Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2011, Side 12
12 | Fréttir 11.–13. mars 2011 Helgarblað
Börn í þremur efstu bekkjum grunn-
skóla í Reykjanesbæ reykja síður en
börn annars staðar á landinu. Einn-
ig hafa hlutfallslega færri drukkið
áfengi en meðaltalið á landsvísu
segir til um. Þetta sýna niðurstöð-
ur spurningakönnunar sem lögð var
fyrir um 85 prósent nemenda í 8., 9.
og 10. bekk grunnskóla á Íslandi.
Þegar horft er nokkur ár aftur í
tímann má sjá að mikill viðsnúning-
ur hefur orðið í hegðun barna á þess-
um aldri í Reykjanesbæ. Foreldrar
margra þeirra barna sem nú eru í
efstu bekkjum grunnskóla eiga það
sameiginlegt að hafa sótt ókeypis
uppeldisnámskeið sem bærinn hef-
ur staðið fyrir í um tíu ár.
Svört skýrsla kveikjan
Að sögn Eiríks Hermannssonar,
fræðslustjóra í Reykjanesbæ, varð
svört skýrsla í uppeldismálum, sem
út kom árið 1997, til þess að bærinn
tók félagslíf unglinga föstum tökum.
Útivistartími hafi verið samræmdur
og nánu samstarfi komið á milli skól-
anna, íþróttafélaga og foreldrasam-
félagsins. „Við breyttum öllu verklagi
varðandi félagslíf unglinga,“ segir
hann.
Auk þess hafi ríflega 1.500 for-
eldrar í Reykjanesbæ ár sótt uppeld-
isnámskeið á vegum bæjarins, SOS
– Hjálp fyrir foreldra, undanfarin tíu
ár. Markmið þess sé að kenna for-
eldrum hvernig draga eigi úr óæski-
legri hegðun barna sinna og auka
samtímis jákvæða og góða hegðun.
Miklu færri reykja
Þessar aðgerðir bæjaryfirvalda virð-
ast skila sér í bættri hegðun ung-
menna. Til marks um það er að reyk-
ingar og áfengisneysla ungmenna
í bænum hefur minnkað verulega.
Fyrir 12 árum reyktu að jafnaði 30
prósent barna á þessum aldri en þá
var landsmeðaltalið 23 prósent. Ný-
leg skýrsla, Hagir og líðan grunn-
skólanema í Reykjanesbæ 2010 sem
unnin var á vegum Rannsókna &
greiningar, leiðir í ljós að hlutfall
þeirra sem reykja er aðeins einn tí-
undi af því sem það var fyrir tólf
árum. Nú reykja aðeins þrjú prósent
10. bekkinga í Reykjanesbæ á meðan
landshlutfallið er sjö prósent. Um al-
geran viðsnúning er að ræða.
Verulega hefur einnig dregið úr
reykingum 9. bekkinga undanfarinn
áratug. Þannig var hlutfall þeirra sem
reyktu 17 prósent árið 2000 en er nú
á pari við landsmeðaltal, eða 4 pró-
sent.
Svipaða þróun er að sjá á meðal
nemenda í 8. bekk en tölur yfir það
eru til frá árinu 2005. Landsmeð-
altal þeirra 8. bekkinga sem reykja
daglega er 2 prósent en samkvæmt
könnuninni reykir enginn nemandi í
áttunda bekk í Reykjanesbæ daglega.
Heildarsvarhlutfall á landsvísu
var 84 til 86 prósent en 80 prósent
í Reykjanesbæ, þar sem 157 til 178
nemendur í hverjum árgangi svör-
uðu spurningalistanum.
Færri drekka áfengi
Niðurstöðurnar sýna einnig að færri
unglingar í þremur efstu bekkjum
gunnskóla drekka áfengi nú en fyr-
ir tveimur árum. Að jafnaði hefur
hlutfallið lækkað um 8 prósent. Nú
hafa 53 prósent nemenda í 10. bekk á
landsvísu drukkið áfengi, 45 prósent
í 9. bekk og 31 prósent í 8. bekk.
Rétt eins og þegar kemur að reyk-
ingum er hlutfallið í Reykjanesbæ
lægra en á landsvísu. Þar drekka nú
46 prósent nemenda í 10. bekk, 39
prósent í 9. bekk og 28 prósent í 8.
bekk. Með öðrum orðum hafa hlut-
fallslega færri nemendur í Reykja-
nesbæ drukkið áfengi en meðaltalið
á landsvísu segir til um.
Þá er einnig athyglisvert að skoða
svör 10. bekkinga þegar spurt er
hvort þeir hafi orðið ölvaðir síðustu
30 daga. Helmingi færri nemendur
í Reykjanesbæ en á landsvísu svara
spurningunni játandi; 7 prósent í
Reykjanesbæ en 14 prósent á lands-
vísu.
Neikvæð tölfræði
Í Reykjanesbæ hefur atvinnuleysi
lengi verið mikið auk þess sem um-
fjöllun um afbrotatölfræði og vímu-
efnaneyslu hefur verið fyrirferðar-
mikil í fréttaflutningi af svæðinu á
umliðnum árum. Þannig sýnir töl-
fræði síðustu þriggja ára að flestar
líkamsárásir verða á Suðurnesjum,
miðað við íbúatölu, auk þess sem
flest fíkniefnamál koma upp. Þó ber
að hafa í huga að þau fíkniefni sem
gerð eru upptæk í Leifsstöð teljast
með í þeim útreikningi lögreglunn-
ar. Niðurstöðurnar úr könnuninni
sem hér er vitnað til gefa vísbend-
ingar um að grettistaki hafi verið
lyft í málum sem lúta að börnum og
unglingum.
Þær niðurstöður sem hér eru
raktar gefa ef til vill fyrirheit um að
í Reykjanesbæ vaxi nú úr grasi kyn-
slóð ungmenna sem hagar sér bet-
ur en fyrri kynslóðir; ungt fólk sem
neytir síður áfengis á unglingsaldri,
en rannsóknir hafa sýnt að áfeng-
isneysla virðist beintengd annarri
áhættuhegðun á borð við tóbaks-
og vímuefnaneyslu. Því seinna sem
áfengisdrykkja hefst, því betra.
Börnin séu börn lengur
Eiríkur Hermannsson segir að á
þeim tíma sem skýrslan var unnin,
fyrir aldamótin síðustu, hafi tölu-
vert verið um að skemmtanir ung-
linga hafi staðið fram yfir löglegan
útivistartíma og að íþróttaæfing-
ar hafi á stundum staðið fram eft-
ir kvöldi. „Það var ýmislegt sem
við gátum breytt með sameigin-
legu átaki,“ segir Eiríkur. Samstarfs-
verkefni Íþróttabandalags Reykja-
nesbæjar og skólanna, Reykjanes á
réttu róli, hafi verið ýtt úr vör auk
þess sem fjármagn hafi verið sett
í að efla foreldrasamstarf í byggð-
arlaginu. Áhersla hafi verið lögð
á heildstæðan skóla með það að
markmiði að börnin fengju að vera
börn lengur.
„Þegar unglingar eru eftirlits-
lausir taka þeir upp á ýmsu og við
höfum reynt að vinna gegn því,“
segir hann og bætir við að bær-
inn haldi uppi öflugu forvarnar-
starfi. Allt þetta hafi orðið til þess
að jákvæð teikn sáust fljótlega á
lofti. „Við höfum séð mjög jákvæð-
ar breytingar,“ segir hann og nefn-
ir að til viðbótar minni tóbaks- og
áfengisneyslu sé þátttaka og ár-
angur nemenda í Reykjanesbæ
í Skólahreysti afar góður. Hann
leggur hins vegar áherslu á að ár-
angurinn sé öllum sem að skóla-,
íþrótta- og tómstundastarfi koma
að þakka.
Spurður hvort sá jákvæði við-
snúningur sem sjáist í ofangreind-
um tölum birtist í betri námsár-
angri viðurkennir Eiríkur að þar eigi
þau nokkuð í land þegar horft sé til
bestu skólanna. „Við höfum verið að
bæta okkur í samræmdum prófum
en áherslan hefur fyrst og fremst
verið á líðan og velferð barnanna í
skólnunum. Við bjuggum lengi við
hátt hlutfall leiðbeinenda í kennslu
en síðustu tvö til þrjú árin hefur
okkur tekist að standa jafnfætis öðr-
um á því sviði. Við viljum gera betur
í náminu líka.“
Dregið úr óæskilegri hegðun
Spurður um þátt SOS-uppeldis-
námskeiðanna í þeim jákvæðu nið-
urstöðum sem hér eru kynntar seg-
ir Eiríkur að ýmislegt bendi til þess
að þau hjálpi mjög til. „Námskeið-
in standa öllum foreldrum til boða
sem eiga börn á aldrinum tveggja
til tólf ára. Þar er unnið markvisst
með jákvæða atferlisstjórnun og
ýmis hegðunarprógrömm,“ segir
Eiríkur sem telur boðaðan niður-
skurð í bæjarfélaginu ekki ógna til-
vist námskeiðanna – sem bjóðast
foreldrum að kostnaðarlausu, eins
og áður segir.
Gylfi Jón Gylfason, yfirsálfræð-
ingur hjá Reykjanesbæ, hefur um-
sjón með uppeldisnámskeiðunum.
Hann segir innihald námskeiðs-
ins í raun sáraeinfalt. Foreldrum sé
kennt hvernig draga megi úr óæski-
legri hegðun barna sinna auk þess
sem stuðlað sé að góðri hegðun.
Námskeiðið sé sett fram á jákvæð-
an og skemmtilegan hátt þar sem
farið sé í gegnum mistök í uppeldi
og sýnt á myndbandi hvernig rétt
sé að fara að til að stuðla að góðri
hegðun.
Gylfi segir forvarnargildi nám-
skeiðsins ótvírætt. Með þeim að-
ferðum sem kenndar séu á nám-
skeiðinu megi koma í veg fyrir að
börn þrói með sér hegðunarörðug-
leika og neikvætt viðhorf til skóla
og náms.
Markviss kennsla í uppeldi
Þó að erfitt sé að fullyrða hvað valdi
þessari miklu breytingu í hegðun
ungmenna í Reykjanesbæ, frá því
„svarta“ skýrslan kom út árið 1997,
er auðvelt að draga þá ályktun að
tíu ára markviss kennsla í uppeldi
fyrir foreldra, þeim að kostnaðar-
lausu, hafi þar nokkuð að segja.
Reykjanesbær er eina sveitarfé-
lagið sem býður foreldrum upp á
slík námskeið í uppeldi. Ekki fæst
séð að aðrir þættir í forvarnarstarfi
Reykjanesbæjar séu kerfisbund-
ið öðruvísi en í öðrum sveitarfé-
lögum. Uppskrift Reykjanesbæjar;
öflugt forvarnarstarf, náin sam-
vinna foreldra- og íþróttafélaga
með skólayfirvöldum og markviss
kennsla fyrir foreldra, sem mið-
ar að því að draga úr neikvæðri
hegðun barna. Þetta virðist í það
minnsta hafa haft mikil áhrif til
hins betra í Reykjanesbæ.
n Færri börn í 8., 9. og 10. bekkjum í Reykjanesbæ reykja og drekka en á landsvísu n Fræðslustjóri segir
lykilinn að viðsnúningnum náið samstarf foreldra, skóla og íþróttafélaga n Bærinn hefur boðið foreldrum
ókeypis uppeldisnámskeið í tíu ár n Foreldrum er markvisst kennt að stuðla að góðri hegðun barna sinna
„Námskeiðin standa
öllum foreldrum til
boða sem eiga börn á aldr-
inum tveggja til tólf ára.
Baldur Guðmundsson
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
Börnin verði lengur börn Skólayfirvöld og íþróttafé-
lögin hafa náð eftirtektarverðum árangri í bættri hegðun
ungmenna. Hér má sjá foreldra og börn skemmta sér
saman á Ljósanótt. MYND REYKJANESBÆR
Margir hafa sótt námskeiðið Gylfi Jón Gylfason yfirsálfræðingur, t.v., og Árni Sigfússon
bæjarstjóri veita 1.500. nemanda SOS-námskeiðsins viðurkenningu. MYND REYKJANESBÆR
BETRI BÖRN Í
REYKJANESBÆ