Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2011, Síða 25
DV hefur undanfarna viku fjallað
ítarlega um glæpaklíkur á Íslandi
og fjóra hópa sem lögreglan óttast.
Fram hefur komið að lögreglan tel-
ur að uppgjör sé í nánd í undirheim-
um á Íslandi og að stofnun MC Black
Pistons sé bein ögrun við MC Iceland
– sem nýverið gekk formlega í mótor-
hjólasamtökin Hells Angels.
„Stoppa níðingsskap“
Ríkharð segir í samtali við DV að
klúbburinn hafi alls ekki verið stofn-
aður til höfuðs Hells Angels. „Við Jón
Trausti [Lúthersson, innsk. blm.]
erum bestu vinir og frændur. Þetta er
bara eitthvað sem við erum að gera
saman. Hitt [Hells Angels, innsk.
blm.] var ekki heillandi fyrir mig að
vera í – því þar gengur fjölskyldan
ekki fyrir,“ segir hann.
Spurður um starfsemi Black Pist-
ons segir hann að meðlimir hans
hjálpi hver öðrum. „Ef einhver okk-
ar lendir í vandræðum; fjárhagslega
eða hvað sem er, þá erum við til stað-
ar fyrir hann.“ Spurður hvort ástæð-
an fyrir því að hann leiti í svona fé-
lagsskap sé að hann sé flæktur í
eitthvað misjafnt segir hann að svo
sé alls ekki. „Ég veit ekki hvernig ég
á að orða þetta en ef eitthvað kem-
ur upp á, þá erum við tilbúnir,“ seg-
ir hann. Spurður hvort þeir séu „til-
búnir“ að beita ofbeldi segir hann að
þeir einblíni ekkert á það. „Við bara
stöndum saman, sama hvað það er.“
Hann tekur sérstaklega fram að
alls ekki sé ástæða til að líta MC Black
Pistons hornauga. „Mikið af því sem
kemur inn á borð til okkar er eitthvað
sem lögreglan hefur vísað frá eða
treystir sér ekki í; níðingsskapur sem
þarf að stoppa og svoleiðis – fólk leit-
ar til okkar,“ segir Ríkharð en á hon-
um má skilja að meðlimir Black Pist-
ons vinni í vissum skilningi góðverk.
„Alltaf eitthvað að bralla“
Spurður um starfsemi félagsins, fyr-
ir utan það að taka við málum sem
lögreglan hafi vísað frá sér, segir Rík-
harð að meðlimir hópsins hafi áhuga
á mótorhjólum en þeir séu fyrst og
fremst bestu vinir. „Við erum allt-
af saman og erum alltaf eitthvað að
bralla,“ segir hann.
Stofnun Black Pistons á Íslandi
má rekja til þess að Jón Trausti Lúth-
ersson, sem hætti nokkuð óvænt í
Fáfni forvera Hells Angels MC Ice-
land vegna deilna um fjármál, flutt-
ist til Noregs og stofnaði MC Black
Pistons í Haugasundi. Jón Trausti býr
enn í Noregi og stofnaði, í félagi við
Ríkharð, MC Black Pistons á Íslandi.
„Við Jón Trausti stofnuðum þetta
þegar ég sat enn þá inni. Ég er búinn
að vera í Black Pistons í Noregi í um
eitt ár á pappírunum en við fluttum
þetta til Íslands fyrir nokkrum vik-
um,“ segir Ríkharð en þá hann sat af
sér dóm í fangelsi fyrir íkveikju.
Ekki í útistöðum við neinn
Ríkharð er ekki sammála því mati lög-
reglunnar að meðlimir hópsins séu
hættulegir. „Við bara stöndum fast
á okkar. Innan lögreglunnar eru al-
veg jafn miklir glæpamenn og í okk-
ar hópi,“ segir hann. Spurður hvernig
hann rökstyðji það segir hann að inn-
an lögreglunnar séu misjafnir menn.
„Það er enginn heilagur,“ segir hann
en rökstyður það ekki frekar.
Eins og fram kom í síðasta helgar-
blaði DV óttast lögreglan mjög að
í brýnu kunni að slá á milli glæpa-
hópa innan skamms. Ríkharð seg-
ir að meðlimir Black Pistons muni
ekki standa fyrir því. „Okkar regla er
sú að við sláum aldrei fyrsta höggið,“
segir hann og bætir við: „En við slá-
um pottþétt það síðasta.“ Hann við-
urkennir að í því felist að þeir beiti
ofbeldi ef efni standi til. „Er nokkuð
hægt að mótmæla því? Ef það er ráð-
ist á okkur, þá svörum við fyrir okkur,“
segir hann.
Í gögnum frá lögreglunni kem-
ur fram að aukin harka sé að færast í
undirheima Reykjavíkur. Ríkharð tek-
ur undir það og segir það hafa gerst
með tilkomu glæpahóps sem saman-
standi af Pólverjum og Lit háum. Þar
séu hættulegir menn en engir sem
meðlimir Black Pistons eigi í útistöð-
um við. „Við eigum ekki í útistöðum
við neinn núna,“ segir hann.
Leita að húsnæði
Ríkharð segir að hópurinn leiti nú að
hentugu húsnæði undir starfsemina.
Þeir hafi augastað á húsi í Mosfells-
bæ en séu einnig opnir fyrir öðrum
kostum. „Við ætlum ekki að stökkva
á það fyrsta sem býðst en við þurf-
um að ákveða á hvaða svæði við vilj-
um vera – það er ekki vel séð að við
séum í Hafnarfirði,“ segir hann en
þar er Hells Angels MC Iceland til
húsa. „Það lítur ekki vel út úti að vera
nálægt þeim. Tæknilega eigum við að
sniðganga þá en þetta er náttúrulega
Ísland – og Ísland er lítið,“ segir hann.
Hann segir aðspurður að meðlim-
ir hópsins muni skipta kostnaðinum
við húsnæðið á milli sín – bróðurlega
að sjálfsögðu. Hann vill þó ekki gefa
upp hverjir aðrir séu meðlimir Black
Pistons – margir þeirra kæri sig ekki
um að nöfn þeirra komi fram.
Ekki bara glæpasamtök
Eins og fram kemur vill Ríkharð ekki
meina að Black Pistons séu glæpa-
samtök – þótt hópurinn beiti ofbeldi
þegar að þeim sé veist. Spurður hvers
vegna þeir þurfi að stofna bræðralag
sem hafi beina tengingu við erlend
glæpasamtök segir hann að Outlaws,
móðursamtök Black Pistons, sé eins
og sniðið fyrir þá. „Okkur finnst mjög
gaman að ferðast til erlendra bræðra,
skoða aðstöðu þeirra og skemmta
okkur með þeim. Þetta eru ekkert
bara glæpasamtök – í öllum hópum
finnast glæpamenn,“ segir hann og
telur að lögreglan, sem flokki Outlaws
sem glæpasamtök, ætti að líta í eig-
in barm. „Ég hef mínar sögur af lög-
reglunni. Þeir eru ekkert skárri sjálfir,“
segir hann.
Spurður hvort rýmri rannsóknar-
heimildir til handa lögreglunni breyti
einhverju fyrir starfsemi Black Pistons
segir hann að svo sé ekki. Hann segir
efnislega að ekkert eftirlit sé með lög-
reglunni á Íslandi og nú sé einungis
verið að festa í lög það sem hún hafi
alltaf stundað – lögreglan hafi allt-
af getað „komist inn“ hafi hún viljað.
„Nú er þetta bara komið í lögin,“ segir
hann að lokum.
Fréttir | 25Helgarblað 11.–13. mars 2011
„SLÁUM
POTTÞÉTT
SÍÐASTA HÖGGIГ
n Foringi MC Black Pistons segir hópinn bræðralag sem passi upp á
félaga sína n Hópurinn taki á málum sem lögreglan treysti sér ekki í
n Ríkharð segir meðlimi Black Pistons beita ofbeldi ef á þá sé ráðist
„Ef það er
ráðist á
okkur, þá svörum
við fyrir okkur.
Baldur Guðmundsson
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
Stuðningssamtök Outlaws
Black Pistons eru stuðningssamtök Outlaws, eða The McCook Outlaws Motorcycle Club,
sem stofnuð voru í Bandaríkjunum, nærri Chicago, árið 1935. Vélhjólaklúbburinn hefur
fært verulega út kvíarnar undanfarin ár og áratugi og er með starfsemi víða um heim,
meðal annars í Asíu og víða um Evrópu. Lögreglan óttast, samkvæmt gögnum sem DV
hefur undir höndum, að innan hópsins sé að finna einstaklinga sem hiki ekki við að beita
lögreglu ofbeldi ef þörf krefur. Lögreglu kunni beinlínis að stafa ógn af hópnum, sem og
raunar öðrum glæpahópum. Um 10 meðlimir séu í Black Pistons sem gagngert hafi verið
stofnuð til höfuðs Hells Angels MC Iceland.
Segir Outlaws henta
sér Ríkharð Júlíus
Ríkharðsson, foringi MC
Black Pistons, segir að
Hells Angels MC Iceland sé
ekki fyrir sig því þar gangi
fjölskyldan ekki fyrir.
MYND SIGTRYGGUR ARI
Umfjöllun í helgarblaði þann
4. mars síðastliðinn.