Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2011, Blaðsíða 4
4 | Fréttir 11.–13. mars 2011 Helgarblað
Fjölmiðlamaðurinn Egill Helgason
gagnrýndi þáverandi ritstjóra vef-
miðilsins Pressunnar, Björn Inga
Hrafnsson, afar harðlega í tölvu-
póstum sem hann sendi frá sér
árið 2009. Egill bloggar sem kunn-
ugt er á vefmiðlinum Eyjunni.
Fyrir stuttu var tilkynnt að félagið
Vefpressan, sem Björn Ingi veit-
ir forstöðu sem útgefandi og hlut-
hafi, hefði keypt Eyjuna. Hefur Eg-
ill haldið áfram að blogga þar þrátt
fyrir að nýir eigendur séu komnir
að vefmiðlinum.
DV hefur undir höndum tvo tölvu-
pósta á milli Egils og skopmynda-
teiknarans Henrýs Þórs Baldursson-
ar frá því í mars árið 2009. Ástæða
tölvupóstsamskiptanna var sú að eft-
ir að Henrý Þór hóf að teikna Gulu
pressuna fyrir vefmiðilinn Pressuna
neitaði Egill að vísa í myndir hans á
vefsíðu sinni. Henrý setti inn færslu
á athugasemdakerfi Egils með hlekk
á teikningu sína á Pressunni. Egill
eyddi athugasemdinni umsvifalaust.
Henrý, sem í dag teiknar skopmynd-
ir fyrir DV, segir athugasemdina hafa
verið saklausa. Sendi hann Agli póst
til að leita skýringa. Fékk hann þá
staðfest að ástæða ritskoðunarinnar
væri sú að Egill vildi engar tengingar
við Pressuna. Sagðist Egill ekki skilja
í því að Henrý Þór starfaði fyrir einn
gjörspilltasta stjórnmála- og fjöl-
miðlamann landsins og vísaði þar til
Björns Inga Hrafnssonar. Egill starfar
nú sjálfur hjá Birni Inga sem launað-
ur bloggari á Eyjunni.
Neitar að tjá sig
„Síðan hvenær eru tölvupóstar mínir,
sem ég kann að hafa sent Henrý Þór
Birgissyni, einhvern tímann orðnir
eitthvert mál?“ segir Egill Helgason í
samtali við DV. Segist hann ekki vilja
tjá sig um þessi tölvupóstsamskipti
þar sem þetta sé einkamál á milli sín
og Henrýs Þórs. „Tölvupóstur sem ég
sendi einhverjum manni úti í bæ er
ekki eitthvað sem telst opinbert. Þarf
nokkuð að segja meira um það?“
bætir hann við.
Segir Björn Inga gerspilltan
„Þú ert farinn að vinna á vef með
manni sem þáði óhreint fé frá ein-
um af útrásarbankanum, það kem-
ur ekki til greina að sé linkað frá mér
yfir í þann félagsskap. Skil reyndar
ekki í þér að vera í félagi með einum
gerspilltasta stjórnmála/fjölmiðla-
manni Íslands,“ segir Egill um Björn
Inga í tölvupósti til Henrýs Þórs í
mars 2009.
Í svari til Egils segist Henrý Þór
einungis vera að reyna að sjá fyrir
fjölskyldu sinni. „Ég er bara venju-
legur fjölskyldufaðir á Akureyri að
reyna að lifa kreppuna af og gefa
krökkunum sínum að borða.“ Henrý
Þór spyr Egil líka hvort fjölmiðlar
Jóns Ásgeirs Jóhannessonar fái sömu
útreið á bloggi hans.
Segir Björn Inga hafa þegið fé
Í seinni póstinum sem Egill sendir
Henrý Þór eykst harkan í ummæl-
unum. Virðist viðhorf hans til Björns
Inga vera enn afdráttarlausara. DV
birtir ekki hluta ummælanna þar
sem þau gætu brotið í bága við meið-
yrðalöggjöf. „Björn Ingi þáði fé frá
Kaupþingi [...] Mér þykir það ekki þér
til framdráttar að vinna fyrir hann.
Og furða mig á stjórnmálamönn-
um sem skrifa á vefinn hans,“ segir
hann. Þannig sést að Egill hefur ekki
einungis lítið álit á Birni Inga heldur
líka á þeim stjórnmálamönnum sem
skrifa fyrir hann.
Egill áður efast um Pressuna
Egill hefur nokkrum sinnum tjáð
sig um rekstur vefmiðilsins Press-
unnar. Vorið 2010 spurði hann hver
fjármagnaði Pressuna. Sagði hann
útilokað að halda úti svo mörgum
starfsmönnum einungis með aug-
lýsingatekjum. „Hér á Eyjunni eru
menn að baksa við að halda úti sirka-
bát einu stöðugildi. Það er ekki mik-
ið meira en það. En vefurinn nær því
almennt nokkuð vel að vera óháður
og frjáls. Það er fyrir öllu,“ sagði hann
í bloggi sínu vorið 2010.
Ekki liggur ljóst fyrir hvort Egill
telji Eyjuna enn vera óháða eftir að
nýir eigendur tóku hana yfir.
n Egill Helgason fordæmdi skopmyndateiknara í tölvupósti fyrir að starfa á fjölmiðli í eigu
Björns Inga Hrafnssonar n Egill starfar nú á fjölmiðli Björns Inga n Einkamál, segir Egill
Egill gagnrýninn á
Caramba-málið
Í tölvupóstunum til Henrýs Þórs vísar Egill
Helgason til Caramba-málsins svokallaða,
hlutabréfakaup Björns Inga í Kaupþingi með
kúluláni frá bankanum árið 2005. Björn Ingi
fékk þá rúmlega 60 milljóna króna lán frá
Kaupþingi til að kaupa hlutabréf í bankanum
í gegnum einkahlutafélag sitt Caramba.
Björn Ingi var aðstoðarmaður Halldórs
Ásgrímssonar forsætisráðherra á þessum
tíma.
Félag Björns Inga hélt utan um hlutabréfin í
Kaupþingi í skamman tíma en seldi þau svo
með tæplega 30 milljóna króna hagnaði. Á
milli þess sem Caramba keypti og seldi hlutabréfin hækkuðu þau í verði og til varð nærri
30 milljóna króna hagnaður fyrir Björn Inga. Hann viðurkenndi sjálfur í samtali við DV
árið 2009 að veðið fyrir láninu frá Kaupþingi hefði verið í bréfunum sjálfum og að svo
hefðu verið persónulegar ábyrgðir á bak við einkahlutafélagið.
Með þessu móti græddi félag Björns Inga nærri 30 milljónir króna án þess að hafa tekið
áhættu í viðskiptunum með hlutabréfin í Kaupþingi. Um þessi viðskipti sagði Egill í
tölvupóstinum: „Björn Ingi þáði fé frá Kaupþingi [...] Mér þykir það ekki þér til framdrátt-
ar að vinna fyrir hann. Og furða mig á stjórnmálamönnum sem skrifa á vefinn hans.“
Þegar skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis var birt kom hins vegar í ljós að þessi lánavið-
skipti voru einungis lítið brot af heildarlántökum Björns Inga hjá Kaupþingi. Heildar-
skuldir hans við Kaupþing námu rúmum 560 milljónum króna þegar bankahrunið skall
á. Þessir skuldir voru aðallega tilkomnar vegna viðskipta með framvirka samninga um
hlutabréfakaup í Exista, Kaupþingi, Bakkavör og Sparisjóði Reykjavíkur og nágrennis.
Björn Ingi hætti sem ritstjóri Pressunnar þegar þessi lán komu fram í dagsljósið.
Annas Sigmundsson
blaðamaður skrifar as@dv.is
Gjörspilltur, að mati Egils Egill Helga-
son sagði árið 2009 að Björn Ingi Hrafnsson
væri einn gjörspilltasti stjórnmála- og
fjölmiðlamaður landsins.
„Þú ert farinn að
vinna á vef með
manni sem þáði óhreint
fé frá einum af útrásar-
bankanum...
EGILL TALDI ÓTÆKT AÐ
VINNA FYRIR BJÖRN INGA
Neitar að tjá sig Egill Helgason telur
að tölvupóstar á milli hans og Henrýs
Þórs Baldurssonar séu hans einkamál
sem ekki beri að fjalla um opinberlega.
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
– Afslátt eða gott verð?
Kletthálsi Rvk
Akureyri
Suðurnesjum
Húsavík
Flúðir
Vestmannaeyjar
KALT ÚTI!
Gas hitablásari 15Kw
18.900
Rafmagnshitablásari
2Kw 1 fasa
6.490
Rafmagnshitablásari
5Kw 3 fasa
11.900
EURO handklæðaofn
beinn hvítur 50x80 cm
7.290
EURO Panelofn 50x120 cm
12.390
MARGAR STÆRÐIR
KRANAR OG
HITASTILLAR FRÁ
VOTTUÐ GÆÐAVARA
Hætti við
unglingaball
Páll Óskar Hjálmtýsson tónlistarmaður
aflýsti á fimmtudag, á síðustu stundu,
unglingaballi fyrir 14 ára og eldri sem
halda átti á skemmtistaðnum Nasa.
Það gerði hann í kjölfar þess að hon-
um barst bréf frá Guðrúnu Jónsdóttur,
verkefnastjóra Heimilis og skóla.
„Þú veist sennilega ekki af því en
bæði Velferðarráð Reykjavíkurborgar,
ÍTR og barnavernd hafa ályktað gegn
þessari skemmtun,“ segir meðal ann-
ars í bréfinu. Ástæðan er sögð vera að
skemmtunin sé einkaframtak, hvorki
á vegum ÍTR né skólayfirvalda og það
sé ekki æskilegt. Einnig er tekið fram í
bréfinu að samtökin setji það fyrir sig
að skemmtunin sé haldin á vínveit-
ingastað þrátt fyrir að ekki sé veitt
áfengi.
„Ég nenni þessu ekki. Nenni ekki að
líða eins og ég sé glæpamaður,“ sagði
Páll Óskar um það af hverju hann hætti
við ballið. Aðdáendur hans fengu þó
eitthvað fyrir sinn snúð því hann bauð
öllum sem keypt höfðu miða að koma
niður á Nasa þar sem hann áritaði
plaköt og endurgreiddi miðana.
Leifur talar um
„rógburð“
Leifur Garðarsson, sem var sagt upp
störfum á dögunum sem þjálfara
Víkings, hefur sent frá sér tilkynn-
ingu vegna uppsagnarinnar. Ekki
hefur verið upplýst um ástæðu upp-
sagnarinnar en þrálátur orðrómur
hefur gengið um að Leifur hafi kom-
ið sjálfum sér til varnar á spjallsíðu
Víkings – undir öðru nafni en sínu
eigin.
„Fimmtudaginn 3. mars síðast-
liðinn ákvað stjórn knattspyrnu-
deildar Víkings að segja undirrit-
uðum upp starfi sem aðalþjálfara
úrvalsdeildarliðs félagsins. Ég harma
ákvörðun stjórnar knattspyrnudeild-
ar Víkings en mun ekki elta ólar við
gróusögur og rógburð í tengslum við
uppsögnina,“ segir Leifur í tilkynn-
ingu sem hann sendi DV.
DV greindi frá málinu á miðviku-
dag og hafði eftir heimildum að stirt
hafi orðið á milli Leifs og stjórnar
Víkings áður en Excel-málið fræga
kom upp, þar sem viðkvæmar upp-
lýsingar um leikmenn liðsins láku út.
Stjórn Víkings gaf aldrei upp ástæðu
fyrir uppsögn Leifs, en sömu heim-
ildir herma að málið um dularfullan
hulduaðdáanda Leifs hafi orsakað
brottrekstur hans í síðustu viku.