Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.2011, Blaðsíða 44
44 | Tækni 22.–24. júlí 2011 Helgarblað
B
andaríska alríkis-
lögreglan, FBI, gerði
nokkrar rassíur á
þriðjudag í tilraun
sinni til að uppræta
hakkarahópinn Anonymous.
Verkefnið hefur þó reynst lög-
reglumönnunum þrautin
þyngri. CBS News sagði frá því
að FBI hefði ráðist inn á heim-
ili í New York-borg í Bandaríkj-
unum á þriðjudag og lagt þar
hald á tölvur og önnur tæki.
Sams konar húsleitir voru gerð-
ar á tveimur heimilum á Long
Is land og tveimur heimilum í
Brooklyn og Bronx.
Fjórtán hafa verið hand-
teknir vegna aðgerða lögregl-
unnar. Tilgangur aðgerðanna
er að uppræta hakkarahóp-
inn sem hefur valdið talsverð-
um usla víða um heim. Hefur
CNET News-tæknifréttasíðan
eftir heimildum að lögreglan
hafi allt í allt fengið heimild
fyrir húsleit á 40 stöðum vegna
rannsókna sinna á hópnum.
Stórt vandamál
Michael Chertoff, fyrrverandi
yfirmaður bandaríska heima-
varnaráðuneytisins, sagði í
síðasta mánuði að stærsta
vandamálið í baráttu stjórn-
valda við hakkarahópa væri
hversu sundurleitir hóparnir
væru oft. Anonymous-hópur-
inn er til að mynda samsettur
af fjöldamörgum einstakling-
um sem þekkjast ekki endilega
per sónulega nema í gegnum
tölvu. Snýst því barátta lög-
reglunnar ekki um að ná leið-
toga hópsins heldur að ná sem
flestum meðlimum hans.
Chertoff velti því líka upp
hvernig væri best og eðlilegast
að bregðast við árásum hópa á
borð við Anonymous. „Eigum
við að svara árásunum ef við
vitum ekki hvaða einstaklingar
stóðu á bak við hana ef við vit-
um hvaða server er notaður til
árásarinnar? Tökum við serv-
erinn niður í raunveruleikan-
um eða í netheimum? Þar er
og verður ekki skýr lína og við
munum kannski taka server-
inn niður í raunveruleikanum
eða í netheimum,“ sagði hann
um baráttuna gegn netglæp-
um.
Líka vandamál í Bretlandi
Breska lögreglan, Scotland
Yard, hefur ráðist í svipaðar
aðgerðir og bandaríska alrík-
islögreglan í baráttu sinni við
tölvuhakkara. Hefur breska
lögreglan þurft að berjast við
hópinn LulzSec um nokkurt
skeið. Fyrir um mánuði hand-
tók lögreglan Ryan Cleary, sem
er 19 ára, vegna tölvuglæpa en
á Twitter-síðu hakkarahópsins
sem hann var sagður tilheyra
voru send út skilaboð þar sem
sagt var að lögreglan hefði gert
mistök og að Cleary væri ekki
á bak við LulzSec-hópinn. Það
var hópur sem sérhæfir sig í að
leysa upp skipulagða glæpa-
starfsemi sem handtók dreng-
inn og þykja mistökin vera til
marks um hversu erfitt hefur
reynst að leysa upp hópana.
Aðalsteinn Kjartansson
adalsteinn@dv.is
Tækni
Lögreglan ræðst
gegn hökkurum
n Berjast við sundurleita hópa tölvuglæpamanna n Baráttan háð
um allan heim n Ekki nógu skýrt hvernig má berjast gegn glæpunum
Var í baráttunni Michael Chertoff,
fyrrverandi yfirmaður bandaríska
heimavarnaráðuneytisins.
Nafnlausir hakkarar Menn sem kenna
sig við hakkarahópinn Anonymous með
Guy Fawkes-grímur til að þekkjast ekki.
Efni frá CBS
á Amazon
Amazon hefur gert samning
við bandarísku sjónvarpsstöð-
ina CBS sem gerir fyrirtækinu
kleift að bjóða viðskiptavinum
sínum að streyma sjónvarps-
efni frá CBS í gegnum síðuna.
Verður þjónustan í boði endur-
gjaldslaust fyrir þá viðskiptavini
sem eru áskrifendur síðunnar
sem eru í Amazon Prime-hópn-
um. Boðið verður upp allt efni í
CBS-gagnagrunninum og er því
um virkilegt magn af sjónvarps-
efni og kvikmyndum að ræða.
Google kaupir
styttingarlén
Google hefur fjárfest í léninu
G.co til að nota sem opinbera
styttingu á netlénum sínum.
Algengt er að fólk notist við stutt
lén til að stytta lengri fyrirtækja-
lén. Aðeins ár er síðan .co-lén
voru fyrst boðin fyrirtækjum og
einstaklingum en síðan þá hafa
nær milljón slík lén selst. Meðal
fyrirtækja sem notast við léna-
endinguna eru Amazon, Over-
stock og Twitter.
Ný Galaxy-
spjaldtölva
Suðurkóreska tæknifyrirtækið
Samsung hefur sent frá sér nýja
og þynnri útgáfu af Samsung
Galaxy-spjaldtölvu. Spjaldtölv-
unni svipar enn mikið til iPad-
spjaldtölvunnar frá Apple en
miklar deilur eru á milli fyrir-
tækjanna um hin ýmsu mál er
varða líkindi Galaxy-línu Sam-
sung og iPhone- og iPad-vara
Apple. Tilkynnt var um útgáf-
una á miðvikudag.
Ný Mac-
Book Air
Apple hefur sent frá sér nýja og
endurbætta útgáfu af MacBook
Air. Nýja útgáfan kom út á mið-
vikudag en sama dag kom út ný
útgáfa af stýrikerfi fyrirtækisins,
OS X Lion. Kemur nýja Mac-
Book-Air tölvan tilbúin úr kass-
anum með nýja stýrikerfinu.
Nýja tölvan lítur nokkuð svipað
út og fyrri útgáfa en búnaðurinn
í henni hefur verið uppfærður.
A
mazon hefur hrint af
stað opinni netversl-
un þar sem nemend-
um gefst tækifæri á að
leigja sér skólabækurnar. Er
um að ræða eins konar ský-
þjónustu þar sem nemend-
um gefst tækifæri á að vista
glósurnar sínar á miðlægu
neti. Þannig komast þeir upp
með að vera með nær ein-
göngu Kindle-lestölvu í skól-
anum en stefnt er að því að
bjóða tugþúsundir kennslu-
bóka á markaðssvæðinu.
Ekki eru nema nokkrar
vikur síðan suðurkóresk
stjórnvöld tilkynntu um
áform sín um að hætta að
nota skólabækur í skólum
landsins og nota spjaldtölv-
ur, sem að nokkru leyti svip-
ar til lestölva, í kennslu í
staðinn. Svipar áætlun suð-
urkóreskra stjórnvalda til
þeirrar sem Amazon hefur
fyrir bandarískan markað en
Amazon er þó á eigin veg-
um en ekki á vegum opin-
berra aðila. Mun það því lík-
lega taka talsvert lengri tíma
að koma netskólabókum í al-
menna umferð í Bandaríkj-
unum en Suður-Kóreu.
Með því að leigja bæk-
urnar í gegnum Kindle Store
í stað þess að kaupa þær í
hefðbundnum bókaversl-
unum geta nemendur spar-
að allt að 80 prósent. Þetta
kemur fram á vefsíðu
Kindle Store, þar
sem skóla-
bækurn-
ar eru til
sölu.
Kindle-
lestölvurnar eru
með mest seldu les-
tölvum í heiminum í dag en
slíkar tölvur hafa notið gíf-
urlega aukinna vinsælda að
undanförnu. Spjaldtölvur á
borð við iPad og Samsung
Galaxy hafa líka náð ótrúlega
góðri fótfestu á stuttum tíma
og er ljóst að útspil Amazon
mun líklega koma sér vel fyr-
ir marga nemendur í Banda-
ríkjunum.
n Amazon orðið hálfgert bókasafn
Leigðu skólabækurnar
Kindle-lestölva
Kindle-lestölvurnar frá Apple
eru einar mest seldu lestölvur í
heiminum í dag og er nú hægt að fá
skólabækurnar í slíkar tölvur.
MyNd AMAzoN