Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2011, Qupperneq 48
48 | Lífsstíll 11.–13. mars 2011 Helgarblað
Mörg hundruð manns velja bestu myndirnar:
Bestu kvikmyndir sögunnar
Bandaríski gagnagrunnurinn Internet
Movie Database, oft skammstafað IMDb,
gerir notendum sínum kleift að gefa kvik-
myndum – nær öllum kvikmyndum sög-
unnar – einkunn frá 1 til 10. Fleiri hundruð
manns hafa gefið kvikmyndum í gagna-
grunninum einkunn og hefur síðan birt
lista yfir 250 bestu kvikmyndir sögunnar. Í
fyrsta sæti á listanum er myndin The Shaw-
shank Redemption frá árinu 1994. 570 þús-
und manns hafa gefið myndinni einkunn
en meðaleinkunn hennar er 9,2. Í öðru sæti
er kvikmyndin The Godfather, eða Guðfað-
irinn, sem fær líka meðaleinkunnina 9,2 en
heldur færri hafa gefið myndinni einkunn,
um 444 þúsund manns, en Shawshank Red-
emption. Annar hluti Guðföðurins er svo í
þriðja sæti á listanum með meðaleinkunn-
ina 9 eftir 269 þúsund einkunnagjafir.
Aðrar myndir á topplistanum eru með-
al annarra Pulp Ficton eftir Quentin Tar-
antino, Schindler‘s List eftir Steven Spiel-
berg og Inception eftir Christoper Nolan,
en það er nýjasta myndin á listanum. Flest-
ar myndirnar í efstu tíu sætunum eru gerð-
ar fyrir árið 2000 en aðeins Inception og
Batman-myndin The Dark Knight komast
á listann af myndum sem gerðar voru eftir
aldamótin síðustu.
Gagnagrunnur IMDb hefur verið starf-
ræktur síðan 1990 en honum var fyrst kom-
ið á internetið nokkrum árum síðar und-
ir nafninu Internet Movie Database. Síðan
þá hefur vefurinn stækkað og dafnað og
orðið að einni helstu upplýsingaveitu um
kvikmyndir í heiminum. Gagnagrunnur-
inn byrjaði sem áhugamál nokkurra kvik-
myndaaðdáenda en hefur síðan orðið að
umfangsmiklu fyrirtæki sem í dag er rekið
af Amazon.
K
arlmönnum á öllum aldri
býðst nú sérstök skoðun
hjá Heilsuvernd í tilefni af
Mottumars. Þar geta menn
pantað sér tíma og komið í yfir-
gripsmikla heilsufarsskoðun og við-
tal þar sem meðal annars er skimað
fyrir ristilkrabba séu menn komnir á
vissan aldur.
Teitur Guðmundsson, læknir og
framkvæmdastjóri Heilsuverndar,
segir þetta þarfaþing því það sé al-
mennt ekkert markvisst eftirlit með
heilsufari karlmanna meðan konur
eru hvattar sérstaklega til að koma
í kynbundna krabbameinsskoð-
un. Þeim hjá Heilsuvernd fannst
því kjörið að nýta Mottumars til að
vekja sérstaka athygli á þessu.
„Það er engin sem hugsar um
okkur strákana. Við erum ekki
hvattir í reglubundna skoðun eins
og konur,“ segir Teitur og bætir við
að ennfremur skipti máli að kanna
fleiri þætti heilsufarsins, en Heilsu-
vernd hefur nýlega komið á fót sam-
starfi við meltingardeild Landspít-
ala í Hafnarfirði um skimun fyrir
ristilkrabba og þá eigi það bæði við
um konur og karla sem komin eru
yfir fimmtugt að reglubundin skoð-
un geti skipt öllu máli.
Möguleikar á lækningu góðir
„Það er alþjóðlega viðurkennt að
skimun geti haft úrslitaáhrif á þrjár
gerðir krabbameina; brjósta-, leg-
háls- og ristilkrabba. Árlega greinast
um 150 Íslendingar með ristilkrabba
og hlutföllin eru nokkuð jöfn á milli
karla og kvenna. Af þessum 150 sem
greinast deyr um þriðjungur úr sjúk-
dómnum og sú tala fer hækkandi.
Engu að síður ætti að vera auðvelt
að koma í veg fyrir þetta því það er
ekki einasta einfalt að koma auga
á merki um sjúkdóminn heldur er
lækningin góð – sem er ekki hægt að
segja um allar gerðir krabbameina,“
segir Teitur en læknar hafa um ára-
bil barist fyrir því að komið verði á
fót skimun fyrir ristilkrabbameini.
„Það kostar okkur mörg hundr-
uð milljónir á ári að meðhöndla
fólk sem hefur greinst með ristil-
krabbamein en það er auðvelt
lækna meinið ef það finnst á réttum
tíma. Reglubundin skimun myndi
spara þjóðarbúinu verulega háar
upphæðir á hverju ári,“ segir Teitur
en nú þegar hafa flestar samanburð-
arþjóðir okkar tekið upp skimun á
ristilkrabbameini, til dæmis Bret-
land, Þýskaland, Svíþjóð, Kanada og
Danmörk.
Mikill munur á heilsufari
Í skoðun tengdri Mottumars eru
ýmsir áhættuþættir kannaðir, með-
al annars líkamsþyngdarstuðull
(BMI), fituprósenta, blóðþrýstingur
og púls og mittis- og mjaðmahlut-
fall. Einnig eru gerðar bæði blóð-
og þvagrannsóknir með tilliti til
áhættuþátta og aldurs.
„Í skoðun er forvitnast um heilsu
viðkomandi og kannað hvaða
áhættuþættir eru fyrir mögulegum
meinum, blóðprufa og þvagrann-
sókn. Ekki er mælt blöðruháls ensím
hjá þeim sem eru undir fjörtíu og
fimm ára aldri en þeir sem eru eldri
fara í gegnum slíka skoðun. Við
þreifum jafnframt á eistum hjá þeim
yngri og skimum fyrir ristilkrabba-
meini hjá mönnum sem eru komn-
ir yfir fimmtugt. Það er mikill mun-
ur á heilsufari tuttugu og fimm ára
manns eða manns sem er komin á
sextugsaldur.“
Alþjóðleg vitundarvakning um
ristilkrabbamein í mars
„Allir sem eru komnir yfir fimm-
tugt, bæði karlar og konur, ættu að
láta kanna merki um einkenni ristil-
krabbameins og það er gott að leggja
áherslu á þetta nú í mars því þessi
mánuður er jafnframt alþjóðlegur
mánuður ristilkrabbameins. Ástæð-
an fyrir alþjóðlegum degi af þessu
tagi er líklega sú að ristilkrabbi er
þriðja algengasta krabbameinið hjá
báðum kynjum og fleiri sem deyja
úr því árlega en til dæmis brjósta-
krabba sem þó er markvisst skimað
fyrir,” segir Teitur að lokum.
FÁ SÉRSTAKA
LÆKNISSKOÐUN
Besta myndin
Skjáskot úr myndinni The
Shaw shank Redemption.
Heilsufarið kannað
Teitur Guðmundsson
framkvæmdastjóri Heilsu-
verndar býður karlmönnum
á öllum aldri sérstaka
skoðun hjá Heilsuvernd í
tilefni af Mottumars. Þar
geta menn pantað sér tíma
og komið í yfirgripsmikla
heilsufarsskoðun og viðtal
þar sem meðal annars er
skimað fyrir ristilkrabba
séu menn komnir á vissan
aldur. MYND SIGTRYGGUR ARI
Auðvelt að koma í veg fyrir útbreiðslu ristilkrabbameins