkasýningu Péturs Más í Listasafni ASÍ árið 1984 skrifaði
Valtýr Pétursson, listrýnir Morgunblaðsins, meðal annars: „Hæfileikar þessa pilts eru svo auð-
sjáanlegir, að það er blindur maður sem ekki hrekkur við. Þarna er spenna og litameðferð sem
sjaldan verður vart.“ Einnig standa yfir aðrar sýningar í galleríinu, meðal annars á ljósmyndum
Árna Thorsteinson ljósmyndara og tónskálds sem nýlega átti 140 ára fæðingarafmæli.
föstudagur
n Palli og Sinfó
Sinfóníuhljómsveit Íslands hefur síðustu
vikur haldið magnaða tónleikaröð og
nú er komið að einum af þeim stóru.
Páll Óskar Hjálmtýsson mun syngja með
Sinfó í Háskólabíói bæði föstudags- og
laugardagskvöld. Miðarnir kosta 4.400
og 4.700 krónur og hefjast tónleikarnir
klukkan 20.00 á föstudaginn.
n Hjaltalín með kammersveit
Hin stórbrotna hljómsveit Hjaltalín mun
halda tónleika ásamt Kammersveit SN
í menningarhúsinu Hofi á Akureyri á
föstudaginn. Tónleikarnir hefjast klukkan
20.00 en miðinn kostar 4.000 krónur.
Leikin verða lög af breiðskífum Hjaltalíns,
Sleepdrunk Seasons og Terminal.
n Datarock á Nasa
Norska hljómsveitin Datarock sem sló
rækilega í gegn á Iceland Airwaves um
árið snýr nú aftur til Reykjavíkur og ætlar
að halda tónleika á NASA á föstudags-
kvöld. Þar munu einnig koma fram Retro
Stefson og Berndsen. Tónleikarnir hefjast
klukkan 22.00 en miðinn kostar aðeins
1.500 krónur.
laugardagur
n Dúett með Hjaltalín
Á laugardag verður Hjaltalín aftur með
flotta tónleika. Hljómsveitin spilar þá
ásamt sænska dúettnum Wildbirds &
Peacedrums í Fríkirkjunni en tónleikarnir
eru hluti af norrænu menningarhátíðinni
Ting sem haldin er samhliða þingi Norð-
urlandaráðs. Tónleikarnir hefjast klukkan
20.00 en miðinn kostar 2.900 krónur.
n Útgáfutónleikar Blaz
Erpur Eyvindarson, betur þekktur sem
Blaz Roca, er loksins að gefa út sína
fyrstu sólóplötu, KópaCapana. Útgáfu-
tónleikar vegna hennar verða haldnir á
NASA á laugardagskvöldið. Þeir hefjast
klukkan 23.59 og kostar 1.500 krónur
inn. Það vill enginn hip hop-haus missa
af þessum tónleikum.
n Greifarnir í Stapanum
Hinir ólseigu Greifar spila í Stapanum í
Reykjanesbæ á laugardagskvöldið en
tólf áru eru síðan þeir gerðu þar allt
vitlaust síðast. Einnig eru 24 ár síðan
Greifarnir spiluðu fyrst á Reykjanesi. DJ
Alli og Valli sjá um stuðið í pásum en for-
sala miða fer fram í Gallerí Hafnargötu.
n Vinir vors og blóma á Players
Það verður alvöru 90‘s-stemning á Play-
ers á laugardagskvöldið en þá ætla Vinir
vors og blóma að halda uppi fjörinu. Þar
er lofað sveitaballastemningu eins og
hún gerist best því leikin verður óbreytt
stuðlagadagskrá frá árinu 1994.
n ÁMS á Spot
Magni og félagar í Á móti sól ætla að spila
öll bestu lög sveitarinnar og auðvitað
annarra á Spot í Kópavogi á laugardags-
kvöldið. Þetta verður eina skiptið sem
ÁMS kemur fram á höfuðborgarsvæðinu
á árinu 2010. Ekki missa af því.
Rúnar Þórisson gefur út plötu og heldur útgáfutónleika:
Ýmsir straumar og stefnur
Tónlistarmaðurinn Rúnar Þóris-
son, gítarleikari hljómsveitarinn-
ar Grafík, heldur útgáfutónleika í
Tjarnarbíói á þriðjudaginn klukk-
an 20.30. Tónleikarnir eru í til-
efni af plötunni Fall sem Rúnar
gaf út á dögunum. Með Rúnari á
tónleikunum verður einvalalið
hljóðfæraleikara en einnig munu
syngja með honum Hjörvar Hjör-
leifsson, Lára Rúnarsdóttir og
Margrét Rúnarsdóttir.
Rúnar hefur hefur komið víða
við á árinu, meðal annars á Ice-
land Airwaves-hátíðinni og Aldrei
fór ég suður á Ísafirði. Einnig hef-
ur hann spilað erlendis í ár, á
Accademia della Cultura á Suð-
ur-Ítalíu og á menningarhátíð-
inni Nordischer Klang. Hann mun
einnig koma fram ásamt Láru
dóttur sinni í Fuglabúrinu á Ros-
enberg síðar í nóvember.
Plötuna segir Rúnar hafa verið
í smíðum undanfarin tvö til þrjú
ár en öll lög og textar eru sam-
in af honum auk þess sem hann
sá um útsetningar og upptöku-
stjórn. „Platan ber þess merki að
ég hef komið að ýmsum straum-
um og stefnum í tónlist. Öfugt
við síðustu plötu, Ósögð orð og
ekkert meir, og það sem ég var að
gera með Grafík er útgangspunkt-
urinn ekki gítarleikur. Á þessari
plötu spila ég jafnt á gítar og önn-
ur hljóðfæri og legg mikið upp úr
strengjaútsetningum auk söng-
radda og blásturs.“
tomas@dv.is
föstudagur 5. nóvember 2010 fókus 31
Hvað er að
GERAsT?
ÚtGÁfutóNleikaR Rúnar Þórisson er búinn að gefa út nýja plötu og heldur
útgáfutónleika á þriðjudaginn klukkan 20.30.
Vítamínsprauta fyrir
vannærða þjóð er ekki hallað meira á einn en ann-an og þó að Dagur sé í samstarfi við Besta flokkinn þá fær hann líka rass-skellingu. Gaukur bendir á að myndin sé
tekin upp sem algjörlega hlutlaus
heimild og hann hafi ekki viljað
endurskrifa söguna með myndinni.
Fólk fái að upplifa kosningabarátt-
una eins og það hafi verið flugur
á vegg. Það kemur mér samt ekki
á óvart að við séum stödd á þeim
stað sem við erum á, því þrátt fyrir
hrunið og þrátt fyrir kosningaúrslit
þá virðist fólk ekki hafa lært neitt og
það hefur ekki breytt neinu. Í besta
falli hefur það skipt um fólk en það
hefur ekki breytt um stefnu og það
virðist eyða kröftum og tíma í niður-
rif í staðinn fyrir að vinna saman og
gera borgina okkar betri.“
Gaukur rifjar upp sögu sem hann
heyrði innan úr Ráðhúsi og seg-
ir hana vera gott dæmi um þessi
neikvæðu vinnubrögð. „Stuttu eft-
ir að Jón er kosinn borgarstjóri á
hann að fara til Brussel í opinber-
um erindagjörðum. Þetta vissu all-
ir í borgarstjórn og það var búið að
láta alla vita að hann þyrfti að fara
upp á flugvöll í síðasta lagi klukk-
an fjögur til að ná flugvélinni. Þá er
sett af stað leikrit: Hanna Birna fer í
pontu og talar og talar og talar. Hún
talar þangað til að klukkan er orðin
fjögur og Jón þarf að standa upp og
fara. Og viti menn, einmitt á þessari
stundu er ljósmyndari frá Morgun-
blaðinu á staðnum sem tekur mynd
og þessu er slegið upp eins og Jón
hafi gengið út af fundi. Þetta segir
manni svolítið um hvers konar vitl-
eysa er í gangi.“
HallGRíMuR oG
BuBBi Bæta eNGu Við
Gaukur leggur áherslu á að myndin
sé ekki gerð til að gera lítið úr öðr-
um heldur fyrst og fremst til að sýna
hvernig manneskja Jón er og hvern-
ig aðkoma hans í stjórnmál sé í raun
lýsandi fyrir Jón sem listamann.
„Fólk sér það kannski ekki fyrr en
eftir tíu ár þó að það séu margir
sem sjá það núna að þetta er fram-
lag hans til okkar og borgarinnar.
Mörgu fólki líður ekkert vel. Flestir
hafa áhyggur af framtíðinni og fjár-
málunum og fólk er búið að missa
trúna. Jón vill bara gleðja og gera
borgina skemmtilegri, því fólk er
ekki bara að flýja land út af atvinnu-
leysi, margir eru líka að fara af land-
inu því það er bara svo rosalega leið-
inlegt að búa hér.“
Gauki finnst merkilegt að fylgjast
með hvernig nokkrir af þekktustu
listamönnum landsins hafa hag-
að sér eftir hrun og nefnir Hallgrím
Helgason og Bubba Morthens í því
samhengi. „Hallgrímur Helgason
birtist á Al Jazeera og öskrar Dav-
íð Oddsson. Bubbi Morthens held-
ur tónleika fyrir utan Seðlabank-
ann og öskrar Davíð Oddsson, en
hvers konar framlag til samfélags-
ins er það frá mikilsmetnum lista-
mönnum? Það bætir engu við, það
vita allir hvaða þátt Davíð Oddsson
átti í hruninu. Og hvað? Mér finnst
það bera vott um heigulshátt að
öskra bara Davíð, Davíð. Jón reyn-
ir að nýta sköpunarkraft sinn til að
búa til eitthvað fallegt og gera eitt-
hvað uppbyggilegt.“
ValHöll BloGGaR
Á BaRNalaNDi
Undanfarið hefur verið nokkuð
hörð gagnrýni á Jón Gnarr og Besta
flokkinn úr ýmsum áttum þar sem
talað hefur verið um að Jón valdi
ekki starfinu og minnihluti borg-
arstjórnar hefur gagnrýnt Jón op-
inberlega. Það hlýtur að vera erfitt
að vinna undir þessum kringum-
stæðum. „Maður finnur það dálítið
núna að Valhöll er í yfirvinnu við að
blogga á Barnalandi og skrifa inn á
DV.is. Allt í einu er fólk inni á Barna-
landi að skrifa hluti eins og „vanhæfi
trúðurinn“ og vitna í fréttir af Jóni
og margir sem virðast hafa yfirgrips-
mikla þekkingu á fjármálum borg-
arinnar eru byrjaðir að skrifa þarna
inn. Það er verið að reyna að búa til
þá ímynd að hann hugsi bara um
sjálfan sig, sé kærulaus og vitlaus.
Hanna Birna talar niður til hans í
útvarpinu, Júlíus Vífill kemur á ÍNN
og kallar hann bjána eða eitthvað
álíka. Þetta er eins og í Fávitanum
eftir Dostojevskíj, ef þú kemur með
hreint hjarta og fullur af Krist og
kærleik þá ertu bara talinn fáviti. En
ég veit að hann er að gera sitt allra
besta og staðreyndin er sú að þetta
fólk er búið að gera svo miklu, miklu
verr heldur en hann.“
VítaMíN fyRiR
VaNNæRða Þjóð
Gaukur er mjög spenntur fyrir
frumsýningunni og segir að hún
muni verða sem vítamínsprauta
fyrir þjóð sem er andlega vann-
ærð. „Myndin er mjög skemmti-
leg en á sama tíma sér maður líka
hugsjónirnar sem Jón hefur, þær
skína alveg í gegn. Þessi mynd
gefur manni alveg rosalegan inn-
blástur og ég er mjög ánægður
með hana. Það verður ekki hjá því
komist að labba út í góðu skapi eft-
ir að hafa horft á hana. Jón er alveg
ótrúlega fyndinn maður sem segir
mjög skemmtilega frá og hefur frá
mörgu að segja. Ég held að mynd-
in eigi líka eftir að vekja mikla um-
ræðu um hugsjónir, eru einhverjar
hugsjónir eftir?“
Myndin er eitt það skemmti-
legasta sem Gaukur hefur gert og
hann segir það koma greinilega
fram í myndinni. „Getur þú ímynd-
að þér hvernig það er að vakna og
sofna með Jóni Gnarr? Hver einasti
dagur er ævintýri, þannig er bara
viðhorf hans gagnvart lífinu. Hann
er alveg brjálæðislega frískandi og
allir sem sjá myndina verða glaðir
í að minnsta kosti viku. Og þá fer
fólk bara aftur að sjá hana,“ segir
Gaukur og brosir.
Mörgu fólki líð-ur ekkert vel.
Flestir hafa áhyggur af
framtíðinni og fjármál-
unum og fólk er búið að
missa trúna.
Myndin brjálæðislega frískandi
„Það verða allir glaðir í að minnsta kosti
viku eftir að hafa horft á myndina.“