Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2011, Blaðsíða 22
22 | Nærmynd 11.–13. mars 2011 Helgarblað
SLÉTTUR OG FELLDUR Í ÓLGUSJÓ
Höskuldur H. Ólafsson hefur undan-
farna viku verið í kastljósi fjölmiðla
eftir að tekjur hans hjá Arion banka
komust í hámæli. Höskuldur tók við
stöðu bankastjóra þann 1. júní síð-
astliðinn og greiddi bankinn honum
30 milljónir króna fyrir sjö mánaða
vinnu, eða liðlega 4,3 milljónir króna
á mánuði að jafnaði. Föst mánaðar-
laun Höskuldar eru þó lægri en svo
því eins og fram hefur komið fékk
hann 10 milljóna króna eingreiðslu
fyrir að byrja í starfi bankastjóra, og
teljast þær milljónir með í ársskýrsl-
unni. Greiðslan hefur vakið undrun,
enda var Höskuldur valinn úr stórum
hópi umsækjenda og fluttist úr starfi
forstjóra greiðslukortafyrirtækisins
Valitor, sem er í meirihlutaeigu Arion
banka.
Föst laun Höskuldar eru samt
sem áður í kringum 2,9 milljónir á
mánuði. Auk þess að sinna banka-
stjórastöðunni situr Höskuldur með-
al annars í aðalstjórn Viðskiptaráðs
til ársins 2012, og í fulltrúaráði Sam-
taka atvinnulífsins, en ráðið fer með
æðsta vald í málefnum samtakanna
milli aðalfunda. Höskuldur hefur tví-
vegis gegnt lykilstöðum hjá fyrirtækj-
um sem verið hafa til rannsóknar
vegna brota á samkeppnislögum, og
samþykkti Valitor undir hans stjórn
að greiða 385 milljónir í stjórnvalds-
sektir.
Rekur fyrirtæki ekki í fjölmiðl-
um
Elín Jónsdóttir, fulltrúi Bankasýslu
ríkisins í stjórn bankans, sagðist í
samtali við Kastljós skilja röksemd-
ir stjórnar bankans fyrir launahækk-
uninni, hún væri til þess ætluð að fá
hæfasta fólkið til starfa.
Sex æðstu stjórnendur Arion
banka fengu 156 milljónir króna í
laun á síðasta ári. Að jafnaði hafði því
hver og einn um 2,2 milljónir króna í
mánðarlaun. Þá fengu Birna Einars-
dóttir bankastjóri Íslandsbanka og
sjö framkvæmdastjórar bankans 178
milljónir í fyrra en það eru mjög svip-
uð laun og jafnaðarlaun yfirmanna í
Arion banka. Um er að ræða 17 pró-
senta hækkun að meðaltali á hvert
stöðugildi hjá Íslandsbanka, og 19
prósenta hækkun hjá Arion banka, á
milli ára.
Launahækkanir yfirmanna bank-
anna eru umdeildar og sagði Jó-
hanna Sigurðardóttir forsætisráð-
herra á Facebook-síðu sinni að
engin siðleg réttlæting væri á þeim
ofurlaunum sem æðstu stjórnendur
Arion banka og Íslandsbanka hefðu
fengið á liðnu ári.
17 ár hjá Eimskip
Þrátt fyrir að hafa sinnt fjölmörg-
um stjórnunarstörfum, meðal ann-
ars hjá Eimskipafélaginu og VISA
(Vali tor), hefur ekki farið mikið fyr-
ir Hösk uldi í þjóðmálaumræðunni.
„Hann er einn af þeim sem rekur
ekki sín fyrirtæki í fjölmiðlum,“ segir
Þórður Sverrisson, forstjóri Nýherja
í samtali við DV. Þórður er fyrrver-
andi framkvæmdastjóri flutninga-
sviðs Eimskips og samstarfsmaður
Hösk uldar til margra ára. Aðrir fyrr-
verandi samstarfsfélagar hans og
vinir, sem DV ræddi við, bera honum
góða söguna og segja hann góðan
stjórnanda. Meðal starfsfélaga hans
hjá Eimskip voru auk Þórðar, þeir Er-
lendur Hjaltason hjá Exista, Þórður
Magnússon, Þorkell Sigurlaugsson
og fleiri.
Höskuldur er fæddur árið 1959
í Mosfellssveit og er sonur Ólafs
Rafns Haraldssonar framkvæmda-
stjóra og Ásgerðar Höskuldsdóttur
innanhússarkitekts. Eiginkona Hös-
kuldar er Sigríður Ólafsdóttir, dótt-
ir Ólafs Skúlasonar biskups og Ebbu
Sigurðar dóttur. Sigríður fæddist í
Bandaríkjunum árið 1958, en árið
1955 var faðir hennar vígður til þjón-
ustu við íslenska söfnuði í Mountain
í Norður-Dakóta í Bandaríkjunum.
Höskuldur og Sigríður giftu sig árið
1980 og eiga þau þrjú börn saman.
Höskuldur útskrifaðist með diplómu
í Shipping and Commerce frá Lond-
on School of Foreign Trade árið
1980, og lauk Cand. oecon-gráðu
frá Háskóla Íslands árið 1987, en sú
gráða er ígildi meistaragráðu í við-
skiptafræði. Sigríður settist á skóla-
bekk nokkru seinna en hún lauk BA-
gráðu í frönsku frá Háskóla Íslands
árið 1993 og Kennslu- og uppeldis-
fræði ári seinna.
Áður en Höskuldur hóf störf hjá
Eimskipafélagi Íslands var hann
sölumaður hjá Gráfeldi hf., og síð-
ar fulltrúi hjá Þýsk-íslenska hf. Árið
1987 hófst langur starfsferill hans
hjá Eimskip sem entist allt til ársins
2005 og starfaði hann meðal annars
sem framkvæmdastjóri rekstrarsviðs
Eimskips þegar félagið komst í hend-
ur Björgólfs Guðmundssonar eig-
anda Landsbankans.
Höskuldur gegndi fjölmörgum
stöðum innan veggja fyrirtækins,
meðal annars sem framkvæmda-
stjóri félaganna Eimskip Transport
BV og Gelders Spetra Shipping BV,
dótturfélaga Eimskips í Hollandi. „Í
Hollandi fór mjög gott orð af honum,
en hann stóð sig mjög vel í starfi sem
forstöðumaður þar ytra, og gekk al-
mennt mjög vel,“ segir einn af hans
fyrrverandi samstarfsfélögum í sam-
tali við blaðið. Eftir að Eimskip komst
í hendur Björgólfs Guðmundssonar,
eiganda Landsbankans, missti Hös-
k uldur vinnuna eins og fleiri. Lít-
ið bólaði á honum næsta árið á eftir
eða þar til hann var ráðinn til starfa
hjá Valitor.
Tengsl við Exista
Nánir samstarfsmenn Höskuld-
ar á þeim tíma sem hann starf-
aði fyrir Eimskip voru meðal ann-
arra Erlendur Hjaltason, fyrrverandi
framkvæmdarstjóri félagsins, og
Guðmundur Þorbjörnsson, fyrr-
verandi framkvæmdastjóri Eim-
skip Logistics, en Guðmundur situr
meðal annars í stjórn Valitor. Þeg-
ar Höskuldur var ráðinn til starfa
hjá Valitor veltu sumir vöngum yfir
því hvort að persónuleg vinatengsl
hans og Erlends Hjaltasonar, þá for-
stjóra Exista, hefðu haft einhver áhrif
þá ráðningu. Tengsl Höskuldar við
Erlend, Existu og Kaupþingsmenn
héldu lífi í grunsemdum um að ein-
hverjir hefðu beitt áhrifum þar á bæ
þegar Höskuldur var síðar ráðinn
bankastjóri Arion banka. Þetta kann
að þykja langsótt vegna stöðu Exista
og falls Kaupþings. Kunningja- og
áhrifatengslin eru engu að síður fyrir
hendi. Einn af viðmælendum DV tel-
ur víst að Höskuldur sé framsóknar-
maður og að ákveðin tengsl séu milli
hans og S-hópsins svonefnda sem
keypti Búnaðarbankann og renndi
honum inn í Kaupþing árið 2003.
Stjórn Arion banka telur ekkert
af þessu hafa áhrif á störf Höskuld-
ar í stöðu bankastjóra. Eins og fram
kom á Eyjunni sagði Guðrún John-
sen, varaformaður stjórnar Arion
banka, að stjórnin vissi mætavel af
vinatengslum Höskuldar og Erlends
þegar hann var ráðinn. „Stjórnin
fór gaumgæfilega yfir feril og bak-
grunn umsækjenda allra sem skýrir
þann tíma sem þetta tók. Við mátum
Hösk uld besta kostinn og stöndum
við það,“ sagði Guðrún. Þá sagði hún
stjórnina einnig vita um aðkomu
hans að fyrirtækjunum Eimskip og
Valitor, en bæði fyrirtækin urðu upp-
vís að markaðsmisnotkun á meðan
hann gegndi lykilstöðu innan þeirra.
Kom ekki að samkeppnismálum
Eimskip var árið 2007 gert að greiða
310 milljóna króna stjórnvaldssekt
vegna brota gegn samkeppnislög-
um í þá tíð sem Höskuldur var fram-
kvæmdastjóri rekstrarsviðs. Pressan
vakti athygli á þessu þegar Höskuldur
var ráðinn í starf bankastjóra Arion
banka og í kjölfarið sendi Höskuld-
ur frá sér tilkynningu þar sem hann
sagðist ekki hafa verið í þeirri deild
Eimskips sem greiða þurfti sektir fyr-
ir samkeppnislagabrot. „Þegar mál-
ið kom upp hafði ég ekki aðkomu
að málum sem flokkast undir sam-
keppnismál.“
Í niðurstöðu Samkeppniseftirlits-
ins segir meðal annars að forsvars-
menn Eimskips hafi á fyrri hluta árs
2002 gripið til umfangsmikilla að-
gerða sem höfðu það fyrst og fremst
að markmiði að útiloka einn helsta
keppinaut félagsins í áætlunarsigl-
ingum til og frá Íslandi frá mark-
aðnum. Samkeppniseftirlitinu þótti
sannað að Eimskip hefði reynt að
undirbjóða viðskiptavini keppi-
nauta sinna á markaðnum. Þá sagði
einnig: „Af gögnum má einnig ráða
að aðgerðirnar hafi að mestu ver-
ið skipulagðar af framkvæmdastjóra
sölu- og markaðssviðs Eimskips í
nánu samstarfi við forstjóra og aðra
framkvæmdastjóra félagsins. For-
stöðumenn sérsviða á sölu- og mark-
aðssviði ásamt sölufulltrúum voru
síðan virkjaðir til þátttöku með því
að kortleggja markaðinn og snúa sér
svo til viðskiptavina Samskipa með
áðurnefndum tilboðum.“
Víðtækt samráð
Í stjórnartíð Höskuldar hjá Valitor
varð fyrirtækið uppvíst að „langvar-
andi og víðtæku samráði“ eins og
fram kom á vefsíðu Samkeppniseftir-
litsins. Valitor viðurkenndi að hafa
ásamt öðrum kreditkortafyrirtækj-
um misnotað markaðsráðandi stöðu
sína með aðgerðum sem beindust
að nýjum keppinauti, PBS/Korta-
þjónustunni. Í sáttum sem gerðar
voru við Samkeppniseftirlitið viður-
kenndu Valitor og Kreditkort að hafa
haft með sér langvarandi og víðtækt
ólögmætt samráð. Féllust fyrirtækin
á að greiða stjórnvaldssektir vegna
þessa og breyta starfsemi sinni og
háttsemi á markaði. Sekt Valitor nam
385 milljónum króna.
Höskuldur, sem var forstjóri Vali-
tor á þessum tíma, sagði að rann-
sóknin hefði leitt í ljós að hvorki sölu-
aðilar né korthafar hefðu borið skaða
af þessum brotum. Þá sagði hann
meðal annars eftirfarandi um mál-
n Gamlir vinnufélagar hjá Eimskip
bera Höskuldi Ólafssyni, banka-
stjóra Arion banka, vel söguna n Úr
flutningaþjónustu í bankastarfsemi
n Hefur siglt ólgusjó í fyrirtækjum
sem gerst hafa brotleg við sam-
keppnislög n Kaupþingsmenn réðu
hann til Valitor þegar hann missti
vinnu hjá Eimskipafélagi Íslands
n Sagður eiga góð tengsl við Exista
og fyrrverandi eigendur Kaupþings
Jón Bjarki Magnússon
blaðamaður skrifar jonbjarki@dv.is
Jóhann Hauksson
blaðamaður skrifar johann@dv.is
Ógagnsæi Bankarnir þykja komast upp með sama
ógagnsæi og tíðkaðist fyrir bankahrunið. Höfuðstöðvar
Arion banka við Borgartún í Reykjavík.