Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.2011, Blaðsíða 38
38 | Fókus 22.–24. júlí 2011 Helgarblað
Hvað ertu að gera?
mælir með...
KVIKMYND
Harry Potter and the
Deathly Hallows: Part II
„Það er í raun lygilegt hversu vel heppnaðar
myndirnar um Harry Pott er hafa verið […] eftir
stendur ein magnaðasta kvikmyndasería
sögunnar í Hollywood.“ - Jón Ingi Stefánsson
BÓK
Skurðlæknirinn
„Skurðlæknirinn er hröð
og spennandi lesning.“ -
Kristjana Guðbrandsdóttir
HLJÓMPLATA
Ég vil fara
upp í sveit
Helgi Björns og
reiðmenn vindanna
„Aðdáendur fyrri platna þeirra verða ekki
sviknir og fólk á örugglega eftir að skemmta
sér einstaklega vel áfram á knapaböllum með
Helga í broddi fylkingar.“ - Birgir Olgeirsson
Gísli Galdur Þorgeirsson plötusnúður
Hvað ertu að lesa núna?
„Ég er að reyna að klára „Bob Dylan
Chronicles, volume 1“ og síðan er ég alltaf
gluggandi í „Sound on Sound“ blaðið.“
Hvaða tónlist er í uppáhaldi þessa
dagana?
„Townes Van Zandt og nýja platan með
Humanwoman!“
Hvaða vefsíður skoðar þú mest?
„Ætli það séu ekki bara svona týpískar síður
eins og gmail, facebook, visir.is, titsinthes-
hade.com og síðan kannski gearslutz og
medialux.com.“
Hvert er uppáhaldskaffihúsið þitt?
„Það fer nú eftir því hvort við erum að tala
um kaffi eða bjór! Kaffismiðjan, Kaffitár,
Prikið (alltaf klassískt), Laundromat og
Kaffibarinn sem dæmi.“
Hvað ætlarðu að gera um helgina?
„Spila í útgáfupartíi hjá Steinda á föstudag
og síðan er pabbahelgi á Kaffibarnum á
laugardeginum. Ég fer örugglega líka út á
róló með Bríeti og kannski fáum við okkur
svo ís ef sumir eru stilltir.“
Fer út á róló
með Bríeti
mælir ekki með...
BÓK
Engan þarf
að öfunda
eftir Barböru Demick
„Fyrir áhugafólk um framandi menn-
ingarheima eða Norður-Kóreu ætti
bókin að vera skyldulesning þrátt fyrir
hversu illa þýdd hún er.“ - Aðalsteinn
Kjartansson
T
veir litlir hundar, Palli og
Pilla, koma á móti gestin-
um. Þefa. Dilla rófunum.
Eigandi þeirra, Yrsa Sigurð-
ardóttir rithöfundur, heilsar
hlýlega.
Hún býður til sætis við borð-
stofuborðið. Hundarnir gefa stund-
um frá sér hálfgerðar hrotur. Glað-
vakandi.
Yrsa hitar vatn og býður upp á
blóðrautt te. „Þetta er ávaxtate sem
ég keypti í Bretlandi,“ segir rithöf-
undurinn sem ferðast mikið þar
sem bækur hennar eru gefnar út í
rúmlega 30 löndum.
Heimili Yrsu stendur nálægt haf-
inu og skín sumarsólin á hafflötinn.
Hafið leikur stórt hlutverk í nýjustu
bókinni sem kemur út síðar á árinu.
„Þetta er Þóru-bók,“ segir Yrsa en
sögupersónan Þóra Guðmunds-
dóttir er í aðalhlutverki í flestum
spennusögum hennar.
„Snekkju rekur mannlausa að
landi, á henni höfðu verið íslensk
fjölskylda og tveggja manna áhöfn.
Það þarf að finna út úr því hvað hef-
ur orðið um fólkið og í bókinni er
flakkað fram og til baka í tíma.“
Hafið. Yrsa er mikið fyrir haf-
ið. „Mér líður aldrei almennilega
vel nema að vera niðri við sjó. Mér
finnst skemmtilegast að fara í frí ef
ég er nálægt sjó eða vatni. Ég er svo
vön hafinu.“
Hún hefur þó ekki alltaf búið
þar sem hafið er í næsta nágrenni.
Yrsa er byggingaverkfræðingur að
mennt og stundaði framhaldsnám í
Kanada – inni í miðju landi þar sem
ekkert var hafið heldur lítil á. „Það
hjálpaði til,“ segir hún og brosir.
Spennan
Hvað með bækurnar sem hún las í
æsku? „Ég las alltaf rosalega mikið
og sérstaklega sem barn. Þegar ég
var 12 ára bjó ég til lista og mark-
miðið var að lesa eina bók á dag.
Ég náði því næstum því en ég fór
að lesa Á hverfanda hveli, sem er
um 400 blaðsíður, og það eyðilagði
allt.“
Spennan og hryllingurinn í
heimi bókanna heillaði fljótlega.
Um uppáhaldsbókina á þessum
tíma segir Yrsa: „Ég man ekki hvað
bókin heitir en hún er um dreng
sem sígaunar rændu. Herbergi er
lýst þar sem einhver hafði verið
drepinn og það var ekki hægt að
má blóðblett á vegg í burtu. Það er
sérstaklega minnisstætt, það var
alltaf þessi blettur á veggnum.“
Henni fannst líka gaman að lesa
bækur eftir Enid Blyton og hún las
ástarsögur á tímabili á unglingsár-
unum; hún segist ekki hafa gert það
síðan. „Svo fannst mér gaman að
lesa ævintýrabækur um Bob Moran
sem barðist við gula skuggann.“
Stúlkuna sem las Á hverfanda
hveli á meira en einum degi, las
ástarsögur um tíma og bækur um
ævintýri Bobs Moran langaði til
að verða stjörnufræðingur. „Marg-
ir rugluðu því saman við stjörnu-
speki og það fór svo í taugarn-
ar á mér að það drap niður þann
áhuga.“
Unglingsárin: Stephen King var
mikið lesinn sem og bækur eftir
John Saul. Báðir höfðu hryllinginn
í hávegum. „Svo las ég líka glæpa-
sögur.“
Yrsu finnst einfaldlega gam-
an að glæpa- og hryllingssögum.
„Þetta er kannski ákveðinn flótti
frá raunveruleikanum; sérstaklega
í hryllingsbókmenntum. Svo hafði
ég gaman að vísindaskáldsögum
um tíma.“
Pilla leggst allt í einu á bakið
undir borðstofuborðinu og baðar
út öllum skönkum hin ánægðasta.
Barnabækurnar
Tíminn leið, stúdentshúfan var
komin á kollinn og Yrsa hóf nám
í byggingaverkfræði eins og þeg-
ar hefur komið fram. Eftir að heim
kom tóku við ár þar sem athyglin
var á starfinu og fjölskyldunni – eig-
inmanninum og syninum.
Nýtt líf kviknaði árið 1996 og
þegar Yrsa beið eftir að dóttir-
in kæmi í heiminn ákvað hún að
prófa að skrifa. Hún skrifaði sögu;
þá fyrstu. Sagan lengdist og úr varð
bókin Þar lágu Danir í því. Þetta var
árið 1998.
Af hverju var hún ekki búin að
skrifa neitt áður? „Þetta hvarfl-
aði ekki að mér fyrr en þarna. Ég
hafði lesið lélega barnabók fyrir son
minn og mér fannst þetta hálfdap-
urlegt. Mér fundust ævintýrabækur
skemmtilegastar þegar ég var lítil
og ákvað að prófa að skrifa ævin-
týrabók.“
Næstu ár komu út fimm barna-
og unglingabækur til viðbótar: Við
viljum jólin í júlí, Barnapíubófinn,
Búkolla og bókaránið, B 10 og Bio-
börn. Yrsa hlaut viðurkenningu
IBBY-samtakanna fyrir bókina Við
Milljón
eintök
seld
Yrsa Sigurðardóttir rithöfundur skapar um þessar mundir nýjan heim,
nýjan glæp og nýjar persónur. Handhafi Blóðdropans, bókmenntaverðlauna Hins
íslenska glæpafélags, talar um bókmenntirnar sem hún las í æsku, á unglingsár-
unum og um sínar eigin bækur.
Yrsa Sigurðardóttir „Þær eru spennandi, þéttar og pínulítið óhugnanlegar – ég vona það allavegana. Ég vil að fólk njóti þess að lesa
bækurnar og geti flúið svolítið hversdagsleikann í þann tíma sem það tekur að komast í gegnum þær og að það séu einhver atriði í þeim sem
vekja það kannski til umhugsunar.“
„Það er mjög erfitt að
vera alltaf fyndin.
Svava Jónsdóttir
Viðtal