Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2011, Síða 62

Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2011, Síða 62
62 | Fólkið 11.–13. mars 2011 Helgarblað K vikmynd Gauks Úlfarssonar, Gnarr, hefur verið boðið að taka þátt á kvikmyndahátíð- inni Tribeca Film Festival. Hátíðin var sett á fót árið 2002 af eng- um öðrum en stórleikaranum Robert De Niro, kvikmyndaframleiðandan- um Jane Rosenthal og eiginmanni hennar, Craig Hatkoff. Gaukur og Jón Gnarr, aðalpersóna myndarinnar, munu ferðast til New York í vor til að vera viðstaddir sýningu myndarinn- ar á hátíðinni. Þeir munu taka þátt í skipulagðri dagskrá hátíðarinnar, sem felur meðal annars í sér kvöld- verð með Robert De Niro og öðrum þátttakendum í hátíðinni. Kvikmyndahátíðin stofnuð í kjölfar hryðjuverkaárásarinnar á Tvíburaturnana í New York árið 2001. Hugmyndin á bak við hátíðina var að færa líf í TriBeCa- hverfið í New York-borg þar sem Tvíburaturnarnir stóðu áður. Hátíðinni er einnig ætlað að sýna New York sem miðstöð kvikmynda og að sýna fjölbreytileikann í alþjóðlegri kvikmyndagerð. Meðal þeirra sem taka þátt á hátíðinni auk Gauks og Jóns er Cameron Crowe sem mun frumsýna sína nýjustu mynd, The Union. Frumsýningin á mynd Camerons, sem er hvað þekktastur fyrir myndirnar Almost Famous frá árinu 2000 og Jerry Maguire frá árinu 1996, verður partur af opnunarhátíð hátíðarinnar. Elton John mun svo leika fyrir gesti opnunarinnar að lokinni sýningu myndarinnar en hún fjallar um samstarf Eltons og T-Bone Burnett þegar þeir unnu að plötunni The Union. Eins og fram hefur komið er Robert De Niro einn af forsvars- mönnum hátíðarinnar en hann er sjálfur frá New York-borg. Hann ætti að vera flestum Íslendingum kunn- ugur enda hefur hann leikið í fjöl- mörgum þekktum myndum á borð við Godfather og þar að auki unnið óskarinn tvívegis. Jane Rosenthal er einn af helstu kvikmyndaframleið- endunum í Hollywood en hún hefur meðal annars framleitt allar mynd- irnar um Focker-fjölskylduna. adalsteinn@dv.is n Kvikmyndin Gnarr verður á Tribeca-kvikmyndahátíðinni n Robert De Niro einn þriggja skipuleggjenda hátíðarinnar n Kvöldverður með þátttakendum og skipuleggjendum Borða kvöldverð með Robert De Niro Á kvikmyndahátíð í New York Gaukur Úlfarsson fer með kvikmyndina Gnarr á Tribeca- kvikmyndahátíðina. MYND SIGTRYGGUR ARI Stórstjörnuhátíð Robert De Niro er einn þriggja skipuleggjenda hátíðarinnar. Ein vinsælasta bloggsíða landsins, Pjattrófurnar, sem undanfarin ár hafa verið á Eyjunni verður héðan í frá á DV.is. Að síðunni standa sjö konur sem að eigin sögn hafa jákvæðnina að leiðarljósi og það er Margrét Gúst- avsdóttir sem hefur umsjón með síð- unni. Pjattrófurnar byrjuðu að blogga að einhverju ráði fyrir rúmlega tveim- ur árum og hafa vinsældir þessara kvenna, sem vilja auka fegurðina í heiminum með umfjöllun um mynd- list, góðar bækur, falleg föt, snyrti- vörur, fallega hluti og allt þar á milli, aldrei verið meiri. Til merkis um þess- ar vinsældir eiga Pjattrófurnar tæp- lega 18 þúsund stuðningsmenn á Facebook sem verður að teljast býsna magnað af bloggsíðu. Margrét seg- ir hugmyndina hafa kviknað í spjalli vinkvenna. „Ég, Ágústa Eva Erlends- dóttir og förðunarfræðingurinn og handboltakappinn Hafdís Hinriks- dóttir sátum í góðu spjalli á veitinga- staðnum Á næstu grösum og vorum að ræða saman um alls kyns pjatt. Við ræddum um hversu skemmtilegt okkur finnst að ræða þessa hluti og að það vantaði einhvern vettvang þar sem þessari þörf kvenna er fullnægt. Ágústa Eva var reyndar upptekin við að mótmæla þegar síðan var stofnuð og kom því lítið að vinnu við skrif.“ Margrét og vinkonur munu halda uppteknum hætti á DV.is en auk þess eru þær með sjö fasta bloggara og reglulega detta gestapennar inn til að fjalla um sérstaka málaflokka. „Þó að talað sé til kvenna á síðunni geta karlar vel skoðað hana líka,“ segir Margrét. Pjattrófurnar eru feykivinsælar: Pjattrófurnar vilja fegra heiminn Pjattrófurnar eru mættar á DV.is Margrét, Díana, Vala, Guðný og Stella, sitja fyrir í fallegum flíkum eftir íslenska hönnuði. Tekinn fyrir hraðakstur Söngvarinn Friðrik Dór Jónsson var stopp- aður fyrir of hraðan akstur um síðastliðna helgi á milli Reykjavíkur og Akureyrar. Fram kemur í nýjasta hefti Monitors að Friðrik hafi lokið tónleikum sínum á Samfés klukkan 20.00 og hafi átt að stíga á svið á Akureyri aðeins þremur tímum síðar. Ók hann því ásamt umboðsmanni sínum hraðar en leyfilegt er til að verða ekki of seinn. „Ég var stoppaður rétt áður en ég kom að Blönduósi og var einhverjum 25 kílómetrum yfir hámarkshraða,“ segir Friðrik í Monitor. Meiri Gillz Stöð 2 stefnir á að gera fleiri þætti eftir bókum Egils Gillz Einarssonar samkvæmt heimildum DV en þættirnir um Mannasiði Gillz þóttust lukkast frábærlega þegar þeir voru sýndir fyrr á þessu ári. Viðtökurnar voru það góðar að nú á að ráðast í gerð Lífsleikni Gillz en þá bók gaf vöðvafjallið og rithöfundurinn út fyrir síðustu jól. Eins og bókin um mannasiðina seldist hún eins og heitar lummur. Lífsleikni Gillz er þriðja bókin í ritröðinni Íslenzk öndvegisrit Gillz en í henni kennir Gillz karlpeningnum meðal annars hvernig á að haga sér á fótboltaleik og „loka dömu“ í Bláa lóninu. Reiknað er með að framleiðsla hefjist næsta haust.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.