Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2010, Side 54
Innan tíu daga verður krýndur
heimsmeistari í Formúlu 1. Síðustu
tvö mótin fara fram með viku milli-
bili um þessa helgi og þá næstu. Á
sunnudaginn þeysast ökuþórarn-
ir um Interlagos-brautina í Brasilíu,
eina allra skemmtilegustu braut árs-
ins. Spánverjinn Fernando Alonso
á Ferrari hefur forystu í stigamót-
inu og getur orðið heimsmeistari
um helgina með sigri og hentugum
úrslitum hjá keppinautunum. Lík-
lega verður meistari þó ekki krýnd-
ur fyrr en í Abu Dhabi um aðra helgi.
Max Mosley, forseti alþjóða aksturs-
íþróttasambandsins, FIA, segir að
eftir hneykslið í Þýskalandi í júlí
verði Alonso að vinna með minnst
sjö stigum verði hann heimsmeistari
til að gera ekki lítið úr íþróttinni.
Ósáttur með liðsskipanina
Eitt stærsta málið á þessu keppn-
istímabili í Formúlunni var án efa
sigur Fernando Alonso á Hocken-
heim-brautinni í Þýskalandi í júlí.
Liðsfélagi hans, Felipe Massa, var
þá fremstur en eftir að honum var, í
gegnum kallkerfið, gert að hægja á
sér svo Alonso kæmist fram úr vann
Spánverjinn þýðingarmikinn sigur.
Allt varð vitlaust eftir þetta atvik og
vildu margir fá sigurinn dæmdan af
Alonso þar sem bannað en að hafa
bein áhrif á ökumennina í gegnum
talstöðina.
„Mér fannst að þessi auka stig
sem Alonso fékk með því að komast
upp úr öðru sæti í það fyrsta í Þýska-
landi hefðu átt að þurrkast út. Það er
algjört lágmark fyrir Alonso að vinna
heimsmeistaratitilinn með minnst
sjö stiga mun því hann átti aldrei að
fá þessi sjö stig í Þýskalandi. Stig-
in þar voru einfaldlega ólögleg og
ef hann verður heimsmeistari með
minni mun gerir það lítið úr heims-
meistaramótinu,“ segir Max Mosley,
forseti FIA.
Frábærir mánuðir
Ferrari-menn byrjuðu tímabilið með
tvöföldum sigri en síðan kvöddu þeir
toppbaráttuna í langan tíma. Lengi
vel stóð baráttan einungis á milli Red
Bull og McLaren en með frábærum
úrslitum undanfarið hefur Fernando
Alonso skotið sér upp í efsta sætið í
stigakeppni ökumanna og Ferrari
gerir nú einnig atlögu að öðru sæt-
inu í stigakeppni bílasmiða.
„Þetta hafa verið frábærir mán-
uðir undanfarið. Við vorum að ná
okkur á strik fyrir sumarfríið og eft-
ir það hefur nánast allt gengið upp.
Heppnin hefur verið okkur hlið-
holl þegar þess hefur þurft en allan
heiðurinn á fólkið bak við tjöldin.
Það er búið að vinna gríðarlega mik-
ið í bílnum og hann verður betri og
betri. Interlagos er braut sem hent-
ar okkur ágætlega en við verðum
að passa okkur og þá sérstaklega
ég. Það er ekkert í hendi ennþá. Ég
er í bestu stöðunni, það veit ég, en
ef ég ætla að landa titlinum verð ég
að standa mig í næstu tveimur mót-
um,“ segir Alonso sem hefur tvívegis
áður orðið heimsmeistari í Formúlu
1, bæði skiptin á Renault.
Webber vill sömu úrslit og í
fyrra
Ástralinn Mark Webber á Red Bull er
í öðru sæti stigakeppninnar, ellefu
stigum á eftir Alonso. Nú þegar tut-
tugu og fimm stig eru gefin fyrir sig-
ur og átján fyrir annað sætið er slíkur
munur nánst enginn. Margir fyrr-
verandi ökuþórar og aðrir speking-
ar á borð við Nikki Lauda, Eddie Jor-
dan, Ralf Schumacher og bróðir hans
Michael hafa sagt Red Bull verða að
styðja fyllilega við bakið á Webber og
gera hann að ökumanni númer eitt
í síðustu tveimur mótunum. Ofur-
stjarnan Sebastian Vettel hefur far-
ið illa að ráði sínu að undanförnu
og er tuttugu og fimm stigum á eftir
Alonso.
„Ég á góðar minningar frá því í
fyrra í Brasilíu. Það var gaman að
vinna þar því Interlagos er ein allra
skemmtilegasta braut ársins þar
sem það er svo mikil stemning hjá
áhorfendunum. Brassarnir kunna
svo virkilega að meta akstursíþrótt-
ir,“ segir Mark Webber. „Við stefn-
um auðvitað á sigur og við getum
svo sannarlega unnið þarna, jafnvel
tvöfalt. Núna er bara komið að loka-
sprettinum. Ef ég ætla mér að verða
heimsmeistari verð ég helst að vinna
síðustu tvö mótin og á það stefni ég,“
segir hann.
54 SPORT UMSJÓN: TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON tomas@dv.is 5. nóvember 2010 FÖSTUDAGUR
Síðustu tvö mótin á keppnistímabilinu í Formúlu 1 fara fram næstu tvær helgar. Lokaspretturinn hefst í Brasilíu
um helgina og tímabilinu lýkur svo í Abu Dhabi annan sunnudag. Fernando Alonso ók upp í fyrsta sætið í stigamót-
inu í síðustu keppni og getur orðið heimsmeistari á sunnudaginn. Líklegra er þó að úrslitin ráðist í lokakeppninni.
Forseti FIA segir Alonso verða að vinna með meira en sjö stiga mun, annars verði það hneyksli fyrir íþróttina.
TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is
MEISTARI KRÝNDUR
INNAN TÍU DAGA Við stefnum auðvitað á sigur og við getum svo sann-arlega unnið þarna.
STIGAKEPPNI ÖKUMANNA
Ökumaður Lið Stig
1. Fernando Alonso Ferrari 231
2. Mark Webber Red Bull 220
3. Lewis Hamilton McLaren 210
4. Sebastian Vettel Red Bull 206
5. Jenson Button McLaren 189
6. Felipe Massa Ferrari 143
7. Robert Kubica Renault 124
8. Nico Rosberg Mercedes 121
9. M. Schumacher Mercedes 66
10. R. Barrichello Williams 47
STIGAKEPPNI BÍLASMIÐA
Lið Stig
1. Red Bull 426
2. McLaren 399
3. Ferrari 374
4. Mercedes 187
5. Renault 143
6. Force India 68
7. Williams 65
8. Sauber 44
9. Toro Rosso 11
10. Hispania 0
11. Lotus 0
STAÐAN
EFSTUR Fernando Alonso
getur orðið meistari um
helgina en líklega ráðast
úrslitin þó ekki fyrr en í
Abu Dhabi.
EKKI LANGT UNDAN Mark Webber á
enn góðan möguleika á titlinum.
MYND REUTERS
HOPP OG HÍ Alonso hefur verið sjóðheitur að undanförnu. MYND REUTERS