Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2010, Page 55
FÖSTUDAGUR 5. nóvember 2010 SPORT 55
Gareth Frank Bale er fæddur í höfuð-
borg Wales, Cardiff, þann 16. júlí árið
1989. Þessi velski kantmaður ætlaði
ekki að geta unnið leik þegar hann
var keyptur til Tottenham og þurfti
hann að bíða í tvö ár eftir fyrsta sigri
sínum. Það tók hann langan tíma að
sýna hvað hann virkilega getur en
á þessu tímabili hefur hann verið
óstöðvandi. Bale gæti verið leikmað-
ur Manchester United en hann vildi
frekar fara til Tottenham. Bale er nú
þegar orðin stjarna með landsliði
Wales og enn þurfa Englendingar að
horfa upp á besta vinstri fótar mann
Bretlands spila með Wales, rétt eins
og með Ryan Giggs öll þessi ár.
Næstyngstur í sögu
Southampton
Bale þótti strax frá unga aldri bera
af í öllum íþróttum vegna vaxtar-
lags síns en hann var alltaf gríðar-
lega fljótur. Knattspyrnuhæfileikar
hans leyndu sér ekki og var vinstri
fóturinn strax orðinn magnaður
þegar Bale var lítill. Bale æfði rúbbí,
hokkí og keppti í langhlaupum en
það var fótboltinn sem heillaði Bale
hvað mest og hann heillaði alla með
leikni sinni. Svo góður var hann að
leikfimikennarinn í grunnskólan-
um hans, geðþekkur maður að nafni
Gwyn Morris, þurfti að semja sér-
stakar reglur fyrir Bale. Þegar hann
spilaði með öðrum krökkum mátti
hann bara nota eina snertingu og
aldrei spyrna boltanum með vinstri.
Fyrst vakti Bale eftirtek níu ára
að aldri þegar hann lék á barnamóti
með fyrsta félaginu sínu, Cardiff Ci-
vil Service Football Club. Seinna
meir fór hann að æfa með akademíu
Southampton en það var aldrei víst
hvort Southampton byði honum
samning vegna hæðar hans en Bale
var lengi að ná þeim 183 sentímetr-
um sem hann er í dag. Svo fór þó
að Southampton samdi við hann
og spilaði hann sinn fyrsta leik fyrir
liðið aðeins 16 ára og 275 daga gam-
all, næstyngsti leikmaðurinn í sögu
Southampton á eftir Theo Walcott.
Tottenham frekar en United
Bale spilaði aðeins eitt tímabil með
Southamton í næstefstu deildinni,
tímabilið 2006/2007. Hann stóð
sig svo svakalega vel í vinstri bak-
verðinum og í afleysingum á vinstri
kantinum að stóru liðin voru tilbú-
inn að kaupa hann, þá aðeins átján
ára gamlan. Vinstri fóturinn vakti
líka mikla hrifningu en hann skor-
aði nokkur mörk með Southampton
beint úr aukaspyrnu.
Sir Alex Ferguson vildi fá pilt-
inn til Manchester United enda hef-
ur hann lengi verið með örvfættan
vinstri kantmann í Ryan Giggs sem
hefur þjónað félaginu vel. Bauð
Manchester United Bale samn-
ing sem því fannst henta átján ára
pilti sem hafði aldrei spilað í efstu
deild. Tottenham bauð honum þó
meiri peninga og valdi Bale frekar
peningana en að alast upp undir
stjórn Alex Fergusons. Var pilturinn
nokkuð gagnrýndur fyrir ákvörðun-
ina, sérstaklega þar sem ljóst var að
staða væri að losna á vinstri kant-
inum hjá United og hafði Ferguson
sagt Bale mögulegan arftaka landa
síns, Ryans Giggs.
Vann ekki leik
Fyrstu árin hjá Tottenham voru Gar-
eth Bale erfið því á honum hvíldi
bölvun. Hlakkaði mikið í stuðnings-
mönnum Manchester United sem
sungu oft til Bale á White Hart Lane
að peningar jafngilda ekki árangri.
Það tók Bale hvorki meira né minna
en tuttugu og fimm leiki að vera í
sigurliði Tottenham í ensku úrvals-
deildinni, alls þrjátíu og fjóra í öllum
keppnum. Tölfræði sem er nánast
lygileg hjá félagi sem vinnur nú fleiri
leiki en það tapar á hverju ári.
Það var þó ekki fyrr en síðasta vor
að Bale fór virkilega að sýna hvað
hann getur. Allt í einu var hann í
liði vikunnar, viku eftir viku hjá öll-
um helstu miðlum Bretlands en það
var líka eftir að hann var endanlega
færður á vinstri kantinn. Vinstri bak-
vörðurinn virðist ekki henta honum
jafnvel þó hann hafi byrjað feril sinn
sem slíkur. Í dag er hann besti vinstri
kantmaður ensku úrvalsdeildarinn-
ar og lét hann Maicon, hægri bak-
vörð Inter, líta út eins og fífl í Meist-
aradeildinni í vikunni. Stjarna er svo
sannarlega fædd á White Hart Lane.
Með númerið hans Giggs
Gareth Bale er fyrir löngu orðinn
fastamaður í velska landsliðinu og
nú orðin ein helsta stjarna þess.
Hann náði að leika nokkra lands-
leiki með Ryan Giggs sem hann
sjálfur sagði hafa verið einn mesta
heiður í lífi sínu. Hann er mikill að-
dáandi Giggs og þegar sá gamli hætti
að leika með landsliði Wales fékk
Bale treyju númer ellefu, þá sömu
og Giggs hefur gert garðinn frægan í
síðustu átján árin.
Ljóst er að Tottenham þarf að
gera allt hvað það getur til að halda
í þennan strák sem er að springa út
á þessu tímabili. Stórliðin munu án
efa bera víunar í hann og þyrfti eng-
um að koma á óvart ef Ferguson vildi
leysa gamlan Walesverja af með ein-
um ungum þó það þyrfti risatilboð
til.
Gareth Bale hefur farið á kostum með Tottenham
í byrjun tímabils og í vikunni gerði hann einn
albesta hægri bakvörð heims, Maicon hjá Inter, að
athlægi í Meistaradeildinni. Bale bauðst að fara til
Manchester United en elti peningana til Tottenham.
Hann vann ekki deildarleik með Tottenham fyrr
en í 25. tilraun.
Hinn nýiRyan Giggs
MAGNAÐUR Gareth
Bale lét Maicon líta illa
út í Meistaradeildinni.
NÚMER ELLEFU Bale fékk treyju
Ryans Giggs hjá landsliðinu.
MYND REUTERS
GARETH
FRANK BALE
Fæddur: Cardiff, Wales 16.07. 1989
Staða: Vinstri bakvörður / vinstri
kantmaður
Lið: Tottenham Hotspurs
(57 leikir og 7 mörk)
Fyrri lið: Southampton
(40 leikir og 5 mörk)
Landsleikir: 27 (3 mörk)
TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is