Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.2011, Blaðsíða 4
4 | Fréttir 22.–24. júlí 2011 Helgarblað
Bæjarlind 6, Kópavogi, sími 517 6067. Opið mán. - fös. 10 -18, laug. 11-16.
Niðurföll
og rennur í
baðherbergi
PROLINE NOVA 60 cm
21.900,-
COMPACT 30cm
8.900,-
AQUA 35cm
12.900,-
EVIDRAIN
Mikið úrval
– margar stærðir
Dæmdur í þriggja ára fangelsi:
Hrottaleg
nauðgun
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi
22 ára karlmann, Guðmund Helga
Sigurðsson, í þriggja ára fangelsi á
fimmtudag fyrir nauðgun. Þá var
honum gert að greiða stúlkunni
1,5 milljónir króna í bætur og lög-
fræðikostnað. Maðurinn var einnig
sakfelldur fyrir umferðarlagabrot
en var hins vegar sýknaður af því að
hafa þvingað 17 ára gamla stúlku til
áframhaldandi kynmaka.
Guðmundur Helgi var handtek-
inn í apríl vegna málsins og hefur
sætt gæsluvarðhaldi síðan þá. Sam-
kvæmt dómi héraðsdóms veittist
hann að konunni með ofbeldi og
hafði við hana samræði gegn vilja
hennar, tók hana hálstaki og mis-
þyrmdi henni. Þá hafði hann einnig
neytt annan mann til nauðgunar-
innar, ógnað honum og hótað of-
beldi tæki hann ekki þátt.
Í mati sálfræðings kemur fram að
konan þjáist af áfallastreituröskun
eftir nauðgunina. Hún hafi upplifað
mikla ógn, ofsaótta og bjargarleysi
þegar nauðgunin átti sér stað.
Guðmundur Helgi var þar að
auki ákærður fyrir að hafa þving-
að 17 ára stúlku til áframhaldandi
kynmaka. Hann var kærður fyrir að
hafa beitt hana ofbeldi og ólögmætri
nauðung sem og hótun um ofbeldi.
Guðmundur Helgi var þó sýknaður
af þeim ákærulið, þar sem ekki þótti
sannað að ofbeldið hafi verið liður í
því að brjóta niður mótstöðu stúlk-
unnar við kynmökin. Stúlkan hefur
eftir atvikið þjáðst af ótta og hræðslu
við Guðmund Helga. Samkvæmt sál-
fræðingi hjá Barnahúsi hefur atvikið
valdið stúlkunni umtalsverðu and-
legu álagi og hún mun vera hrædd
við að vera einsömul.
Norski listmálarinn skuldar tugi milljóna í opinber gjöld:
Tollstjóri eltir Nerdrum
Tollstjórinn eltir Skorað hefur verið
á norska listmálarann Odd Nerdrum að
mæta fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur ella
hefjist gjaldþrotaskipti í félagi hans vegna
ógreiddra opinberra gjalda.
Tollstjóri mun krefjast gjaldþrota-
skipta á búinu Oddur N ehf., sem
er í eigu norska listmálarans Odd
Nerdrum. Þetta er gert þar sem toll-
stjóri telur félag Nerdrum, sem er
einkahlutafélag um listsköpun,
skulda rúmlega 43 milljónir króna
vegna ógreiddra opinberra gjalda.
Fyrirkall vegna gjaldþrotaskipta-
beiðninnar var birt í Lögbirtinga-
blaðinu á miðvikudaginn. Með
fyrirkallinu er skorað á Odd Ner-
drum sjálfan að mæta í Héraðs-
dóm Reykjavíkur þann 7. september
næstkomandi þar sem gjaldþrota-
skiptabeiðnin verður tekin fyrir. Ella
má búast við að krafan verði tekin til
greina og gjaldþrotaskipti hefjist.
Nerdrum sem er einn frægasti
og umdeildasti núlifandi listmálari
Noregs dvaldi hér á landi á árunum
2002 til 2007. Hann vann með Hrafni
Gunnlaugssyni að myndinni Myrkra-
höfðingjanum, en Nerdrum sá um
leikmyndagerð í myndinni sem kom
út árið 1999. Í viðtali við Morgun-
blaðið árið 1997 lýsti Nerdrum því
hvernig samstarf þeirra bar að en þá
höfðu þeir þekkst í yfir tíu ár. Í viðtal-
inu lét hann fleyg orð falla og sagði
meðal annars frá því að hann taldi
sig og Hrafn tvíburasálir og að hann
væri óvinsælli í Noregi en Hrafn væri
á Íslandi. Nerdrum fluttist svo nokkr-
um misserum síðar til landsins og
festi kaup á gamla bæjarbókasafninu
að Þingholtsstræti árið 2002. Þegar
Nerdrum keypti húsið árið 2002 hafði
honum lent saman við norska fjöl-
miðla og hét því að tala aldrei við þá
aftur. Fimm árum síðar seldi hann svo
Ingunni Wernersdóttur húsið þegar
hann ákvað að flytja aftur til Noregs.
gudni@dv.is
„Tímabært að snúa
sér að framtíðinni“
n Kirkjan greiðir fjórum konum sanngirnisbætur eftir að kirkjan brást þeim í
biskupsmálinu n Sigrún Pálína er sátt n Segir niðurstöðuna mikinn létti
„Ég er sátt við þetta sáttaferli sem
ég er að fara í gegnum. Maður getur
sagt að mér finnst ég vera að nálgast
endapunktinn núna,“ segir Sigrún
Pálína Ingvarsdóttir aðspurð hvort
hún sé sátt við þær sanngirnisbætur
sem kirkjan hefur boðist til borga
henni og þremur öðrum konum sem
leituðu til kirkjunnar eftir að hafa
verið áreittar kynferðislega af Ólafi
Skúlasyni biskupi.
Kirkjuþing skipaði í vor fimm
manna nefnd til að fylgja eftir skýrslu
rannsóknarnefndar en niðurstaða
skýrslunnar var að kirkjan hefði gert
mistök. Nefndin hefur haft sam-
band við konurnar fjórar sem eru í
skýrslunni, þær Sigrúnu Pálínu Ing-
varsdóttur, Stefaníu Þorgrímsdóttur,
Dagbjörtu Guðmundsdóttur og dótt-
ur Ólafs biskups, Guðrúnu Ebbu, og
boðið þeim sanngirnisbætur.
Hefur fengið uppreisn æru
Sigrún Pálína sakaði Ólaf Skúlason
um að hafa brotið gegn sér árið 1978
og er sú kona sem hefur drifið bisk-
upsmálið áfram síðustu sextán ár.
Fyrir vikið var hún fordæmd þar til
hún hrökklaðist til Danmerkur.
Sigrún Pálína segir mikinn létti
fyrir sig og fjölskyldu sína að brátt
sjái fyrir endann á málinu, en nefnd-
in mun funda með konunum fjórum
í dag og þá er vonast til að ásættanleg
niðurstaða fáist fyrir alla aðila. „Mér
er trúað og þetta samstarf mitt við
nefndina hefur gert að verkum að ég
er að nálgast þennan endapunkt. Ég
vona að eftir fundinn geti ég fari að
snúa mér að mínu eigin lífi. Það er
tímabært að snúa sér að framtíðinni
og græða sárin,“ segir Sigrún Pálína.
Aðspurð hvort hún sé sátt við að
Karl Sigurbjörnsson sitji enn sem
biskup segir hún það vera alfarið
mál kirkjunnar. „Það sem ég hef bar-
ist fyrir er að ég yrði tekin alvarlega,
mér yrði trúað og ég fengi uppreisn
æru. Mér finnst ég vera búin að ná
því fram.“
Þarf að draga lærdóm af málinu
„Það hefur verið unnið að sátt og það
er unnið að því ennþá. Liður í því er
að þær fái greiddar sanngirnis bætur,
segir Magnús E. Kristjánsson, for-
maður nefndar Kirkjuþings um við-
brögð við rannsóknarskýrslunni.
Hann segir nefndina vera að við-
urkenna ábyrgð á þeim móttökum
sem konurnar fjórar fengu þegar
þær leituðu til kirkjunnar. „Kirkjan
tók ekki nógu vel á móti þeim þegar
þær leituðu til hennar,“ segir Magn-
ús.
Varðandi upphæð bótanna segir
Magnús það vera undir konunum
sjálfum komið hvort þær vilji tjá sig
um hana. Hann segir nefndina ekki
nálgast konurnar sem sérstakan
hóp, heldur sem einstaklinga með
mismunandi þarfir og vinni út frá
því. Málið hefur verið í ákveðnu ferli
og vonast Magnús til þess að góður
áfangi náist í því ferli í dag. „Þetta
eru ekki nein lok á einhverju, held-
ur bara áfangar. Svona mál halda
áfram og við þurfum að halda áfram
að læra af þeim, bæta okkur og nýta
það sem læra má af þessu til að bæta
kirkjuna,“ segir Magnús.
„Það sem ég hef barist fyrir er
að ég yrði tekin alvarlega, mér
yrði trúað og ég fengi uppreisn æru.
Mér finnst ég vera búin að ná því
fram.
Málið í ferli Magnús E. Kristjánsson, for-
maður nefndar Kirkjuþings, segir mikilvægt
að nýta það sem má læra af málinu til að
bæta kirkjuna.
Uppreisn æru
Sigrún Pálína Ingvars-
dóttir segist sátt við það
sáttarferli sem hún er að
ganga í gegnum. Hún vill
nú snúa sér að framtíðinni
og græða gömul sár.
Hanna Ólafsdóttir
blaðamaður skrifar hanna@dv.is